Morgunblaðið - 24.07.1997, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bidlistar eftir kransæðavíkkun eða hjartaþræðingu á Landspítalanum
Undantekning ef bið-
tíminn er sex mánuðir
Hjartaaðgepðip, knansæðavíkkanir og krans-
æðaþræðingar á Ríkisspítölum 1992-1997
Opnar hjartaaðgerðir Kransæða- víkkanir Hjarta- þræðingar
1992 254 161 597
1993 248 219 617
1994 267 230 497
1995 243 340 600
1996 228 347 570
1997 áætlun 250 400-500 600-700
Biðiisti fullorðnir 51 60-70 rúml. 100
Biðlisti börn 9
Aðg. á viku nú 5* aðeins bráðatilf. aðeins bráðatilf.
Aðg. á viku haust 6-7* 6-10 15
'auk bráðaaðgerða Heimild: RklSSPlTALAR
MEÐALBIÐTÍMI eftir kransæða-
víkkun eða hjartaþræðingu á
Landspítalanum er um tveir mán-
uðir. Aðeins í undantekningartil-
vikum ef sjúklingur hefur farið á
biðlista rétt áður en dró úr starf-
seminni yfir hásumarið er mögu-
legt að biðin fari upp í sex mán-
uði, segir Ingólfur Þórisson, að-
stoðarforstjóri Ríkisspítalanna.
Ingólfur segir að vel sé fylgst
með sjúklingum á biðlistum og allt-
af veitt bráðaþjónusta. Hins vegar
hafi ekki verið tekið af 60 til 70
manna biðlista í kransæðavíkkanir
og rúmlega 100 manna biðlista í
hjartaþræðingar í sumar. Sjúkra-
húsið gerir ráð fyrir að 6 til 10
kransæðavíkkanir og 15 hjarta-
þræðingar verði gerðar á viku í
haust. Með sérstöku átaki er
mögulegt að gera allt upp í 10
hjartaþræðingar á dag.
Kransæðavíkkanir voru 161 árið
1992 en gert er ráð fyrir á bilinu
400 til 500 í ár. Hjartaþræðingar
voru um 597 árið 1992 en gert er
ráð fyrir 600 til 700 í ár.
Óskað eftir auknu fjármagni
Fram kom að forstjóri Ríkisspít-
alanna hefði lýst yfír áhyggjum
sínum vegna væntanlegrar leng-
ingar biðlista í opnar hjartaaðgerð-
ir í bréfi til heilbrigðisráðuneytisins
4. júní sl. Bent var á að koma
mætti í veg fyrir lengingu biðlista
með aukinni fjárveitingu en á þeim
tíma var gert ráð fyrir að gerðar
yrðu 4 opnar hjartaaðgerðir á viku
yfir sumartímann. Fjármagnið
fékkst ekki og Ingólfur segir að
ástandið hafi verið heldur skárra
en haldið hafi verið því reynst hafi
unnt að gera 5 aðgerðir á viku.
Nú er meðalbiðtími eftir opinni
hjartaaðgerð um tveir og hálfur
mánuður. Ef bráðaaðgerðir eru
margar lengist biðtími annarra á
biðlistanum.
Alls er 51 fullorðinn og 9 börn
á biðlista eftir opinni hjartaaðgerð
á Landspítalanum. Af fullorðnum
eru 24 67 ára eða yngri og 30 70
ára og eldri. Alls hafa verið fram-
kvæmdar 140 opnar hjartaaðgerðir
á árinu eða 12 fleiri en á sama
tíma f fyrra. Alls hafa verið gerðar
á bilinu 228 til 267 opnar hjartaað-
gerðir á ári á Landspítalanum frá
árinu 1992. Væntanlega verða
gerðar 6 til 7 opnar hjartaaðgerðir
á viku í haust. Samanlagt er gert
ráð fyrir að gerðar verði 250 opn-
ar hjartaaðgerðir á sjúkrahúsinu í
ár. Opin hjartaaðgerð á fullorðnum
kostar um 800.000 kr. og barni
um 1.700.000 kr. Kransæðavíkkun
kostar á bilinu 260.000-400.000
kr. og fer verðmunur aðallega eft-
ir því hvort æðar eru fóðraðar eða
ekki. Hjartaþræðing kostar 85.000
kr. Samanlagt kostar um 90 millj-
ónir að eyða biðlistunum þremur í
opnar hjartaaðgerðir, kransæða-
víkkanir og hjartaþræðingar.
Skortur á fé til tækjakaupa
Ingólfur tók fram að áætlanir
gerðu ráð fyrir að ný hjartarann-
sóknarstofa yrði tilbúin 18. ágúst.
