Morgunblaðið - 24.07.1997, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997
MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓIUVARP
MORGUNBLAÐIÐ
Minnisvarði um Dietrich
BERLÍNARBÚAR ætla að heiðra minningu Marlene Dietrich.
ÞEGAR Marlene Dietrich lést
árið 1992 hófst umræða í Berlín
um það hvort ekki ætti að heiðra
minningu hennar með því að
reisa henni minnisvarða í borg-
inni. Ekki hafa allir Þjóðverjar
verið jafn jákvæðir gagnvart
þessum hugmyndum og þess
vegna hefur framkvæmdin dreg-
ist í fimm ár. Dietrich á nefnilega
enn andstæðinga sem telja hana
föðurlandssvikara vegna þess að
hún studdi málstað Bandamanna
í heimsstyrjöldinni síðari.
Dietrich fæddist í Berlín árið
1901 og átti nokkru gengi að
fagna í þýskum kvikmyndum
áður en hún fluttist til Hollywood
I byijun fjórða áratugarins. Þar
tryggði samstarf hennar við leik-
sljórann Josef von Sternberg
Dietrich heimsfrægð.
Sagan segir að árið 1937 hafi
henni borist beiðni frá Hitler
sjálfum um að snúa aftur til föð-
urlandsins og vinna fyrir málstað
nasista. Dietrich hafnaði þessu
boði og gerðist bandarískur rík-
isborgari árið 1939. í kjölfar
þess voru myndir hennar bann-
aðar í Þýskalandi.
Dietrich var síðan meðal
þeirra skemmtikrafta sem ferð-
uðust um og skemmtu hermönn-
um Bandamanna í stíðinu. Einnig
flutti hún áróður gegn nasistum
í útvarpi Bandamanna. Hlaut
Dietrich m.a. heiðurmerki fyrir
að hætta lífi sínu til þess að geta
komið fram á átakasvæðum.
Framlag Dietrich til baráttu
Bandamanna hefur verið sumum
Þjóðveijum þyrnir í auga æ síðan
og kom af stað heitum umræðum
þegar minnisvarðahugmyndir
komu fyrst fram 1992. Nú eru
hjólin loks farin að snúast fyrir
alvöru og eru það meira að segja
tveir borgarhlutar sem keppast
um að heiðra minningu Dietrich.
Fulltrúar Schoenberg-hverfis
þar sem Dietrich fæddist vilja
nefna götu eftir henni, á meðan
stjórnendur miðborgarinnar
vilja nefna torg eftir henni ná-
lægt Potzdamer-torginu. Við
torgið stendur einnig til að
byggja Dietrich-safn.
FRAMLEIÐANDINN Jerry
Bruckheimer, sem er
best þekktur fyrir hasar-
og spennumyndir eins og
„The Rock“ og „Con Air“, ætlar
að framleiða rómantíska kvikmynd
næst. Bruckheimer hefur keypt
handrit Brian Cowden að epískri
ástarsögu, „On Earth“. Handritið
segir sögu manns sem verður ást-
fanginn af vinnuveitanda sínum.
.^Tún giftist öðrum en hetjan heldur
samt áfram að elska hana og vinna
hjá henni.
Chris O’DonnelI hefur tekið að
sér hlutverkið sem Buster Keaton
fór með í „Seven Chances" árið
1925. Nýja myndin ber titilinn
„Bachelor" og fer O’Donnell með
titilhlutverkið. Hann leikur pipar-
svein sem þarf að gifta sig ef hann
á ekki að missa af 120 milljóna
dollara arfi.
Sandra Bullock tekur að sér
móðurhlutverkið í „A Prayer for
Owen Meany“ sem er byggð á
skáldsögu John Irving. Hún segir
sögu tveggja vina sem geta ekki
talast við eftir að annar þeirra drep-
x m- móðir hins fyrir slysni.
Eddie Murphy og Chris Farley
hafa loksins fengið hlutverk við
hæfi. Þeir félagar leika þriggja ára
gamla snáða í „Toddlers".
Kvik-
mynda-
fréttir
Barbara Hershey, Lisa Marie,
Debi Mazar og Patti Smith ætla
að leika í „Frogs for Snakes".
Myndin er um hóp af glæpamönn-
um sem dreymir um frægð og frama
á leiksviðinu.
Elizabeth Hurley hefur fundið
sig í sjöunda áratugnum. Hún lék
siðast í „Austin Powers" en næsta
hlutverk hennar er í „My Favorite
Martian“ á móti Christopher
Lloyd og Jeff Daniels.
Ben Gazzara og Gary Busey
leika saman í „Deadly Winter",
trylli um svik og mafíuna.
Paul Schrader og Martin Scor-
sese, sem færðu kvikmyndasögunni
„Taxi Driver“, eru að undirbúa
annað samstarf. Schrader ætlar að
skrifa handrit byggt á skáldsögu
Joseph Connelly, „Bringing Out the
Dead“, um sjúkraflutningamann í
New York sem fær nóg af mann-
vonskunni í umhverfi sínu. Scorsese
hefur í hyggju að leikstýra verkinu.
Geoffrey Rush ætlar að hverfa
aftur til tíma Elísabetar I i sinni
næstu mynd, „Elizabeth I“. Hann
fer með hlutverk sir Francis Wals-
ingham, eins af góðvinum drottn-
ingar.
Joe Pesci hefur tekið að sér
aðalhlutverkið í nútímaútgáfu á
„Christmas Carol“ eftir Dickens.
Pesci leikur glæpamann sem trúir
ekki á gleði jólanna.
Brenda Blethyn sést næst í sál-
fræðidramanu „In the Winter
Dark“. Myndin er byggð á smásögu
Tim Wintons.
Emilio Estevez er framleiðandi
myndar um upphafsmenn hip-hops,
Grandmaster Flash og Melle Mel.
Steve James, sem stýrði heimildar-
myndinni „Hoop Dreams", ætlar
að gera myndina með félaga sínum,
kvikmyndatökumanninum Peter
Gilbert.
Christina Applegate, Mark
Wahlberg og Lou Diomond
Phillips verða saman í „The Big
Hit“. Myndin fjallar um mann sem
reynir að stjórna mannráni á sama
tíma og hann er í matarboði hjá
foreldrum kærustu sinnar.
BRENDA Blethyn er að hefja
vinnu við „In the Winter
Dark“.
MARK Wahlberg leikur
glæpamann í „The Big Hit“.
FARÐU AÐ
H3IMAN
TÓNLEIKAFERÐ
TIL LONDON
21.-25. ágúst
STÓRHUÓMSVEITIN U2
OG READING TÓNLISTARHÁTÍÐIN
Kr. 42.600
Hægt að framlengja ferðina
Innifalið: Flugfar báðar leiðir. flu g valla rskattar
og aðgöngumiði á U2 og Reading (alia dagana).
Ekki innifalið: Gisting í London og ferðir milli
London og Reading.
( E; Farðu að heiman - en komdu við
Bá Ferðaskrifstofu stúdenta.
ÞAÐ DUGAR EKKIAÐ SITJA HEIMA OG LESAi
íui: 561 5656 fax: 551 9113 heiuasíða: http://www.centrum.is/studtravet/
O
X
Q
S
X
s
X
X
Ph
m
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN í Feneyjum er með nýjum áherslum.
List ekki söluvara
K VIKM YND AHÁTÍ Ð ARN -
AR halda áfram að beijast um
athygli með því að tilkynna
með góðum fyrirvara hvaða
myndir verða á dagskrá hjá
þeim. Nýr stjórnandi, Felice
Laudadio, tók við Feneyja-
kvikmyndahátíðinni í ár og
hefur hann breytt talsvert
hvernig kvikmyndir eru vald-
ar. Fyrirrennari hans, Gillo
Pontecorvo, lagði áherslu á að
tryggja sér Evrópu-frumsýn-
ingar á stórmyndum frá
Bandaríkjunum með tilheyr-
andi galaveislum með stór-
stjörnum, ekki ósvipað og á
Cannes.
Að sögpi Laudadio er kvik-
myndahátíðin ekki haldin fyrir
ljósmyndara slúðurblaða.
„Hún snýst um kvikmyndir.
Við látum ekki sljörnukerfið
stjórna vali okkar á myndum.
Við höfum afþakkað miðlungs-
góðar myndir með stórum
nöfnum innanborðs. Við vild-
um forðast öfgarnar sem ráða
ríkum á Cannes.“
Þrátt fyrir þessar yfirlýs-
ingar verða nokkrar banda-
rískar myndir sýndar á hátíð-
inni í Feneyjum sem verður
haldin dagana 27. ágúst til 6.
september. Spennumynd Wolf-
gang Petérson, „Air Force
One“ verður hluti af Mezza-
notte-dagskránni ásamt
„Affliction" með Nick Nolte,
James Coburn, Sissy Spacek,
og Willem Dafoe í aðalhlut-
verkunum, „Dark Empire“
með William Hurt og Kiefer
Sutherland, og „Mirnic" með
Miru Sorvino. Auk þess verður
haustmynd Woody Allen „Dec-
onstructing Harry“ opnunar-
mynd hátíðarinnar, en engin
af þessum myndum tekur þátt
i verðlaunakeppninni.
Meðal annarra mynda á há-
tíðinni verða „The Bride’s
Journey" leikstýrt af Sergio
Rubini, „Chinese Box“ stýrt
af Wayne Wong með Jeremy
Irons og Gong Li, „One Night
Stand“ stýrt af Mike Figgis
með Nastösju Kinski og Wes-
ley Snipes, „The Informant"
leikstýrt af Jim McBride, og
„The Winter Guest“ leikstýrt
af leikaranum Alan Rickman.
Lokamynd hátíðarinnar verð-
ur „Richard 111“ frá árinu
1912. Myndin verður sýnd
ásamt undirleik en Enrico
Morricone hefur samið tónlist
fyrir hana.
riV 1 iKllU Vikon 1 ftAT
L.I JP1 11111 TTTT
Nr. var Lag Flytjandi
1. (31) Smack My Bitch Up Prodigy
2. (10) Bittersweet Symphony Verve
3. (3) ril Be Missing You Puff Daddy
4. (5) Do You Know Whot 1 Mean Oasis
5. (2) For Heavens Sake Wu Tang Clan
6. (6) Free Ultra Naté
7. (4) Men in Black Will Smith
8. (14) Grandi-Vogar Soma
9. (17) Home Depeche Mode
10. (19) Sykurpabbi Talúla
11. (18) Casual Sub ETA
12. (7) The End Is the Beginning Is the End Smashing Pumpkins
13. (8) Ég ímeila þig Maus
14. (-) 1 Have Peace Strike
15. (11) Sun Hits the Sky Supergrass
16. 02) Ecuador Sash
17. (13) Free D. J. Quicksilver
18. (15) One Way D. J. Rampage Mr. Bix Feat. Subteranean
19. (16) Caribbean Breeze Wiseguys
20. (4) Poranoid Android Radiohead
21. (23) HeyAZ AZ&SWV
22. H Rising Son Massive Attack
23. (25) Electro Bank Chemical Brothers
24. (-) Kúrekabúgi PPPönk
25. (26) How High Charlotans
26. (-) Insinuation Folk implosion
27. (29) Hit Wannadies
28. (22) Star Primal Scream
29. (-) Closer Than Close Rosie Gaines
30. (20) Tvíhöfða lagið Rammstein