Morgunblaðið - 17.09.1997, Page 17

Morgunblaðið - 17.09.1997, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997 17 ÓÁNÆGJAN skilaði sér fyrir Carl I. Hagen Aldrað fólk og ungir karl- ar áhrifa- valdar FRANK Aardal hja Institut for sam- fundsforskning í Ósló sagðist í sam- tali við Morgunblaðið í gær telja að komandi vetur verði sviptingasamur í norskum stjórnmálum. Hann segir athyglisverðustu sveiflurnar í kosninganiðurstöðun- um felast í fylgi fjögurra "stærstu flokkanna. Tveir stærstu flokkarnir, Verkamannaflokkurinn og Hægri flokkurinn, hafi komið mjög illa út og þó Verkamannaflokkurinn hafi einungis tapað tveimur þingsætum og sé enn langstærsti flokkur á þingi hafi hann hlotið verstu útreið frá stríðslokum. Á sama hátt hafi Hægriflokkurinn hlotið verstu útreið i kosningum frá upphafi. Þá hafi Framfaraflokkurinn og Kristilegi þjóðarflokkurinn hlotið fleiri atkvæði en nokkru sinni fyrr og séu þeir nú annar og fjórði stærstu flokkarnir. Aardal segist telja að úrslit kosn- inganna hafi að nokkru leyti tengst því sem hann kallar ESB-stríðið, þ.e. deilum um samband og sam- skipti Norðmanna við Evrópusam- bandið, sem hann segir sígilt hita- mál í Noregi. Hann segir þó að af- staðan til Evrópusambandsins, sem í upphafi kosningabaráttunnar virt- ist líkleg til að hafa úrslitaáhrif í kosningunum, hafi fallið í skuggann af öðrum málefnum er nær dró kosn- ingum. Óánægja með ráðstöfun olíugróðans Er líða tók á sumarið urðu umræð- ur um félagslega þjónustu og sparn- að ríkisins allsráðandi. Aardal telur að úrslitin megi að miklu leyti rekja til óánægju kjósenda, og þá sérstak- lega eldra fólks, með sparnaðar- stefnu ríkisstjórnarinnar. Fólk sé ósátt við að hagnaður Norðmanna af olíuvinnslu sé settur til hliðar í stað þess að hann skili sér í mennt- un, heilbrigðis- og félagsþjónustu. Þá segir hann óánægða unga menn annan hóp kjósenda sem hafi skiiað sér til Framfaraflokksins. Þetta séu aðallega ungir menn sem hafi verið óánægðir með stefnu stjórnarinnar í innflytjendamálum. Hvað varðar stjórnarmyndun í kjölfar kosninganna segir Aardal það alveg nýja stöðu að miðjuflokk- arnir séu í þeirri lykilstöðu sem þeir eru nú. Einnig segir hann það gefa nokkuð flókna mynd að þrír flokkar séu svo til jafnstórir en þó allir helm- ingi minni en stærsti flokkurinn, sem að likindum mun byija kjörtímabilið í stjórnarandstöðu. Hann segist þó eiga von á því að ný ríkisstjórn verði mynduð áður en ríkisstjórn Thorbjorns Jaglands for- sætisráðherra segi af sér um miðjan október og stjórnarskiptin muni að öllum líkindum þýða a.m.k. tíma- bundna hægri sveiflu. ERLEIMT Einstæður atburður í sögu kínverska kommúnistaflokksins Hvatt til umræðu um fjölda- morðin á stúdentum 1989 Peking. Reuter. ZHAO Ziyang, sem rekinn var sem formaður kínverska kommúnistaflokksins í kjölfar stúd- entabyltingarinnar 1989, hefur skorað á flokkinn að endurskoða mat sitt á atburðunum, sem leiddu til fjöldamorðanna á Torgi hins himneska friðar. Engar líkur eru á, að það verði gert en með áskoruninni er samt eins og sprengja hafi sprungið á flokksþingi kínverskra kommúnista. Sagt er, að nokkrar mannabreytingar séu vænt- anlega í æðstu yfirstjórn hersins. Zhao, sem á sínum tíma átti að taka við af Deng Xiaoping, segir í bréfi til félaga í stjórn- málanefnd flokksins, að nauðsynlegt sé að endur- skoða þann dóm, að mótmæli námsmanna hafi verið „gagnbylting". Þykir Zhao, sem er 77 ára gamall, sýna mikið hugrekki með þessari áskor- un en þetta eru fyrstu pólitísku afskipti hans í átta ár. Zhao segir í bréfinu, að allir viti, að stúdent- arnir hafí á sínum tíma verið að mótmæla spill- ingu og krefjast pólitískra umbóta en ekki ætlað að sér að steypa kommúnistaflokknum. Sagt er, að sumir gamlir frammámenn í flokknum hafi farið fram á það við stjórnmálaráðið, að það ræði bréf Zhaos en hann hefur verið í eins kon- ar stofufangelsi frá því hann var sviptur völdum 1989. Ottast áhrif Zhaos Zhao segir, að „atburðina 4. júní“ verði að ræða fyrr eða síðar enda muni þeir ekki falla í gleymsku. Jiang Zemin, forseti Kína, neitaði Zhao um að fá að vera viðstaddur útför Dengs í febrúar sl. og haft er eftir erlendum sendimönnum, að núverandi ráðamenn í Kína óttist áhrif Zhaos en fijálslyndi hans í pólitískum og efnahagsleg- um efnum aflaði honum vinsælda á sínum tíma. Xiao Yang, dómsmálaráðherra Kína, sagði í gær, að afstaðan til atburðanna 1989 yrði ekki endurskoðuð. Flokkurinn hefði komist að réttri niðurstöðu um þá og þar með tryggt stöðugleika í landinu. Erlendir sendimenn í Peking segja, að Zhao sjálfur muni ekki hagnast neitt á bréfinu, sem hann sendi inn á flokksþingið, hann eigi ekki afturkvæmt í stjórnmálin, en hins vegar geri hann núverandi ráðamönnum erfitt fyrir. Benda þeir einnig á, að bréf af þessu tagi eigi sér ekk- ert fordæmi í sögu kínverskra kommúnista. Jiang treystir tökin Haft var eftir heimildum í gær, að Jiang Zem- in forseti og yfirmaður hersins ætlaði að setja þijá hershöfðingja á eftirlaun en þeir eru allir vel við aldur, um og yfir áttrætt. Tveir þeirra voru nánir vinir Deng Xiaopings en ekki taldir j'afn trúir Jiang. Með brotthvarfi þeirra hefur Jiang skipt um næstum alla æðstu yfirmenn í hernum. Vinsæl megrun arlyf innkölluð Washin^ton. Reuter. Hús nötr- ar í Lille VERSLANA- og skrifstofumið- stöð í borginni LiIIe í Frakklandi var rýmd í gær, í annað sinn á tveim dögum, vegna þess að einn 12 hæða turna, sem á miðstöð- inni eru, hóf að nötra með óút- skýrðum hætti. Verkfræðingar voru kallaðir til og rannsökuðu þeir undirstöður byggingarinn- aren fundu ekkert athugavert. Miðstöðin var síðan opnuð en turninn er áfram lokaður. Borg- arstjórinn í Lille Ijáði frétta- mönnum í gær að verkfræðing- arnir hefðu ekki fundið neitt, er gæti verið ástæða titringsins, og ekki hefði heldur komið í ljós neitt óeðlilegt í burðarvirki. Reuter TVO vinsælustu megrunarlyfin er verið hafa á markaðnum í Bandaríkj- unum voru innkölluð í gær vegna þess að rannsóknir hafa leitt í ljós að þau geta valdið alvarlegum hjart- askaða. Annað lyflanna, fenfluramine, er notað í blöndu við annað lyf, phent- ermine, og er blandan kölluð „fen- phen“, en samkvæmt niðurstöðum nýrra rannsókna hefur þessi blanda valdið skemmdum á hjartalokum. Lyfin eru einungis ætluð fólki sem þjáist af alvarlegri offítu og ekki ætlunin að þeim sé blandað saman. Hitt lyfið, sem var innkallað, nefn- ist dexfenfluramine, og hefur verið selt undir heitinu Redux. Bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitið (FDA) hefur ráðið fólki frá því að neyta lyfjanna. Eftirlitið safnaði gögnum byggðum á niðurstöðum lækna, er athugað höfðu virkni hjartaloka hjá fólki sem notaði lyfin. I ljós kom að í 30% tilvika var eitthvað athuga- vert við virknina, og að sögn tals- manns FDA er þetta hlutfall hærra en búast var við. Fulltrúar lyfjafyrirtækjanna er framleiða lyfin, sem