Morgunblaðið - 24.07.1997, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1997 15
Morgunblaðið/Atli
SYSTURNAR Aníta Rut (t.v.) og Erla Björk Guðjónsdætur gróð-
ursettu mikið af melgresi og birki.
Landgræðsludagur
OLÍS í Aðaldalshrauni
Laxamýri - Mikið af birki, mel-
gresi og loðvíði var gróðursett í
blíðskaparveðri í sandlendi í Að-
aldalshrauni á landgræðsludegi
OLIS um síðustu helgi.
Þetta er annað árið í röð sem
OLÍS er með sérstakan fjöl-
skyldu- og gróðursetningardag á
þessu svæði, en á síðustu árum
hefur gróðurþekjan látið undan
og því mikil þörf á úrbótum.
Starfsmenn Landgræðslunnar
voru til viðtals og ráðlegginga,
en að sögn Guðjóns Magnússonar
fræðslufulltrúa er lögð áhersla á
að fólk njóti þess að að vera úti,
skoða landið og gróður auk þess
að fræðast og taka þátt í landbót-
um sem þessum.
Að lokinni gróðursetningu gátu
ungir sem aldnir notið veitinga
hjá Guðjóni Ingvasyni umboðs-
manni OLÍS og kunnu allir vel að
meta.
Morgunblaðið/Vilhjálmur
ENDURNÝJUN brúar á Langholtsskurði í Meðallandi.
Brúin á Langholts-
skurði endumýjuð
Meðallandi - Brúin á Langholts-
skurði í Meðallandi hefur nú verið
endurnýjuð. Hafa tvö rör, 2,20 m í
þvermál, verið sett í hennar stað.
Er að þessu mikil vegabót og er
þetta þriðja „dauðagildran" sem
Framrás ehf. fjarlægir af vegum hér
á þessu sumri. Allstaðar eru notuð
víð rör í stað einbreiðra brúa.
Fyrsta brúin sem fjarlægð var,
var á þjóðvegi 1, á Húsá, hjá Sól-
heimum í Mýrdal. Þá á Búlandsá í
Skaftártungu og sú síðasta hér í
Meðallandi.
Guðlaugur Guðjónsson stofnaði
Framrás ehf., sem er fjölskyldufyr-
irtæki og hefur unnið lengi á þunga-
vinnuvélum, allt frá árinu 1953.
Grundfirðingar
fagna 100 ára afmæli
Morgunblaðið/KVM
FRÁ æfingu kirkjukórs Grundarfjarðar en kórinn mun syngja
létt og skemmtileg lög á föstudagskvöldið.
Grundarfjörður - 100 ár í Nesinu
er yfirskrift hátíðarhalda sem
Grundfírðingar standa fyrir á þessu
ári í tilefni þess að 100 ár eru liðin
síðan Kristján IX Danakonungur
löggilti verslun á þeim stað sem
Grundarfjörður stendur nú að vest-
anverðu við samnefndan fjörð.
Verslun hafði þá um alllangt
skeið farið fram við fjarðarbotninn
austanverðan eða á Grundarkampi
en þar var á sínum tíma ætlun
konungs að fastsetja kaupstað þeg-
ar Grundarfjörður hlaut kaupstað-
arréttindi ásamt fimm öðrum stöð-
um á landinu 1786. Það gekk þó
ekki eftir að staðurinn byggðist upp
á þeim slóðum en fluttist eins og
fyrr segir út í Nes eins og það var
nefnt eftir nesi því sem gengur út
í Grundarfjörðinn að vestan og
Framnes nefnist. Lengi vel gekk
kauptúnið til skiptis undir nafninu
Framnes og Grafarnes en nafnið
Grundarfjörður var síðan staðfest
nafn á kauptúninu eftir að almenn
atkvæðagreiðsla hafði farið fram
um nafngiftina árið 1965.
Aðalhátíðahöldin
verða um helgina
Þessara tímamóta í sögu staðar-
ins er minnst á ýmsan máta. Fram-
undan er nú aðaldagskrá hátíðar-
haldanna helgina 25.-27. júlí. Há-
tíðarhöldin byija á föstudagskvöldi
með tónleikum Kirkjukórs Grundar-
fjarðar í Samkomuhúsinu þar sem
kórinn í heild og í einstökum hlutum
mun syngja lög í léttum dúr. Á laug-
ardeginum verður opnuð krambúð-
arsýning í Samkomuhúsinu og þar
verður jafnframt myndlistarsýning
og tónlistarflutningur. Kvenfélagið
Gleym-mér-ei mun hafa til reiðu
kaffi og með því. Óháða götuleik-
húsið kemur í heimsókn og leikur
listir sínar á götum úti en um svip-
að leyti fer fram nokkurs konar
ratleikur undir nafninu „Að rata
um bæinn eftir 100 ár“. Kassabfla-
rallí fyrir yngstu ökumennina verð-
ur ræst um miðjan dag en seinni-
part dagsins eða um kl. 18.00 hefst
útidansleikur fyrir börn og unglinga
við veitingahúsið Kristján IX þar
sem hljómsveitin Á móti sól leikur
fyrir dansi. Um kvöldið verður síðan
dansleikur innan dyra á tveimur
stöðum í Grundarfirði, á Kristjáni
IX og þar sér hljómsveitin Á móti
sól um fjörið, og Harmonikkuhljóm-
sveit Reykjavíkur leikur á konung-
legu dansiballi í Samkomuhúsinu.
