Morgunblaðið - 17.09.1997, Side 32
32 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
SIGURBJÖRG ANGANTÝSDÓTTIR,
Sunnuvegi 2,
Skagaströnd,
verður jarðsungin frá Hólaneskirkju föstuda-
ginn 19. september kl. 14.
Sigmar Jóhannesson,
Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir, Benjamín L. Fjeldsted,
Dagný Marín Sigmarsdóttir, Adolf Hjörvar Berndsen
og barnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við and-
lát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
ÁGÚSTU ÁGÚSTSDÓTTUR,
Kambaseli 27
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 14-G
Landsspítala og heimahjúkrunar í Mjódd.
Sigurður O. Pétursson, Anna Kjartansdóttir,
Þór Ottesen, Brynhildur Ólafsdóttir,
Björn O. Pétursson, Katrín Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin-
semd við andlát og útför elskulegrar eiginkonu
minnar og móöur okkar,
ELÍSABETAR LILJU LINNET.
Gunnar Dal,
Hlíf Svavarsdóttir,
Guðrún Svava Svavarsdóttir,
Kristján Svavarsson,
Edda Sigurðardóttir.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför
SALÓMONS GUNNARS
ERLENDSSONAR
húsasmíðameistara,
Árholti 4,
Húsavfk,
Finnbjörg Jónsdóttir
börn, tengdabörn,
afa og iangafabörn.
NÍELS
HERMANNSSON
+ Níels Hermannsson fæddist
í Málmey á Skagafirði 27.
júlí 1915. Hann lést á heimili
sínu 5. september síðastliðinn
og fór útför hans fram frá
Grensáskirkju 12. september.
Með þessum orðum langar mig
til að kveðja föðurbróður minn Ní-
els Hermannsson og þakka ljúfar
minningar sem honum og fjölskyldu
hans eru tengdar. Arið 1967 dvaldi
ég sumarlangt í Hófsósi hjá þeim
Níelsi og Nunnu og einkadóttur
þeirra, Hönnu, jafnöldru minni og
vinkonu. Á þeim tíma starfaði Níels
sem smiður vítt og breitt um Skaga-
fjörð en jafnframt tók hann mikinn
og virkan þátt í ýmsum félagsstörf-
um. M.a. átti hann sæti í hrepp-
stjórn staðarins um langt árabil. Á
þessum árum rak Níels einnig
sjoppu, þá einu sem starfaði í Hofs-
ósi á þeim tíma og ég var ráðin,
ásamt Hönnu, til að afgreiða í sjopp-
unni þetta sumar. Fyrir mig var
þetta mikil upphefð og ekki laust
við að ég fyndi nokkuð til mín að
vera ráðin til slíkra ábyrgðarstarfa
á þessu viðkvæma skeiði unglings-
áranna. Þegar ég hugsa til þessa
tíma minnist ég myndugleika Hönnu
frænku í sjoppunni og heima,
Nunnu, sem alltaf sá skoplegu hlið-
arnar á öllu og Nílla sem þrátt fyr-
ir mikið annríki gaf sér tíma til að
taka þátt í glensi og gamni okkar
stelpnanna. Hjá þeim bjó einnig
yngsti sonur Níelsar, Brói, eins og
við kölluðum hann, þá rúmlega tví-
tugur að aldri. Ég minnist þess að
okkur Hönnu þótti allmikið til hans
koma og lögðum okkur mjög fram
um að fylgjast grannt með því sem
gerðist í hans lífi. Þegar leið að
hausti og heimferð var sumarið gert
upp. Nílli tók stílabókina sem við
Hanna höfðum skráð í úttektir okk-
ar úr sjoppunni og reiknaði neysluna
út. í upphafi var samið um að út-
tektir skyldu dregnar frá sumar-
kaupinu. Þegar Nílli hafði lagt upp-
hæðimar saman og útkoman var
ljós, leit hann alvarlega á okkur þar
sem við sátum grafkyrrar inni á
kontórnum hans og sagði: „Er virki-
lega hægt að borða svona mikið
sælgæti?" Þegar ljóst var að ekki
var um reikningsskekkju að ræða
svöruðum við því til, örlítið sköm-
mustulegar, að það væri vel hægt
og raunverulega ákaflega auðvelt.
En heim fór ég um haustið án þess
að úttektin úr sjoppunni væri dregin
frá sumarhýrunni.
Bernskuminningamar frá Hofsósi
eru margar og góðar þótt þetta sum-
ar standi upp úr og sé mér ákaflega
dýrmætur minningarsjóður. Ég sótti
mjög í að fá að dvelja hjá þeim Nílla
og Nunnu og við Hanna voram mjög
nánar á þessum tíma. Ég er ákaflega
þakklát fyrir allar þessar ljúfu stund-
ir bemskuáranna, þær ylja mér sann-
arlega um hjartarætur.
Nílli, eins og öll hans systkini,
tengdist bernskuheimilinu að Ysta-
Mói í Fljótum ákaflega sterkum
böndum og hann lagði mikla áherslu
á að ættin kæmi saman og héldi
minningu ömmu og afa á Ysta-Mói
á lofti. Sumarbústaður þeirra hjóna
í landi Ysta-Mós var honum líka
mikils virði, lítið og notalegt at-
hvarf. Þar komu þau hjón og afkom-
endur þeirra gjarnan saman á sumr-
in, í veiði eða bara til að vera í Fljót-
unum. Ég hitti Nílla síðast um miðj-
an ágúst þegar hann, ásamt Nunnu
og Hönnu, komu við hjá foreldrum
mínum á Sauðárkróki á leið úr Fljót-
unum og suður og þar áður á ættar-
móti Ysta-Mós fjölskyldunnar í lok
júlí. Þar lék hann á als oddi og tók
þátt í öllum leikjum og ærslum hóps-
ins. Hann var ekki 82 ára gamall
að sjá, hann var hnarreistur og
virðulegur en jafnframt unglegur í
fasi. Þannig mun ég og fleiri sam-
ferðamenn Níelsar Hermannssonar
minnast hans.
Ég og fjölskylda min öll sendum
Nunnu, börnum þeirra hjóna og fjöl-
skyldum þeirra okkar innilegustu
hluttekningarkveðj ur.
Herdís Á. Sæmundardótt-
ir, Sauðárkróki.
GRÉTA
SIG URÐARDÓTTIR
+ Gréta Sigurðardóttir fædd-
ist á Akureyri 2. nóvember
1933. Hún lést 4. september síð-
astliðinn og fór útför hennar
fram frá Akureyrarkirkju 12.
september.
Með fáeinum orðum langar mig
að minnast Grétu Sigurðardóttur,
móður bestu vinkonu minnar, og
þakka henni fyrir hjálpina og allar
ánægjulegu stundirnar sem ég hef
átt með henni í Brekkugötunni.
Ég var svo lánsöm á mínum
menntaskólaárum að kynnast þess-
ari fjölskyldu og má segja að smám
saman hafi Brekkugatan orðið mitt
annað heimili. Það var alveg sama
hvenær sólarhringsins við vinkon-
urnar birtumst, alltaf vorum við
boðnar velkomnar og áður en við
vissum af var húsmóðirin búin að
dúka borð og fylla af ýmsu góð-
gæti sem hún vissi að yrði vel þeg-
ið. Alltaf var hún tilbúin að setjast
niður með okkur unglingunum,
spjalla um heima og geima, hug-
hreysta okkur ef stressið var of
mikið eða hlæja og gleðjast með
okkur á góðri stundu. Hún hafði svo
skemmtilegan hlátur sem kom
manni alltaf til að hlæja, þótt ekki
væri látunum fyrir að fara. Gréta
var ein af þessum hljóðlátu konum,
sem ætíð eru til staðar og vaka
yfir velferð allra sem þeim þykir
vænt um, án þess að ætlast til nokk-
urs í staðinn. Það var gestkvæmt
mjög á þessu litla heimili, sérstak-
lega á áram áður þegar samgöngur
voru erfiðari en nú. Öllum var tekið
opnum örmum með heimabakkelsi
og uppbúnum rúmum og það vakti
alltaf aðdáun mina hve samhent þau
hjónin voru i því að láta öllum líða
vel sem hjá þeim dvöldu. Gréta var
einstök kona sem bjó manni sínum
og dætrum yndislegt heimili og gaf
okkur öllum sem á vegi hennar urð-
um ómetanlegt veganesti.
Ég veit þú heim ert horfin nú
og hafin þrautir yfir
svo mæt og góð, svo trygg og trú
svo tállaus, falslaus reyndist þú,
ég veit þú látin lifir.
(Steinn Sigurðsson)
Elsku Aðalgeir, Sigrún, Helga og
Stína, megið þið öðlast styrk í þess-
ari raun.
Margrét K. Jónsdóttir.
Handrit aímælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu-
sett. Sé handrit töivusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust
er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins
í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess (minning(o>mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíð-
um. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað
við meðallínubil og hæfilega linulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að
hafa skirnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
A U G l_ V 5 1 1 1 IM G A R
TILKYIMNINGAR
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
Laugavegur 53b
uppbygging lóðar
Til kynningar er tillaga að uppbyggingu
að Laugavegi 53b. Um er að ræða
verslunar- og þjónustuhúsnæði ásamt
íbúðum. Tillagan verður til sýnis í
kynningarsal Borgarskipulags og
byggingarfulltrúa að Borgartúni 3,
1. hæð, kl. 09:00 - 16:00 virka daga og
stendurtil 9. okt. 1997.
Ábendingum og athugasemdum skal
skila skriflega til Borgarskipulags,
Borgartúni 3, 105 Reykjavík
eigi síðar en 9. október n.k.
Róðgjöf sérfræðinga um garð- og gróðurrækf
GRÓÐURVÖRUR
VERSIUN SÖIUFÉLAGS GARDYRKJUMANNA
Smiðjuvegi 5 • 200 Kópovogi • Sími: 554 3211 • Fox: 554
Lokað
föstudaginn 19., laugardaginn 20. og mánu-
daginn 22. september vegna utanlandsferðar
starfsfólks.
HÚSNÆÐI OSKAST
Skrifstofuhúsnæði óskast
Verkfræðistofa leitar eftir u.þ.b. 500 m2 hús-
næði fyrir starfsemi fyrirtækisins. Stofan sem
er í eigin húsnæði hefur hug á makaskiptum.
Áhugasamir leggi inn nafn og símanúmer á
myndsendi: 587 0082.
- kjarni málsins!
FÉLAGSLÍF
SAMBAND ÍSŒNZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristinboðssalurinn,
Háaleitisbraut 58.
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Ræðumenn: Margrét Hróbjarts-
dóttir og Benedikt Jasonarson.
Helgi Hróbjartsson syngur.
Allir velkomnir.
Orð Lífsins
Grensásvegi 8
s.568 2777 f.568 2775
Samkoma í kvöld kl. 20.00.
Jódís Konráðsdóttir prédikar.
Daglegar bænastundir. Leggðu
fram þitt bænarefni.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladeifía
Lofgjörð, bæn og frjálsir
vitnisburðir kl. 20.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
I.O.O.F9 = 1789178'/2= Re
Landsst. 5997091819 VIII GÞ
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00
ÝMISLEGT
Þarftu að léttast um 40 kíló
eða meira?
í kvöld kl. 20:00 hittist hópurinn
okkar í annað sinn og síðustu
forvöð á að vera með að þessu
sinni. Þessi stuðningshóþur tek-
ur á þeim vandamálum sem þeir
eiga við að stríða sem eru mikið
of þungir. Lögð er áhersla á að
stuðla að hugarfarsbreytingu og
auka tilfinningu einstaklingsins
fyrir líkama sínum og heilsu.
Leiðbeinandi: Kristín
Þorsteinsdóttir.
Fullur trúnaður. Engin skráning
nauðsynleg, bara mæta.
Þróunarhópar Sjálfefli mun
halda áfram með starf þróunar-
hópa. Þeir sem hafa áhuga hringi
og skrái sig í síma 554 1107 milli
kl. 14:00-16:00.