Morgunblaðið - 31.08.1997, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 31. AGÚST 1997 B 11
henni er lokið er eins og maður
komi glorsoltinn út af hamborgara-
stað; það var ekkert þarna inni sem
mann langaði í. Jú, Tommy Lee
Jones og Will Smith voru skemmti-
lega brattir og tóku sig vel út í
svörtum jakkafötum og sólgleraug-
um og það er gaman til þess að vita
að geimverur eru þegar lentar á
jörðinni, við bara sjáum þær ekki.
En þar með er það upptalið. Leik-
stjórinn Barry Sonnenfeld reynir
að blanda svartri kómedíu saman
við eltingarleik við hættulegar
geimverur en myndin varð aldrei
verulega fyndin og aldrei var hún
spennandi. Hún var mest fyrir aug-
að og skemmti áhorfendum sem
slík og þeir kunnu að meta hana
svo sannarlega, næstum 40.000
manns hafa séð hana í sumar.
Sirkus Billa Smarts var líka fyrir
augað í gamla daga. Og MIB er
sirkusmynd, hringleikahús með
trúðum og sirkusdýrum og loft-
köstum í brellugerð og það kannski
nægir flestum svona yfir hásumar-
tímann. Hún er skínandi dæmi um
hvernig handritin hafa orðið að
þoka fyrir tölvubrellunum.
Framhaldsmyndin Leifturhraði 2
er kannski mesta furðuskepnan í
þessu stórmyndasafni sumarsins. Í
tilraun til þess að bjarga um átta
farþegum um borð í skemmtiferða-
skipi gengur harðákveðinn ungur
lögreglumaður svo snöfurmannlega
til verks að hann eyðileggur
skemmtiferðaskipið, drepur nokkra
saklausa borgara þegar hann leggur
í rúst höfn og fallegan strandbæ
sem stendur við þá höfn og sprengir
loks í loft upp risaolíuskip. Verr af
stað farið en heima setið, segir allt
sem segja þarf um þá ómynd. í
þokkabót tók ekki nema um fimm
mínútur að gera stjömur myndar-
innar, Jason Patric og Söndru Bull-
ock, gersamlega óþolandi á að horfa.
Svo stóru sumarmyndimar ollu
talsverðum vonbrigðum. Líklega
var Fangaflugið skárst vegna þess
að það tókst að gera úr henni góða,
gamaldags hasarmynd með sam-
safni góðra leikara. Handritið var
ekki beysið í sjálfu sér, frekar en í
öðmm sumarmyndum í ár, en henni
tókst að fela það betur en hinum.
Og einhver von er kannski til þess
að Hollywood bjargi andlitinu með
John Woo tryllinum, Face/Off, sem
fmmsýnd er nú um helgina.
Kannski var hægt að sjá þessa
þróun fýrir. Með aukinni tækni í
tölvuvinnslu sendir Hollywood-
maskínan frá sér flóð af innihalds-
lausum brellusýningum, sem hafa
ekkert fram að færa. Þess vegna
urðu Ameríkanar svo fegnir þegar
mynd eins og „Contact" var fmm-
sýnd vestra því það var hægt að
ræða um innihaldið og velta því fyr-
ir sér; myndin vakti spurningar.
Slíkar myndir em því sem næst út-
dauð tegund á sumarvertíð.
inni í einhverju neonljósaskilti og
fer með eina sniðuga setningu í einu
úr setningasafni Tortímandans;
Chris O’Donnell í hlutverki Robins
er hin eina sanna batstelpa myndar-
innar; Alicia Silverstone er hin opin-
bera batgella og Uma Thurman
hamast þvílíkt á rullunni sinni sem
umhverfisverndarsinninn Poison
Ivy að hún er eins og Grænfriðung-
ur í olíubrák. Það vottar ekki fyrir
raunvemlegri hugsun eða hugviti í
allri myndinni. Batman IV er eins
og 100 milljón dollara gluggaskreyt-
ing sem á stendur stómm stöfum:
Serían er dauð.
Það má vera að hinar fornu risa-
eðlur hafi enn verið lífgaðar við í
framhaldsmyndinni Horfnum heimi,
en einhver hefði þurft að lífga
Steven Spielberg við í leiðinni.
