Morgunblaðið - 24.07.1997, Side 14

Morgunblaðið - 24.07.1997, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Verkefnið „Bætt aðgengi“ fyrir blinda og sjónskerta Ferðaþjónusta og aðgengi í brennidepli UNNIÐ hefur verið að því að undanförnu að gera Akureyri ferða- mannavænan stað fyrir blinda og sjónskerta og er verkefnið unnið í samvinnu Atvinnumálaskrifstofu Akureyrar, Ferðamálamiðstöðvar Eyjafjarðar og Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á íslandi. Á íslandi eru um 500 manns lögblindir og innan Evrópubanda- lagsins um hálf milljón. Verkefnið skiptist í tvo þætti, ferðaþjónustu sem m.a. var látið á reyna með ævintýraför 18 blindra og sjónskertra ferðamanna nýlega þar sem m.a. var farið í sjóstanga- veiði, á hestbak og í fljótasiglingu. Áætlað er að á Akureyri verið hald- in ráðstefna formanna norrænu blindrafélaganna en það er einn þáttur í að kynna bæinn sem að- gengilegan fyrir blinda og sjón- skerta. Hinn þáttur verkefnisins snýr að aðgengi fyrir blinda og sjón- skerta. Gott aðgengi fyrir þennan hóp felst í að geta komist um gang- vegi án þess að eiga von á óvænt- um hindrunum sem á veginum kunna að verða en einnig eru skýr- ar merkingar og góð birta mikil- væg atriði. Þrír starfsmenn ráðnir Síðasta sumar var gerð úttekt á aðgengi á Akureyri þar sem allar götur bæjarins voru skoðaðar og allmörg fyrirtæki og stofnanir einn- ig. Úttektin leiddi í ljós að Akur- eyri er ágætlega aðgengileg þó ýmislegt megi betur fara. Helstu torfærurnar voru trjágróður sem slútir langt inn á gangstéttir í and- litshæð og slæmar merkingar á glerhurðum, tröppum og upplýs- ingatöflum. Nú hefur þráðurinn verið tekin upp að nýju í sumar og hafa þrír starfsmenn verið ráðnir til að aðstoða fyrirtæki og stofnan- ir við að bæta aðgengi þar sem þess gerist þörf. Jón Heiðar Daða- son, Signý Áðalsteinsdóttir og Lilja Jónasdóttir eru starfsmenn verk- efnisins „Bætt aðgengi". Morgunblaðið/Golli VERIÐ er að skipta um glugga í Ketilhúsinu í Grófargili um þessar mundir, en margs konar listastarfsemi verður í húsinu eftir að umfangsmiklum endurbótum á því verður lokið. Fyrsta að- alskipulag Grímseyj- ar staðfest AÐALSKIPULAG fyrir Grímsey hefur verið staðfest í fyrsta sinn, en því er ætlað að vera grundvöllur fyrir framtíðarþróun byggðalagsins næstu 20 árin. Guðmundur Bjarna- son umhverfisráðherra staðfesti skipulagið í síðustu viku. Áhersla á greiðari samgöngur Megingrundvöllur aðalskipulags- ins er stefnumörkun sveitarstjórnar Grímseyjarhrepps, en samkvæmt henni er stefnt að því að skapa aðstæður fyrir nokkurri fjölgun ibúa í sveitarfélaginu og að styrkja sjávarútveg, sem er undirstaða at- vinnulífs í Grímsey. Bent er á að Grímseyjarhreppur hafí töluverða sérstöðu miðað við flest önnur sveit- arfélög á íslandi vegna legu sinnar og einangrunar í samgöngum og að greiðar samgöngur hafi úrslita- áhrif á þróun byggðar. Stefnt er að friðun eða verndun náttúruminja í Grímsey en þar eru m.a. mjög auðugar fuglabyggðir í björgunum austanvert í eynni. íbúar í Grímsey hafa lengst af verið á bilinu 80 til 100, en flestir voru þeir 1930, eða 125 manns. Árið 1995 voru íbúarnir 117. Benedikt Björnsson arkitekt vann aðalskipulagið. Morgunblaðið/Björn Gíslason * Ahugasamir kylfingar EINU af námskeiðum Golfskól- ans sem haldin eru í sumar er nýlokið en óvenjumikill áhugi er fyrir golfíþróttinni á