Morgunblaðið - 25.09.1997, Blaðsíða 60
fltargtniÞIftfetto 5
<o>
AS/400 er...
...þar sem grafísk
j notendaskil eru
ÍK- í fyrirrúmi
<Ö> NÝHERJI
MOBGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG RITSTJ@MBL.1S AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Samkeppnisráð um
fjárhagslegan
aðskilnað ÁTVR
Stríðir
gegn mark-
miðum laga
SAMKEPPNISRÁÐ telur að
framkvæmd á fjárhagslegum að-
skilnaði milli aðfangadeildar og
smásöludeildar ATVR stríði gegn
markmiðum samkeppnislaga og að
ganga beri lengra í aðskilnaði
deildanna. Mælir ráðið með því að
stofnað verði sérstakt hlutafélag
um innflutningsstarfsemi fyrirtæk-
isins.
Bendir Samkeppnisráð á að í Svi-
þjóð og í Noregi hafí þessi háttur
verið hafður á þegar innflutningur
áfengis var gefinn frjáls til að forð-
ast aðstæður þar sem aðili með
einkaleyfi í smásölu væri jafnframt
í samkeppni við aðra heildsala.
Verslunarráð hvetur hins vegar
fjánnálaráðherra til þess að nota
þetta tækifæri til að leggja ÁTVR
niður og gefa smásölu áfengis
frjálsa.
Ráðið segir jafnframt í áliti sínu
að telji ráðuneytið sig ekki hafa
lagaheimild til að stofna um þennan
rekstur sérstakt hlutafélag sé
nauðsynlegt að fullur fjárhagslegur
aðskilnaður fari fram innan ÁTVR.
Þar þurfi m.a. að koma allri
núverandi samkeppnisstarfsemi
ÁTVR íyrir i sérstakri deild með
sjálfstæð reikningsskil. Smásölu-
deild ÁTVR verði ekki heimilt að
leggja frekari fjármuni til deildar-
innar né greiða hugsanlegan tap-
rekstur hennar, dagleg stjórnun
deildanna verði aðskilin og viðskipti
þeirra í milli verði líkt og um tvö
aðskilin fyrirtæki sé að ræða.
■ Hlutafélag/Cl
Banaslys a
Hringbraut
BANASLYS varð á gatnamótum
Hringbrautar og Laufásvegar á
sjötta tímanum í gær þegar tveir
fólksbílar rákust þar saman. Fjór-
ir voru fluttir á slysadeild eftir
áreksturinn og var bandarísk
kona, sem var farþegi í öðrum
bílnum, úrskurðuð látin eftir komu
á slysadeild, samkvæmt upplýsing-
um lögreglu.
Slysið varð með þeim hætti að
Peugeot bifreið, sem ekið var aust-
ur Hringbraut, beygði inn á Lauf-
ásveg og lenti þá í árekstri við Golf
bifreið, sem ekið var Hringbraut-
ina í vesturátt. Tvennt var í hvor-
um bíl og voru allir fluttir á slysa-
deild. Meiðsl þeirra sem voru í
bílnum sem ekið var vestur Hring-
braut voru ekki talin alvarleg. Öku-
maður bifreiðarinnar sem ekið var
austur Hringbraut var í rannsókn-
um í gærkveldi, en var ekki talinn í
lífshættu, samkvæmt upplýsingum
lögreglu. Farþeginn, bandaríska
konan, lést.
Stöðva þurfti alla umferð um
Hringbrautina um tíma eftir slysið
og hlutust af því talsverðar um-
ferðartafir.
Bandaríska konan var ferðamað-
ur hér á landi. Ekki er hægt að
greina frá nafni hennar að svo
stöddu.
FRÁ slysstaðnum við gamla Kennaraskólann á gatnamótum Hringbrautar og Laufásvegar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nær 50 viðskiptavinir tölvufyrirtækis heimsóttir af lögreglu
Fyrirtæki sakað um
fjölföldun á forriti
25 ára afla-
skipstjóri
FRYSTISKIPIÐ Skutull kom til
heimahafnar á ísafirði í gær með
fullfermi af rækju eftir 23 daga
veiðiferð. Aflaverðmætið í túmum
er 19 miHjónir króna. Það er ekki
óalgengt að skipið komi með góðan
afla að landi, en það sem þykir hins
vegar fréttnæmt við þennan túr er
að skipstjórimi, sem var í sinni
fyrstu veiðiferð, er einungis 25 ára
gamall.
