Morgunblaðið - 24.07.1997, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 24.07.1997, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ1997 39 • • GUÐBJORN HERBERT GUÐMUNDSSON + Guðbjörn Her- bert Guð- mundsson raf- virkjameistari fæddist á Hellis- sandi á Snæfells- nesi 25. júní 1919. Hann lést í Kefla- vík 11. júlí síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Ytri- Nj arð víkurkirlq u 18. júlí. Látinn er bróðir minn, Guðbjörn Her- bert Guðmundsson, rafvirkjameistari, eftir löng og erf- ið veikindi. Ekki varð langt á milli þeirra hjónanna. Rósa Guðnadóttir kona hans dó 7. maí síðastliðinn og hann núna 10. júlí. Þau hjón höfðu verið gift í tæplega 47 ár, búið allan sinn búskap í Keflavík og eignast fjögur mannvænleg börn en áður hafði Guðbjörn eignast dóttur og son. Guðbjörn var ættað- ur af Snæfellsnesi. í föðurætt frá Sveinsstöðum í Neshreppi utan Ennis en af móðurfólki úr Asbjarn- arhúsi á Hellissandi. Barnsskóm sínum sleit hann á Hellissandi þar sem foreldrar hans Guðrún As- björnsdóttir (fædd 2. okt. 1895, dáin 20. mars 1996) og Guðmund- ur Guðbjörnsson skipstjóri (fæddur 15. okt. 1894, dáinn 4. sept. 1934) hófu búskap í húsi sínu Bjarma- landi 1916. Þegar Guðbjörn er á sjöunda aldursári flytja foreldrar hans að vestan suður í Hafnarfjörð þar sem faðir hans hafði verið ráð- inn skipstjóri. Fáum árum síðar er flutt suður í Keflavík og síðla árs 1933 aftur í Hafnarfjörð. Þar er fjölskyldan búsett er faðir Guð- björns ferst í sjóslysi við Norður- land haustið 1934. Stendur nú móðir hans uppi, ekkja 38 ára gömul, með sex börn á aldrinum eins til fimmtán ára og er það Guðbjörn, sem verður nú svona ungur að axla byrðar fullorð- ins manns. Þetta hlutverk og hvernig hann rækti það alla tíð verður nú innihaldið í þessum kveðjuorðum til hans, og mæli ég þá fyrir munn okkar allra sem öðl- uðumst vernd hans og umhyggju þessa döpru haustdaga, móður minnar og systur Helgu (f. 1927), sem báðar eru látnar, systurinnar Príðu (f. 1924) og okkar bræðranna þriggja Guðmundar (f. 1921), Ás- björns (f. 1925) og mín (f. 1933). Faðir minn hafði verið það for- sjáll að vera líftryggður þegar hann deyr en hafði þá nokkru áður, er Spánarmarkaðurinn með saltfisk lokaðist, misst megnið af eignum sínum. Nú notaði móðir mín líf- tryggingarféð og lét byggja fyrir sig húsið að Holtsgötu 6 í Hafnar- fírði þar sem við áttum heima þar til fullorðinsárum var náð. Fyrir- hyggja móður okkar og stuðningur Guðbjörns tryggði okkur yngri systkinunum þar öruggt skjól. Á fyrri hluta þessarar aldar og ekki síst árunum milli stríða áttu föður- laus börn ekki margra kosta völ en dugnaður og ósérhlífni Guð- björns var sú hvatning sem nægði, og okkur til að leggja lið þegar þroska og aldri var náð. Margs er nú að minnast frá árunum á Holts- götu 6 og alls góðs. Eflaust hafa erfiðleikar knúið þar dyra, sem á öðrum alþýðuheimilum þess tíma, kreppan var í algleymingi og at- vinnuleysið réð lífi og dauða. En mér sem yngstum var aðeins hamp- að og skemmt og öllu óþægilegu haldið frá. Eldri systkini mín hafa þó sagt mér að