Morgunblaðið - 17.09.1997, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997 33
Norræn ráðstefna
um búsetulandslag
Ferðamálaráð vill fresta
tillögu um miðhálendið
Á FUNDI Ferðamálaráðs á mánu-
dag, 15. september, var fjallað
um skipulagsmál á miðháiendinu.
Á fundinum var lögð þung áhersla
á að tillögunni um svæðið verði
frestað.
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt samhljóða á fundinum:
„Ferðamálaráð telur að tillaga
að skipulagi miðhálendis íslands
sem kynnt hefur verið ígreinar-
gerðinni „Miðhálendi - ísiandi
svæðisskipulag 2015“ taki ekki
tillit til stefnumótunar í ferðamál-
um sem unnið hefur verið að og
óiokið er. Því leggur ráðið þunga
áherslu á að afgreiðslu tillögunn-
ar verði frestað uns hægt er að
taka á málinu með tilliti til hags-
muna ferðaþjónustunnar.
Jafnframt er þess óskað að ráð-
herra ferðamála beiti sér fyrir
því að komið verði á fót sam-
starfsnefnd um skipulag og nýt-
ingu miðhálendis íslands með að-
ild forsætis-, samgöngu-, iðnaðar-
og umhverfisráðuneyta og Skipu-
lags rikisins. Verði þessi ósk ekki
tekin til greina fer Ferðamálaráð
fram á að fá frest til að gera at-
hugasemdir varðandi einstök at-
riði tillögunnar."
NORRÆN ráðstefna um búsetu-
landslag verður haldin í Norræna
húsinu dagana 19.-21. september.
Fyrir henni standa Listasafn Sigur-
jóns Ólafssonar, Nesstofusafn og
Norræna húsið.
í fréttatilkynningu segir: „Orðið
„búsetulandslag" er nýtt í íslenskri
tungu og ennþá lítt þekkt. Annars
staðar á Norðurlöndum er orðið
„kulturlandskab" notað um minjar í
iandslagi eða borgarlandi sem tengj-
ast búsetu manna og menningu.
Þessi nýja hugsun hefur náð góðri
fótfestu í nágrannalöndum okkar og
þegar haft töluverð áhrif í starfí
þeirra sem vinna að umhverfís- og
náttúruvemdarmálum í þá veru að
líta ekki á rústir eða aðrar leifar
mannvirkja einar og sér heldur sem
hluta af landslagi, varðveita samspil
manna og náttúru. Norræna ráð-
herranefndin hefur m.a. hleypt af
stað að frumkvæði Svend Áuken,
umhverfisráðherra Dana, verkefni
sem nefnt er þriðja víddin í umhverf-
isvernd. Þar er unnið að því að standa
vörð um minjar sem eru að hverfa
og stuðla að því að unnt sé að lesa
af landinu um það sem finnst ekki
í skjölum eða á gömlum bókum.
Von er á hátt á þriðja tug er-
lendra gesta til ráðstefnunnar og
allmargt íslendinga hefur skráð sig.
Ráðstefnan hefst með ávarpi Björns
Bjamasonar, menntamálaráðherra,
en síðan flytur Guðmundur P. Ólafs-
son, líffræðingur, hugleiðingu um
búsetulandslag. Eftir það flytja sex
sérfræðingar frá hinum ríkjum Norð-
urlanda erindi og tíu íslenskir.
Erland Porsmose, safnstjóri
byggðasafnanna í Kerteminde í Dan-
mörku, varð fyrstur manna til að
veija doktorsritgerð sem fjallaði um
búsetulandslag. Hann kom hingað
til lands árið 1990 og sagði frá skrán-
ingu og varðveislu á bústulandslagi
á Fjóni. Hnan skilgreinir hugtakið
búsetulandslag í erindi sínu á ráð-
stefnunnni og ræðir um samhengi
þess og þeirrar hugmyndafræði sem
liggur að baki friðunar á náttúru-
og menningarminjum.
