Morgunblaðið - 10.10.1997, Síða 22
82 TeerHaaöTMO.orfl’joAauTgö'í
22 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997
LISTIR
Leikfélag Akureyrar frumsýnir Hart í bak á Renniverkstæðinu
SIGURÐUR Hallmarsson og Guðbjörg Thoroddsen í hlutverkum sínum.
AÐALSTEINN Bergdal og Halldór Gylfason.
Beijast við að lifa
þrátt fyrir brogaða fortíð
Morgunblaðið/Kristján
LÁKI, Halldór Gylfason ræðir við stúlkurnar Gógó og Sirrí, sem
þær Agnes Þorleifsdóttir og Eva Signý Berger leika.
LEIKFÉLAG Akureyrar frumsýnir
í kvöld, föstudagkvöldið 10. október,
leikritið Hart í bak eftir Jökul Jak-
obsson í leikstjórn Eyvindar Erlends-
sonar. Þetta er fyrsta verkefni leik-
ársins og verður eins og það næsta,
Á ferð með frú Daisy, sýnt á Renni-
verkstæðinu sem er við Strandgötu
49, en miklar endurbætur standa
nú yfir í sal hins 90 ára gamla Sam-
komuhúss. Hart í bak er þriðja verk-
ið sem Leikfélag Akureyrar tekur
til sýninga á Renniverkstæðinu.
Frumsýningin í kvöld markar upphaf
leikársins en því hefur verið valin
yfirskriftin „Ljúfar stundir í leikhús-
inu“.
Hart í bak er annað leikrit Jökuls
Jakobssonar sem sett var á svið og
var það frumsýnt hjá Leikfélagi
Reykjavíkur 11. nóvember árið
1962. Á frumsýningu Leikfélags
Akureyrar verða því liðin nær 35
ár frá því þetta leikrit skipaði Jökli
á bekk með fremstu leikritaskáldum
okkar íslendinga, sæti sem hann
ugglaust mun skipa meðan leikrit
verða skrifuð á íslensku. Sýning
Leikfélags Reykjavíkur hlaut feiki-
góðar viðtökur áhorfenda, en sýn-
ingar urðu 205 talsins á þremur
leikárum. Gísli Halldórsson leik-
stýrði syðra og fór jafnframt með
hlutverk Finnbjarnar, Brynjólfur Jó-
hannesson lék Jónatan skipstjóra og
Helga Valtýsdóttir spákonuna dóttur
hans.
Húsaport í vesturbænum
„Sviðið er húsaport í vesturbæn-
um, nálægt höfninni,“ segir í lýsingu
höfundarins á sviðsmyndinni í Hart
í bak. í hrörlegu húsi þarna í vestur-
bænum búa aðalpersónur leikritsins
og beijast við að halda lífi þrátt
fyrir brogaða fortíð. Árdís, unga
stúlkan að austan, kemur eins og
hlýr sólargeisli inn í kaldranalegan
heim Láka Árórusonar og Finnbjörn
skransali berst við að ná valdi á
æskuástinni sinni, Áróru Jónatans-
dóttur. Stígur skósmiður og trúboði
er nágranni Áróru og Jónatans og
er honum vel ljóst hve blóðhiti Áróru
er mikið vatn á myllu safnaðar hans,
en sjálfur óttast hann ástríður spá-
konunnar, þannig að samskipti
þeirra verða á köflum hin kátleg-
ustu. Pétur kennari gegnir einnig
mikilvægu hlutverki í mósaikmynd-
inni sem Jökull dregur upp af lífi
persóna sinna, mynd sem rís hæst
í lokaatriði leikritsins.
Færið gott
„Ég kann vel við þetta hlutverk,"
sagði Sigurður Hallmarsson, hinn
góðkunni leikari frá Húsavík sem
leikur Jónatan skipstjóra og gerði
lítið úr því að aka daglega til Akur-
eyrar á æfíngar og heim síðla kvölds,
alls tæpa 200 kílómetra leið. „Þetta
er svo gaman og færið hefur verið
gott,“ sagði hann.
Sigurður hefur allt frá unglingsár-
um tekið þátt í leikhúslífi heima á
Húsavík og í Þingeyjarsýslu og þá
hefur hann verið kallaður til Akur-
eyrar einnig þar sem hann hefur
jafnan tekið þátt í að minnsta kosti
einni sýningu á vetri. Hlutverk hans
nú er það stærsta sem hann hefur
leikið hjá Leikfélagi Akureyrar.