Hins vegar hefði án árangurs ítrek-
að verið óskað eftir rekstrarfé til
rannsóknarstofunnar og fjölgunar
kransæðavíkkana. Fé til tækja-
kaupa væri af skornum skammti
og þyrfi fjárframlagið a.m.k. að
vera tvöfalt hærra en nú. Núver-
andi hjartaþræðingartæki væri
t.a.m. frá árinu 1984. Tækjakost-
inum mætti líkja við tölvubúnað
og vildu víst fæstir vera að nota
13 ára gamlar tölvur í jafn örri
tækniþróun og raun bæri vitni.
Annar stór vandi sjúkrahússins
felst í því að flöskuháls myndast
í aðgerðir þegar sjúklingar halda
dýru legurými vegna skorts á ódýr-
ari rými, t.d. á hjúkrunarheimilum
eða i endurhæfingu. Að mati yfir-
læknis endurhæfingardeildar
Landspítalans hafa 49 sjúklingar
á bráðadeildum spítalans ekki þörf
fyrir bráðaþjónustu. Átján geta
verið á öldrunarstofnunum og 31
á endurhæfingastofnunum.
Fangelsaður eftir að
hafa játað innbrot
LÖGREGLAN hefur upplýst inn-
brot í fyrirtæki við Bíldshöfða og
sumarbústað í Ámessýslu. Þjófur-
inn hefur þegar hafið afplánun
eldri dóms.
í fyrirtækinu var stolið tölvu og
fleiri munum og úr sumarbústaðn-
um hurfu tvö sjónvarpstæki. Lög-
reglan yfirheyrði mann, sem hefur
ítrekað komið við sögu innbrota
og viðurkenndi hann verknaðinn.
Sjónvarpstækin eru þegar fundin
og var þeim komið til réttra eig-
enda. Eftir játninguna fór maður-
inn beint í fangelsi, þar sem hann
afplánar eldri dóm.
Víkurströnd - Seltjarnarnesi
%
Til sölu þetta fallega og glæsilega
305 fm parhús með 34 fm inn-
byggðum bílskúr. Stórar stofur,
4-5 svefnherbergi, stúdíólbúð
með sérinngangi á neðri hæð.
Glæsilegt sjávarútsýni.
Upplýsingar veitir
Fasteignamarkaðurinn ehf.
m FASTEIGNAMARKAÐURINN ehf
óðinsgötu 4. Símar 551 -1 540, 552-1 700
J
Til sölu í Hafnarfirði
Sævangur 37: Vandað einbýlishús. 6 herb. (búð 135 fm á aðalhæð. 52
fm rúmgóður kjallari. Útsýni til sjávar yfir óbyggt hraunsvæöi.
Kaldakinn 8: 139 fm einbýlishús, hæð, kjallari og ris. Mjög fallegur
blóma- og trjágarður. Góðurhús. Elgnin er I fyrsta flokks ástandi.
Austurgata 9: 5 herb. Ibúð 150 fm á tveimur hæðum. Verö 7,8 mlllj.
Miðvangur 41: 2ja herb. (búð á 3. hæð I lyftuhúsi. Verð 5 mlllj.
Arnahraun 11: 4ra herb. íbúö á 2. hæö. Verö 6,5 millj.
La Maria/Spáni: 3jaherb.fallegt43fmraðhús.Verö2,6mlllj.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 555 0764.
Askorun stjórnar Landssamtaka
hjartasjúklinga til þriggja ráðherra
Fjölga þarf
hjartaaðgerð-
um nú þegar
STJÓRN Landssamtaka hjarta-
sjúklinga skorar á forsætis-, Q'ár-
mála- og heilbrigðisráðherra að
beita sér strax fyrir fjölgun krans-
æðaskurðaðgerða og kransæða-
vikkana hér á landi. Jafnframt er
í fréttatilkynningu frá stjórninni í
framhaldi af fréttum um langa
biðlista i hjartaaðgerðir bent á
nokkur mikilvæg rök fyrir þessu.
Ástandið óviðunandi
Fram kemur að hagur ríkissjóðs
fari batnandi og því sé skýlaus
krafa Landssamtakanna að hætt
verði við þann mikla niðurskurð
og sumarlokanir sem verið hafí á
sjúkrahúsum landsins. Núverandi
ástand sé óviðunandi og liggi ljóst
fyrir að það geti haft alvarlegar
afleiðingar og beri því stjórnvöld-
um að taka þessi mál föstum tök-
um.
