Morgunblaðið - 17.09.1997, Page 12

Morgunblaðið - 17.09.1997, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Húsum fjölgar á ferðaþjónustu- og hrossaræktarbýlinu Leirubakka Söngskáli úr hraunhellum reistur í Landsveit Eigendur Leirubakka í Landsveit vígðu á dög- unum nýjan skála við gistihúsið þar sem ferðalangar geta sungið fram á nótt. Uppbygg- ing staðarins hófst fyrir sex árum og á döfinni er að byggja reykhús fyrir jólahangiketið og litla útilaug. NÝR söngskáli var tekinn í notkun á ferðaþjónustu- og hrossaræktar- býlinu Leirubakka í Landsveit á dögunum. Bygging nýs gistihúss hófst á jörðinni fyrir sex árum en upphafiega stóð til að lagfæra lítið íbúðarhús sem þar stóð að sögn Auðar Eydal eiganda Leirubakka ásamt Sveini R. Eyjólfssyni. Hún segir að ekki hafi verið tal- ið borga sig að taka gamla húsið í gegn en lagt til í staðinn að byggja tvær hæðir, kjallara og ris, sem henni fannst of stórt, eins konar Litla-Hekla. Klippti Auður saman teikningar smiðsins svo úr varð ein hæð í stað tveggja, kjallari og ris, og hófust framkvæmdir 10. september árið 1991. Gistihúsið varð fokhelt um jól sama ár og lauk framkvæmdum við innréttingar og lóð um mitt sumar 1992. Árið eftir var stór reiðhöll tekin í notkun og nú sex árum síðar er söngskálinn vígður. Þá er reykhús fyrir jólahangiketið í smíðum og líka á döfinni að búa til útilaug með affallsvatni hitaveit- unnar, þar sem hraustmenni geta striplast og notið útsýnis til Hekiu, segir Auður. Ekki er heldur útilok- að að lítill golfvöllur verði á Leiru- bakka í framtíðinni og loks hafa eigendur látið sig dreyma um að byggja bænhús á staðnum til minja um kirkjuna sem þar stóð. Reistur á rústum fjárhúss Söngskálinn er um 100 m2 að stærð og byggður í gömlu fjárhúsi sem stóð á Leirubakka. Veggirnir eru hiaðnir úr höggnum hraunhell- um til þess að varðveita gamla verkmenningu. Heiðurinn af þeim á Ásgeir Auðunsson á Minni-Völl- um en smiðir voru Bragi Guð- mundsson í Vindási og Björn Guð- jónsson. Um 110 manns komast í sæti í skálanum, sem hitaður er með affalisvatni, líkt og stéttin fyr- ir framan húsið. Var talin þörf á sérstökum skála fjær gistihúsinu, svo stórir hópar gætu skemmt sér fram á nótt án þess að trufla svefn annarra gesta sem vildu hvílast. 234 Itr. 2 körfur 39.990 stgr. 348 Itr. 3 körfur 45.990 stgr. 462 Itr. 4 körfur 53.990 stgr. 576 Itr. 5 körfur 68.380 stgr. Góðír greiðsluskilmálar. mi ViSA og EURO raðgreiðslur án útb. Fyrsta fiokks frá /rOniX HÁTÚN (.A - SÍMI 552 4420 Morgunblaðið/Rax AUÐUR Eydal, Gísli Sveinsson og Ásta Begga Ólafsdóttir. GÖMUL verkmenning setur svip á söngskálann. Bragi Guðmunds- son, Björn Guðjónsson og Ásgeir Auðunsson. KISA sat fyrir meðan gestir sungu og borðuðu pönnu- og flatkökur. Auður segist vonast til að skálinn beri nafn með rentu og fékk Signýju Sæmundsdóttur til þess að flytja nokkur lög að viðstöddum gestum hinn 10. september síðast- liðinn. Söng Signý meðal annars lög eftir Atla Heimi Sveinsson sem Leirubakki og nánasta umhverfi blésu honum í brjóst. Eigendur Leirubakka eru stoltir af glæsilegum húsakynnum en eins og Auður benti á við sama tækifæri breyta gestrisni og góðar móttökur hreysi í höll. I því sam- hengi er ekki úr vegi að minnast á staðarhaldarana, Skagfirðing- ana og söngfólkið Ástu Beggu Ólafsdóttur og Gísia Sveinsson, sem komu ríðandi að Leirubakka fyrir fimm árum til þess að staldra við í tvo mánuði. Tóku þau hlýlega á móti gestunum með veitingum að íslenskum sið þegar skálinn var kynntur. Gullfoss, Geysir og Hekla Athygli ferðamanna er mikið beint að Gulifossi og Geysi og lagði Auður til í ávarpi sínu að talað yrði um Gullfoss, Geysi og Heklu í staðinn. Benti hún á að útlending- um sem kæmu að Leirubakka þætti mikið til víðsýnis í Landsveitinni koma. Þá væri nýleg Heklumiðstöð í Brúarlundi opin á sumrin, þar sem saga íjallsins síðustu 7.000 árin er rakin. í gistihúsinu á Leirubakka er aðstaða til þess að hýsa rúmlega 50 gesti í uppbúnum rúmum og allt að 70 _ef svefnpokapláss eru talin með. Á þriðju hæð er séríbúð með þremur herbergjum sem gefur fínustu hótelsvítum lítið eftir en herbergin í húsinu eru öll mismun- andi að lit. Sérinngangur er á hótelinu fyrir hestamenn, þar er fyrirtaks