Kelvin Ekeland hjá Náttúruvernd-
arstofnun (Naturvárdsverket) í
Stokkhólmi kynnir Norrænu samtök-
in um búsetulandslag (Nordiska För-
bundet för Kulturlandskap) og Lena
Bergils, safnstjóri í Eskilstuna, Tapio
Heikkilá, deildarstjóri í finnska um-
hverfísráðuneytinu, Anna Norder-
haug, prófessor við háskólann í Sogn
og Fjördane í Noregi, Simun Arge,
MORGUNBLAÐINU hefur borist eft-
irfarandi frá Helga Laxdal, formanni
Vélstjórafélags íslands:
„Vegna fréttar sem birtist í kvöld-
fréttum sjónvarps föstudaginn 12.
september 1997 vill Vélstjórafélag
íslands taka eftirfarandi fram:
Þrátt fyrir að nú standi yfir at-
kvæðagreiðsla um verkfallsboðun
vegna kröfu Vélstjórafélags íslands
um aukinn skiptahlut til vélstjóra sem
starfa á skipum með aðalvél 1501
kw og stærri hefur samninganefnd
vélstjóra lagt fram 15 aðrar kröfur,
þ.á m. kröfu um að allur fískur verði
verðlagður á markaði. Þrátt fyrir þá
staðreynd að einungis séu nú greidd
atkvæði um verkfallsboðun á skipum
með framangreinda vélarstærð, þá
leiðir það ekki til þeirrar niðurstöðu
að öðrum kröfum verði vikið til hliðar.
Félaginu fannst hins vegar eðlilegt
að aðgerðir vegna þessarar afmörk-
uðu kröfur hefðu ekki áhrif á aðra
en þá sem hún beinlínis tæki til og
ylli því sem minnstri röskun á hags-
munum útgerðarmanna og sjómanna,
auk annarra samfélagsþegna. Samn-
inganefndin mat það svo að aðrar
kröfur ættu að geta náðst fram án
átaka en ef til þeirra þyrfti að koma
þá yrði að boða til annarrar vinnu-
stöðvunar sem tæki þá til viðkomandi
hóps.
Mat samninganefndarinnar bygg-
ist m.a. á því hvað kvótabraskið varð-
fornleifafræðingur við Fornminja-
safnið í Færeyjum og Erlend Porsm-
ose segja frá dæmum um búsetu-
landslag, hvert í sínu landi og hvern-
ig vernd skráningar, gerð áætlana
og löggjöf er háttað.
Annette Schou hjá danska um-
hverfísráðuneytinu (Skov- og natur-
styrelsen) er flestum fróðari um þetta
efni. í erindi sínu útskýrir hún Nor-
rænu framkvæmdaáætlunina um
þriðju víddina í samvinnu Norð-
urlanda í umhverfismálum í sínu er-
indi en Ragnar F. Kristjánsson hjá
Náttúruvernd ríkisins kynnir skýrslu
um sama efni sem unnin hefur verið
fyrir norrænu ráðherranefndina en
Ragnar er fulltrúi íslands í vinnu-
hópi sem vann þá skýrslu.
Aðalheiður Jóhannesdóttir, for-
stjóri Náttúruverndar ríkisins, Þór
Magnússon, þjóðminjavörður, Stefán
Thors, skipulagsstjóri ríkisins og
Guðný G. Gunnarsdóttir, safnstjóri á
Akureyri, fjalla um þýðingu náttúru-
og menningarminja hér á landi frá
ýmsum hliðum m.a. með tilliti til
skipulagsmála, fornleifa og ferða-
mennsku. Aðrir sem taka til máls
eru dr. Þóra Ellen Þórhallsdóttir,
prófessor, og Birna Gunnarsdóttir,
fornleifafræðingur.
Einnig verður sagt frá þremur
dæmum um búsetulandslag á íslandi
sem mikilvægt er að varðveita. Þór
Magnússon, þjóðminjavörður, fjallar
um Núpsstað, dr. Árni Björnsson,
þjóðháttafræðingur, segir frá eyjun-
um á Breiðafirði og Margrét Hall-
grímsdóttir, borgarminjavörður, og
Þorgrímur Gestsson, blaðamaður,
segja frá Laugarnesi í Reykjavík.
