Morgunblaðið - 24.07.1997, Blaðsíða 56
510 1000 Fax: SJO 1001 Vrffanq:
OPIN KERFIHF
byltinqarkennd
fistölva
<o>
AS/400
Mikið úrval
viðskiptahugbúnaðar
(Pi) NÝHERJI SKAFTAHLir
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJfSMBLIS, / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Hlutabr éfamarkaður j afn
stór skuldabréfamarkaði
Forsetar
í Hvíta
húsinu
BILL Clinton forseti Banda-
ríkjanna og Olafur Ragnar
Grímsson áttu fund í Hvíta
húsinu í Washington í gær-
morgun. Að sögn Ólafs Ragn-
ars var fundurinn gagnlegur
en forsetarnir ræddu m.a. um
það með hvaða hætti 1000 ára
afmælis landafunda víkinga i
Ameríku yrði minnst.
■ Þakklæti/28
BYLTING hefur orðið á hlutabréfa-
markaði á íslandi síðan árið 1994
í þá veru að hlutabréfamarkaðurinn
er að verða jafnstór skuldabréfa-
markaði.
Þetta kemur fram í grein Sigurð-
ar B. Stefánssonar, framkvæmda-
stjóra Verðbréfamarkaðar íslands-
banka, í blaðinu í dag og bendir
hann á að markaðsverðmæti hluta-
bréfa í lok þessa árs sé áætlað 260
milljarðar kr. en markaðsverðmæti
skuldabréfa um 280 milljarðar kr.
Þetta gerist á sama tíma og mikil
aukning hefur orðið á verðmæti
skuldabréfa á markaði frá árinu
1990.
í júlí 1997 er samanlagt markaðs-
verðmæti þeirra 70 félaga sem
verslað er með hlutabréf í, bæði á
Verðbréfaþingi og Opna tilboðs-
markaðinum, orðið hátt í 200 millj-
arðar kr. en þar af er verðmæti
fyrirtækjanna sem skráð eru á Verð-
bréfaþinginu um 150 milljarðar kr.
Landsframleiðslan árið 1997 er
áætluð 522 m.kr. og því er verð-
mæti hlutabréfa á markaði ekki
fjarri því að vera 40% af landsfram-
leiðslu.
Sigurður segir þetta hlutfall vera
algengan mælikvarða á stærð hluta-
bréfamarkaðs í samanburði á milli
landa. í Danmörku er hlutfallið um
40%, svipað og á íslandi núna, í
Svíþjóð er það um 90% en í Banda-
ríkjunum og Bretlandi vel yfir 100%.
Augljóst er að hlutfallið stefnir í um
50% af landsframleiðslu á íslandi
síðar á þessu ári eða á því næsta.
■ Hækkunin endalausa/B7
íslenska farsíma-
félagið ehf. fær
GSM-starfsleyfi
Aform um
frekari
starfsemi
hérlendis
ÍSLENSKA farsímafélagið ehf. fékk
í gær afhent starfsleyfi númer tvö
fyrir GSM-farsímaþjónustu á íslandi
næstu tíu árin. Félagið áformar að
hefja þjónustu sína snemma á næsta
ári en eitt af skilyrðunum fyrir
leyfisveitingunni var að hún kæmist
á að hluta til á níu mánuðum eftir
leyfísveitinguna eða fyrir maíbyijun
1998.
íslenska farsímafélagið er í eigu
bandarísku fyrirtækjanna Western
Wireless International Corporation
og The Walter Group Inc, auk Ragn-
ars Aðalsteinssonar. Aðspurður seg-
ir Brad Horwitz, forstjóri Western
Wireless International, að Íslenska
farsímafélagið hafi fullan hug á að
bjóða upp á frekari fjarskiptaþjón-
ustu hér á landi þegar fullt frelsi
verður gefið í fjarskiptamálum á
íslandi um næstu áramót.
Að sögn Gústavs Arnar, forstöðu-
manns Póst- og fjarskiptastofnunar,
verða ekki veitt fleiri starfsleyfi til
reksturs GSM-farsímaþjónustu á ís-
landi að svo stöddu þar sem um tak-
markaðan rásafjölda er að ræða.
■ Hyggja/b3
Tveggja
ára stúlka
ekur á hús
Á ÍSAFIRÐI gerðist það í gær-
kvöldi að bíl var ekið á húsvegg
og var ökumaður tveggja ára
stúlka.
Hún laumaðist inn í fjöl-
skyldubílinn sem lagt var í halla
og tók bílinn úr gír. Afleiðing-
arnar voru þær að bíllinn rann
af stað, þvert yfir veg, milli
tveggja húsa og endaði á hús-
vegg. Alls rann bíllinn um 50
metra.
Stúlkuna sakaði ekkert og
var hún hin rólegasta eftir
ferðalagið. Smáskemmdir urðu
hins vegar á bílnum og húsinu.
