Morgunblaðið - 10.10.1997, Síða 45

Morgunblaðið - 10.10.1997, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997 45 ___________________________;•»_ FRÉTTIR Morgunblaðið/Silli SÝSLUMENN og aðrir fundarmenn sem sátu aðalfund Sýslumannafélags Islands. Breytingar í löggæslu ræddar á fundi sýslumanna FJÓRTÁN sýslumannsfrúr af þeim 26 sem á landinu eru. Námskeið í myndbanda- notkun ÁÆTLAÐ er að halda námskeið í myndbandanotkun og myndband- tækni á vegum Fræðsludeildar Myndlista- og handíðaskóla íslands. Á námskeiðinu verður fjallað um notkun myndavélar, lýsingu við tök- ur, framleiðslu, vinnslu, skipulag, kostnaðaráætlun, handritsvinnu, gagnasöfnun og handritsskriftir. Myndmenntakennurum er sér- staklega bent á þetta námskeið en það er þó opið öllu áhugafólki. Framhaldsnámskeið er fyrirhugað á næstu önn. Kennari er Þór Elís Pálsson og kennt verður í húsnæði MHl í Laugarnesi. Kennslutími er föstudaginn 31. október kl. 13-18 og laugardaginn 1. og sunnudaginn 2. nóvember kl. 10-18. Athuga verður að í kynningarriti frá Fræðsludeild Myndlista- og handíðaskóla íslands er tímasetning námskeiðsins röng og er beðist vel- virðingar á því. Einnig verður haldið námskeið í ljósmyndun. Kennari verður Anna Fjóla Gísladóttir. Farið verður yfir helstu stjórn- tæki í myndavélum og linsum. Mis- munandi filmur kynntar og ljós- næmi þeirra. Farið verður yfir blöndun efna í svart/hvítu ferli og helstu reglur sem gilda um fram- köllun. Mismunandi pappírstegund- ir verða kynntar, t.d. gráður og áferðir, filmuframköllun og kóper- ing í svart/hvítu. Kennslutími er 20.-24. október kl. 18-22. Málþing um guðfræði og kirkju MÁLÞING verðut' haldið á vegum guðfræðideildar Háskóla íslands í tilefni af því að 150 ár eru liðin frá stofnun Prestaskólans í Reykjavík. Málþingið verður haldið í Þjóðar- bókhlöðunni, fyrirlestrasal, annarri hæð, laugardaginn 11. október kl. 14- 17. Dagskráin verður sem hér segir: Kl. 14-14.30 dr. Hjalti Hugason prófessor: Prestaskólinn og sam- hengið í íslenskri prestsmenntun, kl. 14.30-15 sr. Sigurður Sigurðar- son, vígslubiskup: Væntingar kirkj- unnar til guðfræðinnar, kl. 15- 15.30 dr. Sigurður Árni Þórðar- son, verkefnastjóri Biskupsstofu: Guðfræðin og innræti prestsins, kl. 15.30-16 kaffihlé. Kl. 16-16.30 dr. Arnfríður Guðmundsdóttir guð- fræðingur: Af hverju leggjum við stund á guðfræði? Kl. 16.30-17 paliborðsumræður: Guðfræðin og kirkjan. Umræðum stjórnar sr. Halldór Reynisson, formaður Holl- vinafélags guðfræðideildar. 25 ára afmæli Þykkvabæjar- kirkju ÞYKKVABÆJARKIRKJA í Rang- árþingi á 25 ára afmæli. Af því til- efni verður haldin hátíðarguðsþjón- usta í kirkjunni sunnudaginn 12. október kl. 14. Dætur séra Sveins Ögmundsson- ar, Helga og Guðbjörg, eru meðal þeirra sem taka þátt í guðsþjón- ustunni, en sr. Sveinn þjónaði Kirkjuhvolsprestakalli í um hálfa öld. Sóknarprestur, sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, predikar og kirkju- kórinn leiðir safnaðarsöng undir stjórn Ninu Morávek. Kvenfélagið Sigurvon í Þykkvabæ býður í kaffi- boð eftir messu. „Þykkbæingar sem fluttir eru í burtu eru boðnir sérstaklega vel- komnir, en allir sem þiggja boðið gleðja heimafólk með komu sinni,“ segir í fréttatilkynningu. Húsavík - Aðalfundur Sýslu- mannafélags Islands var nýlega haldinn á Húsavík og í upphafi fundarins ávarpaði Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra fundinn. Ræddi hann m.a. nýj- ustu breytingar í löggæslumálum og meðferð opinberra mála. Ríkislögreglustjóri, Bogi Nil- son, flutti erindi um löggæslumál og Hallvarður Einvarðsson ríkis- saksóknari ræddi um breytingar og meðferð ákæruvalds. Arnar Guðmundsson, skólastjóri Lög- regluskóla ríkisins, ræddi um breytingar sem orðið hafa á skól- anum. Um þessi mál urðu