Morgunblaðið - 25.09.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.09.1997, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Frystiskipið Skutull IS-180 með fullfermi eftir 23 daga veiðiferð Kallinn“ í brúnni er aðeins 25 ára gamall Morgunblaðið/Magnús Hávarðarson HLUTI áhafnar Skutuls ásamt skipstjóranum, sem er hvítklæddur með axlabönd. Meðalaldur skipverjanna er 32 ár og skipstjórinn er aðeins 25 ára. Ísafírði, Morgunblaöið. FRYSTISKIPIÐ Skutull ÍS-180 kom til heimahafnar á ísafirði í gær með fullfermi af rækju, eða 160 tonn að verðmæti 19 milljónir króna. Fréttir af góðum aflabrögð- um hjá Skutli eru ekkert einsdæmi því útgerð skipsins hefur jafnan gengið vel, en veiðiferðin, sem tók 23 daga, þykir hins vegar frétt- næm fyrir þær sakir að skipstjór- inn í er aðeins 25 ára gamall auk þess sem þetta var hans fyrsti túr sem skipstjóri. Hann heitir Tryggvi Eiríksson og er ísfirðing- ur f móðurætt, en fæddur og upp- alinn í Reykjavík. í veiðiferðinni var Tryggvi að leysa Iljalta Þorkelsson skipstjóra af, en að öllu jöfnu gegnir hann stöðu 1. stýrimanns. Tryggvi út- skrifaðist frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík tvítugur að aldri og hóf þá þegar störf á Skutli sem 2. stýrimaður. Fyrir tveimur árum fór hann í sína fyrstu veiðiferð sem 1. stýrimaður, þá aðeins 23 ára. Á íslenska togaraflotanum er algengt að menn þurfi að bíða lengi eftir yfirmannastöðum, jafn- vel áratugum saman, en hver er skýringin á því að hlutirnir ganga svona hratt fyrir sig á Skutli? Fljótir upp metorðastigann „Menn hafa gengið hratt upp metorðastigann á Skutli að undan- förnu og ástæðan er einfaldlega sú að útgerðir annarra skipa hafa verið að taka frá okkur bestu mennina. Orn Stefánsson, sem ver- ið hefur skipstjóri á Skutli um ára- bil, er nýtekinn við Húsvíkingi og stýrimaðurinn okkar, Valgeir Bjarnason, er farinn yfir á Hersi,“ segir Tryggvi. Hann sagði enn- fremur að ráðamenn útgerðarfé- lags skipsins, Básafells hf., hafi ákveðið að gefa þeim inönnum sem væru í áhöfn skipsins, tækifæri til að spreyta sig og það sé meira en hægt sé að segja um aðrar útgerð- ir, sem iðulega kalli til utanaðkom- andi menn í stað þeirra sem fyrir eru. Ungur aldur virðist ekki vera þyrnir í augum stjórnenda Bása- fells hf., þegar kemur að stöðuveit- ingum því Hjalti skipsljóri er að- eins 36 ára gamall. Sömu sögu er að segja af áhöfn skipsins, því meðalaldurinn í veiðiferðinni var aðeins 32 ár. „Meðalaldurinn væri miklu lægri ef við hefðum ekki þessa tvo fimmtugu karla hér um borð,“ sögðu nokkrir úr áhöfn skipsins í samtali við blaðið. Þeir sögðust kalla Tryggva „kallinn“ eins og skipstjórum bæri, en því væri ekki að leyna að það hefði verið svolftið fyndið þegar eldri áhafnarmeðlimir kölluðu Tryggva því nafni. Gashylki frá bandaríska sjó- hernum í trollið Eins og að framan greinir var skipið með fullfermi og þurfti áhöfnin að hoppa dágóða stund á lestarlúgunni áður en hægt var að loka henni. Auk aflans fékk áhöfn- in gashylki í trollið er skipið var að veiðum út af Langanesi. Hylkið er merkt bandaríska sjóhernum og hefur Landhelgisgæslan falast eft- ir því til skoðunar. Tryggvi sagðist vera ánægður með hvernig fyrsta veiðiferð hans sem skipstjóra hefði gengið, „en þessu fylgir mikið álag og því var það mikill léttir að koma í land,“ sagði hann. Tryggvi segir lítið um sjómenn í sinni ætt en afi hans, Eyjólfur Bjarnason, var þó sjómaður á gufutogaranum Venusi