Morgunblaðið - 31.08.1997, Blaðsíða 2
2 B SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Breska rokksveitin
Skunk Anansie er
væntanleg hingað til
lands öðru sinni
í vikunni.
Arni Matthíasson
tók söngkonuna lit-
ríku Skin tali og hún
sagði honum að
fyrri tónleikar sveit-
arinnar hér væru
skemmtilegustu
tónleikar sem hún
hafi leikið á.
BRESKA rokksveitin
Skunk Anansie er vænt-
anleg hingað til lands
öðru sinni og heldur
tónleika í Laugardals-
höll næstkomandi fóstudag. Sveitin
kom hingað fyrr í sumar og sannaði
þá að hún er ein vinsælasta hijóm-
sveit hér á landi síðustu ár, í það
minnsta seldust miðar á tónleikana
upp á skemmri tíma en áður hefur
gerst og að sögn tónleikahaldara
bendir allt til þess að uppselt verði í
I
\
I
I
í
I
i
i
I
Hrekkj ótt köngurló
höllina einnig að þessu sinni. Leið-
togi Skunk Anansie og andlit útávið
er söngkonan orðhvata Skin, sem
vakti athygli fyrir líflega framkomu
í höllinni á sínum tíma, ekki síður en
fyrir prýðilegan söng. Hún segir og
að sveitin sé hingað komin að þessu
sinni ekki síst vegna þess hvernig
viðtökurnar voru síðast, því annað
eins hafi hún ekki upplifað.
Skunk Anansie var stofnuð fyrir
þremur árum. Skin hafði áður sung-
ið með ýmsum sveitum en hvergi
kunnað við sig fyrr en hún kynntist
núverandi félögum sínum. Tónlistin
var þegar í þyngri kantinum og
framan af lék sveitin að segja má
hreinræktað pönk. Eftir því sem
liðsmenn sjóuðust varð tónmálið
beittara, en textamir sem fyrr
hápólitískir og hvergi dregið undan.
Nafnið var og valið með tilliti til
þess, því Anansie er komið úr
jamæskum þjóðsögum og er heiti
hrekkjóttrar köngurlóar, Skunk síð-
an til að undirstrika það að ætlunin
er að hrekkja og hrella.
Þegar eftir aðra tónleika Skunk
Anansie var hún komin á samning
hjá One Little Indian sem kom
sveitinni inn í breska útvarpið. Þar
voru viðtökur góðar, svo góðar
reyndar að útvarpsmenn breyttu
útaf öllum reglum og gáfu út smá-
skífu með upptökum úr þættinum.
Fyrsta breiðskífan, Paranoid and
Sunburnt, kom út haustið 1995 og
var vel tekið. Á þeirri plötu leyndu
sér ekki þungarokkstemmumar, en
nú var tónlistin soul- og fónkskotin;
bassinn hreinræktað fónk á köflum
en raddbeitingin í samræmi við
gamaldags soul. Næsta skífa,
Stoosh, fékk enn betri viðtökur og á
milli skífanna mátti heyra að tón-
listin hafði breyst til muna, nú léku
liðsmenn sér með munúðarfulla
mansöngva sem bmtu upp magnaða
keyrsluna og oftar en ekki breyttist
rokkhamagangur í soul-ballöðu í
miðju kafí.
Eins og getið er em textar Skunk
Anansie margir hápólitískir og hafa
síður en svo dignað með tímanum,
að sögn Skin er henni enn meira
niðri fyrir en þegar sveitin sté
fyrstu skrefin.
„Sjónarhorn okkar á tónlist hefur
ekki breyst svo mjög, þrátt fyrir
stöðug ferðalög og tónleikahald.
Mér telst svo til að við höfum leikið
í yfir 30 löndum á síðastliðnu ári og
í þeim löndum kynntumst við ólík-
um viðhorfum og aðstæðum fólks.
Þó það geri okkur ekki að einhverj-
um sérfræðingum, þá hefur það
vissulega áhrif á skoðanir okkar og
gerir okkur betur fært að mynda
okkur skoðun.
Við reynum að tala um hluti frá
okkar sjónarhorni og ég held að fólk
kunni að meta það því það getur
borið það saman við sitt eigið líf. Við
prédikum ekki eða segjum fólki
hvað það á að hugsa, við reynum
bara að veita því upplýsingar til að
taka ákvarðanir og afstöðu sjálft.