Akur- eyri um þessar mundir og greinilegt að margir nýir kylf- ingar munu spreyta sig á Jaðarsvelli á næstunni. Krakk- arnir læra undirstöðuatriði íþróttarinnar í Golfskólanum og geta flest eftir námskeiðið bjargað sér ein á vellinum. Umfangsmiklar framkvæmdir standa yfir við Ketilhúsið Fjölnota hús fyrir menningarstarfsemi UMFAN GSMIKLAR breytingar standa nú yfir á Ketilhúsinu í Gróf- argili en þar er stefnt að því að opna fjölnota hús fyrir menningar- líf bæjarins. Akureyrarbær og Gil- félagið gerðu með sér samning um afnot félagsins af Ketilhúsinu í lok síðasta árs. Nánast fokhelt Samkvæmt samningnum greiðir Akureyrarbær 12 milljónir króna til endurbóta á húsinu á fjögurra ára tímabili og sagði Sigurður Jónsson gjaldkeri vegna fram- kvæmda við Ketilhúsið að fram- kvæmðir hefðu staðið yfir síðustu mánuði. Gilfélagið sé um endur- bætur á Ketilhúsinu og var verk- efninu skipt niður í fjóra áfanga. Húsið var nánast eins og fokhelt þegar endurbætur hófust og verk- efnið því viðamikið. Búið er að ein- angra húsið og lagfæra það að innan, sem stendur er verið að skipta um glugga á framhlið þess en þeir eru mjög stórir. Þá verður húsið málað innan tíðar. Ýmsir stórir verkþættir eru enn eftir svo sem vegna upphitunar og loftræst- ingar. Sigurður sagði að Ketilhúsið yrði nokkurs konar miðstöð þess sýnilega sem væri að gerast á hverjum tíma í gilinu sem kennt er við listir. Ekki er ljóst hvað fjár- veitingar þessa árs duga langt, en þess er vænst að hægt verði að opna húsið til bráðabirgða með haustinu. Góður hljómburður í húsinu á að vera góð aðstaða fyrir margs konar listastarfsemi, m.a. tónleika, en mikið hefur ver- ið lagt upp úr góðum hljómburði, enda liggur einnig fyrir sérstakur samningur milli Gilfélagsins og Tónlistarskólans á Akureyri um afnot skólans af húsinu. Þá er gert ráð fyrir að gestasýningar af ýmsu tagi fái inni í Ketilhús- inu, tilraunaleikhús, ráðstefnur og fundir auk þess sem rýmið býður upp á spennandi myndlistarsýn- ingar. uOÐIR ■kostir 1IKURIYRI ÞKVELIIR: 4JÖRIÐ í MIÐBÆNUM -FRIÐSÆLDINA í KjARNASKOGI -EÐA LÁGA VERÐIÐ Á GISTIHEIMILINK GKLK VILLKNN! GEGNT SKNDLAKGINNI {W//J/ Hótel Harpa HAFNARSTRÆTI 83 - 85 SÍMI 461 1400 Morgunblaðið/Bjöm Gíslason Á bökkum Svarfaðardalsár KRISTINN Þorvaldsson reyndi fyrir sér í Svarfaðardalsá nýlega. Einn hafði rétt örlítið nartað en annars hafði hann lítið orðið var við fisk. Frekar tregt hefur verið í ánni fram til þessa en er mjög að glæðast, samkvæmt upplýsingum sem fengust i Sportvík á Dalvík. Djass í Deiglu HUÓMSVEITIN Nanúna leikur djass í Deiglunni á fimmtudags- kvöld, 24. júlí. í henni eru tón- listarmenn frá Akureyri, Karl Pet- ersen slagverksleikari sem kennt hefur við Tónlistarskólann á Ak- ureyri undanfarin ár og verið virk- ur í djasslífi bæjarins, Róbert Reynisson gítarleikari, ungur og efnilegur djassleikari, Stefán Ing- ólfsson rafbassaleikari sem m.a. var í hljómsveitinni Súld og lék með Guðmundi Ingólfssyni, Heim- ir Freyr Hlöðversson píanóleikari sem lærði við Tónlistarskólann á Akureyri og hefur sýnt færni sína við ýmis tækifæri og Wolfgang Frosti Sahr saxófónleikari sem er bæjarbúum að góðu kunnur og hefur leikið með ýmsum hljóm- svejtum. Á tónleikunum verður flutt tón- list eftir Karl og Wolfgang en einn- ig bregður fyrir djassstandördum sem allir þekkja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.