Morgunblaðið - 25.09.1997, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 25.09.1997, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 41 MINNINGAR KARL JÓHANNSSON + Karl Jóhannsson fæddist 7. nóvember 1923 á Reykjum í Hrútafirði. Hann lést 16. sept- ember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 23. september. Við vorum þijátíu og átta bekkj- arsystkin í Menntaskólanum á Ak- ureyri sem brautskráðumst þaðan stúdentar vorið 1943. Þá geisaði styrjöld í Evrópu og víðar í iang- hijáðum heimi; margir leiðtogar báru ugg í bijósti um ókomna tíma, aðrir hugsuðu um sjálfa sig; enginn vissi hvenær rofa myndi til. Við íslendingar nutum þá herverndar Breta um hríð og síðan Bandaríkja- manna. Áður en Menntaskólinn kvaddi okkur til hlítar og við vöpp- uðum hvert um sig út á ókunna stigu um hikandi veröld sem vissi ekki hvert hún var sjálf að fara, þá ávarpaði Sigurður Guðmundsson skólameistari allan hópinn í kveðju- skyni og kallaði okkur „heims- mannabekk“. í slíku orði þótti okk- ur þungur dómur fólginn; fimmtíu og fjórum árum síðar erum við enn að velta því fyrir okkur hvort við höfum reynst þjóð okkar öllu verri þegnar en aðrar bekksagnir frá Akureyri, fyrr og síðar. I hvert skipti sem eitthvert okkar fellur frá, hljótum við sem enn erum ofan jarðar að minnast þeirra skulda- skila sem liggja að baki kuldalegra orða sem dundu í eyrum okkar af vörum Sigurðar Guðmundssonar meistara við skólaslit vorið 1943. Höfum við raunverulega um röskva hálfa öld brugðist þeirri skyldu við þjóðina og mannlífið í heild sem menntun og gengi lögðu okkur á herðar? Nú hafa seytján af systkin- um okkar hnigið til foldar, og enn verðum við að sinna ögrun skóla- meistara í hvert skipti sem fækkar í hópnum. Með Karli Jóhannssyni er mikill drengskaparmaður horfinn af sviði, og nú er tækileg tíð til að minnast góðra kynna frá liðnum áratugum. Sá harmur sem að okkur er kveðinn á döprum haustdægrum ætti síst að láta okkur gleyma öllum þeim greiðum og gæðindum sem við eig- um honum að þakka. Karl var alla ævi sína manna örlátastur, ljúfastur og kurteisastur; snyrtimenni með afbrigðum. Leitun mun á þeim manni sem þótti jafn mikið gaman og honum að hjálpa öðrum; frá honum gekk enginn maður bónleið- ur til búðar. Drengskapur, hjálp- semi og örlæti hafa löngum þótt meginstólpar þeirrar siðmenningar sem stóð í sem mestri hættu í þann mund sem við hurfum nýbakaðir stúdentar frá MA, og Sigurður Guðmundsson varaði við hrösun „heimsmannabekks". Karl var prýðismaður til náms, einkum í tungumálum. Þegar í skóla náði hann furðu traustum tökum á enskri tungu, sem hann talaði lýta- laust og með þeim hreim sem menntamenn á sunnanverðu Eng- landi hafa löngum tamið sér. Karl hafði þýða rödd og beitti henni af mikilli snilld. Kunnátta hans í ensku og öðrum tungum kom sér vel í ævistarfi hans: hann vann áratug- um saman í Útlendingaeftirliti ríkis- ins. Karl hafði mikinn áhuga á sögu og sagnfræði. Um undanfarna mán- uði kynnti hann sér rækilega hið mikla hallæri sem dundi yfir íra rétt fyrir miðja síðustu öld. Þá brast uppskera á kartöflum og örsnautt sveitafólk hrundi niður úr hungri. Þessari ógæfu hefur einna helst verið líkt við móðuharðindin miklu sem forfeður okkar urðu að þola. Rétt eins og mörgum öðrum sem fengist hafa við að rannsaka þjóð- arógæfu íra, velti Karl einum spur- daga fyrir sér: Að hve miklu leyti var hungursneyðin Bretum að kenna? En þeir höfðu þá ráðið lög- um og lofum í írlandi um langan aldur. Karl lét sér ekki nægja ein- berar staðreyndir heldur leitaði hann jafnan að rótum þeirra og rökum. Svo segir í fornum ritum að enginn lifi meinalausu Iífi, og sá ljóður var einna helst á Karli að hann dýrkaði stundum þann vínguð sem Bacchus heitir, rétt eins og sumum okkar hættir til, jafnvel þótt ekkert bjáti á. En