Dr. Þórhallur Vilmundarson, prófess-
or, flytur erindi um það hvaða sögu
ömefni segja um búsetu manna. Að
erindum þessum loknum fara fram
pallborðsumræður og loks slítur Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, borgar-
stjóri, ráðstefnunni.
Sunnudaginn 21. september gefst
þátttakendum kostur á að fara í
skoðunarferð til Þingvalla, um
Grímsnes að Eyrarbakka, Ölfus,
Herdísarvík og Krýsuvik þar sem
skoðaðar verða náttúru- og menning-
arminjar.
Listasafn Siguijóns, Nesstofusafn
og Norræna húsið áttu frumkvæði
að ráðstefnunni en hún er haldin
með styrk frá Norræna menningar-
sjóðnum, menntamálaráðuneytinu,
sendiráðum Norðurlandanna i
Reykjavík, Reykjavíkurborg og Þjóð-
minjasafni íslands.
ar að nú hafa fallið dómar sem allir
em sjómönnum i vil og að auki em
fleiri mál á leiðinni fyrir dómstóla sem
valdið geta straumhvörfum, hvað
framangreind mál snertir, náist fram
í þeim allar kröfur sjómanna. Samn-
inganefndin taldi því að það hlyti að
vera sameiginlegt markmið bæði sjó-
manna og útvegsmanna að ganga
svo frá hnútum að báðir gætu við
unað, ekki síst m.t.t. stöðugt hávær-
ari krafna samfélagsins um veiði-
leyfagjald.
Hlutaskiptakerfið er bæði að mati
LÍÚ og VSFÍ orðið á margan hátt
úrelt. Það varð til fyrir nokkrum
tugum ára við allt aðrar aðstæður
en nú ríkja en þá vom fiskiskipin
lítil með einfaldan vélbúnað sem á
engan hátt er sambærilegur þeim
tækniheimi sem við búum nú við.
Þá voru litlar kröfur gerðar til
menntunar vélstjóra, en þær kröfur
hafa nú breyst í 5 til 5,5 ára strangt
bóknám að viðbættri verklegri þjálf-
un sem sífellt fleiri og fleiri atvinnu-
rekendur taka tillit til þegar laun eru
ákveðin.
Benda má á að á síðasta fundi
fískimannadeildar ITF, sem haldinn
var í London dagana 3., 4. og 5.
sept., voru samþykkt lágmarkslaun
fyrir fiskimenn á þægindafánaskip-
um með launaröð sem mjög er í takt
við þær tillögur sem samninganefnd
vélstjóra hefur sett fram.“
Kynningar-
fundur um
Vinalínu
VINALÍNAN, sem starfrækt er _af
Reykjavíkurdeild Rauða kross ís-
lands, heldur kynningarfund fyrir
verðandi sjálfboðaliða í kvöld, mið-
vikudagskvöldið 17. september, kl.
20 í Fákafeni 11, 2. hæð.
Vinalínan tók til starfa 16. janúar
1992 og er opin öll kvöld kl. 20-23.
Allir sjálfboðaliðar sem svara í sí-
manum hafa sótt símanámskeið á
vegum sálfræðings og fá einnig
handleiðslu á hans vegum. Markmið
sjálfboðaliðanna er að vera til stað-
ar, hlusta og gera sitt besta í að lið-
sinna þeim sem hringja. Lögð er
áhersla á að hér er ekki um sérfræði-
hjálp að ræða heldur eru Vinalínufé-
lagar venjulegt fólk sem vill deila
reynslu og tíma með öðrum.
Sjálfboðaliðar sinna margir hveijir
fleiru en símavöktum á vegum Vina-
línu svo sem starfí í nefndum, stjórn-
arstörfum og einstaka verkefnum
eftir því sem þeir hafa tíma til.
Þeir sem hafa áhuga eru hvattir
til þess að mæta á kynningarfundinn.