hafa verið inn- kölluð, sögðu í gær að hætt yrði að framleiða þau. Samkvæmt upplýsing- um Lyfjaeftirlits ríkisins er hvorugt þessara lytja á íslenskri sérlyfjaskrá. ísraelar reyna að telja landnemana á að hverfa frá Ras al-Amoud Stjórn Netanyahus sögð hafa vitað um fyrirætlanir þeirra Jerúsalem. Reuter. Reuter VINSTRISINNAÐIR ísraelar og Palestínumenn söfnuðust saman í gær þar sem ísraelsku landnemarnir höfðu sest að í Ras al-Amo- ud og mótmæltu landnáminu. ísraelskir lögreglumenn héldu mótmælaaðgerðunum í skefjum. ISRAELSSTJORN reyndi í gær að telja landnema, er settust að í tveim húsum í Austur-Jerúsalem fyrr í vik- unni, á að yfirgefa þau sjálfviljugir, að því er háttsettur embættismaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, greindi frá í gær. Sagði hann að reynt væri að finna lagalegan grundvöll fyrir því að vísa landnemunum á brott, þrátt fyrir að Benjamin Net- anyahu, forsætisráðherra, hefði sagt í fyrradag að stjórnvöld ættu engan lagalegan kost á að flytja þá á brott. Fréttastofa Reuters hafði eftir embættismanninum að góðar líkur væru taldar á að finna leið til þess að vísa landnemunum brott. Palest- ínumenn ætla Austur-Jerúsalem að verða höfuðborg sjálfstæðs ríkis síns, og eru andvígir öllu landnámi gyðinga þar. Friðarviðræður ísraela o g Palestínumanna runnu út í sandinn í mars sl. er stjórn Netanya- hus veitti leyfi fyrir byggingum í landnámi gyðinga í austurhluta borgarinnar. Forsætisráðherrann sagði hins vegar um hústökuna nú að hún kæmi á engan hátt vel við málstað ísraela. ísraelska dagblaðið Yedioth Ahro- noth hafði í gær eftir dómsmálaráð- herra Israels að ef til vill væri mögu- legt að vísa til öryggis ríkisins og flytja landnemana á brott, en hann yrði að kynna sér staðreyndir máls- ins áður en hann léti álit sitt í ljósi. Ráðherra í stjórn Netanyahus staðfesti í gær að ríkisstjórnin hefði vitað að landnemarnir kynnu að flytja inn í tvö hús í Ras al-Amoud hverfinu um það bil hálfum mánuði áður en til þess kom. Landnemarnir fluttu inn í húsin í skjóli myrkurs seint á sunnudag, á sama tíma og Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, lauk sinni fyrstu för til Mið-Austurlanda, og hafði lagt til að ísraelar stöðvuðu umdeildar byggingar landnema á svæðum Palestínumanna. Avigdor Kahalani, ráðherra inn- anríkisöryggismála, staðfesti fregnir ísrelskra fjölmiðla þess efnis að þetta mál hefði verið til umræðu á neyðar- fundi ríkisstjórnarinnar 5. septem- ber, sem Netanyahu hefði stýrt. Hefði fundurinn verið haldinn fegna falls 12 ísraelskra hermanna í suður- hluta Líbanon, en ráðherrann kvaðst hafa greint fundinum frá því að land- nemarnir hefðu fest kaup á þessum húsum í hverfinu. Palestínumenn segja að landnám gyðinga á svæðum sem ísraelar hertóku í sexdagastríðinu 1967 kippi stoðunum undan friðarumleitunum, og miði að því að uppræta Palestínu- menn. Yasser Arafat, forseti heima- stjórnar Palestínumanna, sagði á mánudag, að hústakan í Austur- Jerúsalem væri brot á friðarsamn- ingum ísraela og Palestínumanna. Arafat mun mæta til fundar utanrík- isráðherra Arabaríkja í Kaíró á föstudag og laugardag, að því er palestínskur embættismaður greindi frá í gær. Myndi forsetinn ræða þá klemmu sem landnám gyðinga á svæðum Palestínumanna hefði sett friðarumleitanir í. Netanyahu fre- staði í gær fyrirhugaðri heimsókn sinni til Rúmeníu vegna þessa máls.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.