eng- inn skuggi fellur á minningu góðs vinar. Við vottum dýpstu samúð ekkju Karls, Aldísi Hafliðadóttur, börnum hans Rögnu, Guðmundi, Hafliða, Ragnari, Þorsteini og Magnúsi, og öðrum nákomnum ættingjum og vinum. Bekkjarsystkinin. Einn af mínum bestu og kær- ustu vinum er horfinn af braut yfir móðuna miklu. Tengdadóttir hans hringdi til mín síðastliðinn þriðjudagsmorgun til að tilkynna mér þessi válegu tiðindi. Ég var búin að frétta af slysinu kveldinu áður. Kærar minningar koma upp í huga minn. Ég hef verið nærri dag- legur gestur á heimili Kalla og Dídu (Dísu eins og ég kalla hana alltaf, en ég hef einkaleyfi á því), í mörg ár. Ef ég ekki birtist, hringdum við til skiptis. Get ég varla sagt að nokkur dagur hafi fallið úr. Gest- risni og hlýja ríkti á þeirra heimili. Börn þeirra og fjölskyldur heim- sóttu þau nærri dag hvern. Sam- heldni slíkri hef ég aldrei kynnst svo mikilli áður. Kalli var hlýr maður, einstaklega barngóður, góður vinur og fjölskyl- dufaðir, vildi allt fyrir alla gera, alltaf boðinn og búinn við hvers manns bón og fórum ég og vinir hans ekki varhluta af því. Það var gaman að ræða við Kalla og fræð- ast af honum. Hann var alæta á bókmenntir og kom maður ekki að tómum kofunum þar, sérstaklega þegar rætt var um síðari heimstyij- öldina. Ég gat setið klukkustundum saman og fékk betri mannkynssögu en ég hafði nokkurn tíma lært í skólum þeim er ég hafði stundað. Svona var Kalli vinur minn. Ef ég hafði einhver vandamál á höndum leitaði ég til Kalla, hann hafði alltaf tíma til að hlusta. Mér leið alltaf svo vel á eftir. Á eftir fylgdi svo alltaf smákímni og einn og einn brandari. Vaninn var að við heilsuð- umst með kossi á báðar kinnar og kveðjustundin var einnig á sama máta. Ég get ekki með orðum lýst hve mikill söknuður minn er. Ég bið Guð að vaka yfir Dísu, börnum og fjölskyldum þeirra, sem öll sakna hans og eiga um sárt að binda. Sofðu rótt elsku _besti vinur minn. Ása Andersen. ÓLÖF G UÐMUNDSDÓTTIR HELGI GÍSLASON + Ólöf Guðmundsdóttir fædd- ist á Stórólfshvoli í Rangár- vallasýslu 18. september 1922. Hún lést í Sjúkrahúsi Suður- lands 6. júlí síðastliðinn. Ólöf var jarðsungin í kyrrþey frá Fáskrúðsfjarðarkirkju 14. júlí. Ég kynntist Ólöfu Guðmundsdótt- ur árið 1939 á Laugarvatni ásamt Katrínu Clausen og vorum við þijár saman í herbergi þær 6 vikur sem matreiðslunámskeiðið stóð yfir. Þar var mikið gaman og hlegið dátt og oft komu margar stúlkur í heimsókn til okkar, því við vorum allar hlátur- mildar og höfðum mikið gaman af að segja brandara og sögur. Eins og áður segir vorum við að læra matreiðslu, því flestar vorum við hringtrúlofaðar og veit ég ekki betur en að þessar 42 stúlkur sem voru á námskeiðinu hafi verið heppn- ar með sína kærasta og allir verið dugnaðarmenn, sem sáu heimilunum vel farborða, þrátt fyrir kreppuna sem var búin að vera á íslandi í svo mörg ár. Þá var að ég held meiri h'fslgleði hjá fólki en nú tíðkast, enda þótt flestir geti í dag veitt sér alla skapaða hluti sem þá langar til. Já, þetta var góður og eftirminni- + Ingibjörg Stefánsdóttir fæddist á Ósi á Skógar- strönd 29. ágúst 1910. Hún lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 5. september síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Kot- strandarkirkju í Ölfusi 13. sept- ember. „Fögur sál er ávallt ung undir silfurhærum." Kæra frænka. Nú þegar þú ert sofnuð svefninum langa og hefur verið lögð til hinstu hvíldar í faðmi fóstuijarðarinnar, vil ég með fáum kveðjuorðum, þakka þér ævilanga vináttu og hinar mörgu ánægju- stundir í návist þinni beggja vegna hafsins stóra. Þótt þú sért ekki leng- ur í okkar hópi lifír þú áfram í hug- arlöndum mínum og hugskoti. Lífsgleði þín, sem var bæði einlæg og traust, þitt milda kærleiksríka legur tími á Laugarvatni. Mat- reiðslukonan var þá Ólöf