Fyrri myndin, Júragarðurinn I, bjó
ekki að merkilegu handriti en hún
var eitthvað nýtt. Allt í framhalds-
myndinni er gamalt, steinrunnið,
útdautt. Framhald sögunnar eftir
Michael Crichton var kannski
versta bók höfundarins á frjósöm-
um ferli og það er skiljanlegt að
Spielberg hotist varla við staf úr
henni í myndina sína. Það þýðir
samt ekki að söguþráðurinn í Júra-
garðinum 2 sé hótinu skárri, ef
söguþráð skyldi kalla. Það er ekki
ein persóna í allri myndinni, sem
hægt er að finna samkennd með, og
lengsta og mesta sperinuatriðið hef-
ur ekkert með útdauðar risaeðlur
1 að gera heldur rammklassískan
útafakstur af hengiflugi. Spielberg
á jafnmarga góða daga og hann á
slæma. Þessi mynd hans minnir á
að það er ekki langt síðan hann
gerði lummurnar Alltaf og Krókur.
Horfínn heimur smellpassar í þann
flokk sem algerlega ósamið bull er
ætlar tölvuteikningunum að redda
r málunum ásamt góðum slatta af
fomri frægð.
Mynd franska stílistans Luc
* Bessons, Fimmta höfuðskepnan, er
líka algjört bull en það mátti stund-
um hafa gaman af henni eða svona
fram undir hlé. Þar gat þó að líta
hugvitsemi í gerð leikmynda og
tæknilegra úrlausna, ólíkt Batman,
en handritið var vont og maður
hafði á tilfinningunni að Besson
hefði glatað fínu tækifæri til þess að
í gera bragðgóða mynd og alls ekki í
fyrsta skipti. Hann er allur á yfir-
borðinu, klókur í myndrænni bygg-
* ingu, en skáld er hann eigi. Hann
hefur alla sína tíð verið eitthvað
stórkostlegt tískufyrirbrigði, enda
frá landi tískunnar, og haldið á lofti
sem afburðamyndasmið. Þegar
maður svo sér myndirnar hans er
alltaf eins og vanti í þær spólurnar
sem geyma innvolsið. Hann stelur
næstum öllu sem í Fimmta elíment-
inu er, mest frá Terry Gilliam, en þá
fyrst fer myndin að hrapa þegar
. dragdrottning í beinni útsendingu
* festir sig eins og Gaultierbakpoka á
Bruce Willis og vælir og skælir það
sem eftir er myndarinnar. Mér
skilst að þeir sem kunnugir séu
hinu franska Heavy Metal dóti eigi
einhverja möguleika á að njóta
myndarinnar eins og hún er og það
eru auðvitað ákveðin forréttindi.
Fjórða höfuðbull sumarsins er
I svo Svartklæddu mennirnir eða
„The Men in Black“. Hún er
k kannski skársta sumarmyndin í ár,
" gamanmynd um geimverur en
mest þó um tölvuteikningar. Þegar
Veró frá 49.980 kr
Sölarveröld
fyrir sólskinsböm.
14 dagaferð 3. desember
Verð frá 49.980 kr. á mann í tvíbýli á Jardin el Atlantico.
Verð frá 43.245 kr. ámannm.v. 2 fullorðna og tvöböm á
Los Cactus.
Innifalið: flug, gisting, akstur til og frá flugvelli erlendis, islensk fararstjóm og
flugvallarskattar. g
Sólartoppurinn á tilveru
allrar íjölskyldunnar
10.000 kr. afsláttur af pakkaleröuni
(H'lfTTiiIfliiÆ/
(hclinfcrö 12. cöa 19. okt.)
(heimferð 12. cóa 19. nóv.)
Hafið samband vegna ferða til Florida og Kanaraíeyja við söluskrifstofur
Flugleiða, umboðsmenn, ferðaskrifstofumar eða símsöludeild Flugleiða í
síma S0 50 100 (svarað mánud. • föstud. kl. 8 -19 og á laugard. kl. 8-16.)
Nýju bæklingamir, Sólardraumar og Skíöafjör, liggja frammi á öllum
söluskrifstofum okkar og á ferðaskrifstofunum.
Vcfur Flugleióa á Internetinu: www.icelandair.is
Netfang fyrir almennar upplýsingar: info@icelandair.is
Dólómítafjöll á Ítalíu - draumalendur
skíðamanna
Val di Fassa
7 daga ferð 31. janúar
á mann í tvíbýli á Gami Tyrolia.
AusturríJd
KLrchberg/Kitzbuhel
9 dagaferð 15. janúar
Verð frá 54.840 kr.
á mann í tvíbýli.
Bókanir og allar nánari upplýsingar um
skíöaferðir á söluskrifstofuimi í Kringlunni.
Simi 50 50 79S.
Tnnifalið: flug, rútuferðir til og frá flugvelli
erleiidis, gisting, fararstjóm og
fiugvallarskattar.
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi