Morgunblaðið - 10.10.1997, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samningur utanríkisráðherra og Þjóðræknisfélagsins
Sex milljóna styrkur
á tveimur árum
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
STEINN Logi Björnsson, formaður Þjóðræknisfélagsins, og Hall-
dór Asgrímsson utanríkisráðherra undirrita samstarfssamninginn.
Á bak við þá standa stjórnarmenn í félaginu, þeir Eric Stefánsson,
Markús Orn Antonsson og Thor Thors.
UNDIRRITAÐUR hefur verið samn-
ingur milli utanríkisráðuneytisins og
Þjóðræknisféiags íslendinga sem
miðar að því að efla tengsl íslands
og fólks af íslenskum uppruna í
Vesturheimi. Utanríkisráðuneytið
mun styrkja félagið um þrjár milljón-
ir á ári næstu tvö ár og sjá félaginu
fyrir tölvubúnaði og húsgögnum í
skrifstofu sem félagið mun opna í
Reykjavík.
I fréttatilkynningu frá utanríkis-
ráðuneytinu kemur fram að Þjóð-
ræknisfélagið mun taka að sér
skráningu fólks af íslenskum upp-
runa í Vesturheimi og styrkja útgáfu
tímaritsins Lögbergs-Heimskringu.
Það mun hafa samvinnu við Vest-
urfarasetrið á Hofsósi og veita því
fjárstuðning að upphæð allt að hálfri
milljón á næstu tveimur árum. Fé-
lagið mun einnig sinna ýmsum fyrir-
spurnum og erindum sem ráðuneytið
mun vísa til þess.
Undirritaður á degi
Leifs Eiríkssonar
Samningurinn var undirritaður í
gær, 9. október, sem er dagur Leifs
Eiríkssonar í Bandaríkjunum og
jafnframt eru nú hundrað ár liðin
frá því að lýðveldið Nýja ísland við
Winnipegvatn leið undir lok eftir 22
ára tilvist.
Aðdragandi samningsins er sá að
fyrrverandi stjórn félagsins hafði
fyrir ári samband við utanríkisráðu-
neytið og bað það endurreisa félag-
ið, sem orðið er meira en aldargam-
alt, en hafði þá um langt skeið ver-
ið athafnalítið og félagsmenn voru
orðnir fáir.
„Áhugi á tengslum milli íslands
og fólks af íslenskum uppruna í
Vesturheimi er að aukast, og með
bættum samgöngum er auðveldara
að rækta þau,“ segir Steinn Logi
Björnsson, framkvæmdastjóri sölu-
sviðs Flugleiða, formaður hins end-
urreista Þjóðræknisfélags. Hann
bendir meðal annars á flug frá ís-
landi til Minneapolis sem er skammt
frá Manitoba.
Meðal meðstjórnenda í Þjóðrækn-
isfélaginu eru Eric Stefánsson, fjár-
málaráðherra Manitobafylkis, og
Thor Thors, bankastjóri í New York,
sonur Thor Thors sendiherra og
komu þeir báðir sérstaklega til
landsins vegna undirritunarinnar.
Eric mun vera tengiliður félagsins í
Kanada en Thor í Bandaríkjunum.
Báðar ömmur og afar Erics komu
frá íslandi á unga aldri. Hann er
ættaður frá bænum Undirfelli,
skammt frá Ásbyrgi. „Áhugi á að
halda tengslum við upprunann er
að aukast víðast hvar í heiminum
og hans verður mjög skýrt var með-
al Kanadamanna af íslenskum upp-
runa,“ segir Eric. „Þeim fækkar að
vísu í Kanada sem kunna ennþá ís-
lensku, en tungumálið er aðeins einn
hluti af þessum tengslum."
Eric segir Þjóðræknisfélagið eink-
um leggja áherslu á menningar-
tengsl en einnig séu möguleikar á
að auka ferðamannastraum og við-
skipti milli Kanada og íslands.
I Vesturheimi er starfandi systur-
félag Þjóðræknisfélagsins, sem
nefnist á ensku Icelandic National
League, og er með mjög virka starf-
semi í Kanada.
