Morgunblaðið - 22.06.1997, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ1997 41
_________BRÉF TIL BLAÐSIIMS___
Vöm gegn umhverfissamtökum
Frá Jóni Pálma Pálmasyni:
NÚ ER stærsta ógnin við lífríki
íslands umhverfissamtök ýmiskon-
ar. Þar ræður almenn fáfræði sem
er stjórnað af nokkrum einstakling-
um íslenskum sem erlendum. Ef
við ætlum að vera fiskútflutnings-
þjóð áfram og jafnvel vaxa í því
sambandi verðum við að byggja
upp almennan trúverðugleika á að
við misbjóðum hvorki náttúru né
náttúruauðlindum svo sem lífríki
sjávar og gera það þannig að ekki
verði um villst að vel sé að málum
staðið.
Vil ég að sett sé á stofn vottunar-
stofnun sem myndi hljóta samþykki
sem flestra með tíð og tíma og sé
þessi stofnun íjárhagslega sjálf-
stæð og gefi út umhverfisvæna
stimplun þá helst í formi merkimíða
á umbúðir sem eingöngu sá aðili
fær sem er ekki að nýta ofveidda
stofna og yrði að stíla nokkuð inn
á Hafrannsóknarstofnun í því sam-
bandi. Þessi vottun yrði að vera svo
ströng að til dæmis fiskur úr Bar-
entshafi fengi hana ekki eins er
með þann fisk sem er ekki innan
sjálfbærrar nýtingar hér við strönd-
ina og eru það allmargir stofnar
sem er gengið á og eru þar af leið-
andi ekki sjálfbærir.
Þetta fyrirkomulag yrði mjög
gott að kynna erlendis í söluátökum
og þá gott að geta bent á merki á
vörunni sem sannar þessa vottun.
Merki vottunarstofunnar myndi
segja í stuttu máli frá því fyrir
hvað það stæði á viðkomandi
tungumáli og því að vinnsluferlið
sé umhverfisvænt og að orkan sé
náttúruvæn en ekki olía eða kjarn-
orka. Þessi stofnun getur ekki vott-
að heilu sölusamtökin, en einstaka
aðila innan þeirra er hægt að votta
og geta stóru sölusamtökin sett
þessi skilyrði um sér merkta vöru.
Þessari vottunarstofu væri sett
það eina takmark að vera hærra
skrifuð heldur en þau umhverfís-
samtök sem eru farin að taka að
sér að mæla með einni vöru en
fordæma aðra, sem er eingöngu
gert í drottnunarskyni, og með því
að byija nógu snemma getum við
kannski varist því að ráðist sé á
allar okkar sjávarafurðir og þær
gerðar tortryggilegar í augum al-
mennra neytenda. Stóru samtökun-
um myndi ekki líðast það að ráðast
á önnur sem eru í að votta sam-
bærilega hluti en gerðu það bara
ýtarlegar.
Nú er þetta næsta fjáröflunar-
leið umhverfissamtaka víða um
heiminn að fá greitt fyrir vottun
um hitt og þetta og ef við byijum
að borga verður ekki aftur snúið
og við verðum alltaf háðir duttlung-
um þeirra en ef við höfum okkar
eigin stofnun sem nýtur trausts
víða um heiminn og þolir að vera
skoðuð ofan í kjölinn af öðrum
samtökum hljótum við að geta var-
ið þessa hagsmuni okkar betur og
kannski nýtt okkur herferðir þeirra
erlendis í auglýsingaskyni fyrir
okkur til dæmis auglýsing sem
hefur komið á sjónvarpsstöðinni
MTV þar sem tveir sjómenn eru
að keppast við að ná síðasta fiskin-
um úr fjörunni hún myndi virka
vel á undan annarri sem benti á
að fiskur svona merktur sé alltaf
af sjálfbærum stofnum frá íslandi.
Svona herferð myndi draga tenn-
urnar úr auglýsingaherferð ofstæk-
ishópa vegna þess að við myndum
ná því fram sem þeir ætluðu að
auglýsa seinna fyrir sig og þar af
leiðandi nota þeirra auglýsingar
fyrir okkur.