Jónsdóttir, sem var frábær manneskja og við lærðum mikið hjá henni þennan stutta tíma. Hjúkrunarkonan, sem stjórnaði og kenndi okkur að ganga vel um herbergin okkar, leggja snyrtilega á borðin og viðhafa hátt- vísa borðsiði, lagði mikla áherslu á að alls ekki mætti hlæja á meðan máltíðin stæði yfir. Mér reyndist erfítt að búa við þennan heraga að mega ekki hlæja, því hjúkrunarkon- an, sem raunar var hin ágætasta kona, var sífelit að áminna okkur með að undir engum kringumstæð- um mætti flissa eða hlæja. En þegar hún bannaði okkur líka að brosa gat ég ekki stillt mig og hló svo hátt að það endaði með allsherjarhlátri okkar nemendanna. En þá tók nú út yfir allt þegar hún missti stjórn á sér, hún harðbannaði okkur að hlæja þegar Halldór Kiljan, sem fékk að vera um tíma í einu horni matsal- arins, var viðstaddur. Hún lagði blátt bann við að við hlæjum við matar- borðið svo að Kiljan heyrði, þar sem hún óttaðist að skáldið myndi skrifa um hlátursköstin okkar í sinni næstu bók. Slíkt yrði skólanum til vansa. Til að tryggja að ekki-yrði hlegið, setti hún mig við hlið sér við matar- bros, kímnigáfa þín og hlýtt við- mót, gleymist ekki en er geymt í vitund allra þeirra, sem þig þekktu vel. Þín einstæða auðmýkt og hlé- drægni, þinn sterki persónuleiki og persónugerð, vakti mig oft til um- hugsunar og varð tilefni mikillar virðingar fyrir þér. í nær níu áratugi bjóst þú við ysta haf og lifðir í sannleika, grand- vör, farsæl og fróðleiksfús. Hafið var alla tíð stór hluti af lífi þínu, í senn gjöfult og grimmt. Það mark- aði djúp spor í lífsskjöld þinn og særði þig djúpum sárum, sem þó greru að lokum. Það tók frá þér og fjölskyldunni báða þína elskuðu bræður og augasteina foreldranna, báða í blóma lífsins. Við þá voru bundnir margir fagrir framtíðar- draumar, sem hurfu í hina votu gröf. Þú barst harm þinn og sorg í hljóði með hug hetjunnar og skap- festu. borðið. En þá fyrst byijaði nú hlátur- inn sem aldrei fyrr og hver einasta stúlka hló við borðið, enda þótt skáldið fræga frá Gljúfrasteini væri inni. Ég gleymi aldrei þessum skemmtilega tíma á Laugarvatni. Og nú þegar ég tek mér penna í hönd til að minnast Ólafar vinkonu minnar, rifjast svo margt upp. Ólöf heitin var dul að eðlisfari, en giftist ágætum manni, Andrési Bjarnasyni, gullsmiði frá Fáskrúðs- firði. Bjuggu þau lengi og öll sín bestu ár í Reykjavík. Hin síðari ár fór heilsa Ólafar versnandi. Árið 1991 fluttu þau til Hveragerðis, keyptu ágætis hús og góða lóð. Var Ólöf mjög ánægð þar og hafði yndi af blómum og trjágróðri. Hlúðu þau hjón vel að sínum garði og fengu viðurkenningu frá bæjaryfirvöldum sl. sumar fyrir snyrtilegan garð. En heilsan fór niður á við með hveiju árinu sem leið og síðasta árið annað- ist Andrés konu sína af mikilli alúð eins og best verður á kosið og dáð- ust læknar og hjúkrunarfólk að hve Andrés hjúkraði sinni konu af mik- illi natni og kunnáttu. Ég óska þér góðrar heimkomu, Olla mín, og ég hlakka til að hitta þig. Þú varst alltaf svo góð og yfir- lætislaus og lést alls staðar gott af þér leiða, ennfremur þinn góði eigin- maður. Þið heiðurshjónin voruð til fyrirmyndar og öllum þótt vænt um ykkur. Regína Thorarensen, Hulduhlíð, Eskifirði. Kæra frænka. Þú ert ein af fáum, sem aldrei verða gamlir í lifanda lífi eða minningunni, því bæði æskan og vorið áttu heima í bijósti þínu. Þessi hálfsystkini leiddu þig í gegn- um lífið og þú varst ung, þrátt fyr- ir hvítu hárin. Friðsemd og jafnvægi var í sporum þínum og þú áttir dyggðir, sem prýddu góða sál og nafn þitt lék mér jafnan blítt á vör- um. Söknuður minn er mikill. Hansi. „Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta." Elsku lnga. Núna ert þú búin að fá verðskuldaða hvíld eftir langa ævi. Þú varst alltaf svo góð og hæglát. Ég man hvað þú varst góð við Diddu og