Morgunblaðið - 25.09.1997, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 25.09.1997, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Ferdinand Smáfólk 5CH00L START5 I M NOT 601N6.. H'OUR OLP TEACHER MOV/EP ALUAH\.THI5 vear you'll 5HE DOESN T EV/ÉN A6AIN NEXT THE TEACHER o KN0W ME,ANP ALREAPY UJEEK, RERUN.. HATE5 ME.. HAVE A NEW TEACHER.. 8 5HE HATE5 ME.' ) “C" J X. J \ \ I T1 l ! Skólinn byijar aftur í Ég fer Gamli kennarinn þinn er flutt- Hún þekkir mig ekki einu næstu viku, Rabbi... ekki... kennar- ur...þú færð nýjan kennara í sinniogsamter húnfarin inn hatar mig ... ár ... að hata mig! BREF TIL BLAÐSEMS Kringlan 1103 Reykjavík 0 Sími 5691100 0 Símbréf 569 1329 Listasafn, 530 milljónir í hvað? Frá Magnúsi Jónssyni: TIL stendur að breyta 'Hafnarhús- inu í Reykjavík í listasafn, en tillaga er komin frá Studio Granda og hefur verið kynnt í borgarráði. Áætlaður kostnaður er 530 milljón- ir án búnaðar (hvað sem það nú merkir). Reiknað hefur verið út að hver fermetri muni kosta okkur (Reykvíkinga) 180.000 krónur án búnaðar, sem telst bara ódýrt miðað við listasafn þeirra í Kópavogi sem náði að kosta 210.000 krónur fer- metrinn og sýnir okkur að Kópa- vogsbúar kunna ekkert með pen- inga að fara. En er ekki eitthvað athugavert við 180 þúsund krónur á fermetra og höfum við ekki eitthvað þarfara við peningana að gera? Í vel búnu húsi kostar hver fermetri um 80.000 krónur, við gætum því byggt 66 leiguíbúðir, hveija um 100 fer- metra að stærð - eða er ekki skort- ur á leiguhúsnæði? Hvað er það sem kostar svona mikið í listasafni þegar haft er í huga að það er án búnaðar? Mín tilgáta er sú að það sé snobb og flottræfilsháttur að viðbættri ósvífni gagnvart því fólki sem á að borga brúsann. Varla er ástæðan sú að geyma þurfi verðmæti við sérstakar aðstæður, ef haft er í huga að listaverk þau sem Erró gaf borginni á sínum tíma eru geymd í kjallara á Korpúlfsstöðum (sem heldur varla vatni eða vindum og hefur ekki verið kynt áratugum saman), sennilega á bak við læsta hurð. Hugsanlega er þetta svona dýrt vegna þess að rífa þarf hafnar- húsið og reisa það síðan stykki fyr- ir stykki í sinni upprunalegu mynd til varðveislu fyrir komandi kynslóð- ir í þeirri ömurlegu mynd sem það er í núna og reisa síðan annað hafn- arhús í sömu mynd þar sem hafnar- húsið stendur núna og breyta því síðan í listahús. Þannig væri komin skýring á þessu óhóflega háa fer- metraverði. En er þörf á fleiri listasöfnum á höfuðborgarsvæðinu, þarf að reisa safn í hvert skipti sem einhver sem telur sjálfan sig vera listamann gefur borginni vinnuskissurnar sín- ar? Væri ekki nær að hirða frekar það sem telst sýningarhæft og láta það flakka milli opinberra staða, til dæmis skóla, kirkna og safna um land allt og halda síðan eina hátíð seinnipartinn í ágúst ár hvert á fyllingu þeirri sem í daglegu tali er kallað Geirsnef þar sem þeir sem vildu gætu komið og hirt afganginn eða hjálpað til við að hlaða úr hon- um það sem kalla mæti listabrennu sem yrði síðan tendruð af borgar- stjóra fyrir hönd okkar allra? Senni- lega er ekkert athugavert við 180.000 á fm ef marka má þann kostnað sem fór í að hanna hús- gögn í Höfða. Þar var um að ræða eitt herbergi og ekki dugði minna en að bjóða fjórum útvöldum hönn- uðum að gera tilögur fyrir 600.000, eða 150.000 hver. Hönnun og hús- gögn sem hlutu náð koma til með að kosta 3.500.000 kr. sem er lík- lega innan við 110.000 kr. á fm fyrir 3 tveggja manna sófa og 3 staka stóla með 3 borðum, allt að sjálfsögu í stíl og þannig upp raðað að hægt sé að setjast í þá, opna hliðin snýr frá veggnum og hús- gögnin eru ekki fyrir hurðum her- bergisins í hagræðingarskyni. Og siðast en ekki síst standa borðin á þar til gerðum fótum nálægt sófum og stólum. Þvílík snilld. Mér finnst einhvern veginn að það sé verið að hafa mig og reyndar flesta Reykvík- inga að fífli þegar sagt er að ekki sé hægt að greiða mannsæmandi laun fyrir dagvinnu en síðan sé hægt að greiða 150.000 kr. fyrir það eitt að raða upp húsgögnum í einu herbergi eða greiða margfald- an byggingarkostnað íbúðarhús- næðis vegna listasafns. Að lokum má benda á að lista- söfn eiga ekki að vera listaverk sjálf heldur góð aðstaða til að sýna list- ina, og að listin dafnar hjá þeim sem hafa hæfileika og skiptir þá litlu hvemig aðstaða þeirra er eins og verk gömlu meistaranna sýna. MAGNÚS JÓNSSON, Logafold 49. Um nýtingarrétt Frá Jóni Kjartanssyni: HINN 14. sept. sl. birtist í Morgun- blaðinu mikil grein um nýtingu fiskimiða. Höfundar eru tveir ungir og efnilegir menn, verkfræðingur og hagfræðingur. í grein sinni bera höfundar saman annars vegar rétt bænda til að nýta jarðir sínar og hins vegar rétt útvegsmanna tii að nýta fiskimiðin. Þeir segja yfírráða- rétt þjóðarinar yfir landi sínu og miðum ekki hagga nýtingarrétti bænda á jörðum sínum og „áunnum nýtingarrétti útgerða“ á miðunum. Nú er bújörð ákveðið svæði afmark- að með landamerkjum og réttinn til að nýta þetta svæði hefur bónd- inn keypt. Réttur hans nær ekki útfyrir jörðina sem hann á nema annars sé getið í kaupsamningi og er þá innifalið í kaupverðinu. Eigi sama regla að gilda á sjó, yrði fyrst að skipta miðunum upp í óðul - eins konar bújarðir - og selja hverri útgerð afmarkaðan reit sem hún ein má nýta og þá má hún ekki veiða annars staðar. Ég dreg í efa að útvegsmenn vilji þetta. Þá segja höfundar að útgerðar- menn hafi sjálfir skapað sér veiði- réttinn með því að eignast skip og veiðarfæri. Nú er það svo að þótt ég keypti mér 3 traktora með hey- vinnuvélum aftan í og fullkomin mjaltakerfi, myndi það ekki veita mér rétt til ókeypis nýtingar á landi. Yfirleitt öðlast menn hvergi nýtingarrétt nema kaupa hann og þau kaup eru ekki skattlagning heldur viðskipti. JÓN KJARTANSSON frá Pálmholti. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, fþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222", auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 1.800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.