Morgunblaðið - 25.09.1997, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.09.1997, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR í SKUGGA RISANNA Sinfóníuhljómsveit íslands efnir til tónleika í Langholts- kirkju í kvöld í tengslum við Ung Nordisk Musik- hátíðina sem stendur yfir í Reylgavík. Orri Páll Orm- arsson hafði tal af ítalska tónskáldinu Luca Francesconi, heiðursgesti hátíðarinnar, en hann á eitt verkanna sem flutt verður á tónleikunum. Morgunblaðið/Golli LUCA Francesconi tónskáld gefur einleikaranum Arno Bornekamp góð ráð á æfingu fyrir tónleika kvöldsins. EGAR Ítalíu og tónlist ber á góma í sömu andrá verður vafalaust flestum hugsað til Verdis, Puccin- is, Rossinis og annarra genginna tónjöfra sveipaðra ljóma dýrðar og ódauð- leika. í skugga þessara risa þrífst aftur á móti blómleg tónmenning á okkar dögum, þótt ítölsk yfírvöld neiti að horfast í augu við það, að því er fram kemur í máli eins af nútímatónskáldum ítala, Luca Francesc- oni, sem staddur er hér á landi þessa dag- ana. „í huga ítalskra stjórnmálamanna er menning eitthvað gamalt — eitthvað liðið,“ segir Francesconi. „Sköpun og nútími eru hugtök sem eiga einfaldlega ekki samleið að þeirra mati. Þetta er vitaskuld herfílegur misskilningur - augljós þverstæða. Hafí sköpunarhæfni einkennt ltali frá Michel- angelo til Luciano Berios, hvers vegna í ósköpunum ætti hann ekki að einkenna þá í dag?“ Efnahagslegar forsendur Sé þetta sjónarmið haft í huga þarf ekki að koma á óvart að stuðningur við lista- menn sé af skornum skammti á Ítalíu. „Þannig er ástandið víðar,“ segir Francesc- oni, „og að mínu mati verðum við að fara að gera upp við okkur hvernig við ætlum að bregðast við þessari þróun. í dag er öll list metin út frá efnahagslegum forsendum, það er hvort unnt sé að selja hana eður ei. Fjárfrek liststarfsemi á heldur ekki upp á pallborðið. Þannig hefur ein sinfóníuhljóm- sveitin af annarri verið lögð niður á Italíu upp á síðkastið, einkum þær sem útvarpið hefur starfrækt, á sama tíma og ómerkilegt afþreyingarefni tröllríður ljósvakamiðlun- um. I framtíðinni gætum við því átt eftir að standa frammi fyrir því að verja tilvist sinfóníuhljómsveitarinnar - einnar merk- ustu uppfinningar mannsins - af þeirri ein- földu ástæðu að þetta kraftmikla og sveigj- anlega fyrirbæri, sem gerir drauma að veru- leika, er dýrt í rekstri.“ Og höfuðið söng ... En þrátt fyrir mótlætið er enginn upp- gjafartónn í Francesconi. „Hvað mitt fag varðar er engin ástæða til að örvænta enda eru þúsundir ungra manna og kvenna um heim allan reiðubúnar að helga líf sitt tón- smíðum. Þetta er svo sannarlega góðs viti en fyrir þessu fólki er tónlistin ástríða - köllun. Slíkt fólk verður aldrei beygt í duft- ið - ekki frekar en listin sjálf sem oft hef- ur verið líkt við höfuð Orfeifs, föður söngs- ins, sem hélt áfram að syngja eftir að búið var að höggva það af.“ Francesconi hefur víða drepið niður fæti á ferli sínum sem tónlistarmaður. Líkir hann lífí sínu við hringrás. „Ég hóf nám í klassískum píanóleik fimm ára gamall að undirlagi foreldra minna. Tíu eða ellefu ára gömlum fór mér aftur á móti að leiðast þófið enda fannst mér ég ekki vera í tónlist- arskóla á eigin forsendum. Ég ákvað því að snúa baki við klassískri tónlist." Við tók rafmagnsorgelið - rokk og ról. „Mér fannst ég verða að byija á byijuninni og þreifa mig áfram. Það er mun vænlegri kostur að byija í fyrsta þrepi stigans en því síðasta. Næstu árin lék ég því rokktón- list í samkvæmum og á skemmtistöðum undir áhrifum frá Jimi nokkrum Hendrix.