hafðir mikla þolin- mæði til að hlusta. Ég vil muna þig, og mun alltaf gera, eins og þú varst, alltaf hress og í góðu skapi. Mig langar að skrifa þetta til að segja bless og takk fyrir allt, sem þú gafst mér. Þín frænka og vinkona, Gunnhildur. + Helgi Gíslason fæddist á Ytri-Á í Ólafsfirði 7. febr- úar 1913. Hann lést á dvalar- heimilinu Hornbrekku á Ólafs- firði 9. september síðastliðinn og fór útför hans fram frá Ólafsfjarðarkirkju 13. septem- ber. Mig langar að minnast elskulegs afa míns í nokkrum orðum, hann lést hinn 9. september síðastliðinn, eftir baráttu við erfiðan sjúkdóm. Þegar ég lít til baka koma upp ótal minningar tengdar honum afa. Þegar ég sem smástelpa var að koma til afa og ömmu í Ólafsfirði, þá var sko gaman, alltaf beið afi á tröppunum á Grund og tók á móti okkur, ekki brást það að hann afi hafði hugsað fyrir því að kaupa eitthvað sem litlu nöfnu hans lík- aði, vanalega var það nú ís eða kókópuffs. Helgi afí var einstaklega góður maður og vildi öllum vel, alltaf í góðu skapi og tilbúinn að gantast við mann, eins var mjög gaman að ná honum á eintal, og þá sagði hann manni frá viðburðaríkri ævi sinni. Mér er á þessari stundu mjög minnisstætt samtal sem við afi átt- um fýrir örfáum árum, við settumst niður í góðu næði og þá sagði hann mér frá æfi sinni í hnotskurn, bæði því gleðilega og því sem erfitt var. Þessar minningar eru mér mjög mikilvægar. Afí var einstaklega barngóður maður og hafði mjög gaman af að gera eitthvað fyrir börnin, það brást ekki að þegar ég kom með litlu dætur mínar tvær til afa og ömmu þá gaukaði afí alltaf að þeim ein- hveiju góðgæti, og bætti svo við áður en maður fór: Taktu nú einn með í nesti. Það er mjög skrítin tilhugsun að maður skuli aldrei eiga eftir að sjá hann afa aftur, en minningin um góðan mann lifir í hjörtum okkar. Ég kveð þig, elsku afí, með sár- um söknuði, og von um að þér líði vel þar sem þú ert. Elsku amma, megi góður guð styrkja þig í sorg- um þínum. Eg er sannfærður um að aðeins óblíð umskipti og breytileg örlög séu þess megnug að móta dugmikinn mann í hvívetna. Lengi lifi því flóð og fjara, gleði og sorg, gæfa og þrautir. (Gottfried Keller) Helga Jóna. Elsku Helgi afí. Fyrstu frostnóttina í þínum kæra heimabæ, hófst þú þitt hinsta ferða- lag. Það voru ekki auðveld spor að fylgja þér síðasta spölinn. En í allri sorginni sitja þó eftir margar góðar og skemmtilegar minningar. Mörgum stundum eyddi iég sem barn hjá ömmu og afa á Grund, þar var nú ýmislegt gert sér til dundurs og var þá sérstaklega oft gripið í spilin. Eftir að þið flutt- uð á Hornbrekku komum við mæðg- umar ansi oft að ykkur ömmu ásamt fleirum með spil í hendi. Dóttir mín var alltaf fljót að hlaupa í fangið á honum „úsa afa“ sínum. Þá laumuðust þið inn í herbergið og náðuð ykkur í nokkrar rúsínur. Þú kallaðir sjálfan þig rúsínuafann hennar. En rúmlega ársgömlu barni gengur ekki vel að segja rúsínuafi, svo þið sættust á það að hún kall- aði þig „úsa afa“. Það er sárt að hugsa til þess að þar sem hún er bara tveggja og hálfs árs, á hún ekki eftir að koma til með að muna eftir þér. En ég var aftur á móti svo lánsöm að kynnast þér mjög vel og mun ég geyma minninguna um góðan og heiðarlegan mann í huga mínum um ókomin ár. . Elsku amma, þú átt heiður skilið fyrir dugnaðinn síðastliðna mánuði. En eftir 60 ár þurftir þú að kveðja manninn þinn. Og ég vona að góður guð styrki þig í þinni þraut. Sigríður Ingimundardóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins i bréfasima 5691115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni ( bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasið- um. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðalltnubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. INGIBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.