ýtrustu gætni var samt gætt í hvívetna og hófsemi á öllum sviðum. Guðbjörn lýkur gagnfræðaprófi frá Flensborg og stundar næstu ár öll almenn störf til lands og sjáv- ar, kaupamennska í sveit, vegavinna, verk- stjórn í fískvinnslu o.fl. En árið 1940 hefur hann nám í rafvirkjun hjá Guðjóni Guð- mundssyni í Rafveitu Hafnarfjarðar og fær þar sveinspróf 1944. Þetta eru efiaust þau ár sem ég naut bróður míns best. Þegar ein- lægni barnshugans og ást og umhyggja unga mannsins haldast fast í hendur. Þá var ekki þörf á alvarlegri við- vörun og kænska heimsins og keld- ur voru enn víðs fjarri. Aðeins umvandanir kærleika og elsku sem hvetju barni eru nauðsynlegar. Systkini mín hafa líka staðfest dugnað hans og festu að halda hópnum sínum saman og óþijót- andi hvatningu til móður sinnar þegar angist hversdagsins var að buga hana og ráð vina og vanda- manna voru þau helst að rjúfa fjöl- skylduna. Þetta verður okkur systkinunum, og sérstaklega mér, sem engan veginn skildi aðstæður, ótjúfanlegt þakklæti til æviloka þessum makalausa manni. 1946 verða kaflaskipti í lífi Guð- björns. Hafði hann þá unnið frá sveinsprófí hér í Hafnarfírði hjá Rafveitunni, í Ekkó og í Glóa. Það- an eru mér enn í fersku minni nöfn eins og Kári Þórðar, Siggi í Ekkó, og Gvendur í Glóa og margir fleiri, sumir lífs, aðrir liðnir eins og geng- ur. Þegar ég sjálfur var orðinn raf- virki og umgekkst þessa menn heyrði ég aldrei nema gott um hann bróður minn af þeirra vörum og voru þó ekki allir bræður í leik þegar samkeppni eftirstríðsáranna var í algleymingi. En 1946 kaupir Guðbjörn hluta í raftækjastofu suð- ur í Keflavík, Geisla hf., og nokkru seinna allt fyrirtækið. Tengsl hans við Holtsgötu 6 héldust þó óbreytt allar götu til ársins 1951, þegar þau Rósa hefja búskap að Vestur- braut 6 (í Keflavík) með Guðnýju sína, og þá hefst einnig nýr kafli í mínu lífí. En áður en Guðbjörn flyst til Keflavíkur höfðu bræður hans Guðmundur og Ásbjörn byggt af elju og dugnaði íbúðarhús sitt að Hringbraut 15 í Hafnarfirði, þar sem Guðmundur býr raunar enn, og hafa þeir báðir, í mín eyru, þakk- að stóra bróður sínum ómetanlega hjálp í því efni. Varð hann þó alvar- lega veikur af lömunarveiki 1947, og náði sér eiginlega aldrei af henni. Systrum sínum Fríðu og Helgu heitinni sýndi hann ávallt sömu hlýju og ástúð og aldrei stóð á hjálp né aðstoð þegar í nauðir rak, hvorki í garð okkar systkin- anna né barna okkar. En eins og synir feta oft í fót- spor feðra sinna varð um mig. 1951 hef ég nám í rafvirkjun hjá Guð- birni, enn heimilisfastur á Holts- götu 6, en tekinn í fæði og hús- næði hjá meistaranum sem var al- gengt á árum áður. Margir aðrir nemar voru þá hjá Geisla hf. en allir gert samninga við fyrrverandi eigendur/meðeigendur í Geisla nema ég, og er ég því fyrsti nem- inn sem læri og útskrifast alfarið í meistaratíð Guðbjöms. En þeir urðu fleiri nemarnir hans Guð- björns, yfír 50 talsins þegar upp var staðið. Á meðal þeirra allir þrír synir þeirra Rósu, Guðmundur Bjarni, nú tæknifræðingur í eigin fyrirtæki, Björn Herbert, tækni- fræðingur og forstjóri