Morgunblaðið - 31.08.1997, Blaðsíða 24
24 B SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
KÚBA OG
ÍSLENSKA
BYLTINGIN
Áhugi ungs fólks á marxisma virðist vera að
aukast eftir áralanga lægð. Helgi Þorsteinsson
______ræddi við íslenska byltingarmenn_____
og kannaði tengsl þeirra við Kúbu.
ÍSLENSKIR sdsíalistar í kröfugöngu á Kúbu. Ólöf Andra og Sigurður Haraldsson bera borðann.
AÁTTUNDA og níunda
áratugnum vora stofn-
uð ýmis félög kommún-
ista á íslandi en á síðari
hluta níunda áratugar-
ins og fyrri hluta hins tíunda var sú
starfsemi í mikill lægð. Á síðustu
áram hafa íslenskir kommúnistar á
ný myndað með sér samtök. Félags-
mönnum þeirra virðist einkum
mega skipta í tvo hópa. Annars veg-
ar era fyrrverandi félagsmenn eldri
samtaka og hins vegar ungt fólk
sem er að stíga sín fyrstu spor í
stjórnmálastarfi. Tvö félög eru
starfandi sem hafa pólitísk stefnuat-
riði, Ungir sósíalistar og Sósíalista-
félagið. Þrjú önnur félög, Vináttufé-
lag Islands og Kúbu, Samtök her-
stöðvaandstæðinga og MÍR hafa
ekki sósíalíska stefnuskrá en marg-
ir meðiimir þeirra teljast til marx-
ista. Loks má nefna ýmis skammlif
sósíalísk samtök ungs fólks sem
stofnuð hafa verið í misalvarlegum
tilgangi.
Ungsdsíalistar í
mörgum löndum
Ungir sósíalistar era sjálfstætt
félag en á sér hliðstæður í samtök-
um ungra sósíalista víða um heim,
meðal annars í Bandaríkjunum, á
Norðurlöndum, í Frakklandi, Bret-
landi og á Nýja-Sjálandi. Fyrstu
samtökin af þessari tegund voru
stofnuð í Bandaríkjunum árið 1994
og voru þá tveir ungir, róttækir ís-
lendingar viðstaddir. Um svipað
leyti fór íslendingur til Kúbu á
æskulýðsmót og hafði þar kynni af
Kanadamönnum sem voru að undir-
búa stofnun sams konar félags. í
framhaldi af þessu var stofnað félag
hér á landi fyrir tveimur árum.
Átta manns á aldrinum 16-29
ára mæta nú reglulega á fundi
Ungra sósíalista sem haldnir era í
húsnæði Pathfinderbóksölunnar við
Klapparstíg. Pathfinder er rekin af
ýmsum einstaklingum og félögum
hér á landi og selur bækur frá sós-
íalísku forlagi í Bandaríkjunum og á
sér einnig hliðstæður í ýmsum öðr-
um löndum. í húsi bóksölunnar eru
einnig reglulega haldnir fundir um
ýmis samfélagsmálefni á vegum
Málfundafélags alþjóðasinna. Að
sögn aðstandenda þess félags mæta
þangað yfirleitt 10-25 manns.
Ungir sósíalistar hafa staðið fyrir
ýmsum mótmælum og kynnt stefnu
sína í skólum. Gestir hafa komið frá
Young Socialists í Bandaríkjunum í
tengslum við stofnun íslenska fé-
lagsins og einnig hefur félagið að-
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
UNGIR sósíalistar: Ásdís Þórólfsdóttir, Jón Thoroddsen,
Benedikt Haraldsson.
VINNINGSLAGIÐ í Söngvakeppni verkalýðsins, sem haldin var á
vegum Sósíalistafélagsins, flutt á rauðum 1. maí.
stoðað við móttöku kúbanskra gesta
sem komið hafa á vegum Vináttufé-
lags íslands og Kúbu.
Mótmælum yfír-
gangi kapítalismans
„Við reynum að kynna okkur sem
mest efni eftir sósíalíska höfunda,
mótmælum yfírgangi kapítalismans,
berjumst fyrir réttindum fólks og
reynum að fá fleiri inn í samtökin,"
segir Jón Thoroddsen, einn með-
lima félagsins. Félagsmenn fylgjast
vel með sósíalíska vikublaðinu Milit-
ant, sem er alþjóðlegt rit en gefið út
í Bandaríkjunum. Einnig segjast
þeir fylgjast með starfsemi stjórn-
málaflokksins Socialist Workers
Party í Bandaríkjunum. Þeir taka
fram að þeir séu ekld arftakar
kommúnískra samtaka 8. og 9. ára-
tugarins.
„Sósíalisminn er hreyfing fólks
sem vinnur með verkalýðshreyfing-
unni að því að umbyita þjóðfélaginu
svo því verði stjórnað í þágu meiri-
hlutans, en ekki fámennrar eigna-
stéttar eins og nú er.“ segir Ólöf
Andra. „Oft er rætt um sósíal-
ismann á þeim nótum að hann sé út-
ópía og stundum er reynt að fá mig
til að játa að ég sé einangraður róm-
antíker, en það er ég ekki.“
Jón segir að viðbrögð ungs fólks
séu yfirleitt jákvæð þegar þeim er
kynntur málstaður Ungra sósí-
alista. „Við verðum sjaldan fyrir
nokkru neikvæðu, en oft verðum við
vör við mikla fáfræði. Menn tengja
okkur oft við Stalín og reyna að
hanka okkur á einhverju sem varð-
ar Sovétríkin. En okkur tekst yfir-
leitt að skýra okkar málstað."
