Morgunblaðið - 24.07.1997, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 24.07.1997, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG JÓNSDÓTTIR frá Miklaholti, lést á Sjúkrahúsi Akraness fimmtudaginn 17. júlí. Jarðarförin fer fram frá Miklaholtskirkju föstu- daginn 25. júlí kl. 14.00. Sætaferðir frá B.S.I. kl. 11.30. Gyða Valgeirsdóttir, Elín Rósa Valgeirsdóttir, Guðbjartur Alexandersson og fjölskylda. + Maðurinn minn og faðir okkar, ÓLI KRISTINSSON vélfræðingur, Snorrabraut 87, Reykjavík, lést sunnudaginri 20. júl(. Karolína Smith, Óli Kári Ólason, Eggert Páll Ólason. + Eiginmaður minn, FRIÐRIK ÞORVALDSSON fyrrv. menntaskólakennari, Einilundi 6a, Akureyrl, varð bráðkvaddur þriðjudaginn 22. júlí. Þórgunnur Ingimundardóttir. + Sonur minn, faðir, tengdafaðir og bróðir, SIGHVATUR KARLSSON, lést á dvalarheimilinu Hrafnistu að morgni þriðjudagsins 22. júlí. Ásta Sighvatsdóttir, Sigurjón Sighvatsson, Sigríður Jóna Þórisdóttir, / Sigrún Karlsdóttir. — + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og virðingu vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, sonar, föður okkar, tengdaföður og afa, KRISTJÁNS FRIÐSTEINSSONAR, Faxatúni 23, Garðabæ. Emilía Emilsdóttir, Lóa Kristjánsdóttir, Emil Örn Kristjánsson, Guðrún Erla Guðjónsdóttir, Lóa Steinunn Kristjánsdóttir, Baldvin Einarsson og barnabörn. + Við þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur ómetanlega hjálpsemi, hlýhug, hlut- tekningu og samúð vegna veikinda, andláts og útfarar okkar elskaða EINARS VALTÝS BALDURSSONAR, Hörðuvöllum 6, Selfossi. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar A7 og A3 Sjúkrahúss Reykjavlkur, Fossvogi, Karlakórs Selfoss, Lionsklúbbs Selfoss, Kvenfélags Selfoss, Landssambands lögreglumanna, ættingja, vina og þeirra fjölmörgu sem stutt hafa okkur. Ragnhildur Eiríksdóttir, Gunndfs Eva Einarsdóttir, Helga Rún Einarsdóttir, Gunndís Sigurðardóttir, Baldur Bjarnarson, Hrund Baldursdóttir, Krtstinn Marvinsson, Bjöm Baldursson, Bryndls Sveinsdóttir, Helga Helgadóttir, Kjartan Pátsson og aðrir aðstandendur. GUNNLAUGUR Ó. BRIEM + Gunnlaugur Ó. Briem fæddist í Reykjavík 27. maí 1918. Hann lézt 13. júní sl. og fór útför hans fram frá Dóm- kirkjunni 17. júlí sl. Þegar undirritaður réðst til Síld- arverksmiðja ríkisins (SR) fyrir réttum 27 árum hófust kynni mín af Gunnlaugi Ó. Briem, en hann var þá framkvæmdastjóri fyrir Síldarniðurlagningaverksmiðju ríkisins (Sigló) í Siglufirði. Gunn- laugur tók við því starfi 1965 en niðurlagningarverksmiðjan var byggð upp og rekin af S R. Með okkur Gunnlaugi tókust strax góð kynni, enda var Gunnlaugur ein- staklega viðkunnanlegur maður með fágaða framkomu og prúð- Edith Nicolaidóttir, Oddný Nicolaidóttir, Guðni Nicolaison, Sigrfður Eyjólfsdóttir, mannlegt viðmót. Honum var ljúft að kynnast og þar sem hann var leið_ manni vel. Á þessum tíma var rekstur Si- gló mjög erfiður og byggðist að miklu leyti á duttlungum Sovét- manna um kaup á niðurlögðum gaffalbitum. Samningar um kaup- in voru gerðir einu sinni á ári og dróst oft úr hömlu að fá endanlega niðurstöðu um verð og það magn sem Sovétmenn hugðust kaupa hveiju sinni. Þannig fékkst sú nið- urstaða oft ekki fyrr en löngu eft- ir að kaup á saltsíldinni höfðu verið gerð, en samningar um þau kaup voru einnig gerðir einu sinni á ári. Starf Gunnlaugs var því oft erilsamt, ekki aðeins í samninga- viðræðum við Sovétmenn, heldur Guðrún Frfmannsdótiir, Jónas Guðlaugsson, Svala Einarsdóttir, Magnús Gunnarsson, einnig hér heima að afla heimilda og ábyrgða hjá hinum ýmsu ráðu- neytum til kaupa á saltsíld án þess að hafa samninga um gaffal- bitasöluna í höndunum. Móðurfyr- irtækið SR var fjárvana á þessum tíma eftir langvarandi hráefnis- skort og gat þess vegna ekki yeitt Sigló þann fjárstuðning, sem þurfti. Af ofansögðu má ráða að rekstur Sigló byggðist ekki síður á pólitískum forsendum en við- skiptalegum, bæði