Morgunblaðið - 10.10.1997, Síða 14

Morgunblaðið - 10.10.1997, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI LANDIÐ Eldsvoðinn 1 Ólafsfirði Allt bendir til íkveikju Verkið tók aðeins um 2 klukkustundir ALLA.R líkur benda til að kveikt hafi verið í húsinu númer 11 við Aðalgötu í Ólafsfirði en það skemmdist mikið í eldsvoða aðfara- nótt föstudags í síðustu viku. Rannsókn rannsóknardeildar lög- reglunnar á Akureyri hefur leitt í ljós að sögn Björns Rögnvaldssonar sýslumanns í Ólafsfirði að um íkveikju hafi verið að ræða, en að öðru leyti er málið óupplýst að sögn sýslumanns. Sýni sem fundust í húsinu þóttu grunsamleg, en í þeim fundust eldhvetjandi efni. í húsinu fór fram starfsemi þriggja fyrirtækja og voru menn að vinna í húsinu þar til nokkru eftir miðnætti umrædda nótt. Tilkynnt var um eldinn til neyðarlínunnar kl. 0.39. Töluvert tjón varð á húsinu sjálfu og þá eru tæki sem þar voru inni mikið skemmd eða ónýt. Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson DAVÍÐ Halldórsson, garðyrkjustjóri Ölfushrepps, er stoltur og ánægður nieð þann árangur sem náðst hefur í átakinu Land- græðsluskógar á Þorlákshafnarsandi. Nær aldargömlu húsi í miðbæ Akureyrar lyft vel á annan metra Lúpínan eins og áburðarverksmiðja í skógrækt Þorlákshöfn - Árið 1994 gerðu Skógræktarfélag Islands, Land- græðsla ríkisins og Ölfushreppur með sér samning til 50 ára um rækt- un skóga á örfoka eða lítt grónu landi á söndunum norðan Þorláks- hafnar. Skógræktarfélagið sér um útvegun plantna og Ölfushreppur útplöntunina. Fyrst var plantað ttjám á sandin- um sumarið 1989. Árin ’95 og ’96 var plantað 10.000 plöntum og nú í sumar var plantað 15.000 plöntum. Samtals hefur því verið plantað 78.000 plöntum. Það eru starfsmenn Ölfushrepps, börn og unglingar í unglingavinnunni, fangar frá Litla- Hrauni og sjálfboðaliðar sem aðal- lega hafa séð um plöntunina. Davíð Halldórsson, garðyrkju- stjóri Ölfushrepps, sem nú hefur yfirumsjón með verkinu, sagði að upphaflega hefði verið sett niður með venjulegum plöntustaf, það hef- ur sýnt sig að þær plöntur sem þann- ig voru settar niður eiga mjög erfitt uppdráttar. Aðeins lifðu 15-30% fyrstu árin, sandblásturinn drap stóran hluta svo og frostlyfting. Hrossaskítur skiptir öllu máli við þessa gróðursetningu, þar sem nóg er af honum hafa plönturnar staðið sig vel. Fangarnir hönnuðu nýjan plöntustaf Þegar sett er niður með venjuleg- um plöntustaf þarf fyrst að gera holu með skóflu og fylla hana með hrossaskít áður en plantan er sett niður. Þetta er fremur seinlegt og því var það vel til fundið hjá föngun- um á Litla-Hrauni að hanna og smíða nýja gerð af plöntustaf sem er breiðari og stærri en venjulegur plöntustafur þannig að þeir gátu stungið stafnum niður og holan var nægilega stór til að setja í hana hrossaskít og síðan plöntuna. Þetta hefur auðveldað og flýtt fyrir vinn- unni. Alaskavíðirinn, sem er fljót- sprottnastur, er orðinn um 250 sentí- metrar, hæstu birkiplönturnar eru orðnar allt að 180 sentímetrar. Það hefur sýnt sig að birkið kemur best út, það er ótrúlega harðgert, en allt- af kelur eitthvað af víðinum. Reynt hefur verið að bera áburð á svæðið, því hann er plöntunum nauðsynleg- ur, en þar sem svæðið er töluvert stórt hefur það reynst tímafrekt og erfitt. Þá er það lúpínan sem kalla má áburðarverksmiðju á staðnum sem kemur til bjargar. Þar sem lú- pínan er virðist plöntunum líða best. Lúpínunni hefur verið plantað vítt og breitt um svæðið, einnig hefur hún sáð sér sjálf. Alls hefur verið plantað á um 8 hektara svæði sem síðar mun nýtast sem útivistarsvæði. Fyrirhugað er að planta í enn stærra svæði Þvi nægilegt er landsvæðið. Davíð sagð> að lokum að árangurinn sem náðst hefði væri alveg ótrúlegur, en með því að nýta sér þá reynslu sem unn- ist hefði mætti búast við enn betri árangri í framtíðinni. Hann sagðist hvetja fólk til að skoða árangurinn og koma í vor og taka þátt í þessu merkilega starfi. HÚSINU á Strandgötu 13 í miðbæ Akureyrar var í gær lyft upp um 160 sentimetra og í fram- haldinu á að steypa nýja hæð undir það. Til verksins voru not- aðir 15 vökvatjakkar og öflugir stálbitar. Að