Morgunblaðið - 31.08.1997, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 31.08.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1997 B 25 ) ; ) i j i i I 1 i | , í 4 1 4 4 4 4 4 Morgunblaðið/Júlíus SAMTÖKIN „Réttlætið sigrar“ mótmæla á knattspyrnuleik unglingalandsliðs ísraels og frlands. VIÐSKIPTABANNI á Kúbu mótmælt í Havana. maður í Ungum sósíalistum, segist litla samleið eiga með Sósíalistafé- laginu. „Við höfum töluvert aðra sýn á heimsmálin og söguna. Ung- ir sósíalistar fagna til dæmis falli Sovétríkjanna öfugt við Sósíalista- félagið." Erfitt að hafa áhrif í Alþýðu- bandalaginu Sósíalistafélagið var stofnað árið 1994. Helsti frumkvöðull stofnunar- innar var Þorvaldur Þorvaldsson trésmiður, sem áður hafði meðal annars starfað í Baráttusamtökum fyrir stofnun Kommúnistaflokks. „Ég hafði starfað innan Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík fjögur undangengin ár en þar var erfitt að hafa nokkur áhrif. Þetta er stórt fé- lag en öllum málum er ráðið til lykta bak við tjöldin og sömu menn- irnir tala á öllum fundum." Á stofnfund Sósíalistafélagsins mættu 25 manns, en fjölmiðlar sýndu honum litla athygli. „Við sendum fréttatilkynningu til allra fjölmiðla en sá eini sem sagði frá fundinum var Ríkisútvarpið; en það var aðeins örstutt frásögn. Á undan kom löng frétt um tíkina Höllu á Höllustöðum." Nú eru félagsmenn nálægt sextíu talsins. „Undanfarið ár hefur komið mest af ungu fólki um tvítugt. Það er greinilega vaxandi áhugi á sósíal- isma. Þetta er þó ekki tíska eins og var um og uppúr 1970 heldur frem- ur það að ungt fólk er meira póli- tískt leitandi en var til dæmis á ní- unda áratugnum. Auðvitað væri þó gott að fá meira af nýjum félags- mönnum með pólitíska reynslu." Þorvaldur segir tilgang félags- stofnunarinnar hafa verið þann að safna saman fólkinu sem hafði sundrast í ólík samtök. „Ég held að mikill skaði hafi verið að þeim klofn- ingi sem varð meðal sósíalista um 1960 þegar menn skiptust í hreyf- ingar eftir því hvort þeir hölluðu sér að Moskvu, Peking eða Tirana. Ég óhjákvæmilega pólitískt sem snertir þetta land,“ segir Sylvía. Tólf íslendingar fóru á vegum VÍK á Heimsmót æskunnar sem haldið var á Kúbu 28. júlí til 5. ágúst. Á dagskrá var bæði menn- ingarlegt og pólitískt efni. Kjörorð mótsins voru samstaða gegn heims- valdastefnu fyrir frið og vináttu og hún var tileinkuð byltingarleiðtog- anum Che Guevara sem lést fyrir þrjátíu árum. Ólöf Andra og Sigurður Haralds- son voru fulltrúar Ungra sósíalista á Heimsmótinu. Þau segja mótið hafa heppnast vel, og gestir hafi vei-ið mun fleiri en búist var við. Fyrir mótið sprungu tvær sprengj- ur í Havana og ein meðan á því stóð, en enginn slasaðist og mótshaldið truflaðist ekki. Talið er að tilræðis- mennirnir hafi verið frá Norður- Ameríku. Sigurður og Ólöf kynntust full- trúum frá fjölmörgum löndum með mismunandi skoðanir á mótinu, en einnig ræddu þau við fjölda Kúbverja. „Mér fannst fólk vera óhrætt við að tala bæði um það góða og slæma við Kúbu,“ segir Olöf. „En þrátt fyrir að það hafi gagnrýnt ýmislegt var það ekki tilbúið að skipta á sínu þjóðskipulagi og okk- ar, þar sem til dæmis þarf að borga fyrir heilsugæslu og skóla.