Morgunblaðið - 24.07.1997, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.07.1997, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Blomberg Excellent fypin þá sem vilja aðeins það besta! OFNAR: 15 goröir í hvítu, svörtu, stáli eöa spegilálferð, fjölkerfa eða Al-kerfa með Pyrolyse eða Katalyse hreinsikerfum. HELLUBORÐ: 16 gerðir, með héhitahellum eða hinum byltingarkenndu, nýju Spansuðuhellum, sem nota segulorku til eldunar. Ný frábær hönnun á ótrúlega góðu verði. Blomberd Hefur réttu lausnina fyrir þig! Einar Farestveit & Co. hf. Borgartúni 28 - Sími 562 2901 og 562 2900 Yngsta kynslóðin VELTA má endalaust fyrir sér hvað feist í hugtakinu yngsta kynslóðin í myndlist. Hvort um sé að ræða listspírur ungar að árum, eða listamenn sem eru síungir í list sinni hversu aldnir þeir nú annars eru. Verk slíkra eru þá ný og framsækin list fram í andlátið eins og gerðist með Rembrandt og seinna Picasso, sem segja má að hafi látist með pensilinn í hendinni. Slíkir gera æskuna og ferskleikann að tíma- lausu hugtaki í sköpunarferlinu, en hins vegar má engin við líf- fræðilegum lögmálum og þar sér náttúran um eðlilega endumýjun. Þetta segir okkur, að sjálf sköpunargáfan hefur í raun engan aldur og þannig eru öll börn gædd henni að einhveiju leyti, fá hana í vöggugjöf. Sum eru að vísu í heiminn borin án tóneyra og önnur litblind, en sköpunargáfan er þó fyrir hendi á einhveiju sviði líkt og í öllu sem lifir og hrærist. Hún er samofin sjálfu lífinu meður því að hver lífi gædd eind er hluti framþróunar í alheimi. Þessi sannindi gefa auga leið, að sjálf sköpunargáfan hefur engan aldur, því hver treystir sér að skera úr hvert sé upphaf- ið á eilífðinni og óendanleikan- um, hvar endirinn, eða öfugt? Menn skulu því fara afar var- lega er þeir ræða um ungu kyn- slóðina í myndlist, því hún er í senn eldri og yngri en margur hyggur og sækir hugdjörf fram á innlendum sem erlendum vett- vangi. Þetta eru eðlilegar hugleið- ingar þá fréttir berast af fram- gangi listspíra á vettvangi sjón- lista erlendis, sem eru nær ár- viss viðburður. Ein væn barst á borðið hjá mér á dögunum, og var að dagblaðið Frankfurter Neuer Presse, birti litmynd af myndverki hins sex ára gamla „MÓÐIR mín“, eftir Kára Björn Ragnarsson. Kára Björns Ragnarssonar. For- eldrar hans eru Walter Ragnar Kristjánsson og Laura Hjartar- dóttir, búsett í Limburg í ná- grenni Frankfurt am Main, þangað sem lifibrauðið er sótt. Svo er mál, að á vegum blaðs- ins og héraðsljórnar í Hessen, var efnt til samkeppni milli barna, og var verkefnið; „Börn mála mynd af móður sinni“, Þetta var nokkuð stórt í sniðum, myndirnar sem bárust til dóm- nefndar skiptu þúsundum, og eftir úrskurð hennar gátu 180 börn glatt móður sína með ein- hverju óvæntu á mæðradaginn. Tíu hlutu fyrstu verðlaun, sem voru að bjóða foreldrum sínum út að borða og var Kári Björn meðal þeirra. Kannski engin stórfrétt á listavettvangi en alténd afar upplífgandi, og hér fæst enn ein staðfesting þess hve vel íslenzk börn eru af guði gerð um skap- andi kenndir. Um leið ætti það að árétta mikilvægi þess að lyfta undir og rækta mjúku gildin í lífinu, sem eru þegar allt kemur til alls sá grunnur sem hörðu gildin hvíla á. Maðurinn getur engan vegin án þeirra verið frekar en andrúmsloftsins, og má því ekki skorta áburð þ'ós né aðra virkt... Bragi Ásgeirsson MYIMDLIST Toppurinn í efdunartækjum Blomberd Djasshátíð Egilsstaða - 10 ára afmæli Egilsstaðir. Morgunblaðið. DJASSHÁTÍÐ Egilsstaða hefur sl. 10 ár verið árlegur viðburður og ætíð tilhlökkunarefni djassunnend- um á Austurlandi og víðar. Djasshá- tíðin hans Árna ísleifs, eins og hún er gjarnan kölluð hér fyrir austan, hófst í Valaskjálf miðvikudaginn 25. júní. Það var hinn 81 árs ungl- ingur og fiðlusnillingur Svend As- mussen ásamt þeim Jacob Fisher á gítar, Jesper Lundgaard á bassa og Aage Tanggard á trommum sem reið á vaðið fyrir troðfullu