hrein- lætisaðstaða, sauna, tveir heitir pottar og ráðstefnusalir. Úti á hlaði blasir mjólkurhúsið við með eldun- araðstöðu fyrir þá sem vilja mat- reiða sjálfir en gestir geta líka ver- ið í hálfu fæði og fullu. Á staðnum er líka verslun fyrir ferðamenn og bensínsala. Við Mjólkurhúsið eru gamlar tóftir, Njálsbúð og Gaulverjabær, þar sem haldnar eru grillbrennur og sungið. Á Leirubakka er líka hestaleiga, tjaldstæði með sturtum og snyrtiaðstöðu, beitarland og skjól fyrir 40 hesta. Stutt er til þekktra ferðamanna- staða frá gistihúsinu, má þar nefna Tröllkonuhlaup, Þjófafoss, Fossa- brekkur, Rangárbotna, Skarfanes, Hraunteig og Galtalækjarskóg. Einnig er hægt að fara í Þjórsár- dal, Landmannalaugar, Fjallabaks- leið og greiður vegur þaðan inn á Sprengisand. Hestaleiga og veiði Fjöldi gönguleiða er í nágrenninu en staðarhaldararnir Ásta Begga og Gísli geta skipulagt dvöl á staðn- um og bent á ferðamöguleika. Á staðnum er hestaieiga og auk þess hægt að veiða í Tangavatni gegn leyfi og Rangá, sem fellur meðfram landi Leirubakka. Leiðin úr höfuðborginni að Leirubakka er um 120 kílómetrar og segir Auður Eydal að eigendum- ir komi oft í heimsókn. Þurfa þeir hins vegar yfirleitt að gista annars staðar, vegna plássleysis. Loks segir hún að þau séu stolt af sínum húsakynnum og bætir við að vonandi eigi oft eftir að vera glatt á hjalla í nýja söngskálanum. Doktor í klassískum fræðum •GOTTSKÁLK Þór Jensson varði doktorsritgerð sína í klass- ískum fræðum við Toronto-háskól- ann í Kanada hinn 7. nóvember 1996 og var formlega sæmd- ur doktorsnafn- bót hinn 9. júní sl. Doktorsrit- gerðin ber heitið „The Recollecti- ons of Encolp- ius: A Reading of the Satyrica as Greco- Roman Erotic Fiction“ og fjallar aðallega um rómversku skáldsög- una Satyrica eftir Petróníus Arbit- er, sem uppi var á tíma Nerós keisara á fyrstu öld okkar tíma- tais. Yfirlesari ritsins meðan það var í smíðum var prófessor Roger Beck, en andmælendur við dokt- orsvörnina voru prófessorarnir Hugh Mason frá Toronto-háskóla og Gerald Sandy frá Háskólanum í British Columbia. „Með greiningu sinni á frásagn- arformi skáldsögu Petróníusar, sem er líklega elsta evrópska skáldsagan sem varðveist hefur, og með samanburði við önnur frá- sagnarform í fornöld, sýnir Gott- skálk fram á að bókmenntagrein hinnar svokölluðu rómversku skáldsögu sé í raun um tvö hund- ruð árum eldri en Petróníus. Um er að ræða afar flókna frásagnar- aðferð í fyrstu persónu með fjöl- mörgum styttri frásögnum sem þáttaðar eru inn í meginsöguna. Við nánari eftirgrennslan kemur í ljós að frásagnarform þetta var vel þekkt í fornöld og kallaðist „mílesiskar frásagnir" eftir glat- aðri erótískri skáldsögu sem samin var af gríska höfundinum Aristei- des á annarri öld fyrir okkar tíma- tal,“ segir í fréttatilkynningu. Þá sýnir Gottskálk fram á í rit- gerð sinni að hugmyndin um „róm- verskar skáldsögur“ og „grískar skáldsögur“ sem ólík bókmennta- form eigi rætur að rekja til þjóð- ernisstefnu þýskra textafræðinga í lok síðustu aldar, en samkvæmt viðhorfum þess tíma átti hver þjóð að eiga sér sjálfstæða og sjálf- sprottna bókmenntahefð. „Róma- ríki var hins vegar ekki þjóðríki heldur heimsveldi og innan þess rúmuðust samtímis mörg tungu- mál og margvíslegar menningar- hefðir." Gottskálk hefur verið ráðinn til starfa sem aðstoðarprófessor í klassískum fræðum við Toronto- háskóla. Jafnhliða því mun hann á næsta ári stunda frekari rann- sóknir á fornaldarskáldsögunni með rannssóknarstyrk frá Nort- hrop Frye Center í Toronto. Þá vinnur hann að endurskoðun dokt- orsritgerðarinnar til útgáfu hjá Campridge University Press í Eng- landi. Gottskálk fæddist á Seltjarnar- nesi 4. apríl, 1958. Hann lauk stúdentsprófi frá Flensborgarskól- anum árið 1980 og BA-prófi í grísku oglatínu árið 1989 frá Háskóla Islands. Það sama ár fiutti hann til Toronto í Kanada og hóf framhaldsnám í klassískum fræðum. Því námi lauk hann árið 1991. Foreidrar Gottskálks eru Jens Christian Sörensen, forstöðumað- ur Veðdeildar Landsbanka íslands, og Elínborg Hulda Eggertsdóttir hjúkrunarkona. Gottskálk er kvæntur Claudiu Neri, grafískum hönnuði og er heimili þeirra í Tor- onto. I l S I I I i: L. I f ! u

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.