Morgunblaðið - 25.09.1997, Blaðsíða 55
!
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 55. .
I
4
MAGNAÐ
BÍÓ
/DD/I
+ I /J / / /J /J / '
■I *—/ v'H V^/ n /
*
tAÖ l553^75 ALVÖRU Blfi! nnpoiby
rrr __ STflFR/FI\lT stærsta tjalbið með
= = = HLJÓÐKERFi I luv
= ÖLLUM SÖLUM!
Mest sótta og vinsælasta gamanmyndin í
Bandaríkjunum í sumar.
Sýnd kl. 4.50, 6.55, 9 og 11.05.
* 1f
f 1 ivir/í; i!N’
PERÍL
Sýnd kl. 9 og 11. b.í.is
RÉTTLÆTIÐ HEFUR
EIGNAST NÝTT
VOPN.
OG HEIMURINN
NÝJA HETJU!
Hörkusp ennandi
samsæristryllir
DIGITAL
SFAWN ER EINN TÆKNILEGASTI, HARÐASTI, MEST
SPENNANDI OG ÆVINTÝRAALEGASTI TRYLLIR SEM
KOMIÐ HEFUR f BÍÓ í LANGAN TÍMA.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
MEÐ TOPPLEIKUHUM.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B. i. 16
LOST HIGHWAY
Risatónleikar U2 í Sarajevo
Allt ætlaði um koll að keyra
ÍRSKA rokksveitin U2 hélt tónleika
í Sarajevo á þriðjudaginn var og
voru það fyrstu stórtónleikar í borg-
inni síðan stríðinu lauk árið 1995.
„Það er frábært að vera kominn
aftur,“ sagði Bono þegar hann steig
út úr einkaþotunni og hneigði sig
fyrir blaðamönnum. „Erum við
virkilega komnir hingað?“ bætti
hann við. „Við höfum unnið að því í
fjögur ár.“
Bono og eiginkona hans AIi voru í
borginni á gamlárskvöld árið 1995
eftir að hafa fengið far með hjálpar-
flugi Sameinuðu þjóðanna. Þá lofaði
hann að heimsækja borgina aftur
með hljómsveitinni.
Stemmningin á tónleikunum var
þegar orðin rafmögnuð eftir að upp-
hitunarsveitirnar höfðu lokið sér af,
en þegar Bono missti röddina
snemma á tónleikunum ætlaði allt
um koll að keyra. „Ég er alveg gátt-
aður á því að ég varð ekki fyrir
grjótkasti þegar ég gat ekki sungið
lengur,“ sagði hann eftir tónleikana.
„Ég vildi ég gæti launað fyrir mig
með því að bera byrðar þessa fólks
það sem eftir er ævi minnar. Þetta
var eitt af erfiðustu og sælustu
kvöldum ævi minnar, svo mikið er
ljóst.“ Hann sagði fyrir troðfullum
Kosovo-leikvanginum í Sarajevo að
vera hans þar væri „gjöf ykkar til
mín“.
„Gleymið fortíðinni, lifíð í framtíð-
inni, áfram Sarajevo,“ hrópaði hann
við gífurleg fagnaðarlæti. „Ég er bú-
inn að missa röddina en ykkar radd-
ir eru sterkar og ég bið ykkur um að
styðja mig eins og þið studduð hvert
annað þessar vikur, mánuði og ár,“
sagði Bono við áhorfendur sem ým-
ist veifuðu, blístruðu eða grétu.
Ibúar Sarajevo sögðu að stemmn-
ingin í borginni fyrir tónleikana
hefði verið sambærileg við það þeg-
ar vetrarólympíuleikamir voru
haldnir þar árið 1984. „Ólympíska
andrúmsloftið er komið aftur,“ sagði
búðarklerkur eftir að hafa selt
tveimur japönskum konum filmu í
myndavél. „Hver hefði getað búist
við að ástandið lagaðist svona fljótt
og Sarajevo yrði aftur ferðamanna-
staður.“
Þúsundir ungmenna lögðu leið
sína til Sarajevo frá Bosníu og öðr-
um fyrrverandi lýðveldum Jú-
góslavíu. Miðar voru seldir á þrisvar
til fjórum sinnum lægra verði en
annars staðar í PopMart-tónleika-
ferðinni og búist var við um 50 þús-
und manns.
„Ef hagnaður kvöldsins verður
einhver rennur hann að sjálfsögðu
til War Child,“ sagði Bono og skír-
skotaði til góðgerðarstarfs í þágu
barna sem styrkt hefur verið af
stórstjörnum á borð við U2 og
ítalska óperusöngvarann Pavarotti.
Perðaskrifstofur stóðu fyrir
skipulögðum ferðum frá Zagreb í
Króatíu og Ljubljana í Slóveníu og
fyrstu lestirnar frá stríðslokum komu til Sarajevo frá Mostar og Maglaj
Boðið var upp á hópferðir frá Serbíu, sem er afar fátítt. „Við gerðum okk-
ar best til að halda fjölþjóðlega tónleika eins og Sarajevo
var áður og á eftir að verða aftur,“ sagði
Bono.
„U2 færði Sarajevo oft í tal
meðan á stríðinu stóð. Ég held
að þetta sé rétta hljómsveitin til
að halda fyrstu tónleikana
hérna,“ sagði Damian Medica, 25
ára, frá Slóveníu. „Það er mjög
spennandi að vera hérna vegna
þess hve Sarajevo fór illa út úr
stríðinu. Þetta tvennt samanlagt,
að líta Sarajevo augum eftir stríð og
horfa á tónleikana, gerir það að
verkum að ég er mjög spenntur."
U2 tók með sér 1.200 tonn af tækj- 1
um í fimmtán rútum og 52 vörubílum
um hættulega fjallavegi inn í Sara-
jevo. Á sviðinu var 30 metra risaskjár
sem er sá stærsti í heimi og þarf hann
um 35 kílómetra af rafmagnsleiðslum.
EKKI
kom að sök þótt
Bono missti röddina
snemma á tónleikunum.
BONO sæll og glaður með sig í upphafi stærstu tónleika
sem haldnir hafa verið í Sarajevo.
septembertilboð
uooano
1 koöío/si.- eudir
Þriggja rétta
matseðill
tÆimn--------
Aldamótaverð
kr. 2000
Oíicfas}
Súpa dagsins eða
Blanaaður salatdiskur
Aðalréttir
Grísahnakki með
"Dijon" sösu
eða
Léttsteiktur lambavöðvi
með kryddjurtasósu
eða
Kjúklingabringa með
grœnmetisragú
eða
Ferskasta fiskfang dagsins
eða
Pasta með grœnmeti,
hnetum og hörpuskel
Súkkulaðiterta eða
kaffi og sœtindi
Og bíilliö innildliú
IBorðapíiiilanir sími 551-9636