Morgunblaðið - 31.08.1997, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1997 B 29
MANNLIFSSTRAUMAR
VísÍndÍÆr hagnýting kjamasamruna nær takmarkinu?
Stærsta tilraun í heimi
ÞAÐ hefur verið draumur vísindamanna um margra ára skeið að ná
tökum á þeim ferlum sem stýra orkumyndun við kjarnasamruna. Við
kjarnasamruna sameinast léttir atómkjarnar og mynda annan þyngri,
en við það losnar mikil orka úr læðingi. Það eru einmitt ferlar af
þessari gerð sem stýra orkumyndun innan stjarna, eins og til dæmis
sólinni. Kjarnasamruninn getur hinsvegar einungis átt sér stað við
gífurlega hátt hitastig, margar milljón gráður Celsíus. Vísindamenn
við Joint European Torus (JET) í Oxfordshire á Englandi ætla sér
að mynda mesta orkugeisla sem um getur í stýrðum kjarnasamruna
í september eða október nú í ár. Ætlun þeirra er að framleiða 10
megawött í margar sekúndur með því að renna saman tveimur afbrigð-
um vetnis ísótópa, sem eru tvívetni og þrívetni. Leiðin til þessa árang-
urs hefur ekki verið greiðfarin, en þau vandamál sem þarf að leysa
svo að hagnýting þeirrar orku sem myndast við kjarnasamruna geti
átt sér stað eru á meðal þeirra erfiðustu í nútíma eðlisfræði.
eftir Sverrir
Ólafsson
Til þess að koma af stað kjarna-
samruna þarf að koma vetninu
á mjög hátt hitastig, sem er af
stærðargráðunni 50 - 100 milljón
gráður Celsíus.
Við slíkan hita
hafa atóm „leyst
upp“ og efnið
samanstendur af
atómkjörnum og
rafeindum. Það er
vissulega mikið
vandamál að
geyma og ráða við
efni á slíku hitastigi. Til að leysa
þetta vandamál hafa vísindamenn
notfært sér þá staðreynd að segul-
svið hefur ákveðna kraftvirkni á
hlaðnar eindir sem ferðast um
áhrifasvæði þess. Hægt er að nota
segulsvið af ákveðinni rúmfræði-
legri lögun til að auka samheldni
plasmans þannig að það bókstaf-
lega svífur í lausu lofti. Mikilvægt
er að plasmað snerti ekki annað
kaldara efni, en við það myndi það
tapa mikilli varmaorku.
Tækin sem vísindamennirnir í
Oxfordshire nota er s.k. tokamark
sem var þróaður f Sovétríkjunum,
fyrrverandi, á sjöunda áratugnum.
Megin uppistaða tokamark er
slöngulaga geymir en í honum er
hið eiginlega plasma. Tvö mismun-
andi segulsvið eru notuð til að halda
plasmanu saman innan slöngunnar,
án þess að það snerti veggi henn-
ar. Á undanförnum 30 árum hefur
billjónum dollara verið varið í það
að fullkomna tokamarkinn en samt
eru flestir vísindamenn vantrúaðir
á að hagnýting þeirrar orku sem
myndast við kjarnasamruna sé á
næsta leiti.
Sumir telja meira að segja að
takmarkinu verði aldrei náð og að
peningunum væri betur varið til
annarra rannsókna.
Aðrar aðferðir hafa einnig verið
reyndar til að koma á stað kjama-
samruna. Eftirtektarverðust þess-
ara er sú sem notar leysigeisla til
að hita vetnið og þétta því saman.
í þessari aðferð er leysigeisla skot-
ið á yfirborð glerkúlu sem er 200
- 300 míkrómetrar í þvermál og
hefur að geyma blöndu tvívetnis
og þrívetnis við rúmlega 100 loft-
þyngda þrýsting. Leysigeislinn hit-
ar yfirborð kúlunnar upp í margar
milljón gráður Celsíus. Við þetta
springur kúlan en ytra lag hennar
þeytist út í allar áttir og þrýstir
vetnisísótópunum inn á við. Hita-
stigið sem myndast við þetta getur
dugað til að koma á stað kjarna-
samruna.
Ef einhvern tíma tekst að ná
fullkomnum tökum á kjamasam-
runa, hvaða aðferð sem notuð verð-
ur, er ekki útilokað að endanleg
lausn fáist á öllum orkuvandamál-
um mannkynsins þar sem nóg er
af vetni í heiminum. Mikið er því í
veði. Notkun kjarnasamruna hefur
einnig marga tæknilega kosti fram
yfir aðrar aðferðir sem notaðar eru
við orkuframleiðslu. Ferillinn er
talinn hættuminni en kjarnasam-
runi og leiðir til myndunar færri
geislavirkra efna.