„Fyrir hendi eru vel menntaðir
skurðlæknar og sérhæft starfsfólk
til þess að gera 5 til 7 aðgerðir á
viku, sem talið er nægilegt til að
halda biðlista innan viðunandi
marka. Til þess að ná því marki
þarf að taka sem fyrst í notkun
ný hjartaþræðingar- og kransæða-
víkkunartæki," segir í fréttatil-
kynningunni.
Þjóðhagslega hagkvæmar
aðgerðir
Fram kemur að eftir því sem
aðgerðum fjölgi verði þær þjóð-
hagslega hagkvæmari og ódýrari.
Hafa verði í huga þann undraverða
árangur er fáist úr slíkum aðgerð-
um og geti flestir hafið vinnu að
nýju um 4 mánuðum eftir krans-
æðaaðgerð og eftir röskan mánuð
ef útvíkkun kransæða heppnist.
Flestallir nái að nýju fullri orku
til þess að vinna fyrri störf.
Ennfremur segir að fyrsta bar-
áttumál LHS hafí verið að fá
umræddar aðgerðir gerðar hér á
landi. „Var það eflaust mesta
heillaspor okkar í hjartalækning-
um og því samfara færðist ómet-
anleg þekking til landsins. Árang-
ur þessi hefur vakið alþjóðaat-
hygli og stöndum við þar á meðal
þeirra fremstu í heiminum í dag.“
Stjórnin tekur fram að hún hafi
staðið fyrir fjársöfnunum hjá þjóð-
inni í rösk 13 ár og hafí þær mjög
oft beinst að kaupum á tækjum
fyrir skurðdeild Landspítalans svo
og hjartadeildir á höfuðborgar-
svæðinu og um land allt. Söfn-
unarféð nemi á annað hundrað
milljónum króna.
Varað
við flæði-
skerjum
UNGUR Reykvíkingur komst
naumlega í land af flæðiskeri
á Hólmasundi út af Ánanaust-
um síðdegis á þriðjudag. Lög-
regla telur að setja verði upp
skilti svo fólk átti sig á hve
hratt fellur að.
Lögreglunni var tilkynnt um
vandræði unga borgarans en
þegar hún kom á vettvang
hafði honum tekist að komast
nánast þurrum fótum í land.
Lögreglan segir algengt að
börn og unglingar stikli út í
skerin og vari sig ekki á flóði.
Því sé æskilegt að setja upp
varúðarskilti.
Ekki alvar-
lega slasaður
LITLA drengnum, sem varð
fyrir bíl á Vopnafirði á þriðju-
dag, heilsast vel eftir atvikum,
að sögn lögreglu. Hann er
töluvert bólginn og marinn, en
ekki alvarlega slasaður.
Drengurinn, sem er eins árs
gamall, var með foreldrum sín-
um við bifreiðaverkstæði á
Vopnafirði. Bíl var ekið að
húsinu, hann stöðvaður og
skömmu síðar ók ökumaður
hans af stað að nýju. Þá hafði
drengurinn náð að fara frá
foreldrum sínum og lenti hann
utan í afturhjóli bílsins. Öku-
maðurinn stöðvaði strax og
var drengurinn þá laus undir
bílnum innan við hjólið. Bíllinn
hafði vart færst nema einn
metra úr stað, að sögn lög-
reglu.
Frændur
gleymdu
deilum
TVEIR norskir sjóliðar og einn
íslendingur voru fluttir á
slysadeild eftir átök á veitinga-
stað í miðborg Reykjavíkur í
fyrrinótt.
Meiðsli mannanna þriggja
voru smávægileg, skrámur og
mar. Við yfirheyrslur í gær
kom í ljós að reiðin var runnin
af mönnum og tilefni átakanna
gleymt. Mennirnir töldu þó lík-
legt að það hefði verið af per-
sónulegum toga, en ekki
tengst ósamkomulagi þjóð-
anna um fiskveiðar.
Játaði
íkveikju
SAUTJÁN ára piltur hefur
viðurkennt að hafa kveikt í
íbúð við Vesturberg um síð-
ustu helgi.
Eldur kom upp í íbúðinni
um helgina og þegar lögreglan
kom á vettvang logaði I
gluggatjöldum og sófa. Grun-
ur vaknaði um að kveikt hefði
verið í og leiddi rannsókn
málsins til þess að pilturinn
var yfírheyrður. Hann viður-
kenndi að hafa teygt sig inn
um opinn gluggann og borið
eld að gluggatjöldunum.
íbúðin var mannlaus þegar
eldurinn kom upp, en töluverð-
ar skemmdir urðu.