Morgunblaðið - 10.10.1997, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
-------------
VIÐSKIPTI
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997 15
ESB leyfir
aðstoð við
Thomson
Multimedia
Bpissel. Reuter.
&TJÓRN Efnahagssambandins hef-
uit leyft Frökkum að dæla um 2
riplljörðum dollara í heimilistækja-
deild Thomson SA, sem er í röð
l^lztu framleiðenda sjónvarpsvið-
&kja og myndbandsbúnaðar í
heirninum.
|| í staðinn verður fyrirtækið, sem
öállast Thomson Multimedia
fTMM), að takmarka hlutdeild sína
á markaði sjónvarpsviðtækja í Evr-
ópu við 10 af hundraði fyrir árslok
samkvæmt yfirlýsingu fram-
kvæmdastjórnarinnar.
Sú hundraðstala er „talsvert
lægri en fyrrverandi og núverandi
markaðshlutdeild“ að sögn fram-
kvæmdastjórnarinnar.
TMM er annað stærsta fyrirtæki
Evrópu er framleiðir heimilistæki á
eftir Philips og fremsta fyrirtæki
álfunnar á sviði stafrænnar tækni.
Fyrirtækið hafði safnað skuldum
upp á 15 milljarða franka í árslok
1995 og franska stjórnin varð að
endurfjármagna það eða leggja það
niður.
• --------♦ ♦ ♦-----
[•. Si:
M.A.I.D kaupir
Knight-Ridder
London. Reuter.
BREZKT tölvuupplýsingafyrirtæki,
M.A.I.D Ple, kveðst hafa samþykkt
að kaupa Knight-Ridder Informati-
on, hina kunnu tölvuupplýsinga-
þjónustu, fyrir um 261 milljón
. punda.
\'i M.A.I.D hyggst breyta nafni sínu
í Dialog Corp Plc þegar gengið hef-
ur verið frá kaupunum, sem fyrir-
tækið segir að verði til þess að fram
muni koma nýr furystuaðili í öflun
beinlínuupplýsinga um viðskipti.
i Sagt er að hið nýja fyrirtæki
liyggist framfylgja áætlun um
kostnaðarlækkun. Ráðstafanir, sem
feéu fyrirhugaðar á fyrstu þremur
mánuðum hins nýja fyrirtækis, muni
skera niður kostnað um 35 milljónir
dollara á ársgrundvelli.
M.A.I.D er nýtt fyrirtæki og hef-
ur um 4.300 áskrifendur, en áskrif-
endur Knight- Ridders eru rúmlega
200.000.
-----♦ ♦ ♦------
BT hefur fimm
kosti eftir
nýja boðið
London. Reuter.
BREZKA ijarskiptafyrirtækið Brit-
ish Telecommunications Plc hefur
fimm kosti síðan bandaríska símafé-
lagið WorldCom Inc kom með hærra
tilboð í MCI Communications Corp
í Bandaríkjunum að sögn sérfræð-
inga.
BT getur sætt sig við hlutverk
í einhveiju nýju WorldCom/MCI
•fyrirtæki, talið MCI fjárfestúm trú
um að sitt eigið tilboð sé betra ef
til lengri tíma sé litið, selt og skipt
ínu milli fjárfesta, myndað nýtt
andalag eða yfirboðið WorldCom.
------------♦ ♦■ ♦----
HærriESB-
toilar á Sony
oglkegaami
Briissel.
ESB hefur ákveðið að hækka svo-
kallaða undirboðstolla á sjónvatps
myndatökuvélar japönsku fyrirtækj-
anna Sony og lkegami Tsushinki í
108,3% og 200,3%.
Fyrri tollar Evrópusambandsins
frá apríl 1994 voru 62,6% á sjón-
varpsmyndatökuvélar frá Sony og
82,9% á myndatökuvélar frá Ikeg-
ami samkvæmt tilkynningu frá sam-
bandinu.
París. Reuter.
Sala France Télé-
com á að afla 42
milljarða franka
FRANSKI fjármálaráðherrann,
Dominique Strauss-Kahn, segir að
stjórnvöld muni afla 42 milljarða
franka, eða 7 milljarða dollara, af
sölu um 25% í France Télécom.
Þetta verður mesta sala ríkis-
eigna, sem um getur í Frakklandi.
Hún verður meiri en sala hluta-
bréfa að andvirði 35,7 milljarðar
franka í olíufélaginu Elf-Aquitaine
þegar það var einkavætt 1994.
Strauss-Kahn sagði á blaða-
mannafundi að fjárfestinga-
stofnanir yrðu að greiða 187
franka fyrit' hvert hlutabréf. Sér-
fræðingar höfðu spáð að verðið
yrði 170-190 frankar.
Lítið veður er gert út af sölunni
vegna skiptra skoðana í stjórn
sósíalista um einkavæðingu.
Reyndar neitar ríkisstjórnin að
kalla sölu France Télécom einka-
væðingu vegna þess að meirihluti
hlutabréfa verður áfram í eigu
ríkisins.
Einkafjárfestar fá fimm franka
afslátt og munu greiða 182 franka
á hlutabréf. Rúmlega 2,5 milljónir
einstaklinga hafa skrifað sig fyrir
hlutabréfum í France Télécom,
þannig að þetta verður vinsælasta
sala ríkiseigna í Frakklandi. Stofn-
anafjárfestar hafa þegar beðið um
hlutabréf fyrir 350 milljarða
franka, eða 16 sinnum fleiri en
þeim standa til boða.
„Viðbrögðin
jákvæð...“
„Þetta er tiltölulega hóflegt
verð,“ sagði miðlari, „og viðbrögð-
in eru jákvæð."
„Mikil eftirspurn sýnir að mark-
aðurinn ber traust til fyrirtækisins
og sýnir einnig jákvætt mat banda-
rískra, japanskra og annarra er-
lendra fjárfesta á frönsku atvinnu-
lífi,“ sagði Strauss-Kahn.
„Franska stjórnin ákvað að láta
verða af sölunni til að gera France
Télécom kleift að treysta bandalag
sitt, Deutsche Telekom og Sprint
Corp,“ sagði hann.
Einkafjárfestar fá að kaupa allt
að 94 milljónir hlutabréfa til 14.
október og fær hver fjárfestir ekki
að kaupa hlutabréf nema fyrir
30.000 franka.
Aðrar 115 milljónir hlutabréfa
eru ætlaðar stofnanaíjárfestum.
Starfsmenn France Télécom geta
keypt 23,2 til 25 milljónir bréfa.
Alls verða selda 250 milljónir
hlutabréfa, eða 25 af hundraði.
Þeir einu sem trua honum eru beir sem vilja hann feigan!
ItSnaini mtmiHillltR Dll/Dölltlmini! II 111 JUllli HEIIIS .RICHARD DONNERnu TjOHSPIRACY IHEÐRY' PATRICK STEWART
URWEll nADANCRACGHIOLO J MILLSGOODIOE lliMlH '“ífFRANK J.URIUSIE.aci SIIMIIl SYLBERT aKJMSMARTMH.w
ŒJIMVANWYOK m,llL!BRIAIWÍEtGELAND "“ííJÍELSIVERamRICHARDDDNNER "^RICHARODOHNER
www canspiacy‘lieyiy com
SAMM
KRINGLUBlié
Kl. 4.20, 6.40, 9 og 11.25
□n
DIGITAL
DÍCI30I3OW
Kl. 5, 6.40, 9 og 11.20
BIÓHÖLUM
Kl. 5, 6.45, 9 og 11.20