Sameiginleg
einkenni nor-
rænna þjóða
BJÖRN Bjarnason menntamála-
ráðherra ávarpaði ráðstefnu nor-
rænna sagnfræðinema, sem Félag
sagnfræðinema við Háskóla Is-
lands stendur að dagana 9.-14.
október. Ráðstefnan sem er hluti
af NordLiv verkefni Norrænu fé-
laganna, er sú þriðja í röðinni en
fyrri ráðstefnur voru haldnar í
borgunum Turku og Árhus. Á
ráðstefnunni verður einkum fjall-
að um sameiginleg einkenni
þeirra þjóða, sem byggja Norður-
lönd í nútíð og framtíð og eru
fjölmargir fyrirlestrar opnir al-
menningi. I tengslum við ráð-
stefnuna var í gær haldinn opinn
fundur um sjálfstæðisbaráttu og
stjórnmálaástand Eystrasaltsríkj-
anna. Málshefjendur voru Jón
Baldvin Hannibalsson, alþingis-
maður og Guðni Th. Jóhannesson,
sagnfræðingur.
Morgunblaðið/Kristinn
Fyrirhugaður vegur yfir Jökuldalsheiði
Urskurður kom ráðherra á óvart
HALLDÓR Blöndal samgönguráð-
herra segist hafa orðið mjög undr-
andi á athugasemdum skipulags-
stjóra ríkisins við fyrirhugað vegar-
stæði hringvegarins á Jökuldals-
heiði. Ráðherra segist ekki líta. svo
á að skipulagsstjóri hafi hafnað leið-
inni. „Ég lít svo á að ef skipulags-
stjóri hefði hafnað leiðinni hefði
hann gert það fortakslaust," sagði
Halldór Blöndal.
Hann sagði brýnt að bæta sam-
göngur milli Austfirðingafjórðungs
og Norðurlandsfjórðungs. Dráttur á
samgöngubótum valdi íbúum beggja
fjórðunga tjóni. Halldór sagðist ekki
hafa farið nákvæmlega yfir þau
umhverfissjónarmið sem fram koma
í úrskurði skipulagsstjóra. „En í
þessu sambandi er nærtækt að vekja
athygli á því að það var veitt heim-
ild til þess að velja nýtt vegstæði á
Hólsfjöllum, fara ekki gamla veginn
heldur velja nýtt vegstæði þar. Auð-
vitað má lengi deila um það hvernig
rétt sé að leggja vegi um eyðibyggð-
ir. Aðalatriðið er að það var verið
að sneiða hjá fjallgörðunum, vegna
þess að þeir eru hættulegir og snjór
sest snemma í þá. Með því að fara
norðar og utar er vegstæði betra og
umferð öruggari."
Spurning um öryggi
Ráðherra sagði að í sínum huga
væri það ekki spurning um fjármuni
hvort farið yrði yfir fjöllin eða ekki.
„Þetta er einungis spurning um ör-
yggi vegfarenda, bæði í þungaflutn-
ingum milli þessara fjórðunga og
ferðalögum einstaklinga. Með tillögu
Vegagerðarinnar töldu menn að það
vegstæði væri fundið sem tryggði
að hægt væri að halda leiðinni op-
inni sem er mjög þýðingarmikið fyr-
ir verslun, viðskipti og hvers konar
gagnkvæma þjónustu milli Norður-
og Austurlands. Það eru vaxandi
viðskipti milli þessara fjórðunga og
þeim hefur t.d. fjölgað á Austurlandi
sem leita lækninga á Akureyri í stað
þess að fara til Reykjavíkur vegna
þess að leiðinni hefur verið haldið
opinni þrátt fyrir fjallgarðana og þá
erfiðleika sem eru á þeirri Ieið,“
sagði Halldór Blöndal.
„Það hefur byggðaröskun í för
með sér að ekki sé hægt að hafa
greiða leið milli Austfirðingafjórð-
ungs og Norðlendingafjórðungs.
Landsbyggðin stendur höllum fæti
og greiðar samgöngur eru forsenda
fyrir eðlilegum samskiptum."