sögn Höskuldar Hildibrandssonar sem hafði um- sjón með verkinu, gekk lyftan eins og í lygasögu og tók aðeins um 2 klukkutíma. Strandgata 13 er nær aldar- gamalt timburhús á tveimur hæðum með steyptum kjallara. Hvor hæð er um 150 fermetrar og er húsið um 60 tonn að þyngd. í húsinu er rekin fasteignasala, gistiheimili og auglýsingastofa en á hinni nýju jarðhæð verður Morgunblaðið/Kristján TRYGGVI Pálsson, fasteignasali og eigandi hússins Strandgötu 13, var að vonum brosmildur eftir að búið var að lyfta húsinu. Hér stendur hann í útidyrunum ásamt Arnari Birgissyni, sölu- manni fasteignasölunnar, en fyrir neðan þá var verið að lyfta pallinum við útidyrnar og lengja tröppurnar. rekið veitingahús í framtíðinni. Strax og húsinu hafði verið lyft hófust smiðir handa við að slá upp mótum fyrir nýju hæð- inni en stefnt er að því að slaka húsinu niður aftur um miðja næstu viku. I Morgunblaðinu á miðvikudag sagðist Höskuldur ekki vita til þess að gerð hefði verið tilraun til að lyfta svo stóru húsi með þessari aðferð. Búnaðurinn seni notaður var hefur verið notaður til að lyfta olíu- og vatnstönkum. Eftir lyftuna i gær sagði Hös- kuldur að búnaðurinn hefði virk- að mjög vel og því væri ekkert því til fyrirstöðu að endurtaka leikinn. Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson AÐALBJÖRN Sverrisson afhenti Adolf Thorarensen bílinn. Slökkvibíll á Gjögurflugvöll Árneshreppi - Slökkviliðið á Reykjavíkurflugvelli og Flug- málastjórn afhenti 2. október sl. Gjögurflugvelli slökkvibíl. Aðalbjörn Sverrisson frá slökkviliðinu á Reykjavíkurflug- velli kom með bílinn og afhenti hann Adolf Thorarensen flugvall- arverði á Gjögurflugvelli. Bíllim1 er af Ford-gerð, pallbíll með u.þ.b. 670 lítra tank fyrir léttvatn og eru svona bílar víða á minni völlum landsins. I september voru sett upp enda- ljós á brautina sem auka mun öryggið við lendingar til muna. Stærri- Arskógs- kirkja 70 ára HÁTÍÐARMESSA verður í Stærri-Árskógskirkju næst- komandi sunnudag, 12. októ- ber, kl. 14 í tilefni af 70 ára afmæli kirkjunnar. Séra Jónína Elísabet Þor- steinsdóttir predikar, séra Magnús G. Gunnarsson og sóknarpresturinn séra Hulda M. Helgadóttir þjóna fyrir alt- ari. Sigurður Stefánsson rek- ur kirkjusöguna. Kór Stærri- Árskógskirkju syngur. Ein- söngvari verður Jónas Þór Jónasson, söngstjóri er Guð- mundur Þorsteinsson. Kaffi- veitingar verða í Árskógi eftir messu. Símasýning TÖLVUTÆKI við Furuvelli 5 á Akureyri í samvinnu við Heimilistæki standa fyrir sýn- ingu á Hótel KEA á morgun, laugardaginn 11. október. Sýnt og kynnt verður allt það helsta sem er að gerast í síma- málum landsmanna, m.a. ISDN og Samnetið, símar af ýmsu tagi verða sýndir og símstöðvar fyrir fyrirtæki og heimili. Sýningin stendur frá kl. 10 til 16 á laugardag og er öllum opin. Hörður Torfason í Deiglunni HÖRÐUR Torfason heldur tónleika í Deiglunni í Grófar- gili á Akureyri í kvöld, föstu- dagkvöldið 10. október kl. 21. Þetta er fimmta árið í röð sem Hörður heldur tónleika fyrir Akureyringa og hefur verið fullt hús í hvert sinn og fólk skemmt sér einkar vel. Hörður flytur eigin Ijóð og lög, gömul og ný, en eftir hlé geta gestir vaiið sér óskalög. Möðruvalla- prestakall Barnastarfið að hefjast BARNASTARF í Möðruvalla- prestakalli hefst næstkom- andi sunnudag, 12. október, með sunnudagaskóla í Möðru- vallakirkju kl. 11. Barnastarfið verður fram- vegis hálfsmánaðarlega í Möðruvallakirkju, en er fyrir allt prestakallið og skiptast á sunnudagaskóli og fjölskyldu- guðsþjónustur. Umsjón með starfinu hefur Bertha Bruvik ásamt sóknarpresti og Sara aðstoðar með gítarinn. For- eldrar og forráðamenn barna eru hvattir til að mæta með börnum sínum. Messur LAUFÁSPRESTAKALL: Kirkjuskóli barnanna verður í Svalbarðskirkju á morgun, laugardag kl. 11 og kyrrðar- og bænastund á sunnudags- kvöld, 12. október kl. 21. Kirkjuskóli barnanna verður í Grenivíkurkirkju kl. 13.30 laugardaginn 11. október. Hátíðarguðsþjónusta verður í kirkjunni kl. 14 á sunnudag, 12. október. Vígslubiskup, sr. Bolli Gústavsson, prédikar og vígir nýtt orgel kirkjunnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.