um tíma. Hann sjálfur fór fyrst á sjó 15 ára gamall, á netaveiðar með frænda sínum í Grindavík. „Ég fór ein- SIGURÐUR Hólm Jóhannsson, há- seti, við gashylkið sem skipið fékk í trollið. göngu með frænda mínum til að geta sagt að ég hefði verið á sjó og ég tók það þá fram að ég þyrfti ekkert kaup. Ég taldi mér trú um að eftir þessa reynslu gengi mér betur að fá pláss, en það var mjög erfitt á þessum tíma. Ég fékk siðan pláss á Engey þegar ég var 17 ára og þaðan fór ég á Skutul. Tryggvi segir skipstjóra annarra skipa á miðunum hafa tekið sér vel og í mörgum tilfellum hafi þeir verið mjög hjálplegir. „Ef maður spilar sig ekki meiri mann en maður er gera þeir allt fyrir mann. Sömu sögu er að segja af áhöfninni, hún lætur vel að stjórn ef hún sér að skipstjórinn veit hvað haiin er að gera.“ Níu vikur á sjó , Tryggvi er kvæntur Margréti Ósk Arnardóttur og eiga þau tvö börn og er annað þeirra þriggja mánaða gamall sonur. Hvernig finnst honum sjómannslífið að teknu tilliti til íjölskyldunnar? „Mér Iíkar það ágætlega enda eru góð frí á milli veiðiferða. Auð- vitað getur það tekið á taugamar að vera lengi að heiman. Þá þijá mánuði sem liðnir em frá fæðingu sonar míns er ég búinn að vera í sex vikna veiðiferð á Flæmska hattinum auk þessarar sem tók rúmar þijár vikur. Mér finnst ég vera kominn það vel inn í sjó- mennskuna að ég nenni ekki að setja mig inn í eitthvað annað. Ég verð örugglega eitthvað lengur til sjós,“ sagði Tryggvi. Helgi H. Jónsson ráðinn fréttastjóri Sjónvarps til loka næsta árs Pólitískt tal ekki orðið Ríkisútvarpinu til gagns ÚTVARPSSTJÓRI réð í gær Helga H. Jónsson til að gegna starfi fréttastjóra Sjónvarpsins til loka næsta árs, eða meðan Bogi Ágústs- son er í leyfi til að gegna öðrum störfum fyrir Ríkisútvarpið. Helgi sagði í samtali við Morgun- blaðið að biðin eftir niðurstöðu með- an útvarpsráð frestaði tvívegis af- greiðslu málsins hefði verið óþægi- legt millibilsástand fyrir fréttastof- una. „Þetta starf er að mínu viti ekki í eðli sínu pólitískt og sjálfagt hefur þetta pólitíska tal ekki orðið Ríkis- útvarpinu til neins gagns," sagði Helgi. „Ég held að allir sem sóttu um þetta starf líti á sig sem fagfólk, atvinnumen í fjölmiðlun. Hvaða skoðun menn kunna að hafa á þjóð- málum eða pólitík kemur mér ekki við meðan þess gætir ekki á nokkum hátt í starfi manna. Eg hugsa að það traust sem almenning- ur hefur á fréttastofum Ríkisút- varpsins endurspegli það að hér er vel og heiðarlega að verki staðið.“ Rýr hlutur í ramma vetrardagskrár Um það hvernig áhorfendur sjónvarps verði varir við frétta- stjóraskipti sagði Helgi að það kæmi í ljós smátt og smátt. Helgi sagði að sér fyndist hins vegar hlutur fréttastofunnar rýr í ramma vetrardagskrár sjónvarpsins. Hann vilji beita sér fyrir því að auka þann hlut. Þá muni hann beita sér fyrir að starfs- fólk fréttadeildar, fréttamenn og tæknimenn, komi meira að ákvarð- anatöku en verið hefur. „Það þýðir ekki að fréttastjórinn taki ekki af skarið og ég tel mig hafa þá Helgi H. Jónsson reynslu, menntun og burði sem þarf til þess,“ sagði Helgi H. Jónsson. Hann lauk fil. kand. prófi frá Uppsalahá- skóla árið 1973 og meistaraprófi í alþjóð- legum stjómmálum frá John Hopkins háskól- anum í Washington ár- ið 1995. Helgi hefur starfað við fjölmiðlun allan sinn starfsferil, þar af í 20 ár sem fréttamaður Ríkisút- varpsins. „Vonsvikin," segir Elín Hirst Elín Hirst, sem hlaut stuðning þriggja útvarpsráðsmanna