“ „Það er mikil umræða í gangi um forgangsröðun í þjóðfélaginu," segir Sigurður. „Fólk vildi endilega tala við okkur um pólítík og önnur þjóð- félagsmál og heyra hvernig ástand- ið væri á íslandi." „Fréttaflutningur af Kúbu er mótaður af viðhorfi vestrænnna ríkja til stjómskipulagsins," segir Ólöf. „Fjölmiðlar eru mjög upp- teknir af því að finna mannréttinda- brot og gera oft úlfalda úr mýflugu." Þau Sigurður og Ólöf segja kúbönsku byltinguna vera mikil- vægt fordæmi fyrir íslenska alþýðu, en þó verði að fara aðrar leiðir hér á landi en á Kúbu. „Byltingin verður að taka mið af aðstæðum í hverju landi. Bylting í vestrænu þjóðfélagi hlýtur að vera ólík þeirri kúbönsku, en hún hefur sýnt að alþýðan getur skipulagt sig og tekið völdin í sínar hendur.“ Sósíalistar sameinast um Kúbu Samtök íslenskra sósíalista virð- ast einkum geta sameinast um mál- stað Kúbu. Þannig stóðu Ungir sósí- alistar; Sósíalistafélagið og Vináttu- félag Islands og Kúbu ásamt ýms- um öðrum félögum sameiginlega fyrir mótmælafundi gegn viðskipta- banninu á Kúbu í nóvember síðast- liðnum. „Við höfum verið viljugir til sam- starfs við þá sem við eigum samleið með,“ segir Þorvaldur Þorvaldsson, einn stjórnarmanna Sósíalistafé- lagsins. „Við höfum í tvígang sent Málfundafélagi alþjóðasinna boð um þátttöku í fyrsta maí, en þeir hafa ekki sýnt áhuga. Mér sýnist Trot- skíistar vera fastir í sögulegu hjólfari. Stalín er aðalvandamálið í öllum þeirra málum. Umræðan gengur út á það sem gerðist á ákveðnum degi fyrir mörgum árum, en ekki um það hvemig þeir ætla að starfa í dag.“ Sigurður Haraldsson, félags- Markmiðið að bæta heiminn í vor skildu nokkrir félagsmanna eftir brennandi bíldekk fyrir utan skrifstofu ísraelska ræðismannsins á Islandi til að vekja athygli á mál- stað Palestínuaraba. Við hlið bíldekksins létu þeir slökkvitæki. Rauða stjarnan er lausleg samtök ungra manna sem urðu til í Mennta- skólanum í Kópavogi síðastliðinn vetur. I fréttatilkynningum sem sendar hafa verið til fjölmiðla hafa þeir lýst Rauðu stjörnunni sem sós- íalískri frelsis- eða byltingarhreyf- ingu. Talsmaður samtakanna segir þó að aðeins hluti þeirra sem tekið hafa þátt í aðgerðum séu sannfærð- ir sósíalistar. „Margir eru í þessu einfaldlega vegna þess óréttlætis sem sagt er frá á hverj- um degi í erlendum fréttum. Við teljum okk- ur geta gert eitthvað til að bæta úr þessu, að __________ minnsta kosti viljum við reyna. Samtökin sjálf hafa engin skýr markmið önnur en þau að bæta heiminn.“ Viljum ekki skaða saklausa Fulltrúar Rauðu stjömunnar hafa komið fram í sjónvarpi og útvarpi, en aldrei undir nafni. I fréttatil- kynningum segja þeir að hópurinn skiptist í pólitískan arm, og aðgerða- hóp sem nefnist Spartakus. Að sögn talsmannsins eru 10-15 manns sem tengjast hópnum, en hópurinn hefur hvorki félagsskrá né lög. „Eina regl- an sem við höfum fylgt er að valda ekki saklausum skaða, eða að minnsta kosti biðjast afsökunar ef það gerist. Aðalatriðið er auðvitað að ekki verði slys á fólki.