nokkr- ar umræður og þá sérstaklega um stjórnskipulega stöðu emb- ættanna og endurskipulagningu þeirra og fjölgun verkefna. Fundinn sóttu flestir starfandi sýslumenn landsins sem í fundar- lok skoðuðu sýsluskrifstofuna og lögreglustöðina á Húsavík sem Námskeið um hjónaband og sambúð NÚ ERU hálfnuð námskeið hausts- ins í safnaðarheimili Hafnarfjarðar- kirkju um hjónaband og sambúð. Hvert námskeið stendur aðeins eina kvöldstund en þeim sem áhuga hafa á frekari viðtölum í framhaldi af námskeiðinu er boðið upp á það, segir í fréttatilkynningu frá Hafn- aríjarðarkirkju. Ennfremur segir: „Markmið námskeiðanna er að veita hjónum og sambýlisfólki tækifæri til þess að skoða samband sitt í nýju ljósi, styrkja það og efla og íhuga hvenig hægt er að taka tíma frá fyrir hvort annað. Efnið er kynnt með fyrir- lestrum og í samtölum. Námskeiðin eru öllum opin og henta bæði þeim er lengi hafa verið í sambúð eða hjónabandi og hinum er nýlega hafa ruglað saman reytunum. Að gefnu tilefni skal nefnt að þau er áhuga hafa verða að skrá sig fyrir- fram því hópurinn er takmarkaður við 10 pör í hvert skipti. Aðeins fáein pör geta enn bæst í hópinn á þessu hausti.“ Leiðbeinendur á námskeiðunum eru þau Halla Jónsdóttir frá fræðsludeild þjóðkirkjunnar og sr. Þórhallur Heimisson, prestur við Hafnarfjarðarkirkju. Skráning fer fram í Hafnarfjarðarkirkju hjá sr. Þórhalli en hann veitir einnig nán- ari upplýsingar um námskeiðin. Innsetningar- guðsþjónusta Innsetningarguðsþjónusta verður kl. 14 í Grafarvogskirkju á sunnu- dag. Sr. Guðmundur Þorsteinsson, dómprófastur, setur sr. Önnu Sig- ríði Pálsdóttur í embætti aðstoðar- prests í Grafarvogsprestakalli. Sr. er í nýlegum húsakynnum, Safnahúsið og fleira sem Húsa- vík hefur upp á að bjóða. Núverandi stjórn Sýslumanna- félags íslands skipa: Georg Lár- usson, sýslumaður í Vestmanna- Vigfús Þór Árnason og sr. Sigurður Arnarson þjóna fyrir altari. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir predikar, Kór Grafarvogskirkju og Unglingakór Grafarvogskirkju syngja. Stjórnendur eru Hörður Bragason og Áslaug Bergsteins- dóttir. Eiríkur Örn Pálsson sér um trompetleik _ og um flautuleik sér Guðlaug Ásgeirsdóttir. Sóknar- nefnd og safnaðarfélag býður til kaffisamsætis í aðalsal kirkjunnar að lokinni guðsþjónustu. Fyrirlestur á vegum nema í stjórnmála- fræði HAGFRÆÐINGURINN Charles Evans flytur fyrirlestur á vegum Alþjóðafélags stjórnmálafræðinema í dag, föstudaginn 10. október, undir yfirskriftinni „Simple Rules for a Wired World“ eða Einfaldar reglur fyrir netvæddan heim. Fyrir- lesturinn verður haldinn í stofu 101 í Odda og hefst kl. 12.15. Fundar- stjóri verður Þórlaug Ágústsdóttir. Evans telur að samskipta- og upplýsingabyltingin komi til með að hafa víðtæk áhrif á heimsmark- aðinn. Valdið muni færast úr hönd- um fárra voldugra ríkja og stórfyr- LEIÐRÉTT Stóri púðli besti hundurinn í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær, af sýningu Hundaræktarfélags Islands, var ranglega farið með nafn hundsins sem valinn var besti hundurinn og hann sagður heita Stóri boli. Hundur- inn heitir Stóri púðli. Hundurinn er í eigu Sóleyjar Höllu Möller, en hún var á einum stað í sömu frétt sögð heita Sólveig. Morgunblaðið biðst afsökunar á þessum mistökum. eyjum, formaður, aðrir stjórnar- menn eru sýslumennirnir Björn Jósef Arnviðarson, Akureyri, Olafur Hauksson, Hólmavík, Ól- afur Kr. Ólafsson, Stykkishólmi, og Þorleifur Pálsson, Kópavogi. irtækja til lítilla ríkja, smáfyrir- tækja og einstaklinga. Þetta kalli á breytingar á reglum markaðarins, í stað flókinna milliríkjasamninga sé þörf á altækum reglum sem eigi við alls staðar í heiminum, segir í fréttatilkynningu. Hægt er að nálgast útdrátt og uppkast að fyrirlestri Evans á slóð- inni: http://chyden.net/SimpleRu- les. Nánari upplýsingar má fá hjá Alþjóðafélagi stjórnmálafræði- nema: alfsrhi.hi.is Guðbrands- messa i Lang- holtskirkju SUNGIN verður hátíðarmessa í Langholtskirkju sunnudaginn 12. október kl. 11 sem er byggð á Graduale 1594 og verður hún sung- in á latínu. Sr. Kristján Vaiur Ing- ólfsson, rektor í Skálholti, predikar og þjónar fyrir altari ásamt sóknar- presti sr. Jóni Helga Þórarinssyni. Kammerkór Langholtskirkju syng- ur verk frá renaissancetímanum eftir Hans Leo Hassler og Palestr- ina undir stjórn Jóns Stefánssonar sem leiðir söng. „Langholtskirkja er kennd við Guðbrand biskup á Hólum (1541- 1627) sem in.a. gaf út fyrstu Bibl- íuna á íslensku 1584, sálmabók og hina frægu messusöngbók Gradu- ale (Grallarann) 1594,“ segir í fréttatilkynningu. Að venju verður kaffi í safnaðarheimili eftir messu. Könnun á ís- lenska hænsna- stofninum ÁRIÐ 1974 hófst söfnun lífdýra og eggja af gamla, íslenska hænsna- stofninum fyrir tilstilli Rannsókna- stofnunar landbúnaðarins. Á þeim tíma var talið að um 100 hænsni væru eftir af stofninum í landinu, þar af sárafáir hanar, e.t.v. 10-20. Árið 1985 voru afkomendur þess- arar söfnunar, 70 fuglar og 250-300 egg, flutt að Hvanneyri þar sem ræktuninni var fram haldið og síðar til einkaaðila 1992. Samhliða rækt- uninni átti sér stað lífdýrasala til áhugasamra einstaklinga. Frá þess- um tíma hafa fjölmargir fengið unga og egg hjá stofnuninni og síðar hjá þeim sem tóku hænurnar að sér til varðveislu. Til að kanna stöðu stofnsins og hvort tekist hafi að viðhalda honum, er ætlunin að safna upplýsingum um fjölda og dreifingu íslenskra „land- námshænsna" um landið. Er nú leitað á náðir eigenda slíkra hænsna um aðstoð við að kortleggja stofninn. Þeir sem vilja aðstoða við verkið eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við Rannsóknastofnun- landbúnaðarins, Hallgrím Sveinsson. Barnamynd í Norræna húsinu KVIKMYNDIN „Det skaldede spog- else“ verður sýnd í Norræna húsinu nk. sunnudag kl. 14. Myndin fjallar um Jasper, 11 ára, sem missir gaml- an vin sinn Aron. Jasper erfir eftjr hann gamlan fresskött og læstan skáp sem öllum er sama um. Kvik- myndin er með dönsku tali, og 72 mínútna löng. Aðgangur er ókeypis. Kjartan stefnir á 5. sæti Kosningaskrif stof a opnuð í Sólheimum 33 KJARTAN Magnússon, blaðamaður og varaborgarfulltrúi, hefur ákveðið að sækjast eftir 5. sætinu á fram- boðslista Sjálfstæðisflokksins til borgarstjórnar í prófkjöri sjálfstæð- ismanna 24. og 25. október, sam- kvæmt fréttatilkynningu frá stuðn- ingsmönnum Kjartans. Ennfremur segir: „Stuðnings- menn Kjartans Magnússonar munu starfrækja kosningaskrifstofu vegna prófkjörsins og verður hún til húsa í Sólheimum 33. Skrifstofan verður formlega opnuð fimmtudaginn 9. október og verður af því tilefni efnt til móttöku milli kl. 17 og 20. Fram til prófkjörs verður skrifstofan opin milli kl. 14 og 22 á virkum dögum og milli kl. 10-18 um helgar." Stuðningsmenn Kjartans hafa einnig opnað heimasíðu á alnetinu til að kynna framboð hans og stefnu- mál. Slóðin er http://this.is/kjartan/ Quarashi á síð- degistónleikum RAPPHUÓMSVEITIN Quarashi leikur á síðdegistónleikum Hins hússins föstudaginn 10. október og hefjast þeir stundvíslega kl. 17. í gær birtust tilboð Shell markaðar undir nafni Select verslana Skelj- ungs. Tilboðin eru því birt á ný og beðist velvirðingar á mistökunum. SHELL-markaður GILDIR TIL 15. OKTÓBER Verð Verð Tllbv. á nú kr. áður kr. mælie. Vinnubuxur„Beavernylon“ 2.566 2.956 Sorppokar, 10 st. 124 138 12 st. Gulur bílasvampur 99 117 Takk diskaþurkur, 3 st. 273 321 91 st. Fix hreingerningarúði, 5 Itr 777 972 155 Itr Þvol uppþvottalögur, 5 Itr 660 834 132 Itr

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.