til starfsins, sagðist í samtali við Morgunblaðið vera vonsvikin að hafa ekki fengið starfið og að hafa ekki fengið meiri stuðning í út- varpsráði. Hún sagðist hafa talið ijóst hver niðurstaðan yrði eftir at- kvæðagreiðslu í ráðinu. Elín sagði að það hefði komið sér mjög mikið á óvart að ráðning í fréttastjórastarfið hefði orðið póli- tískt hitamál. Hún sagði að þótt framsóknarmenn hefðu ekki mót- mælt því sem fram hefur komið að þeir hafi róið öllum árum gegn því að hún fengi stöðuna hafi hún alið þá von í brjósti til síðustu stundar að fagleg sjónarmið yrðu látin ráða niðurstöðu útvarpsráðs. Út af fyrir sig dragi hún ekki í efa að svo hafi verið. Hins vegar sagði hún að sín umsókn hefði ekki verið til komin af neinum pólitískum hvötum. Hún hefði ekki sótt um eftir loforð um ráðningu heldur aðeins af því hún hefði áður gegnt sambærilegu starfi hjá Stöð 2 og því talið sjálf- sagt að sækja um þegar frétta- stjórastarf Ríkissjónvarpsins losn- aði. Mál 14 ára drengs í Texas Skýrsla í athugun “VIÐ munum fara ítarlega yfir skýrslu Braga Guðbrandsson- ar og ýmis gögn um dómsmál- ið,“ sagði Stefán Haukur Jó- hannesson, skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu, í samtali við Morgunblaðið í gær. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnavemdarstofu, er nýkom- inn frá Texas í Bandaríkjunum þar sem hann kynnti sér mál 14 ára íslensks drengs sem dæmdur var í tíu ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn yngi’i bömum. Bragi skilaði stjórn- völdum skýrslu um ferð sína nú í vikunni. Ólíklegt að niðurstaða fáist í þessari viku Stefán Haukur sagði að hann gæti ekki gefið neinar efnislegar upplýsingar úr skýrslu Braga enda væri málið í raun barnaverndarmál. Það væri flókið og ólíklegt að ís- lensk stjómvöld myndu ljúka við að meta skýrslu forstjóra Barnaverndarstofu í þessari viku. Hann sagði að Bragi hefði fengið einhver gögn um dómsmálið afhent ytra og önn- ur myndu vonandi berast næstu daga. Drengurinn er nú á grein- ingarstöð undir handleiðslu sálfræðinga og félagsfræðinga. Utanríkisráð- herra ávarpar þing SÞ HALLDÓR Ásgrímsson utan- ríkisráðherra mun ávarpa Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna fyrir Islands hönd síðdegis næstkomandi fóstu- dag. Halldór kom ásamt fóru- neyti til New York í gær og sat hann óformlegan samráðsfund Norðurlandaráðherra í gær- kvöldi. Hann mun síðan taka þátt í fyrsta ráðherrafundi samstarfsráðs Nato og Rúss- lands á fóstudagsmorgun. Fulltrúar Alþingis á þingi Sameinuðu þjóðanna í vetur verða alþingismennimir Össur Skarphéðinsson, Hjálmar Jónsson, Sigríður Anna Þórð- ardóttir, Margrét Frímanns- dóttir og Valgerður Sverris- dóttir. Náttárusýn- ing styrkt BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt að styrkja Náttúru- fræðistofnun Islands um 200 þús. krónur vegna náttúra- og vísindasýningar í Reykjavík árið 2000. í greinargerð til Atvinnu- og ferðamálanefndar Reykjavíkur kemur fram að fjárhæðinni verður varið til að áætla hönn- unarkostnað, uppsetningu og rekstur sýningarinnar, sem hefur vinnuheitið Hvalur 2000. Enn skelfur norðan NOKKRIR jarðskjálftar á bil- inu 2,7 til 2,9 á Richter mæld- ust fyrir mynni Eyjafjarðar í fyrrinótt. Að sögn Þórunnar Skafta- dóttur; jarðfræðings á Veður- stofu Islands, áttu skjálftarnir upptök sín á sömu slóðum og skjálftarnir sl. laugardag, sem mældust um 5 stig. fyrir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.