er varðaði kaup á aðföngum hér heima og á sölu framleiðslunnar í Sovétríkjunum. Gunnlaugur stóð sig vel í þessu þrasi og hélt ró sinni á hveiju sem gekk og vandamálin voru leyst með prúðmennskunni sem honum var svo eiginleg og að sjálfsögðu hjálpaði húmorinn oft upp á sak- irnar, en Gunnlaugur átti auðvelt með að sjá skoplegu hliðarnar á málunum. Árið 1974 lét Gunnlaugur af störfum hjá Sigló, sem þá hét Lagmetisiðjan Siglósíld og gerðist framkvæmdastjóri fyrirtækis í Þorlákshöfn sem fékkst við laus- frystingu á fiskbitum og flökum, en fyrirtækið hafði hann stofnað ásamt öðrum. Rekstur þessa fyrir- tækis gekk illa og var því slitið. Eftir þetta starfaði Gunnlaugur um hríð hjá Meitlinum hf. í Þor- lákshöfn, en réð sig árið 1977 til Síldarverksmiðja ríkisins á skrif- stofu þeirra í Reykjavík og þar starfaði hann til ársins 1991 er hann lét af störfum vegna aldurs 73 ára gamall. Gunnlaugur gekk í öll störf á skrifstofunni, en hans aðalstarf var gerð og frágangur útflutnings- skjala, en allur útflutningur SR fór í gegnum skrifstofuna í Reykjavík. Gerð útflutningsskjala krefst mikillar nákvæmni og vand- virkni, sem oft þarf að framkvæma undir talsverðri tímapressu. Gunn- laugur leysti þetta starf vel af hendi með þeirri natni og alúð sem honum var lagið. Þegar mikið var um að vera sparaði hann ekkert við sig til að ljúka þeim verkefnum sem fyrir lágu. Vinnudagurinn var oft langur og venjulega var hann fyrstur á skrifstofuna á morgnana og síðastur heim á kvöldin. Gunnlaugur var traustur og áreiðanlegur starfsmaður sem vann verk sín af einstakri sam- viskusemi, sem honum var í blóð borin. Samstarfsmenn hans höfðu ánægju af því að vinna með hon- um, enda var framkoman einstök við hvern sem í hlut átti. Það var gott að vera í návist Gunnlaugs sem hafði einstakt lag á að lífga upp á tilveruna með sinni góðu kímni og ætíð var hann reiðubúinn að hjálpa upp á sakimar þegar eitthvað bjátaði á. Samstarfsmenn Gunnlaugs minnast hans með hlýhug og senda ástvinum hans samúðar- kveðjur. Jón Reynir Magnússon. BRIDS U m s j ð n Arnór G. Ragnarsson Vopnaskaksmótið í brids nk. sunnudag VOPNASKAKSMÓTIÐ í brids verður haldið sunnudaginn 27. júlí en það er Bridsfélag Vopnafjarðar og menningarmálanefnd Vopna- fjarðarhrepps sem stendur fyrir mótinu. Mótið er silfurstigamót og spilaður verður tvímenningur með Barometer-fyrirkomulagi. Keppt verður um farandbikar og einnig verða peningaverðlaun fyrir 3 efstu sætin. Mótið hefst kl. 13 og verður spilað í félagsheimilinu Miklagarði. Þátttökugjald er 2.000 kr. á par og er kaffi og veitingar innifalið í gjaldinu. Skráning fer fram í eftirtöldum númerum og þarf að vera lokið fyrir 25. júlí. 473 1393 (Elís), 473 1281 (Stef- án), 473 1246 (Sigga Dóra), 473 1255 (Fax). barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ||g“* WP r j'j í stórum og rúmgóðum sýningarsal okkar eigum við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða. Hvergi meira úrval. Yfir 45 ára reynsla Yerið velkomin til okkar, eða fáið myndalista. SKEMMUVEGl 48, 200 KOP., SIMI: 557-6677/FAX: 557-8410 + Ástkær eiginkona mín, INGIBJÖRG GUNNARSDÓTTIR þroskaþjálfi, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 25. júlí kl. 13.30. Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna ogbarnabama, Pétur Bjarnason. + Þökkum innilega samúð og vinakveðjur við andlát og útför EBBA JENS GUÐNASONAR, Kópavogsbraut 1A. Guðbjörg Helga Sigurbjörnsdóttir, Lind Ebbadóttir, Jón Ólafsson, Sigurveig Ebbadóttir, Haraldur Hansson, Gerður Ebbadóttir, Benedikt Ó. Sveinsson, barnabörn og fjölskyldur þeirra. + Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við and- lát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, SIGRfÐAR ÓLAFSDÓTTUR, Hátúni 4, Reykjavík. Sérstakar þakkir til Ársæls Jónssonar, læknis, og starfsfólks 3. hæðar á Droplaugarstööum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.