Ekki höfnun á leiðinni
Aðspurður hvort úrskurður skipu-
lagsstjóra yrði kærður til umhverfis-
ráðherra sagði ráðherra að Vega-
gerðin væri að fara yfir úrskurðinn.
„Ég tek þetta ekki þannig að skipu-
lagsstjóri hafi hafnað leiðinni. Ég lít
svo á að ef hann hefði hafnað leið-
inni hefði hann tekið það fram for-
takslaust. En þetta setur strik í
reikninginn, veldur mörgum von-
brigðum og tefur fyrir þessari sam-
göngubót. Veldur líka fjárhagslegu
tjóni hjá einstaklingum og fyrirtækj-
um, sem þurfa að komast leiðar sinn-
ar milli Norður- og Austurlands."
Sjálfstæðismenn
í Mosfellsbæ
Kjörnefnd
stillir
upp lista
FULLTRÚARÁÐ sjálfstæðis-
félaganna í Mosfellsbæ hefur
ákveðið að sjö manna kjörnefnd
stilli upp lista flokksins fyrir
næstu sveitarstjórnarkosning-
ar í vor. Gert er ráð fyrir að
kjörnefndin skili inn tillögum
um miðjan janúar og að listinn
verði kynntur á fundi fulltrúa-
ráðsins í lok janúar.
Að sögn Þrastar Lýðssonar,
formanns fulltrúaráðsins, er
nánast hefð fyrir að stillt sé á
lista áttunda hvert ár í Mos-
fellsbæ og því var m.a. ákveðið
að fara þá leið núna. „Af þeim
sem skipuðu fjögur efstu sætin
fyrir síðustu sveitarstjórnar-
kosningar gefur Valgerður Sig-
urðardóttir ein kost á sér,“
sagði hann.
Metró-vél FÍ
Frumskýrsla
frá Veðurstof-
unni komin
VERIÐ er að skoða frumskýrslu
frá Veðurstofu íslands vegna
flugatviks, sem Metró-vél Flug-
félags íslands lenti í yfir ísa-
fjarðardjúpi 16. ágúst síðastlið-
inn. Rannsóknarnefnd flugslysa
bíður frekari gagna áður en
gefin verður út lokaskýrsla.
Skúli Jón Sigurðarson, for-
stöðumaður Rannsóknarnefnd-
ar flugslysa, segir að skýrsla
Veðurstofunnar hafi borist á
miðvikudag og að enn sé beðið
viðbótargagna frá framleið-
anda vélarinnar í Bandaríkjun-
um. Athuga verði náið það
samhengi sem náttúruöflin,
maðurinn og tækið, þ.e. flug-
menn og flugvél, lendi í við
atvik sem þetta. Óskað var eft-
ir skýrslu frá Veðurstofu ís-
lands í kjölfar atviksins og seg-
ir Skúli Jón hana nú til skoðun-
ar. Óvíst er hvenær rannsókn
lýkur.
Tvær nýjar
rásir á Fjöl-
varpinu
TÓNLISTARSTÖÐINNI VH-1
og viðskiptastöðinni Bloomberg
hefur verið bætt inn á Fjölvarp-
ið. Þeir sem hafa aðgang að
Fjölvarpi ná útsendingum þess-
ara stöðva sem verða sendar
út óruglaðar fyrst um sinn til
kynningar.
Á tónlistarstöð VH-1 eru
útsendingar helstu tónlistar-
manna sjöunda og áttunda ára-
tugarins en á viðskiptastöðinni
Bloomber er fjallað um fjármál
og viðskipti.
Bruggarar
teknir á
Húsavík
TÆKI til áfengisframleiðslu
fundust á Húsavík í fyrrinótt
og hafa tveir menn játað fram-
leiðslu og sölu á landa á síð-
ustu mánuðum.
Mennirnir voru handteknir á
miðvikudagskvöld vegna gruns
um ólöglega framleiðslu og sölu
áfengis og fundust tækin við
húsleit hjá öðrum þeirra. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Húsavík er ekki um
mikið magn áfengis að ræða.