Rafmagns- verka hf., og Róbert Þór, rafvirkja- meistari og forstjóri gamla góða Geisla hf. Elsta dóttir þeirra Rósu, Guðný Sigurbjörg, alþingismaður og prófessor við Háskóla íslands, og börnin tvö úr Hafnarfirði, Hjör- dís Guðríður skólastjóri og Gunnar Jóhann pípulagningameistari. Allt er þetta mikið myndarfólk sem ber föður sínum fagurt vitni. í þeim kemur fram allt það góða sem prýddi hann bróður minn og bera börn hans og barnabörn hróður hans um alla framtíð. Frændum sínum og vinum var Guðbjörn betri en enginn. Og ég veit að allt það góða fólk sendir nú hlýjar samúðar- kveðjur til barna og barnabarna hans með þökkum fyrir allt og allt. I Fóstbræðrasögu er sagt frá Þorgeiri Hávarssyni og Þormóði Bersasyni og stríði þeirra og or- ustum. Urðu þeir oftast ósárir en ákaflega móðir. Guðbjörn bróðir minn valdi sér fóstbróður og börð- ust þeir ótt og títt og sýndist ýmist um sigur. Greind hans og þroska tókst þó um síðir að sigra og þó áberandi sár væru ekki sýnileg var hann orðinn ákaflega móður er lauk. Mér sjálfum var Guðbjörn engum manni líkur. Þegar ógæfa knúði dyra minna fyrir nokkru, tvö ár í röð, veitti hann af sálarstyrk sínum það sem ég nauðsynlega þurfti. Fyrir það og allt sem hann gerði áður, og þá ekki síst móður okkar, skal nú þakkað af alhug. Börnum hans og afkomendum öllum, sendum við Dísa og íjöl- skyldur okkar, systkini mín og íjöl- skyldur þeirra hugheilar samúðar- kveðjur með þeirri vissu að í minn- ingum þeirra mun Bubbi bróðir minn geymast. Veri hann nú kært kvaddur. Nú er í Dritvík daufleg vist, drungalegt nesið kalda; sjást ekki lengur seglin hvít sjóndeildarhringinn tjalda: Tröllakirkjunnar tíðasöng tóna þau Hlér og Alda; Fullsterk mun þungt að færa á stall, fáir sem honum valda. (Jón Helgason.) Farðu nú vel, vinur og bróðir. Guðmundur Rúnar Guðmundsson. Mig langar með nokkrum fátæk- legum orðum að kveðja meistara minn hann Guðbjörn eða Bubba rafvirkja eins og hann var nefndun á meðal flestra hér syðra. Á árinu 1970 var ég ungur og ráðvilltur maður sem ekki hafði ákveðið hvað hann ætlaði að gera í lífinu. Þá atvikaðist það svo að hann faðir minn sem var einn af fyrstu nemum Bubba og var þá í vinnu hjá honum í fyrirtækinu hans Geisla hf. kom heim einn góðan sumardag og sagði mér að drífa mig því ég mætti koma í vinnu hjá honum Bubba. Eftir nokkurra mánaða starf var ákveðið að unglingurinn færi á samning og lærði rafvirkjun. Gengið var frá öllum endum og samningur undirritaður, og skyldi neminn fá kaup samkvæmt verka- mannataxta, og í ofanálag yrði greitt fyrir allan námskostnað, s.s bækur, skólagjöld o.þ.h. og einnig vasapeningur _ á meðan á skóla- göngu stæði. Á þessum tíma vorum við allmargir nemarnir í rafvirkjun hjá hinum ýmsu meisturum á svæð- inu, og oft verið að gera saman- burð á kjörum á milli manna. At- hyglisvert var að sumir höfðu í kaup einhvetjum krónum meira á tímann, en urðu sjálfir að sjá sér farborða á meðan á skólagöngu stóð. í þessu er Bubba að nokkru lýst því hann lagði til framangreint fyrirkomulag, sem sýnir mikla fyr- irhyggju, og varð til þess að nem- inn