“ Smám saman opnuðust hins vegar nýjar víddir fyrir tónlistarmanninum unga - nýir heimar. „Ég tók út mikinn þroska á þessum árum. Mál tónanna heillaði mig sífellt meira og skref fyrir skref þokaðist ég nær klassík- inni á nýjan leik. Sautján ára gamall innrit- aðist ég aftur í tónlistarskóla.“ „Þetta var ekki mín tónlist" Reyndar viðurkennir Francesconi að hann hafi ekki stundað námið af heilum hug fyrsta kastið enda hafði hann komist í kynni við aðra tónlistarstefnu - djass. „Djassinn vann hug minn og hjarta, sérstak- lega Miles Davis, sem var, líkt og Hendrix á sínum tíma, sífellt að nema nýjar lendur í list sinni. Ég drakk því djassinn í mig og gerðist atvinnudjassleikari með náminu. Það var síðan á tónleikum með Herbie Hancock í Róm, ætli ég hafí ekki verið tví- tugur, að það kviknaði hjá mér ljós - þetta var ekki mín tónlist. Ég efast ekki um að ég hefði getað orðið góður djassisti. Á hinn bóginn hefði ég aldrei orðið annað en eftir- herma þar sem rætur djassins eru í Afríku ekki á Ítalíu.“ Þar með hóf Francesconi leit að eigin rótum. „Ég fann mig knúinn til að leita fanga í menningu minnar þjóðar og þjóð- anna í kring til að öðlast skilning í víðara samhengi. Ef maður þekkir ekki sjálfan sig, hvernig getur maður þá þekkt aðrar manneskjur. Við mér blasti aftur á móti þrítugur hamar - Bach, Verdi, Beethoven, Puccini og óteljandi aðrir. Þarna var svo sannarlega þröng á þingi - varð ég að bijóta verk allra þessara manna til mergj- ar?“ Ekki nauðsynlega. Tónleikar Hancocks í Róm höfðu engu að síður gjörbreytt lífi Francesconis sem allar götur síðan hefur helgað sig klassískri tónlist og tónsmíðum. „Ég lagðist í skræður, sótti tónleika og tók námið föstum tökum og innan tíðar var ég farinn að þróa hugmyndirnar sem ég hef unnið með æ síðan.“ „Töfraafl“ samfélagsins Segir Francesconi að í öndverðu hafi draumurinn verið að þróa kraftmikið tón- mál sem endurspeglaði lífið og tilveruna. „Það er ekki hægt í djasstónlist og þaðan af síður í popptónlist. Popp er bara afþrey- ing. Ég geri meiri kröfur til minna tón- smíða enda hefur tónlist alla tíð verið „töfra- afl“ samfélagsins. í ýmsum samfélögum til foma mun tónlistin til að mynda hafa stuðl- að að hjónaböndum, læknað fólk og stýrt veðri!“ Talandi um popptónlist er Francesconi þess sinnis að hljóðmengun sé eitt mesta mein samtímans. „95% af allri dægurtónlist er rusl. Og þegar maður þarf að biðjast vægðar fyrir þessu rusli svo til hvar sem maður kemur, á knæpur, veitingastaði, í verslanir og þar fram eftir götunum, er vandamálið bersýnilega orðið viðvarandi. Maður spyr sig hvaða tilgangi þessi tónlist þjónar? Er hún til komin vegna þess að fólk hræðist upp til hópa þögnina - í þögn- inni getur það nefnilega heyrt í sjálfu sér?“ Verkið sem flutt verður á sinfóníutónleik- unum í Langholtskirkju í kvöld, Trama fyr- ir saxófón og hljómsveit, samdi Francesconi fyrir um áratug. Lýsir hann því sem flók- inni, kraftmikilli tónsmíð, sem sé tilraun til að finna nýja leið til tjáskipta, án þess þó að það bitni á tónmálinu eða „framburðin- um“. „Til þess að ná þessu markmiði er brýnt að krafturinn sé til staðar en hann verður að koma að innan.