Morgunblaðið - 11.10.1997, Side 6
6 E SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997
MORGUNB LAÐIÐ
Daihatsu Charade TX 1,3 1.128.000 kr.
DAIHATSU Charade var einn mesti seldi smábíllinn á ís-
landi fyrir nokkrum árum. Hann kom fyrst á markað
1978 og var þá kjörinn bíll ársins í Japan. Charade er nú
enn betur búinn með rafdrifnum rúðum, samlæsingum
og líknarbelg. Bíllinn er með vökvastýri og 1,3 lítra, 16
ventla vél og hann er einnig fáanlegur CX fimm dyra og
kostar þá 1.178.000 kr. Sjálfskipting kostar 120.000 kr.
aukalega.
• Vél: 1,3 lítrar, 4 strokkar, 16 ventlar.
• Afl: 84 hö við 6.500 snúninga á mínútu.
• Tog: 105 Nm við 5.000 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 375/162/139 sm. 830 kg.
• Eyðsla: 8,1 I miðað við blandaðan akstur.
• Eldsneytiskerfi: Bein fjölinnsprautun.
• Umboð: Brimborg hf., Reykjavík.
160 km/lckt I4,5sek 13,75 kg/ha 6,51
FIAT Punto var valinn bíll ársins í Evrópu 1995. Punto er
fáanlegur í ýmsum útgáfum. Hér á landi er hann boðinn
með miklum búnaði, m.a. hemlalæsivörn, tveimur líknar-
belgjum, beltastrekkjurum, rafmagni í rúðum, vökva-
stýri, samlæsingum, og eins og aðrir bílar frá Fiat með 8
ára ryðvarnarábyrgð á gegnumtæringu. Þriggja hurða
útgáfan kostar 1.072.000.
• Vél: 1,2 lítrar, 8 ventlar, 4 strokkar.
• Afl: 60 hö við 5.500 snúninga á mínútu.
• Tog: 96 Nm við 3.000 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 377/163/145 sm, 825 kg.
• Eyðsla: 6,5 I í blönduðum akstri.
• Eidsneytiskerfi: Bein innsprautun.
• Umboð: ístraktor ehf., Garðabæ.
I3l km/klst 19,4 sek 19,5 kg/ha 6I
DAIHATSU Move er nýstárlegur borgarbíll með mikilli
flutningsgetu. Hann er byggður á grind smábílsins Cu-
ore og jafnlangur, 3,31 m, en er mun rúmbetri. Vélin er
þriggja strokka, 0,9 lítrar og skilar 42 hestöflum. Þetta er
því lítill og sparneytinn bíll sem gæti hentað litlum fyrir-
tækjum eða fjölskyldum.
• Vél: 0,9 lítrar, 3 strokkar, 6 ventlar.
• Afl: 42 hö við 5.300 snúninga á mínútu.
• Tog: 67 Nm við 3.800 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 331/139/169 sm. 820 kg.
• Hleðslurými: Minnst 225 I. Mest 560 lítrar.
• Eyðsla: 6,4 I míðað við blandaðan akstur.
• Eldsneytiskerfi: Bein fjölinnsprautun.
• Umboð: Brimborg hf., Reykjavík.
Fiat Punto 75 ELX 3 d 1.150.000 kr.
170 km/klst 12,0 sek 11,66 kg/ho 6,71
FIAT Punto mætti kalla lúxus-smábíl. Hann er með
sama búnaði og SX gerðin og eins og aðrir bílar frá Fiat
með 8 ára ryðvarnarábyrgð á gegnumtæringu. Búnaður
umfram SX er auk öflugri vélar samlit hurðahandföng og
speglar, þokuluktir og fjarstýrðar samlæsingar. Einnig er
fáanleg gerðin 85 Sporting sem er með sömu vél nema
hvað hún er 16 ventla og hefur sportsæti og álfelgur.
Kostar sú gerð 1.190.000 kr.
• Vél: 1,2 lítra, 8 ventlar, 4 strokkar.
• Afl: 75 hö við 6.000 snúninga á mínútu.
• Tog: 106 Nm við 4.000 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 377/163/145 sm, 875 kg.
• Eyðsla: 6,7 I í blönduðum akstri.
• Eldsneytiskerfi: Fjölinnsprautun.
• Umboð: ístraktor ehf., Garðabæ.
Fiat Cinquecento Sporting 890.000 kr.
150 km/klst 13,8 sek 13,9 kg/ha 6,21
FIAT Cinquecento er vel útbúinn þriggja hurða smábíll
og er meðal hinna ódýrustu á markaðnum. Er þetta sá
minnsti í Fiat-fjölskyldunni. Innifalið í 890 þúsund króna
verðinu eru m.a. líknarbelgur í stýri, rafdrifnar rúður,
samlæsingar, álfelgur, snúningshraðamælir, leðurstýri
og gírstöng sportsæti, þjófavörn og 8 ára ryðvarnará-
byrgð á gegnumtæringu.