En þetta kostar líka allt peninga
og ekki er til áhættufjármagn á
íslandi svo að við getum starfað
með öðrum þjóðum a.m.k. hér á
Norðurlöndum þar sem við á með
rétta vottun hveiju sinni.
Ef stjórnvöld styddu við þetta
til að koma því á stað og á fram-
færi erlendis myndi þetta ná al-
þjóða viðurkenningu á fáum árum
og þá ýta öðrum út sem hafa það
eitt í hyggju að mjólka peninga út
á stimpil sem á að verða dýrari og
dýrari með hverju ári. Þeir eru nú
þegar byijaðir að bjóða vottun gegn
vægu gjaldi og eru bara að flokka
úr fyrirtæki sem eru sér þóknanleg.
Ef ekki verður aðhafst verður
ómögulegt í náinni framtíð að selja
fisk nema með vottun frá umhverf-
issamtökum og eigum við að vera
upp á þá komnir eins og reynsla
okkar af vinnubrögðum þeirra er í
hvala-, sela- og nú bræðslufisks-
málinu. En allur bræðslufiskur er
ofveiddur að þeirra mati.
Með tíð og tíma getur svona
stofa orðið sjálfri sér nóg um fjár-
magn en fyrst í stað þarf að aug-
lýsa upp fyrir hvað vottað er og
um áreiðanleika stofnunarinnar en
svo gerist þetta að sjálfu sér þegar
fyrirtæki eru með söluátak erlendis
og vitna í að þeirra vara sé vottuð
bæði sem umhverfisvæn og sjálf-
bær af virtri vottunarstofu.
Tel ég að það þurfi að setja svona
stofnun á laggirnar núna á þessu
ári og svo þarf að fara yfir það
með erindrekum okkar sem fara
erlendis á vegum opinberra stofn-
ana hvernig kynna skal þessa
stofnun og innanlands koma af stað
umræðu um þessi mál á sem víð-
ustum grundvelli. Stóru sölusam-
tökin geta haft hag af því að styðja
við þetta þar sem það hlýtur að
vera auðveldara að kynna sig sem
umhverfisvæn en að fá á sig ein-
hvern óhróður síðar og þá að þurfa
að þvo af sér skítinn með misjöfn-
um árangri.
Og vildi ég nú sjá einhveija
framsýni af hálfu þeirra sem málið
snertir. Þessi vágestur sem erlendu
umhverfissamtökin eru er ekki orð-
inn mjög sýnilegur hérlendis enn,
en stækkar örugglega hratt eða
hver man ekki eftir því að hvalaum-
ræðan fór líka hægt af stað og
virtist bara ofstopi nokkurra
manna og hefði betur verið brugð-
ist rétt við þá.
Ég skrifa þetta bréf í þeirri von
að við íslendingar sjáum að við
getum stjórnað umræðunni í þess-
um málum og er þá vel.
JÓN PÁLMIPÁLMASON, vélstjóri.
Gerðhömrum 17, 112 Rvík.
Hófgerði - Kópavogi - Einbýli
Til sölu lítið einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr,
samtals um 115 m2. Húsið skiptist í forstofu, hol,
stofu með suðurgluggum, tvö herbergi, eldhús og
baðherbergi. Parket. Húsið er klætt að utan með
Steni-klæðningu. Stór lóð um 900 m2. Mjög gott
umhverfi fyrir börn. Stutt í skóla. Laust 1. júlí nk.
Ekkert áhvílandi. Verð 8,9 millj.
Spítalastígur - Rvík/2ja herb.
Snotur og björt 2ja-3ja herb. um 50 m2 efri hæð
ásamt geymslurisi og 1/2 kjallara í bárujárnsklæddu
timburhúsi. Sérinngangur. íbúðin er talsvert endur-
nýjuð. Hátt til lofts. Stór, gróin lóð. Mikið áhv.
Verð: Tilboð.
Reynsla oö pers*
OPIÐ HÚS í DAG!