“ Fyrir skömmu stóðu samtökin Réttlætið sigrar, sem stofnuð voru sérstaklega vegna þessa tilefnis, fyrir mótmælum á Kópavogsvelli meðan á landsleik unglingalandsliða ísraels og Irlands stóð. Tveir menn með grímur birtust fyrir utan völl- inn með fána_ Palestínu og eftirlík- ingu af fána ísraels þar sem stóð á „ísrahel". Þeir reyndu að kveikja í síðarnefnda fánanum en voru stöðv- aðir af lögreglu. Tilgangurinn var að mótmæla því að Israelum væri leyft að taka þátt íþróttakeppnum meðan meðan þeir færu ekki eftir samþykktum Sameinuðu þjóðanna um að skila herteknum svæðum. Annar mannanna sem handtek- inn var segir að framkvæmd mót- mælanna hafi verið mistök, þó að tilgangurinn hafi verið góður. „ís- lendingar eru mjög viðkvæmir fyrir fánabrennum og því náðist ekki sá tilgangur okkar að fá jákvæða at- hygli. Það orkaði líka tvímælis að við skyldum vera grímuklæddir því þá upplifir fólk okkur sem hættu- lega og það dregur athyglina frá mótmælunum sjálfum." held að aðstæður í dag gefi mögu- leika á að bæta úr þessu og starfa saman.“ Sósíalistafélagið heldur félags- fundi á 1-2 mánaða fresti og starfar innan stofnana Alþýðu- bandalagsins, meðal annars á lands- fundi. Félagið stendur einnig fyrir ýmsum pólitískum uppákomum, meðal annars árlegri dagskrá með róttæku yfirbragði, rauðum fyrsta maí. Hún hefur verið haldin fjórum sinnum og gestir hafa verið 100-200. Haldið upp á bylt- ingarafmælið jjNúna erum við í samstarfi við MIR að undirbúa hátíðardagskrá vegna 80 ára afmælis Októberbyltingarinnar í Rússlandi sem verður 7. nóvember næstkom- andi,“ segir Þorvaldur. „Þetta verður nokkurra daga dagskrá með kvikmyndasýn- ingum og fyrirlestrum sem nær há- punkti á hátíðarfundi á afmælisdag- inn. Við vonumst til þess að ná sam- an öllum byltingarsinnum og öðrum sem aðhyllast sósíalisma. Ég er vongóður um að okkur takist með þessu að hafa varanleg pólitísk áhrif til sameiningar þessa hóps.“ Þorvaldur segir Sósíalistafélagið ekki vera í beinum tengslum við nein erlend félög. „Almennt eru al- þjóðleg tengsl milli sósíalískra sam- taka meiri og frjálsari en var meðan menn skiptust í hreyfingai- eftir því hvaða fyrirmynd þeir hefðu. Við höfum fengið gest frá ML, komm- únistaflokki Danmerkur, á hátíðar- fund, en stöndum ekki í neinum skipulegum tengslum við þá.“ Aðgerðir Rauðu stjörnunnai' Undanfarna mánuði hefur hreyf- ing sem nefnist Rauða stjarnan staðið fyrir ýmsum aðgerðum sem vakið hafa nokkra athygli fjölmiðla, enda til þess gerðar. Meðal annars var áletrun á skilti nálægt herstöð- inni á Keflavíkurflugvelli breytt þannig að úðað var yfir áletrunina vamarstöð og í staðinn skrifað „morðingjar“. Síðar var borði hengdur á göngubrú yfir Kringlu- mýrarbraut með áletruninni „Her- inn burt“. Fyrir nokkrum vikum komu tíu meðlimir Rauðu stjömunnar saman á Ingólfstorgi til að leika knatt- spymu. Tilgangurinn var að vekja athygli á dauða 14 skæmliða Tupac Amara-hreyfingarinnar sem tekið höfðu gísla í japanska sendiráðinu í Llma í Perú, en vora drepnir í árás hersins. Tíu skæruliðanna vora drepnir þar sem þeir voru að leika knattspyrnu í húsakynnum sendi- ráðsins, og talið er að nokkrir þeirra hafi verið teknir af lífi vopnlausir. KA ER OKKAR MAL Julie Ingham skólastjóri Hope Millington enskukennari NÁMSKEIÐIN HEFJAST 15. SEPTEMBER INNRITUN STENDURYFIR FYRIR ' FULLORÐNA Almenn enskunámskeið Samræðuhópar Málfræði og rituð enska Viðskiptaenska FYRIR BÖRN Leikskóli 5-6 ára Enskunámskeið 7-12 ára Unglinganámskeið 13-15 ára Stuðningsnámskeið fyrir 10. bekk SER NÁMSKEIÐ Sérnámskeið, hámark 4 í bekk TOEFL mat/enskumat FYRIRTÆKI Bjóðum upp á sérhæfð námskeið fyrir starfsmenn fyrirtækja. ENSKUSKÓLINÞ FAXAFENI I 0 • FRAMTIÐIN HRINGDU í SÍMA 588 0303/588 0305 OG KANNAÐU MÁLIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.