Morgunblaðið - 24.07.1997, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 24.07.1997, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kærunefnd jafnréttismála um erindi félagsmálasljóra Hafnarfjarðar Eríndínu vísað frá KÆRUNEFND jafnréttismála hefur vísað frá erindi félagsmála- stjóra Hafnarfjarðar um að nefndin kanni og taki afstöðu til þess hvort væntanlegar breyting- ar á starfi félagsmálastjóra feli í sér brot á jafnréttislögum. Nefndin komst að þeirri niður- stöðu að engin ákvörðun hafí verið tekin sem leiði af sér brot gagnvart kæranda. I kæru félagsmálastjóra til kærunefndar jafnréttismála segir að með skipulagsbreytingum á stjórnsýslu Hafnarfjarðarbæjar sé starf félagsmálastjóra, sem hún hafí gegnt síðan 1986, fært niður um eitt þrep í valdastigan- um og henni fenginn nýr yfírmað- ur, sem í raun ætti að taka yfír þau völd og ábyrgð, sem fylgdu starfí félagsmálastjóra. Henni væri um leið gert ókleift að sækja um nýju stöðuna og segir félags- málastjóri að hún hafí rökstuddar upplýsingar um að samið hafí verið um að annar maður fengi stöðuna án þess að þurfa að keppa um hana. Mikilvægt að auglýsa Kærunefndin kemst að þeirri niðurstöðu að komi til breytinga sé mikilvægt að starf fram- kvæmdastjóra félagsmálasviðs verði auglýst og að í framhaldi af því fari fram hlutlægt mat á hæfni umsækjenda. Enn fremur segir að meirihluti bæjarstjómar hafi fellt tillögu minnihluta um að auglýsa skuli stöðuna áður en nýtt stjórnsýsluskipulag taki gildi. Að mati nefndarinnar feli sú ákvörðun ekki í sér að þegar hafi verið ákveðið að auglýsa ekki umrædda stöðu. Bæjarstjórn hafí samþykkt að vísa öðrum tillögum en þeirri að fjölga málasviðum um eitt til endanlegrar afgreiðslu bæjar- stjóra og bæjarráðs. Skilja verði þá niðurstöðu þannig að þessum stjómvöldum hafi meðal annars verið falið að taka ákvörðun um hvernig staðið skuli að ráðningu í umræddar stöður þar með talið stöðu framkvæmdastjóra félags- málasviðs. Engin ákvörðun hafí því verið tekin sem leiði af sér brot gagnvart kæranda. Því sé ekki hægt að fjalla um málið að svo stöddu. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? Morgunblaðið/Þórólfur Halldórsson ÞÓRÓLFUR Jarl Þórólfsson fékk þessa 12,5 punda hrygnu hinn 4. júlí síðastliðinn. Fiskurinn fékkst í Treg á 4. svæði Stóru-Lax- ár og agnið var 20 gramma svartur Toby. Afmælishátíð GÓMSÆTT ROKK I 10 ÁR GÓMSÆTT ROKK ( 10 ÁR Dagana 24. til 27. júlí. Fimmtudagur Föstudagur 15.00 Páll Óskar afhjúpar glimmergalla. 22.30 Greifarnir 22.30 Björgvin Halldórsson og perubandið Laugardagur 22.30 Sóldögg Sunnudagur Afmælishátíð fjölskyldunnar að hætti Hard Rock Af mæ I i smatse ði 11 Bar-R-Que Borgari kr. 695 Grísasamloka kr. 695 Bar-B-Que Kjúklingur kr. 1.095 REYKJAVIK ELSKUM ALLA - ÞJÓNUM ÖLLUM olíf Kjorís FERSKAR KJÖTVÖRUR Yíða þokka- leg veiði FRÁ fréttaritara á Hvolsvelli bárust þær fréttir að nú væru komnir ríf- lega 200 laxar á land úr Eystri- Rangá og er áin að sögn starfs- manna Sælubúsins á Hvolsvelli full af nýgengnum físki. Undanfarna daga hefur veiðst mjög vel og er stærsti laxinn 19 pund. A sama tíma í fyrra höfðu aðeins veiðst 56 laxar svo ljóst er að áin er að bæta sig mikið. í vor var 200.000 seiðum sleppt í ána og 100.000 seiðum var sleppt í Þverá en þar hefur nú veiðst I lax og hefur orðið vart fleiri laxa. Holl sem lauk veiði í Sæmundará í Skagafirði um síðustu helgi fékk II laxa, 5-12 punda þunga. Þá voru komnir á land alls 16 laxar úr ánni, sá stærsti 15 pund. Þetta þyk- ir góð veiði úr ekki stærri á en Sæmundará er. Úr Straumijarðará hafa fengist 60-70 laxar og töluðu menn um að þar væri „góður reytingur" þessa dagana. Þokkalegt í Gljúfurá Á mánudagskvöld höfðu alls feng- ist 92 laxar úr Gljúfurá í Borg- arfirði og þykir það þokkaleg veiði miðað við fyrri ár. Tveggja daga holl, með þrjár stangir, hafa verið að fara heim með 10-15 laxa að meðaltali. Veiðihópur sem Morgun- blaðið hafði spurnir af var kominn með 9 laxa á mánudagskvöld eftir eínn og hálfan dag. Átta af þessum Morgunblaðið/Steinunn HAFLIÐI Halldórsson með vænan feng úr Eystri-Rangá. KÁRI Jónsson frá Fáskrúðs- firði með góðan afla úr Breiðdalsá. Kári hefur við- urnefnið „togarinn“ vegna þess hve fengsæll hann er. löxum höfðu veiðst í Móhyljum, en í þeim er mikið af laxi um þessar mundir og reytingur um alla á. Ágæt veiði hefur verið í Breið- dalsá í sumar. Um síðustu helgi höfðu veiðst þar meira en 200 bleikj- ur, 70 urriðar og 7 laxar. Nýlega var sleppt í ána 3.500 laxaseiðum sem ætti að skila sér í aukinni laxa- gengd í framtíðinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.