Ráðstefna nor-
rænna geð-
hjúkrunar-
fræðinga
RÁÐSTEFNA norrænna geðhjúkr-
unarfræðinga hefst á Hótel Loftleið-
um í Reykjavík dagana 17.-20. sept-
ember nk. Ráðstefnan er haldin ann-
að hvert ár og nú í fyrsta sinn á
íslandi. Umsjón hafa Fagdeild geð-
hjúkrunarfræðinga innan Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga og HH
Ráðstefnuþjónusta. 480 manns eru
skráðir á ráðstefnuna, þar af 45 ís-
lenskir hjúkrunarfræðingar.
Aðalefni ráðstefnunnar er þáttur
geðhjúkrunarfræðinga í forvörnum,
meðferð og stuðningi við ungt fólk
með geðræna erfiðleika og fjölskyld-
ur þeirra. Meðal fyrirlesara eru Step-
hen Haines RPN RN frá Victoria í
Ástralíu en hann er yfirhjúkrunar-
fræðingur miðstöðvar forvarna og
meðferðar fyrir ungt fólk með byrj-
andi geðræna erfiðleika og geðsjúk-
dóma, Per Lund, forstjóri Sct. Hans
Hospital í Hróarskeldu í Danmörku
og Jóhanna Bernharðsdóttir, lektor
við námsbraut í hjúkrunarfræði við
Háskóla íslands.
Á dagskránni er einnig móttaka í
boði Reykjavíkurborgar og heilbrigð-
isráðuneytisins og skoðunarferð til
Þingvalla, Gullfoss og Geysi.
Ráðstefnan verður formlega sett
fímmtudaginn 18. september kl. 9 í
þingsal Hótel Loftleiða.
Formaður fagdeildar geðhjúkr-
unarfræðinga er Guðbjörg Sveins-
dóttir, forstöðumaður Vinjar, at-
hvarfs Rauða kross íslands fyrir
geðfatlaða.
Margrét
syngur á Sólon
MARGRÉT Sigurðardóttir heldur
tónleika á efri hæð Sólon íslandus,
Sölvasal, í kvöld, 17. september, kl.
21.
Margrét vann
Söngkeppni fram-
haldsskólanna
1992 og hefur síð-
an komið viða við,
var í hljómsveitinni
Yiju og fleiri
hljómsveitum og
hefur tekið þátt í
ýmsum leikhús-
uppfærslum s.s.
Hárinu, Rhodim-
enu Palmata eftir Hjálmar Ragnars-
son og nú síðast Evitu. Margrét lauk
8. stigs prófi frá söngdeild Tónlistar-
skólans í Reykjavík og 7. stigs prófi
frá píanódeild skólans sl. vor og fer
nú í haust til áframhaldandi náms í
Vín í Austurríki.
Á efnisskránni verður tónlist af
ýmsum toga, söngleikjatónlist, blús,
djass og frumsamið efni eftir Mar-
gréti sjálfa og fleiri. Karl Olgeirsson
píanóleikari leikur með Margréti á
tónleikunum og fram kemur hljóm-
sveitin Blush en Margrét leikur á
hljómborð og syngur með þeirri sveit.
Kristbjörg Karí Sólmundsdóttir mun
syngja með Margréti tvö lög og einn-
ig kemur fram strengjakvartett úr
Tónlistarskólanum í Reykjavik.
Góður árangur
danspara
TVÖ íslensk danspör tóku þátt í
keppninni Árhus Open sem fór fram
um helgina samhliða Evrópumeist-
aramótinu í standarddönsum í
Árósum.
Hrafn Hjartarson og Helga
Björnsdóttir kepptu í aldursflokkn-
um 10-11 ára og Hrafn Davíðsson
og Anna Claessen kepptu í aldurs-
flokknum 12-13 ára.
Hrafn og Helga kepptu í þremur
suður-amerískum dönsum og
tveimur standardönsum. Þau kom-
ust í úrslit í öllum dönsunum og
náðu 5. sæti í samanlögðum ár-
angri.
Hrafn og Anna Claessen kepptu
í fjórum suður-amerískum dönsum
og þremur standardönsum. Þau
komust í úrslit í öllum suður-amer-
ísku dönsunum og í undanúrslit í
standarddönsunum.