Bakgrunnur félagsmanna í Ung-
um sósíalistum er mismunandi, einn
félagsmanna sagðist aðspurður vera
kominnn af miklu íhaldsfólki, með-
an annar sýndi margra ára gamalt
barmmerki til minningar um Kefla-
víkurgöngu. Þeir segjast hafa orðið
varir við aukinn áhuga ungs fólks á
sósíalisma að undanförnu og hafa
ekki áhyggjur af því að félagið sé
fámennt. „Við erum ekki að safna
fólki til að greiða okkur atkvæði,"
segir Benedikt Haraldsson. „Þeir
sem ganga í félagið verða að gera
eitthvað."
„Þegar ég byrjaði í menntaskóla
var þar enginn áhugi á sósíalisma,"
segir Sigurður. „í byrjun þessa árs
kom kúbönsk stelpa á fund í gamla
skólanum mínum til að kynna
heimaland sitt og Heimsþing æsk-
unnar og þá mætttu ----------------
fimmtíu manns. Fjórir
nemendur úr þessum
skóla fóra síðan á
Heimsþingið.“
Sumir félagsmanna
Ungra sósíalista
einnig
era
Vináttufélagi íslands og
Kúbu og einn þeirra er þar stjórn-
armaður. Pathfinderbóksalan selur
mörg rit kúbanskra marxista, eink-
um eftir Che Guevara og Fidel
Castro.
Kúba fyrir-
mynd sósíalista
„Kúbanska byltingin er fyrir-
mynd sósíalista alls staðar í heimin-
um,“ segir Sigurður, sem var einn
fulltrúa ungra sósíalista á Heims-
móti æskunnar á Kúbu.
Vináttufélag íslands og Kúbu,
VÍK, var stofnað árið 1971. Flestir
félagsmanna, sem era um sextíu
talsins, hafa komið inn í félagið
vegna svonefndra vinnuferða sem
skipulagðar era á hverju ári í sam-
starfi við hliðstæð félög á Norður-
löndum. „I hinum norrænu félögun-
um eru yfirleitt harðir sósíalistar og
þeir sem fara í vinnuferðirnar era
valdir með tilliti til stjómmálaskoð-
ana,“ segir Sylvía Magnúsdóttir, ein
stjómarmanna í VIK. „Hér á landi
hefur þróunin orðið önnur. Margir
þeirra sem farið hafa á síðustu fimm
árum hafa einfaldlega verið í ævin-
týraleit."
Pólitískar vinnuferðir
Dagskrá vinnuferðanna er þó að
nokkra leyti pólitísk. Á sumardag-
skrá „Norrænu brigöðunnar" á
Kúbu í júlí 1997 voru meðal annars
fyrirlestrar um líf og störf Che Gu-
evara og utanríkisstefnu Kúbu og
heimsóknir til kúbanskra fjölda-
samtaka. Stofnun sem nefnist
ICAP, eða „Vináttufélag þjóðanna"
skipuleggur dagskrá heimsóknanna
á Kúbu.
„Þessar vinnuferðir virka ágæt-
lega til að sannfæra mann um ágæti
sósíalismans á Kúbu,“ segir Sylvía.
„Eg fór þangað sjálf á sínum tíma
og leist þá vel á margt þó ég hafi
aldrei verið sósíalisti. Nú er ég gift
Kúbana og fór aftur í fyrra og bjó
hjá venjulegri fjölskyldu. Eftir það
finnst mér þetta ekki eins sniðugt
og áður. Kúbanir eru reyndar sjálfir
mjög klofnir í afstöðu sinni til þjóð-
skipulagsins.“
Sylvía segir Kúbverja vera aftar-
lega í mannréttindamálum og hún
hafi orðið þess áþreifanlega vör í
___________ heimsókn sinni. „Fólki
fannst sjálft það vera
kúgað. Það þorði til
dæmis ekki að tala um
mannréttindamál, jafn-
vel ekki inni á heimilum
Einstaklings
Mótmælum
yfirgangi
kapíta-
lismans
sinum.
frelsi er of takmarkað í landinu og
það gengur einfaldlega ekki upp.
Stjórnvöld nota viðskiptabannið
sem afsökun fyrir kreppunni sem
þar ríkir og fyrir því að þeir nái
ekki því kommúníska stigi sem þeir
stefna að. Það getur svo sem verið
að kreppan sé tímabundin og þetta
er vanþróað land sem erfitt er að
bera saman við Vesturlönd."
Nokkur ágreiningur varð innan
félagsins íyrir skömmu vegna
Kúbverja sem dvelst hér á landi.
Hann leitaði aðstoðar VIK til að
greiða úr sínum málum í heimaland-
inu. Niðurstaða meirihluta félagsins
var að neita honum um aðstoð þar
sem hann er flóttamaður og þar af
leiðandi andstæðingur þjóðskipu-
lagsins á Kúbu. „Mér finnst að með
þessu hafi félagið markað sér póli-
tíska stefnu, þrátt fyrir að í lögum
þess sé aðeins fjallað um menning-
artengsl. Það virðist reyndar vera
að vegna þjóðskipulagsins verði allt