gat að mestu verið áhyggjulaus er varðar ljármál og sinnt bóknám- inu en þurfti ekki að vera að eltast við að vinna allar stundir sem gáf- ust. Oft varð maður var við að hús- byggjendur sem voru í mesta basli við að koma sér þaki yfir höfuðið væru sérlega ánægðir með að eiga viðskipti við Bubba því það var svo gott að semja við hann og hann var svo skilningsríkur, og því fengu menn þar oft góð kjör. Þó var rekst- ur fyrirtækis á þessum árum eng- inn dans á rósum því allt valt á útgerð og fiskvinnslu en mikill hluti vinnunnar hjá Geisia hf. byggðist einmitt á þjónustu og breytingum hjá fiskvinnslufyrirtækjum, og þar komu mögur ár sem Ieiddu af sér samdrátt í allri þjónustu. Á þeim tímum sem lítið var að gera reyndi Bubbi ávallt að sjá til þess að starfsmennirnir hefðu nóg, og því var það oft að menn dvöldu lang- tímum saman við að taka til og laga á verkstæðinu, og voru jafn- vel ekki sendir heim kl. 17, heldur fengu eftirvinnu líka. Bubbi var einstaklega góðhjartaður og sann- gjarn maður sem ekkert aumt mátti sjá. Er mér sérstaklega minn- isstætt þegar ég hafði í eitt skipti óskað eftir kauphækkun en fengið synjun. Að sjálfsögðu var ég ekk- ert hress með að fá neitun og hef- ur það eflaust sést á mér, en ég var varla kominn heim eftir að vinnudeginum lauk þegar Bubbi hringdi og sagði mér að taka aftur gleði mína því hann hefði skipt um skoðun og ég fengi umbeðna hækk- un. Einnig kemur nú við þessa uppriíjun upp í hugann að að námi loknu kom það til tals að ég ætti ekki rétt á láni frá lífeyrissjóði, þar sem það hefði ekki tíðkast að nem- ar borguðu í lífeyrissjóði. Bubbi sagði mér að hafa ekki áhyggjur af þessu, hann skyldi sjá um að ég fengi lánið sem mig vantaði, og fylgdi orðunum eftir með því að greiða rúmlega ijögur ár aftur í tímann í lífeyrissjóð rafíðnar- manna, ekki bara hlut vinnuveit- andans heldur einnig hlut nemans. Árið 1974 var lítið að gera og varð úr að ég hóf störf annars stað- ar. Oft leitaði ég þó til Bubba á þessum árum sem liðin eru síðan, og sama hvert erindið var, allt var sjálfsagt. Það er mér mikil gleði að hafa fengið að vera einn af „strákunum“ hans Bubba en svo kallaði hann okkur oft sem höfðum verið nemar hjá honum en það er ansi stór hópur. Margar fleiri góðar minningar renna nú um hugann sem of langt mál er að telja hér, en verða til þess að minning góðs heiðursmanns lifír. Það eru þung spor að kveðja góðan vin, en hann er nú eflaust hjá henni Rósu sem lést fyrir að- eins tveimur mánuðum, og vonandi er það aðstandendum huggun í harmi að vita af þeim saman á ný. Ástvinum Bubba og Rósu votta ég samúð mína og vona að minn- ingin um þau reynist sorginni yfir- sterkari þegar frá líður. Valþór S. Jónsson. GUÐRUN SIG URBJÖRG JÓNASDÓTTIR ■4- Guðrún Sigur- * björg Jónas- dóttir vefnaðar- kennari fæddist á Stuðlum í Reyðar- firði 28. desember 1916. Hún lést á Hj úkrunarheimil- inu Slqóli 7. júlí síð- astliðinn og fór út- för hennar fram frá Fossvogskirkju 16. júlí. Ég kynntist Guð- rúnu Jónasdóttur þeg- ar ég hóf nám í textíl- deild Myndlista- og handíðaskóla íslands