Á sunnudeginum verður opið hús
í samkomuhúsinu fyrir þá sem líta
vilja á krambúðarsýningu, myndlist
eða kíkja í kaffí til Kvenfélagsins.
Kl. 14.00 verður lagt af stað frá
Lárkoti í gönguferð á Stöð og síðan
verður gengið meðfram fjallinu út
í Sandvíkurfjöru þar sem varðeldur
verður tendraður með tilheyrandi
söng og boðið verður upp á grillað-
ar pylsur.
Þar með lýkur hátíðarhöldum
helgarinnar en afmælisárið er ekki
liðið og fleiri atburðir á dagskrá
af og til það sem eftir lifír árs. Þar
má nefna göngu yfír Arnardals-
skarð 2. ágúst, einsöngstónleika í
Grundarfjarðarkirkju 7. sept og
kirkjutónlistarhelgi 10.-12. októ-
ber svo eitthvað sé nefnt.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
UNNIÐ að byggingu torfhúss yfir hreinlætisaðstöðu á Sænautaseli.
Háspennulína frá Stuðlum til Fáskrúðsfjarðar
Ekkí talin hafa umtals-
verð áhrif á landnotkun
LAGNING 2. áfanga háspennulínu
frá Stuðlum til Fáskrúðsfjarðar er
ekki talin hafa umtalsverð áhrif á
landnotkun eða gróður og dýralíf,
segir í niðurstöðu skipulagsstjóra
ríkisins og í úrskurði hans er fall-
ist á byggingu línunnar. Fyrirhug-
að er að leggja línuna frá Ups í
Daladal að spennistöð í Fáskrúðs-
firði.
Skipulagsstjóri bendir á að fyrir-
hugað sé að reisa línuna að vetrar-
lagi þegar jörð er frosin og því
þurfi ekki að leggja veg meðfram
henni. Línan fari hvergi um ræktað
land eða land sem fyrir liggi að
rækta eða byggja á. Samkvæmt
Safnastofnun Austurlands eru
gamlar tóttir á fimm stöðum í og
við fyrirhugað línustæði.
Umhverfisáhrif línunnar
sjónræn
í niðurstöðu skipulagsstjóra
kemur fram að megin umhverfís-
áhrif línunnar séu talin vera sjón-
ræn en hún mun að mestu fylgja
legu núverandi línu sem verður
rifín. í úrskurði skipulagsstjóra er
fallist á lagningu línunnar eins og
henni er lýst í frummatsskýrslu.
Jafnframt að haft verði samráð við
eftirlitsmann Náttúruverndar rík-
isins á Austurlandi um uppsetn-
ingu og frágang að loknu verki
og um niðurrif núverandi línu.
Fyllstu varkárni verði gætt við
framkvæmdir nærri vatnsbólum í
Búðarhreppi og skilyrði eru sett
um að þekktum fornminjum verði
ekki spillt. Staurastæður verða
ekki settar innan við 20 metra fjar-
lægð frá friðuðum tóttum og ber
að varast að aka of nálægt þeim
á bílum eða öðrum farartækjum.
Kæra má úrskurð skipulags-
stjóra til umhverfisráðherra og er
kærufrestur til 15. ágúst 1997.
Daladag-
ar í Dala-
sýslu
Búðardalur - Síðastliðinn
sunnudag buðu Dalabændur
heim að Stóra-Vatnshorni í
Haukadal og frítt var í veiði
í Haukadalsvatni í tilefni
Daladaga sem nú standa yfir
í Dalasýslu.
Stóra-Vatnshorn er kirkju-
staður og þar er rekin bænda-
gisting allt árið. Árni_ Bene-
diktsson og Guðrún Ágústs-
dóttir eru ábúendur með hefð-
bundinn fjárbúskap, hesta,
kálfa og endur.
Um 30 manns heimsóttu
Árna og Guðrúnu að Stóra-
Vatnshorni og margir nýttu
sér að veiða ókeypis í vatninu.
Torfhús
byggt yfir
hreinlætis-
aðstöðu
Vaðbrekka, Jökuldal - Torfbær-
inn á Sænautaseli í Jökuldalsheiði
var endurbyggður sumarið 1992
og vegna mikillar umferðar fólks
sem kemur að skoða bæinn varð
að gera hreinlætisaðstöðu við
hann. Þessi hreinlætisaðstaða hef-
ur frá upphafi verið staðsett í
gömlum kæligámi skammt frá
bænum og stungið mjög í stúf við
allt umhverfi þar. Þess vegna var
ákveðið nú í sumar að byggja torf-
hús utanum gáminn til að hylja
hann. Þessu verki er nú lokið en
það var unnið af Páli Benedikts-
syni á Hákonarstöðum sem sá um
hleðsluna ásamt Sveini Pálssyni á
Aðalbóli.