, ^ Skipstjóri í veiðiferðinni var
'-•^Tryggvi Eiríksson. Hann er 1. stýri-
maður á Skutli og var að leysa
Hjaita Þorkelsson skipstjóra af.
Sömu sögpi er að segja af áhöfn
skipsins, því meðalaldurinn í veiði-
ferðinni var einungis 32 ár. „Meðal-
TRYGGVI Eiríksson skipstjóri.
aldurinn væri miklu lægri ef við
hefðum ekki þessa tvo flmmtugu
karla hér um borð,“ sögðu nokkrir
úr áhöfninni í samtali við Morgun-
blaðið.
■ „Kallinn“/6
RANNSÓKNARMENN hjá emb-
ætti ríkislögreglustjóra hafa undan-
farna daga heimsótt 46 viðskiptavini
tölvufyrirtækis í Reykjavík, vegna
kæru lögmanns Microsoft-fyrirtæk-
isins bandaríska um meinta ólöglega
fjölfóldun hugbúnaðar. Heimsóknir
til viðskiptavina komu í kjölfar hús-
leitar hjá tölvufyrirtækinu sem er
m.a. sakað um að fjölfalda og selja
Windows 95 forrit Microsoft.
Eins og skýrt var frá í Morgun-
blaðinu kærði íslenskur lögmaður
Microsoft-fyrirtækisins málið til
ríkislögreglustjóra fyrir um hálfum
mánuði. Amar Jensson, aðstoðaryf-
irlögregluþjónn hjá embætti ríkis-
lögreglustjóra, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að eftir frum-
rannsókn hefði verið gerð húsleit
hjá tölvufyrirtækinu sem bæði selur
tölvur og hugbúnað og sinnir við-
gerðaþjónustu. „Rannsóknarmenn
lögðu hald á hugbúnað og bókhalds-
gögn hjá fyrirtækinu. í kjölfarið
voru 46 viðskiptavinir fyrirtækisins
heimsóttir og rannsóknarmenn
fengu að skoða tölvur þeirra og
hugbúnað. Ég tek þó skýrt fram að
rannsóknin beinist einungis að
tölvufyrirtækinu; viðskiptavinir eru
yfirheyrðir sem vitni.“
Tímanna tákn
Arnar sagði að á næstunni yrði
unnið úr þeim gögnum og upplýs-
ingum sem embætti ríkislögreglu-
stjóra hefði safnað og nokkur tími
myndi líða þar til þeirri rannsókn
yrði að fullu lokið. Hann tók undir
að rannsóknarefnið væri tímanna
tákn; hann myndi ekki eftir um-
fangsmikilli rannsókn sem lyti að
höfundarrétti á hugbúnaði, þótt ým-
is höfundarréttarmál hefðu komið
til kasta lögreglu.
Björk spáð 3. til 5. sæti
BREIÐSKÍFU Bjarkar Guð-
mundsdóttur, Homogenic, hefur
verið vel tekið um heim allan, að
sögn starfsmanna útgáfu hennar í
Bretlandi. Fyrirtækið spáir því að
platan eigi eftir að fara í þriðja til
fimmta sæti á breska breiðskífu-
listanum. Fyrri tvær skífur Bjark-
ar náðu ekki inn á lista 10 mest
seldu skífanna fyrstu vikuna.
Homogenic kom út um heim all-
an sl. mánudag og hafa viðtökur
verið góðar, að sögn Sue John-
ston, starfsmanns One Little Indi-
an, sem gefur plötuna út í Bret-
landi. Hún segir að sölutölur
bendi til þess að platan lendi í
þriðja til fimmta sæti á breska
breiðskífulistanum, en tekur fram
að taka verði svonefndri miðviku-
spá með fyrirvara því lokasala
verði ekki tekin saman fyrr en síð-
degis á fóstudag.
Johnston segir að viðtökur hafi
verið það góðar að ekki hafi verið
hægt að fullnægja eftirspurn því
fyrsta útgáfa plötunnar er í sér-
stökum viðhafnarbúningi sem
lengri tíma tekur að framleiða.
Hér á landi hefur plötunni verið
vel tekið, að sögn starfsmanna
Japís sem dreifir henni. Þar kom
fram að þegar væri búið að dreifa
á þriðja þúsund eintökum af plöt-
unni hér á landi og sala virtist
vera góð.