árið 1970. Hún kenndi þar almennan vefnað og framundan voru skemmtilegir og gefandi tímar. Ég hugsa að það hafi ekki alltaf verið auðvelt að vera kennari á þessum umbrotatímum 68 kynslóð- arinnar en Guðrún naut þess að vera innan um nemendur sína og ungt fólk yfirleitt, skiptast á skoð- unum við það enda hafði hún alla tíð mikinn áhuga á þjóðfélagsmál- um og því sem var að gerast á líð- andi stund. Hún veitti okkur það frelsi sem við þurftum til að kljást við þennan seinunna miðil sem vefn- aðurinn er. Guðrún var opin fyrir því að fara nýjar leiðir þótt hún héldi alltaf tryggð við gömlu gildin. Hún sagði mér seinna að hún hefði notið þessara ára og þess að með- taka nýja strauma og nýta sér þá í kennslunni. Þegar ég kom heim að afloknu framhaldsnámi í Sví- þjóð og var ráðin kenn- ari við textíldeildina tók Guðrún mér opnum örmum eins og vænta mátti af henni. Við urð- um strax jafningjar þrátt fyrir aldursmun- inn og áttum við gott samstarf um 10 ára skeið. Hún var félags- lynd og vinsæl meðal kennaranna og þegar eitthvað stóð til í fé- lagslífi skólans var gott að leita til hennar og var hún ávallt ómiss- andi þegar blanda átti jólaglöggið. Guðrún var gestrisin, góð heim að sækja og hinn besti kokkur svo það er víst óhætt að fullyrða að við samkennarar hennar og nemendur eigum ljúfar minningar um þær fjöl- mörgu stundir sem við áttum með henni á heimili hennar. Vinnustofa Guðrúnar var falleg og björt sem gaman var að koma inn t'. Þar hélt hún mörg vefnaðarnámskeið auk þess að starfrækja þar vefstofu. Á seinni árum óf hún ýmsar tilraunir fyrir áklæði og gluggatjöld sem voru ákaflega áferðarfallegar og hefðu svo sannarlega átt erindi í framleiðslu. Það lýsir einnig Guð- rúnu vel að þegar ég var í vinnu- stofuhrakningi stóð ekki á henni að opna sína vinnustofu og leyfa mér að rekja í eina og eina uppi- stöðu fyrir vef. Við áttum þá jafnan góðar stundir saman og þá kynntist ég betur hennar löngunum og fram- tíðaráformum. Það kom alltaf sérstakur giampi í augu Guðrúnar þegar hún talaði um Fríðu einkadóttur sína enda afar kært með þeim mæðgum alla tíð. Seinna þegar Fríða var orðin landslagsarkitekt hannaði hún garðinn fyrir okkur fjölskylduna. Þegar við hittumst og ræddum um skipulag garðsins var Guðrún að sjálfsögðu með í för. Þá kom þekk- ing hennar og áhugi á garðrækt vel í ljós. Árið 1974 var Textilfélagið stofnað og var Guðrún ein af stofn- félögum þess og virkur félagsmað- ur. Hún tók þátt í sýningum félags- ins, þar að auki tók hún þátt í öðr- um sýningum utan þess og má þar mikilvægastar telja: Alþjóðasýn- ingu í Munehen 1956 og „Form Island“, farandsýningu á Norður- löndum 1984 -1985. Flestir félags- menn Textílfélagsins hafa notið leiðsagnar Guðrúnar á einn eða annan hátt og minnast hennar eflaust af hlýhug. Ég votta Éríðu og aðstandendum samúð mína. Ég kveð Guðrúnu með þökk og virðingu, minningarnar um góða konu geymi ég. Þorbjörg Þórðardóttir. ÚtfararþjánU'tta Sigurgeirj Inginiundarjonar EngjavegL 8, Moöfelhbæ, öími: 8963083og 566 7307.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.