Morgunblaðið - 22.06.1997, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ1997 27
ICELANDIC
LOFTLEIDIfí
fsv a
o.**+< t. n*i i* h>r t m:j , V? :
u *. f-}
’V >*•*>« V«tt« W .-.
’ "'•**’«'* K vm ^
• *s,) j i —1| tt,
• *'»'**»«*•*
'** *** * “•**•'*»<•**
iQwrv?<cosf tou*
*» t» te*«»S.<8„
«t**«*W’* «« r»w)
** *’fW* •"*»»*■ IHJ-M-, t«r* v«*
ICELANDIDAjfíUHEs
íívrjMmn
24 HOURS STOPOVER
*<., » |)0
O.s.s 15.00
jSTOPo'VER
**10 INJOY
A’ l’í
kuxEmbaurn
w r»ft Ar .... 21;
HlMll ()r 1US0P1
1
FYRSTU bæklingarnir
Það er alveg sama hvað þú ert
sniðugur, sama hve hugmyndin
er góð. Ef þú auglýsir ekki, þá veit
enginn af þér og þá kemur
enginn til þín
laxveiðiáa áttu í miklum vandræð-
um með að selja veiðileyfi. Það
voru aðallega útlendingarnir sem
hættu að koma. Bandaríkjamenn-
irnir voru þar fjölmennastir og
flykktust til Rússlands. Þá var það
Landssamband veiðifélaga sem bað
mig um að hanna og prenta kynn-
ingarefni um nokkrar ár sem ég
gerði. Þetta var litprentuð lausblað-
amappa, hógvær að útliti, en
byggðist á fallegum myndum og
stuttum hnitmiðuðum textum.
Þessar möppur voru síðan sendar
á veiðiklúbba í útlöndum. Niður-
staðan var sú að feiknakraftur
færðist í sölumálin.
Maður einn sem er með ferðir í
Lónsöræfi leitaði til mín, hjón sem
reka ferðabíla og fara með ferða-
menn um land allt og fleiri og fleiri.
Ég á myndir nánast af öllu landinu
og fólk leitar til mín. Ég tel mig
kunna þetta fag og byggi það á
þeirri svörun sem ég fæ. Fólk hef-
ur samband og lýsir ánægju sinni
með þann árangur sem bækling-
arnir skila. Nýjasta dæmið er nokk-
uð glæfralegt, þá hringdi í mig
maður 25. október síðastliðinn og
bað mig um að útbúa fyrir sig
kynningarefni. Hann ætlaði að
reisa það sem heitir núna Hótel
Vatnajökull, en það var aðeins
búið að steypa grunninn og ég
spurði hann hvort hann væri brjál-
aður, en hann sagði, „Rafn, ég
má til, ég verð að sýna eitthvað!"
Síðan settumst við niður og teikn-
uðum hótelið í tölvunni, bæklingur-
inn kom út, hótelið var opnað 14.
júní og ég veit ekki betur en að
það sé vel bókað alla daga!
Ég vinn auk þess svona efni
fyrir nokkur sveitarfélög, en samt
skil ég ekki tregðu margra sveitar-
og bæjarfélaga að leggja fram fé
til kynningar á útivistar- og ferða-
möguleikum síns svæðis. Slíkt
myndi efla atvinnulífið og auka
tekjur sveitarfélagsins. .
Allir þeir sem byggja lífsafkomu
sína að einhvetju leyti á ferða-
mennsku eiga að taka þátt í land-
kynningu, t.d. með eigin útgáfu á
kynningarefni eða í samvinnu með
öðrum. Má þar nefna olíufélögin,
hótelin, veitingastaðina, áætlunar-
bflana, bílaleigurnar, hestaleigurn-
ar og ekki hvað síst allar minja-
gripaverslanirnar sem gætu lagt
landkynningunni lið með því að
lækka álagningu á póstkortunum
og selja því meira. Heildsöluverð á
póstkortum hefur ekki hækkað í 4
ár, þau kosta í dag kr. 21.80, en
kr. 29 þau stærri. Þau eru síðan
seld á kr. 50 og kr. 60 þau stærri.
Þetta er hundrað prósent álagning
og óvíða er álagning meiri en ein-
mitt á póstkortum.
En rauði þráðurinn er þessi: Það
er alveg sama hvað þú ert sniðug-
ur, sama hve hugmyndin er góð.
Ef þú auglýsir ekki, þá veit enginn
af þér og þá kemur enginn til þín.
Það er sagt að myndir eftir þig
hafi birst í blöðum, tímaritum og
sýningum um heim allann. Er það
ekki góð aukabúgrein í fyrirtæk-
inu?