Ollu siglt í strand
„Þetta er gamall maður sem er
búinn að sigla öllu sínu í strand og
er kominn á síðasta snúninginn, en
heldur sér náttúrlega uppi eins lengi
og hann getur. Hver gerir það ekki?
Þetta er skírskotun til sjómannanna
okkar, sem ég þekki vel,“ sagði Sig-
urður um Jónatan skipstjóra. Sigurð-
ur sem lengi var skólastjóri á Húsa-
vík var á sínum yngri árum til sjps
og faðir hans var sjómaður. „Ég
þekki sjómannslífið ágætlega," sagði
Sigurður og bætti við að hann teldi
Ieikritið ekki síður eiga erindi við
fólk nú en á þeim tíma þegar það
var skrifað. Það truflaði fólk oft
þegar verið væri að horfa á samtíma-
verk að verið væri að leitá fyrir-
mynda að persónunum, en slíku
væri ekki til að dreifa nú.
Guðbjörg Thoroddsen leikur Ár-
óru spákonu dóttur Jónatans, Hall-
dór Gylfason, sem útskrifaðist frá
Leiklistarskóla íslands í vor leið, fer
með hlutverk Láka og Marta Nordal
leikur Árdísi. Hákon Waage leikur
nú í annað sinn með Leikfélagi Akur-
eyrar og fer m_eð hlutverk Finnbjarn-
ar, aðdáandaÁróru. Þráinn Karlsson
leikur Stíg skósmið og Aðalsteinn
Bergdal er í hlutverki Péturs, fyrr-
verandi kennara Láka og hjálpar-
hellu. Agnes Þorleifsdóttir og Eva
Signý Berger leika stúlkurnar Gógó
og Sirrí og Ólafur Sveinsson er skiln-
ingsríkur maður. Það er líka Marinó
Þorsteinsson, einn heiðursfélaga
Leikfélags Akureyrar sem nú stígur
á svið eftir nokkurra ára hlé og fer
með tvö hlutverk, skilningsríka
mannsins og rukkara.
Gaman að kanna hópinn á ný
„Það er gaman að taka þátt í
þessu, svona rétt til að kanna hópinn
á ný. Mér hefur verið tekið mjög vel
og sýnt mikið umburðarlyndi," sagði
Marinó en hann átti síður von á að
taka þátt í fleiri uppfærslum. „Þó
er aldrei að vita ef maður getur lagt
félaginu lið og hefur heilsu til.“
Marinó lék fyrst 12 ára gamall í
heimabyggð sinni, Dalvík, og hefur
leikið ófá hlutverkin þar, hjá Leikfé-
lagi Akureyrar og einnig hefur hann
stigið á fjalir Borgarleikhússins.
Hann sagði toppinn á sínum ferli,
sem spannað hefur 65 ár, vera þeg-
ar hann lék í Ljósi heimsins við vígslu
Borgarleikhússins „Það var óborg-
anlegt að taka þátt í því, virkilega
gaman og eftirminnilegt," sagði
Marinó en í leikgerðinni lék hann
með Eyvindi Erlendssyni sem leik-
stýrir Hart í bak hjá Leikfélagi Akur-
eyrar. Hallmundur Kristinsson gerir
leikmynd í samvinnu við leikstjórann
og Jóhann Bjarni Pálmason hannar
lýsingu í sýningunni.
Afmælisrit Menntaskól-
ans við Hamrahlíð
Hollendingurinn fljúg-
andi í Norræna húsinu
ÚT ER komið afmælisrit Mennta-
skólans við Hamrahlíð í tilefni af
30 ára afmæli skólans. Ritstjóri er
Heimir Pálsson en auk hans eru
höfundar efnis fyrstu rektorar skól-
ans, Guðmundur Arnlaugsson og
Ornólfur Thorlacius. Þá er í ritinu
grein eftir Stefán Briem einn af
frumkvöðlunum í skipulagningu
áfangakérfisins.
Birt er kennara- og stúdentatal
allra áranna, auk sögu skólans og
sögu kórstarfsins og einnig er þar
að finna grein um félagslíf nem-
enda. Ritið er prýtt fjölda mynda
og er helgað minningu fyrsta rekt-
ors skólans, Guðmundi Arnlaugs-
syni, sem lést í lok síðsta árs.