Fyrirlestur á
ensku um alnetið
FÉLAG nýrra íslendinga (Society
of New Icelanders) heldur félags-
fund fimmtudagskvöldið 18. sept-
ember kl. 20.30 í Miðstöð nýbúa
við Skeljanes í Skeijafirði.
í fréttatilkynningu segir að SONI
sé félagsskapur fyrir útlendinga og
velunnara. Áðalmarkmið félagsins
sé að efla skilning milli fólks _af
öllum þjóðernum, sem býr á ís-
landi, með auknum menningarleg-
um og félagslegum samskiptum.
Fundir félagsins fara fram á
ensku og eru öllum opnir. Að þessu
sinni heldur Jón Þór Helgason frá
Islandia erindi og svarar síðan
spurningum um alnetið.
Erindi um
sorg og sorgar-
viðbrögð
FYRIRLESTUR á vegum Nýrrar
dögunar, samtaka um sorg og sorg-
arviðbrögð, verður haldinn í Gerðu-
bergi fimmtudagskvöldið 18. sept-
ember kl. 20.
Séra Solveig Lára Guðmunds-
dóttir flytur erindi um sorg og sorg-
arviðbrögð.
■ ALMENNUR félagsfundur Vél-
sljórafélags íslands haldinn 12.
september fagnar tilkomu nýs lang-
bylgjusendis Ríkisútvarpsins á
Gufuskálum, Snæfellsnesi. Með til-
komu hans geta íslenskir sjómenn
fylgst með fréttum frá íslandi jafn-
vel þótt skipin séu allt norður í
Smugu. Hér er um mikla framför
að ræða sem forsvarsmenn útvarps-
ins eiga þakkir skildar fyrir.
Kynning á fé-
lagsstarfi eldri
bæjarbúa
FÉLAGSSTARF eldri bæjarbúa á
Seltjarnarnesi í vetur verður kynnt
í dag, 17. september, kl. 13.30 að
Skólabraut 3-5, samkomusal.
Boðið verður upp á almenna
handavinnu, m.a. perlusaum, klippi-
myndir, jólaföndur, bútasaum, tré-
skurð og bókband mánudaga,
þriðjudaga og miðvikudaga kl.
13.30. Bridsklúbbur er alla mið-
vikudaga kl. 13.30. Félagsvist er
annað hvert þriðjudagskvöld í mán-
uði. Einu sinni í mánuði eru farnar
stuttar fróðleiksferðir „út í bláinn“.
Leikfimi er tvisvar í viku kl. 11.
LEIÐRÉTTING
Upphaf kafla féll niður
NOKKRAR línur féllu niður úr
grein þeirra Orra Haukssonar og
Illuga Gunnarssonar, sem birtist í
Morgunblaðinu sl. sunnudag. Upp-
haf kaflans „Opinber sveiflujöfnun
órökrétt", átti að vera svohljóðandi:
„Það er ekki einungis að sumir
telji ósanngirni felast í eignarréttar-
skipan í sjávarútvegi. Að auki hefur
verið hreyft ýmsum röksemdum,
sem sýna eiga fram á hagkvæmni
þess að leggja skatt á aflaheimildir
eða uppboð ríkisins á nýtingarrétt-
indum. Til að mynda ritaði Þórólfur
Matthíasson, lektor við viðskipta-
og hagfræðideild HÍ, grein í Fjár-
málatíðindi nýverið þar sem hann
gerir grein fyrir slíkum skoðunum."
Landréttir og Reyðarvatnsrétt
í lista yfir hvar og hvenær réttir
væru haldnar sem birtist í Mbl.
fyrir skömmu var sagt að Landrétt-
ir í Áfangagili yrðu haldnar fimmtu-
daginn 18. september en hið rétta
er að réttirnar verða haldnar
fimmtudaginn 25. september og
hefjast þær kl. 11. í þessum sama
lista láðist að geta Reyðarvatnsrétt-
ar á Rangárvöllum en réttað verður
þar laugardaginn 20. september kl.
11.
Athugasemdfrá
Vélstjórafélagi Islands
Margrét Sig-
urðardóttir