“ Einleikari í verki Francesconis er hol- lenski saxófónleikarinn Amo Bornekamp en jafnframt verða flutt á tónleikunum Earth, sinfónía eftir Úlfar Haraldsson, In a Network of Lines eftir Eivind Buene, Till-flykt eftir Per Mártensson og Seven Minutes eftir Tommi Kárkkáinen en öll eru þessi tónskáld þátttakendur í Ung Nordisk Musik-hátíðinni. Hljómsveitarstjóri verður Guðmundur Óli Gunnarsson. Terrason, steypa og góður djass PJASS Hótcl Saga LOK RÚREK’97 LOKATÓNLEIKAR RúRek djasshátíðarinnar 1997 voru haldn- ir í Súlnasal Hótel Sögu og var það vel að hátíðin skyldi römmuð inn með þeim einu atriðum er hús- fyllir var á: Frumskógarsveit Dorg- es og tríói Terrasons. Jackie, sem er franskbandarísk- ur, er í hópi eftirtektarverðari djasspíanista af yngri kynslóðinni. Efnisskrá hans samanstóð mest af þekktum viðfangsefnum djass- leikara og spannaði Brubeck jafnt sem Monk. Þetta eru ópusar sem hafa svo oft verið spilaðir að mað- ur vill í eigingimi sinni heyra eitt- hvað nýtt í hvert skipti sem þeir eru leiknir á tónleikum. Jackie hafði margt til málanna að leggja en samt fannst mér oft vanta herslumuninn, þennan sem mér finnst Keith Jarrett sjaldnast skorta. En það var gaman á tón- leikunum og Ugonna Okegwo bassaleikari, sem hér fór á kostum með John Hendricks 1992, og Ali Jackson tommari, voru traustir í rýþmanum. Svo léku þeir félagar hina skemmtilegustu ópusa eftir Jackie og hafi stjórn RúRek þökk fyrir tónleikana. RúRek hátíðin hefur aldrei stað- ið jafn lengi yfír en aldrei verið jafn fáir tónleikar á hveijum degi. Verst var þó að það líf og §ör sem einkennt hefur miðborgina á hverri hátíð var burtu. Jómfrúin, eitt veit- ingahúsa, bauð uppá djass í mið- bænum. Tónleika í eftirmiðdaga og djassklúbb með spuna í tali og tónum um miðnætti. Það voru dá- lítið sérstakar samkomur og varla hægt að kalla djassklúbb - heldur var þetta ofvaxinn útvarpsþáttur við undirleik bjórdælna. Eg kom þar fyrsta og síðasta kvöldið og hlustaði annars á útvarpsútsend- ingar frá klúbbnum. Þarna var svo sannarlega steypt um djass, en hinn ágætasti hammondorganleik- ur Þóris Baldurssonar og heim- sóknir annara djassleikara björg- uðu þó útsendingunum fyrir horn. Fyrsta kvöldið voru útvarpsviðtölin í hátölurum klúbbsins, en síðasta kvöldið var búið að aftengja þá. Vonandi var það gert á öðrum degi djassglöðum gestum og þyrst- um til yndisauka því þetta loka- kvöld var skemmtilegt á köflum - sérí lagi þegar trommari Terra- sons, Ali Jackson, settist við píanó- ið., Ýmislegt má gott um RúRek 97 segja og auk þess sem hefur verið skrifað í þessum pistlum undan- farnar vikur má geta um heimsókn frá Lettlandi, djassmessu og bal- lettinn Gagarín - síðasta hetjan. Lettarnir fluttu afbragðsgott tón- verk á línu fijálsdjassins eftir forsprakkann Egils Straume, en hefðbundinn djassleikur þeirra fannst mér heldur klénn - var ekki þeirra deild. Áratugir eru, held ég, síðan ég hlýddi síðast á heila útvarpsmessu. En við út- varpsstækið var sest er séra Sigur- jón Árni Eyjólfsson, Egill Ólafsson og tríó Björns Thoroddsens fluttu hina skemmtilegustu djassguð- þjónustu á vegum RúRek í Árbæ- jarkirkju. Loks er að geta Gagarín- ballettsins. Hann var dálítið sund- urlaus og langdreginn fyrir minn smekk, en slagverksleikur Gúnther „Baby“ Sommers hreint afbragð - sérí lagi er hann svingaði a la Krupa og Rich í kraftmiklum ein- leiksköflum í síðara hluta verksins. Að lokum þetta. Ýmislegt var vel gert á RúRek 97, en ef hátíðin á að ná fyrri lýðhylli held ég hún verði að vera styttri og fleiri tón- leikar kvöld hvert í miðborginni. það voru helstu nýmæli Ólafs Þórð- arsonar og Norrænu útvarpsdjass- daganna 1990 að fá allskonar fólk til að safnast saman í miðbænum og heimsækja djassklúbbana og hlusta - fólk sem hafði kannski aldrei fyrr sest niður og hlustað á djass. Vernharður Linnet
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.