Upplýsingar eru það mikilvægasta
sem um getur í heimi hér og þær
skipta meira mái en allir peningar
heimsins eða vatn, því upplýsing-
amar segja þér hvar vatnið er eða
hvernig má afla peninga. Fólk er
svelt um upplýsingar og of mikið er
um að því sé sagt hvað það á að
hugsa eða gera og því reynum við
að segja „þetta finnst okkur, hvað
finnst þér?“ Aðalmálið er að segja
sína skoðun til að fólk geti myndað
sér sjálfstæða skoðun. Við erum
rokksveit en ekki stjómmálamenn,
en við getum ekki litið framhjá því
sem er í kringum okkur, við getum
ekki litið fram hjá því sem við sjáum
og því em lögin pólitísk. Ég vil þó
leggja áherslu á að þau eru það ekki
öll, á plötum okkar em líka per-
sónulegir textar, textar sem fjalla
um kynferðismál, eða gamanmál
eða bara daglegt líf.
Skin segir að sumir texta hennar
séu reyndar svo persónulegir að
henni reynist erfitt að syngja þá
frammi fyrir ókunnugum. „Eg sem
textana í hljóðveri eða heima fyrir
sem er mjög persónulegt atferli;
bara ég, penni og pappírsblað. Þeg-
ar ég síðan syng textann þá er það
líka persónuleg upplifun, bai-a ég og
hljóðneminn. Málið vandast aftur á
móti þegar ég þarf að syngja text-
ann frammi fyrir þúsundum ókunn-
ugra, eða persónulegar vangaveltur
em komnar á plast og í hendurnar á
fólki um allan heim og það getur
verið erfið stund. Þetta venst þó
eins og allt.
Ég er í raun mjög hlédræg og
feimin og kann því ekki vel að fólk
sé að hnýsast í einkalíf mitt en það
er ekki hægt að halda aftur af sér
þegar verið er að semja texta, það
er ekki hægt að segja eitthvað án
þess að segja það; maður verður að
láta vaða og taka því sem á eftir
kemur.“
Eins og getið er í upphafi hefur
tónlist Skunk Anansie breyst tölu-
vert frá frumgerð
hljómsveitarinnar og er
enn að breytast að sögn
Skin. „Undanfarið höfum við
verið að semja lagræn lög sem
sum eru þó sérkennileg, bæði
þyngri lög og meira grípandi.
Við höfum gaman af því að
blanda saman róleg-
um ballöðum
og hörðu
rokki.
Það
kemur okkur ævinlega á
óvart þegar einhver lög
okkar rata inn í útvarp,
lög eins og Brazen
sem við hefðum síst
talið útvarpsvæn.
Við viljum þó
gjaman að fólk
geti sungið
með lögum okkar, en okkur finnst
líka gaman að láta vaða á súðum.
Það er svo margt á seyði í sveitinni,
við erum að pæla í svo mörgu.
Eins og Skin nefndi hefur sveitin
verið á stöðugu ferðalagi undanfarið
ár og hún segir að það sé hið besta
mál. Það sé vissulega erfitt að vera
sífellt á ferðinni en þau hafi séð við
því og komið sér upp ýmsum áhuga-
málum. „Okkur finnst öllum gaman
að ferðast, gaman að skoða okkur
um í ólíkum löndum, taka myndir
og skoða minjar og síðan lesum við
líka býsnin öll. Það er alltof algengt
að hljómsveitir nýti ekki tækifærin
sem gefast til að kynnast nýjum
menningarheimum og ekki súrt að
kynnast nýju fólki. Eg á orðið vini
um allan heim og það gefur manni
kannski einna mest.“
Skin segir að hljómsveitin hafi
sjálf sótt það fast að fá að komast til
íslands aftur, enda séu tónleikar
hennar hér á sínum tíma skemmti-
legustu tónleikar sem hún hafi leik-
ið á, ekki síst vegna þess að þau
vissu ekkert á hverju þau áttu von.
„ísland var ólíkt öllu sem við höfð-
um áður kynnst og fólkið mjög sér-
stakt. Ekki síst var heimsóknin
merkileg fyrir það að við höfðum
ekki leikið á eins fjölmennum tón-
leikum og þá og þó við höfum leikið
á stærri tónleikum síðan þá verða
tónleikarnir í Laugardalshöllinni
alltaf ofarlega í minningunni."
!
i
?
!
<
I
i
I
M
i