Afmælisrit MH er fáanlegt bæði
innbundið og óbundið. Nemendur
munu á næstunni hringja í stúdenta
sem hafa útskrifast frá skólanum
og bjóða ritið til kaups en einnig er
hægt að kaupa það á skristofu skól-
ans, í bóksölu MH og í bókabúðum
Máls- og menningar. Umbrot og
hönnun annaðist Prenthönnun ehf.
og ritið var prentað í Prenthúsinu.
RICHARD Wagner-félagið á íslandi
mun á komandi vetri sýna þrjár af
eldri óperum meistarans af mynd-
bandi í Norræna húsinu. Fyrsta sýn-
ingin verður á morgun, laugardag,
og hefst kl. 14. Þá verður sýndur
Hollendingurinn fljúgandi frá Bayer-
ische Staatsoper í Miinchen undir
stjórn Wolfgangs Savallisch. Um er
að ræða afar hefbundna uppsetningu
frá árinu 1991 í leikstjórn Hennings
von Gierke sem gerði einnig leik-
mynd, en búningahönnuður er Franz
Blumauer.
Helstu hlutverk syngja Robert
Hale, Julia Varady, Peter Seiffert,
Jaakko Ryhánen og Ulrich Ress.
Sýnt verður á stórum skjá með ensk-
um skjátexta.
Á undan sýningunni munu þau
Anna M. Magnúsdóttir og Reynir
Axelsson fjalla um óperuna í stuttum
fyrirlestri.
Aðgangur að sýningunni er
ókeypis og öllum heimill. í kaffi-
stofu hússins verða seldar veitingar
í hléi.
ninA.iaviTioMOi/
MORGUNBLAÐIÐ-
Heimur
Guðríðar í
Bústaða-
kirkju
LEIKRITIÐ Heimur Guðríðar
- Síðasta heimsókn Guðríðar
Símonardóttur í kirkju Hall-
gríms eftir Steinunni Jóhann-
esdóttur verður sýnt í Bú-
staðakirkju mánudaginn 13.
október kl. 20.
Leikritið var frumsýnt á
Kirkjulistahátíð í Reykjavík í
júní 1995 og hefur því verið á
ferðinni í meira en tvö ár og
sýnt í fjölmörgum kirkjum víða
um land og erlendis. Leikritið
hefur hvarvetna hlotið af-
bragðs viðtökur nú síðast á
Hólahátíð í Hóladómkirkju þar
sem verkið var sýnt tvisvar
sama daginn fyrir fullri kirkju.
Með helstu hlutverk í sýn-
ingunni fara Margrét Guð-
mundsdóttir og Helga Elín-
borg Jónsdóttir, sem báðar
leika Guðríði á ólíkum æviske-
iðum og Þröstur Leó Gunnars-
son er í hlutverki Hallgríms.
Tónlist er eftir Hörð Áskelsson
en búninga gerir Elín Edda
Árnadóttir. Höfundur leikrits-
ins, Steinunn Jóhannesdóttir,
er einnig leikstjóri sýningar-
innar.
Leiðsögri um
sýningu
Gunnlaugs
Schevings
LEIÐSÖGN um sýninguna
Gunnlaugur Scheving - Úr
smiðju listamannsins sem sýnd
er í Listasafni íslands verður
laugardaginn 11. október kl.
15-
Leiðsagnir verða einnig
laugardaginn 1. nóvember,
laugardaginn 15. nóvemberog
laugardaginn 29. nóvember.
Sýningin er í öllum sölum
safnsins. Heimildarmynd um
Scheving - Hið hljóðláta verk
- er sýnd daglega kl. 12 og
kl. 15. Myndin er um 40 mínút-
ur að lengd og er frá 1992.
Safnið er opið alla daga
nema mánudaga kl. 11-17.
VERK á sýningu
Guðbjargar.
Akrýl- og
kolamyndir
á 22
GUÐBJÖRG Vignisdóttir opn-
ar sýningu á akrýl- og kola-
myndum á veitingahúsinu 22
við Laugaveg 22 á morgun
laugardag kl. 20. Guðbjörg er
ung myndlistakona sem stund-
ar nám við Háskóla íslands.
Þetta er fyrsta einkasýning
Guðbjargar.
Sýningin stendur til 1. nóv-
ember.