• Vél: 1,1 lítri, 8 ventlar, 4 strokkar.
• Afl: 54 hö við 5.500 snúninga á mínútu.
• Tog: 86 Nm við 3.250 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 322/148/143 sm, 725 kg.
• Eyðsla: 6,2 I miðað við blandaðan akstur.
• Eldsneytiskerfi: Bein innsprautun.
• Umboð: ístraktor ehf., Garðabær.
170 km/klsl 12,7 sek 12,53 kg/ho 6,41
FORD kynnti nýjan Fiesta í haustið 1995 sem auk þess
að vera gjörbreyttur í útliti er með nýrri 1.250 rúmsenti-
metra léttmálmsvél. Að utan er bíllinn með sporöskju-
laga grill sem einkennir alla Ford bíla, afturglugginn er
stærri og afturlugtirnar breyttar. Flair er milligerð bílsins
en hann er boðinn þannig hér á landi. Fiesta er t.a.m.
boðin með upphitaðri framrúðu.
• Vél: 1,25 lítrar, 4 strokkar, 16 ventlar.
• Afl: 75 hö við 5.200 snúninga á mínútu.
• Tog: 110 Nm við 4.000 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 383/163/132 sm. 940 kg.
• Eyðsla: 6,4 I miðað við blandaðan akstur.
• Eldsneytiskerfi: Bein fjölinnsprautun.
• Umboð: Brimborg hf., Reykjavík.
Hyundai Accent 1,3i LS 3 d 995.000 kr.
-
170 km/klst 13,6 sek 12,93 kg/ha 6,51
HYUNDAI Accent kom nýr á markað 1994 en hann leysti
af hólmi Pony. 1998 árgerðin er talsvert breytt frá fyrri
gerð. Þetta er lítill og knár bíll sem gott er að aka. Með-
al staðalbúnaðar er vökva- og veltistýri, litað gler, sam-
litir stuðarar, útvarp/segulband og 4 hátalarar. Styrktar-
bitar eru í hurðum, stillanleg öryggisbelti og fjölinn-
sprautun. Bíllinn er einnig til fernra dyra stallbakur og
fimm dyra hlaðbakur. 1,5 I, 90 hestafla bíllinn kostar
1.099.000 kr.
• Vél: 1,3 lítrar, 4 strokkar, 12 ventlar.
• Afl: 84 hö við 5.000 snúninga á mínútu.
• Tog: 119 Nm við 3.100 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 410/162/139 sm. 970 kg.
• Eldsneytiskerfi: Fjölinnsprautun.
• Umboð: Bifreiðar og landbúnaðarvélar, Reykjavík.
Hyundai Accent 1,3 5 d 1.119.000 kr.
Hyundai Accent 1,3 4 d
1.119.000 kr.
HYUNDAI Accent femra dyra er að mestu leyti svipaður
þriggja dyra bílnum nema hvað hann er með skotti og
þar af leiðandi lengri. Þetta er rúmgóður og knár bíll.
Hann fæst með 1,3 og 1,5 lítra vélum og er vel búinn.
Má þar nefna vökva- og veltistýri, litað gler, samlita
stuðara og útvarp/segulband. Samlæsingar og rafmagn
í rúðum er staðalbúnaður í 1,5 I bílnum. Hann kostar
1.189.000 kr.
• Vél: 1,3 lítrar, 4 strokkar, 12 ventlar.
• Afl: 84 hö við 5.000 snúninga á mínútu.
• Tog: 119 Nm við 3.100 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 412/162/139 sm. 980 kg.
• Eyðsla: 8 I miðað við blandaðan akstur.
• Eldsneytiskerfi: Fjölinnsprautun.
• Umboð: Bifreiðar og landbúnaðarvélar, Reykjavík.
• Vél: 1,3 lítrar, 4 strokkar, 12 ventlar.
• Afl: 84 hö við 5.000 snúninga á mínútu.
• Tog: 119 Nm við 3.100 snúninga á mínútu.
• Mál og þyngd: 410/162/139 sm. 980 kg.
• Eyðsla: 8 I miðað við blandaðan akstur.
• Eldsneytiskerfi: Fjölinnsprautun.
• Umboð: Bifreiðar og landbúnaðarvélar, Reykjavík.
170 km/klst 11,6 sek 11,6 kg/ha 8I
HYUNDAI Accent fimm dyra er að mestu leyti svipaður
og þriggja dyra bíllinn. Þetta er rúmgóður og knár bíll.
Styrktarbitar eru í hurðum, stillanleg öryggisbelti og
fjölinnsprautun. Hann fæst með 1,3 og 1,5 lítra vélum og
er vel búinn. Má þar nefna vökva- og veltistýri, litað gler,
samlita stuðara, útvarp/segulband. Samlæsingar og
rafmagn í rúðum er staðalbúnaður í 1,5 I bílnum. Hann
kostar 1.189.000 kr.