húsi. Heiðursgestir hátíðarinnar eru þeir Vernharður Linnet og Friðrik Theodórsson sem jafnframt er kynnir. Framundan eru tónleikar í kvöld með Tríói Sunnu Gunnlaugs- dóttur og einnig munu dansarar úr Djassballettskóla Báru sýna listir sínar. Á föstudag verður síðan slag- bít með trommurunum Guðmundi Steingrímssyni, Þorsteini Eiríkssyni og Skapta Ólafssyni. Einnig mun Stórsveit Austurlands undir stjórn Einars Braga Bragasonar koma fram. Á laugardaginn jnunum við fá að heyra í Léttsveit Ólafs Gauks með söngkonunni Kristjönu Stef- ánsdóttur og munu þau frumflytja djassverk Olafs Gauks, Ormur í lygnum Legi. Lýkur þar með þess- ari tíundu djasshátíð Egilsstaða. Um lýsingu og hljóð sér Guðmund- ur Steingrímsson og sviðsmynd á Sigurgeir Baldursson. Morgunblaðið/Björn Gíslason SÝNING Hlínar Gylfadóttur sem nú stendur yfir á Mokka er sú síðasta í röð 600 myndlistasýninga staðarinns sl. 39 ár. Hlé á sýningum Mokka eftir 39ár ÁKVEÐIÐ hefur verið að hætta myndlistarsýningum á Mokka um óákveðinn tíma. Frá því að staðurinn var opnaður árið 1958 hafa um 600 sýningar verið á veggjum kaffíhúss- ins. Hannes Sigurðsson listfræðingur hefur haft umsjón með sýningarhaldi á Mokka sl. 5 ár. Hann hefur einnig séð um rekstur sýningarsalarins Sjónarhóls en sú starfsemi leggst af með haustinu. Hannes segist ekki lengur sjá sér fært að halda úti sýningum á Mokka eða á Sjónarhóli í sjálfboðaliðastarfi. Gríðarleg vinna hafi oft legið að baki sýninganna en sýnilngarhald staðarins hafí aldrei hlotið opinberan stuðning. „Ég hóf að aðstoða tengdaforeldra mína við sýningarhald þegar ég var búsettur í New York. Strax frá byij- un ákvað ég að taka starfsemina fastari tökum en fram til þessa höfðu bæði leikir og lærðir, byijendur jafnt sem virtustu listamenn þjóðarinnar, nýtt sér sýningaraðstöðuna á Mokka. Eg lagði meira upp úr því að velja listamenn til að sýna jafnframt því að móta sýningarnar og kynna af festu. Á undanförnum árum hef ég staðið að sýningum á ýmsum af umdeildustu listamönnum Bandaríkj- anna og þemasýningum. Ég hélt þó trúnaði við þá hefð að allir ættu möguleika og lagði áherslu á and- stæðurnar í myndiistinni. Mokka hafði oft verið staður róttækra við- horfa sem ég vildi endurvekja og viðhalda," segir Hannes. Mokka hefur verið athvarf lista- manna frá fyrstu tíð. Á 20 ára gam- alli auglýsingu er ferðamönnum bent á kaffihúsið og þar er Mokka lýst sem „a place for artists and strange people", stað listamanna og sérvitr- inga. Hannes segir að sýningaraðstaða sú sem hann hefur haft umsjón með á Sjónarhóli við Hverfisgötu leggist af með haustinu. Það húsnæði hafi hann misst vegna þess að ekki gekk að fá styrki fyrir húsaleigu. Auglýs- ingastofan XYZTA hefur keypt hús- næðið og flytur þanngað með starf- semi sína innan tíðar. Með brott- hvarfi Sjónarhóls skapast jafnframt óvissa um framhald Sjónþinganna sem Hannes hefur annast sem menn- ingarfulltrúi Gerðubergs en því starfi hefur hann nú ákveðið að segja lausu. „Fá kaffihús í heiminum geta stát- að af jafn langri og órofinni hefð sýninga og Mokka. Myndlist virðist ekki þrífast hér nema með bjór og þó virðist það ekki hrökkva til. Það er mjög alvarlegt mál að sjálfstætt starfandi listhús skuli reka sig svona illa eins og dæmin sanna en þau hafa lagt upp laupana hvert á fætur öðru svo nánast ekkert stendur eftir. Samt er alltaf gengið að myndlist- inni sem vísri og hún látin ganga sjálfala," segir Hannes. „íslendingar eru komnir í fremstu víglínu hvað þetta snertir, sem er vafasamur heið- ur. Ég veit ekki um neina höfuðborg sem ekki hefur á að skipa alvöru galleríum heldur eingöngu gjafa- vöruverslunum." Hannes lýsir eftir meiri skilningi og vonar að yfirvöld taki stöðu myndiistarinnar til alvar- legrar umfjöllunar. Hann segist boð- inn og búinn til að taka aftur til starfa verði réttar forsendur fyrir hendi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.