Stífla í Laxá
Samningi
hafnað
DRÖGUM að samningi milli Lands-
virkjunar og landeigenda við Laxá
um heimild til byggingar 10 metra
stíflu fyrir Laxárvirkjun var hafnað
á fjölmennum fundi á Breiðumýri í
gærkvöldi.
Um var að ræða félagsfund í
Veiðifélagi Laxár í Laxárdal og
Krakár. „Samningnum var hafnað
og meira hef ég ekki að segja," sagði
Eysteinn Sigurðsson á Arnarvatni,
formaður félagsins, þegar Morgun-
blaðið náði tali af honum um mið-
nætti í gærkvöldi. Liggur fyrir eftir
þessa niðurstöðu að ekkert verði af
byggingu stíflunnar, í bráð a.m.k.
-X
Hvíta húsið
Forsætisráðherra telur kjaradóm kalla á endurmat á hækkun bóta almannatrygginga
Forsenda hækkunar
verður endurskoðuð
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að ríkis-
stjórnin þurfí að fara aftur yfir útreikninga sem
lágu til grundvallar ákvörðun ríkisstjórnarinnar
um hækkun á bótum ellih'feyrisþega, öryrkja og
atvinnulausra með hliðsjón af þeim ákvörðunum
sem Kjaradómur hefur nýlega tekið. Hann segir
að þessari vinnu verði hraðað og útilokar ekki
að hún leiði til endurskoðunar á fyrri ákvörðun.
Grétar Þorsteinsson, forseti ASI, hefur ásamt
fleirum innan verkalýðshreyfingarinnar sett fram
kröfu um að ríkisstjórnin endurskoði ákvörðun
sína um hækkun á bótum almannatrygginga með
hliðsjón af þeim hækkunum sem Kjaradómur
hefur nú úrskurðað um. Hann sagði í gær að
hann fagnaði afstöðu forsætisráðherra og vonaði
að hún leiddi til þess að bæturnar yrðu hækkað-
ar. Slík ákvörðun væri rökrétt framhald af úr-
skurði Kjaradóms.
Bætur öryrkja hækkuðu um 2% um síðustu
áramót og 4% 1. mars sl., en Kjaradómur hækk-
aði laun æðstu embættismanna ríkisins um 8,55%.
„Ég tel að við þurfum að fara ofan í þessi mál
og skoða hvort það er efni til breytinga. Við töld-
*
Forseti ASI fagnar
afstöðu ráðherra
um okkur byggja á tölum frá Þjóðhagsstofnun
og þeim opinberu gögnum sem fyrir lágu. Kjara-
dómur virðist meta þetta með öðrum hætti. Ég
tel að við þurfum að bera þetta saman og gera
það fljótt og taka svo okkar ákvarðanir."
Útilokar ekki breytingu
á lögum um Kjaradóm
Davíð sagðist ekki hafa borið saman úrskurð
Kjaradóms og kjaranefndar, en úrskurðirnir kveða
á um nokkuð mismiklar launahækkanir. „Ég var
dálítið undrandi á kjaradómnum og taldi að hann
hefði átt að vera lægri. Ég var líka undrandi á
röksemdafærslunum fyrir sérstökum hækkunum
til dómara. Ef menn tala um að einhver þáttur
ríkisvaldsins sé einn af hornsteinunum þá fara
menn rétt með, en það er ekki þar með sagt að
sá hornsteinn eigi endilega að vera betur launað-
ur en hinir.
Þingið hefur fært Kjaradómi þetta vald vegna
þess að menn voru ósáttir þegar þingið var á
sínum tíma að ákveða þingmönnum laun. Þá varð
sprengja í þjóðfélaginu og menn fóru með þetta
í Kjaradóm. Nú sýnist þetta vera að fara í hring
og menn vilja fara gömlu leiðina aftur. Ut af
fyrir sig er ég ekki á móti því.“
Miðstjórn ASÍ kom_ saman í gær til að ræða
úrskurð Kjaradóms. Á fundinum var samþykkt
ályktun þar sem lagt er til að Kjaradómur verði
lagður niður og Alþingi taki ákvarðanir um
launahækkanir að fenginni umsökn ráðgefandi
nefndar. \
Davíð vísaði því á bug sem kemur fram í álykt-
un miðstjórnar ASÍ, að í úrskurði Kjaradóms
fælist launastefna ríkisstjórnarinnar og ríkis-
stjórnin bæri ábyrgð á Kjaradómi. „Kjaradómur
er úrskurðaraðili. Eg hygg að flestir sanngjarnir
menn, sem hafa fylgst með, viti það, að ef ríkis-
stjórnin hefði ráðið þessum úrskurði hefði hann
ekki verið svona. Þá hefði hann verið lægri.“
■ Kjaradómur og kjaranefnd/2/6/41