Vonir vísindamannanna eru ekki
takmarkaðar við tilraunir þeirra nú
í september eða október. Á undan-
förnum sex árum hafa þeir unnið
að hönnun s.k. Intemational
Thermonuclear Experimental Re-
actor (ITER). Ef þeim tekst að
tryggja það fjármagn sem þarf til
byggingar ITER, sem er af stærð-
argráðunni 10 billjón dollarar, hafa
þeir sett sér það takmark að fram-
Mjaðmarliður.
gerist oft er hætta á að sjúklingur-
inn verði krepptur eða skakkur í
baki og fái jafnvel kryppu. Mjaðm-
arbrotin verða að teljast alvarleg-
ust, sumt gamalt fólk kemst aldrei
almennilega á fætur eftir slíkt brot
og erlendar rannsóknir sýna að
10-20% sjúklinganna deyja innan
eins árs frá brotinu.
Áhættuþættir fyrir beinþynningu
eru einkum aldur (hættan vex mik-
ið með aldri), að vera kona, að fá
tíðahvörf snemma, að vera af hvíta
kynstofninum, lítið kalsíum í fæð-
unni, kyrrseta, lítil líkamsþyngd,
beinþynning í ættinni, tóbaksreyk-
ingar og langvarandi notkun stera-
leiða 1500 milljón wött innan
fimmtán ára. Um er að ræða mikla
fjárfestingu í „fyrirtæki“ sem ekki
kemur til með að skila áreiðanleg-
um hagnaði. Ef vísindamennirnir
hinsvegar ná settu markmiði gætu
niðurstöður þeirra haft sterk áhrif
á alla umræðu um orkurannsóknir
á næstu öld.
VETNISSPRENGJAN byggist á kjarnasamruna. Verður ein-
hvern tíma hægt að stýra orkumyndun við kjarnasamruna og
nota hann til friðsamlegrar orkuframleiðslu?
■ '
lyfja eins og prednisóns. Vitneskjan
um þessa áhættuþætti býður upp á
ýmsar fyrirbyggjandi aðgerðir. Með-
ferð með östrógenhormónum við
tíðahvörf hefur sýnt sig að minnka
hættu á beinþynningu. Sjá verður
til þess að nægjanlegt kalsíum sé í
fæðunni, margir telja æskilegt að
konur og karlar fái ekki minna en
1.000 mg á dag. Dæmi um fæðuteg-
undir sem innihalda mikið kalsíum
eru mjólk, jógúrt, skyr, ostur, lax,
rækjur, sumar tegundir bauna og
spergilkál. Þijú glös af mjólk inni-
halda t.d. um 1.000 mg af kalsíum.
Ef þetta dugir ekki til fást alls kyns
töflur með kalsíumsöltum og einnig
er gott að taka D-vítamín t.d. sem
lýsi. Hreyfíng hefur mikið að segja
og ef fólk fær ekki nægjanlega
áreynslu í sínu daglega starfi er
gott að bæta við 2-4 klst. á viku
með hæfilegri áreynslu.
Þeir sem eru komnir með bein-
þynningu ættu einnig að beita þess-
um sömu aðferðum og notaðar eru
fyrirbyggjandi en auk þess kemur
til greina að nota nýleg lyf. Lyfin
sem mest eru notuð og gefa oft
góðan árangur eru bífosfónöt og
kalsítónín en nokkur lyf af þessum
flokkum eru á markaði hér á landi.
Öll þessi lyf verka á þann hátt að
þau draga úr starfsemi beineyðandi
frumna og geta á þann hátt minnk-
að hraða beinþynningar eða jafnvel
snúið henni við.
Viltu styrkja stöðu þína ?
FYRIR
isííh
lillJih lililr llriliiUl
10-14 ÓRIl OG
14-10 RRR
i Cl Q~
.oogoQo o1__
# _DOQQQQ BQQ
t' QQQ OOQQ QQQ
Markmið námsins er að útskrifa nemendur
með hagnýta þekkingu á tölvunotkun
og veita þeim innsýn í notkunarmöguleika
í tölvu- og upplýsingaumhverfinu.
Námið er 60 kennslustundir.
Kennt verður á laugardögum
frá kl. 8:30 -12:00.
Skráning og upplýsingar
í síma 568 5010
Rafiðnaðarskólinn
Skeifunni 11B • Sími 568 5010
Áhugavert *
»’ og spennand' ,
'v nám
I
MMhMH