BOÐAGRANDI 6
Glæsileg 3ja herb. 90 fm íbúð á 3. hæð í stand-
settu vel staðsettu húsi með góðu útsýni. Parket á
flestum gólfum. Gott skipulag.
Sjón er sögu ríkari.
Áhv. 3.580 þús. Verð 7,8 millj.
Laufey ogTómas taka á móti þér
og þínum í dag milli 14 og 17.
GIMLI GIMLI GIMLI
OPIÐ HUS I DAG!
FANNAFOLD 173 - EINBÝLI
Glæsilegt 159 fm einbýli á einni hæð ásamt 43 fm
bílskúr. Húsið er mjög vel staðsett innst í botn-
langa. Glæsilegt og óvenju stórt eldhús með
vönduðum tækjum. 4 góð sefnherbergi. Nánast
fullbúin eign.
Líttu á verðið! 13,2 millj. Áhv. Byggsj. rík. og
önnur mjög hagstæð lán, alls kr. 7,7 millj.
Halldór og Sigrún taka á móti þér og þínum
í dag milli kl. 13 og 17.
GIMLI GIMLI GIMLI
Frábær fyrirtæki
Farfuglaheimili á Stór-Reykjavíkursvæðinu,
húsnæði og rekstur.
Veitingastaður í Fenunum,
sem byggir á íssölu og hamborgurum. Gott verð, laus strax
Pizzastaður,
mjög góð staðsetning, góð velta, allt í fullum rekstri. Góð af-
koma, miklir möguleikar
Veitingastaður í miðborginni.
Tekur 125 manns, mjög vinsæll og vaxandi. Verð 7 millj.
Vinsæll matsölu- og vínveitingastaður til sölu í miðborginni.
Mjög þekktur og mikill annatími framundan
Fataverslun á einum fjölmennasta verslunar-
stað landsins,
er með eigin innflutning. Tilheyrir stórri verslunarkeðju á
Norðurlöndum.
Fyrirtæki tengt fiski, kvótasala.
SUÐURVE R I
SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
VESTURBÆR - KÓPAVOGI
Nr. 8425. Glæsilegt og vandað einbýli/tvíbýli við Huldubraut,
Kópavogi. í húsinu eru tvær sjálfstæðar íb. með sérinngangi og
innbyggðum bílskúr. Stærð samtals 365 fm. Eignin getur selst í
einu eða tvennu lagi. Allar nánari uppl. á skrifstofu.
SKAFTAFELL V/NESVEG
Nr. 6576. Steinsteypt 97 fm einb. á tveimur hæðum við Eiðistorg
Húsið er talsvert endurnýjað, gler og gluggar, eldhús o.fl. Ath.
skipti á lítilli íbúð möguleg. Áhv. 2,3 millj. byggsj. Verð 7,2 millj.
Kjöreign
Ármúla 21, sími 533 4040,
Dan V.S. Wiium, hdl., lögg. fasteigna sali.
Opið í dag frá kl. 12-15.
EK3NAMIÐLUMN
Sími ö}{{{ 9090 • Fax S»}{ 9095 • Síðmm'ila 2 I
!
j
Selvogsgrunn - Glæsieign
Þetta einstaklega vandaða einbýlishús á einum af eftirsóttustu
stöðum borgarinnar er nú til sölu. Hér er um að ræða eign í
sérflokki. Skipulag hússins er bæði glæsilegt og hagnýtt en
það er teiknað af Skarphéðni Jóhannssyni. Á fyrstu hæð eru
m.a. glæsilegar stofur með arni, bókaherbergi sem og mjög
gott eldhús með vönduðum tækjum. Á annarri hæð eru m.a. 3.
svefnherbergi með snyrtingu og auk þess hjónaherbergi með
baðherbergi og fataherbergi innaf. Mjög rúmgóðar suðursvalir
eru útaf annarri hæð. Glæsilegur stigi er á milli hæðanna.
Möguleiki er á 2-3ja herbergja íbúð með sérinngangi I kjallara.
Glæsilegur gróinn garður. Verð 24,9 millj. 7069.