„Ég verð að segja að ég fæ allt
of lítið fyrir myndbirtingar og í
mjög mörgum tilvikum fæ ég hrein
sníkjubréf að utan þar sem fulltrú-
ar blaða og tímarita eru að biðja
mig um myndir og láta þess getið
að ef birtingin verði ekki endur-
gjaldslaus þá verði þeir annað hvort
að sleppa henni eða að notast við
myndir úr alfræðibókum.
Mjög oft er það ferðamálaráð
sem vísar þessu á mig því ráðið á
sjálft ekkert myndasafn þótt ótrú-
legt sé. Að vísu lét ég Ferðamála-
ráð fá 70 myndir fyrir áratug, en
margar þeirra eru úreltar og það
hefur ekki verið óskað eftir end-
urnýjun. Ekki einu sinni svarað til-
boði þar að lútandi.
Ég er kannski of linur, en ég læt
menn gjaman hafa myndir þó að
svona sé í pottinn búið. Ég vil deila
íslandi með öðrum og vil taka þátt
í gagnmerku landkynningarstarfi,
en ég viðurkenni að þetta er á
stundum hvimleitt.“
Það má lesa úr þessum orðum
dálitia ádrepu á Ferðamálaráð.
Færðu ekki bara einhver verkefni
hjá þeim í staðin?
„Nei, engin,“ svarar Rafn stutt
og laggott og blaðar í leiðinni í
kynningarblöðum frá UNESCO,
EFTA og fleiri fyrirtækjum og
stofnunum og sýnir myndir eftir
sig.
Þú hefur þá lifibrauðið af bækling-
um og póstkortum?
„Já, Litbrá tekur raunar að sér
margs konar verkefni eins og ég
kom að áðan, en kortin eru stærst.
Við hjónin vorum að koma úr fyrstu
hringferðinni af fjórum um landið
sem við þurfum að fara á hveiju
sumri til að byrgja upp sölustað-
ina. Þeir skipta tugum og eru um
land allt. í gegnum árin eru útgáf-
urnar orðnar eitthvað um 700 tals-
ins. Það er nóg að gera, meira en
nóg, en samt má aldrei slá slöku
við á vaktinni," eru lokaorð Rafns
Hafnfjörð.
Auglýsing
FRÉTTABRÉF FRÁ
HEIMSKLÚBBNUM
Það er ekki tilviljun sem ræður að fleiri og fleiri
snúa sér til HEIMSKLÚBBS INGÓLFS &
PRÍMU, þegar vanda á til ferðalaga. Reynslan
sýnir að ferðir Heimsklúbbsins eru öruggar og
ódýrar en í hærri gæðaflokki en gerist, svo að
við nefnum þær BETRI FERÐIRNAR.
Flestar skipulagðar hópferðir ársins eru því sem
næst uppseldar, en fjöldi beiðna um þjónustu
fyrir sérhópa á næsta ári eykst með hverjum
dégi. Vissirðu, að auglýstar ferðir Heimsklúbbsins
eru nú aðeins um einn fjórði af viðskiptum hans
og veltu? Sérferðirnar eru orðnar gildasti
þátturinn, viðurkenndar fyrir faglega þjónustu,
byggða á reynslu og samböndum, sem tryggja
besta verð og þjónustu um allan heim, en
sérferðirnar koma aldrei fyrir augu almennings.
Farið nú að huga að ferðum næsta vetrar og
næsta árs. Nú þegar eru í undirbúningi ferðir
sérfræðinga á þing í Ástralíu á næsta ári, ferðir
kennara til að kynnast menningu og mannlífi í
Austurlöndum, menningarferðir innan Evrópu
fyrir kóra, listunnendur og ýmis félagssamtök
og klúbba. Gleymið heldur ekki hinum vinsælu
siglingum og dvöl á eyjum Karíbahafs með betri
aðstöðu fyrir gestinn en áður hefur þekkst, þar
sem Heimsklúbburinn er í lykilaðstöðu vegna
sambanda sinna. Lykillinn að góðu ferðalagi
fylgir skipulagi okkar, hann fæst í viðskiptum
við Heimsklúbb Ingólfs, en það er allra hagur
að panta snemma.
LAUS SÆTI
Á NÆSTUNNI:
USTATÖFRAR ÍTALÍU
9. ÁG. 2 FORFALLAS.
TÖFRAR 1001 NÆTUR
í AUSTURLÖNDUM
4SÆTI
Verið
velkomin.
FERÐASKRIFSTOFAN
Austurstræti 17, 4 hæð , 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564
I
meiriþœgindi-meiri íburður-meiri gœði
HEKLA
' TS3T
MITSUBISHI
■t ntikhmi nhimn 1