Morgunblaðið - 25.09.1997, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 25.09.1997, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 Vetrarstarf Styrktarfélags íslensku óperunnar hafið Auður Bjarni Thor Finnur Guðrún María Jón Rúnar Sigríður Gunnarsdóttir Kristinsson Bjarnason Finnbogadóttir Arason Aðalsteinsdóttir Schubert-helgi með Andreas Schmidt STYRKTARFÉLAG íslensku óper- unnar hefur vetrarstarf sitt með því að fá til liðs við sig hinn kunna barítonsöngvara Andreas Schmidt. Efnt verður til Schubert-helgi í Óperunni helgina 26.-28. septem- ber þar sem Andreas syngur á tónleikum og heldur Master Class fyrir söngvara. Tónleikarnir verða tvennir en á þeim mun Andreas flytja tvo af þekktustu ljóðaflokkum Schuberts. Á laugardaginn mun Andreas flytja Winterreise en á sunnudag- inn Die Schöne Miillerin. Schmidt er jafnvígur á óperu- og ljóðasöng. Hann syngur reglulega í öllum helstu óperuhúsum heims og eftir hann liggja margar hljómplötur, meðal annars útgefnar af Deutsche Grammophon. Master Class-námskeiðið verður haldið í æfingasal Óperunnar í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu 8-10. Með Andreasi á námskeiðinu verður píanóleikarinn Helmut De- utsch. Állir eru velkomnir að fylgj- ast með námskeiðinu sem er tví- skipt, frá kl. 10-13 og 14-16. Sex ungir söngvarar Styrktarfélag íslensku óperunn- ar er hagsmunafélag sem stendur straum af framkvæmdum við ís- lensku óperuna, svo sem af viðhaldi á hús- næði hennar. Félagið samanstendur af 56 styrktarfyrirtækjum og í því eru um 1000 styrktarfélagar. Fé- lagið gefur út Óperu- blaðið. Það hefur einn- ig gefið út mynd- bandsspólur með upp- tökum á uppsetning- um Íslensku óperunn- ar. Meginstarf þess hefur hins vegar verið að halda úti styrktar- tónleikunum sem í ár verða að minnsta kosti þrennir. Að sögn Soffíu Karlsdóttur hjá íslensku óperunni hafa það einkum verið einleikarar sem hafa troðið upp á tónleikum Styrktarfélagsins en í vetur verða það tveir söngvar- ar sem koma fram á hveijum tón- leikanna. Og allt verða þetta söngvarar sem lítið eða ekkert hafa komið fram hér á landi áður. Eins og áður sagði ríður Andre- as Schmidt á vaðið á laugardaginn en næstu tónleikar verða 30. nóvember. Þá koma Bjarni Thor Kristinsson bassi og Sigríður Aðal- steinsdóttir mezzósópran fram en bæði eru þau búsett í Austurríki og námu þar söng. Finnur Bjarnason bariton og Guðrún María Finnbogadóttir sópran syngja 28. febrúar. Bæði hafa þau stundað söngnám sitt í London við Guild- hall School of Music and Drama. Finnur vakti athygli er hann heillaði Elly Ameling með söng sínum á Master Class nám- skeiði hennar hér á landi í vor sem leið. Guðrún María sigraði TónVakakeppnina árið 1994. Jón Rúnar Arason tenór og Auður Gunnarsdóttir sópran halda tónleika 25. apríl. Jón Rúnar, sem hefur verið að syngja í Gautaborg, vakti töluverða athygli fyrr í sum- ar er hann söng þjóðsöngva íslands og Noregs á knattspyrnulandsleik þjóðanna á Laugardalsvelli en hann hefur aldrei haldið tónleika hér á landi áður. Auður hefur ver- ið búsett í Stuttgart í Þýskalandi undanfarin ár. Allir tónleikarnir fara fram í íslensku óperunni. Andreas Schmidt Ung Nord- isk Musik 1997 UMRÆÐUR ungu tónskáldanna um verk sín verða i Tónlistarskóla Reykjavíkur á morgun, föstudag kl. 11-13. Kvikmyndin Tár úr steini í enskri útgáfu verður sýnd í Stjörnubíói kl. 14. Hjálmar H. Ragnarsson talar um Jón Leifs á undan sýningunni. Tónleikar verða í Listasafni Islands kl. 20. Caput- hópurinn flytur verk eftir Dagfinn Rosness, Briefe von einer Reise; Lotta Wennákoski, Three poems; Klaus Ib Jorgensen, Temperature og Björn Skjelbred, Head or gut? Lokatónleikar verða í Hvera- gerðiskirkju laugardaginn 27. september kl. 14. Þar munu ýmsir flytjendur leika verk eftir Egil Gunnarsson, Martröð; Jörgen Dafgárd, Ágnus Dei; Tebogo Monnakgotla, Molnsteg; Jesper Koch, Jabberwocky og Riika Tal- vitie, Perspektiivejá. Ég þakka öllum þeim sem samglöddust mér á 90 ára afmœlisdeginum, 13. september síðastliðinn, og gerðu þennan dag svo eftirminnilegan með heimsóknum, gjöfum, heillaskeytum og símtölum. Guð geymi ykkur öll. Gunnar Jónsson, Langagerði 9, Reykjavík. Nýjung frá Snyrtivöruverslunin Evíta býður þig velkomna. í dag og á morgun verða kynntir „Secret de Rouge" nýir og byltingarkenndir varalitir frá CLARINS ----f A 11 s- Ráðgjafi á staðnum. Við hlökkum til að sjá þig. ►CLARINS Ein milljon frípunkta! Við drögum 2. október úr hópi þeirra sem hafa notað Fríkortið í Hagkaupi dagana 25. september til 1. október 1997. 20 viðskiptavimr sem nota Fríkort fá 50.000 frípunkta hver. Fynr 50.000 frípunkta má t.d. fara einu sinni til útlanda, fljúga þrísvar innanlands, fara 14 sinnum i leikhús eða 50 sinnum í bió. Því oftar sem þu notar Fríkortið þitt þvi meirí likur eru á að þú verðir meðal hinna heppnu. HAGKAUP fyrlrfjolsknldutm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.