Morgunblaðið - 11.10.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 E 1S
Okutækja-
tryggingar
HÉR á eftir er stutt kynning á
þeim tryggingum sem falla undir
ökutækjatryggingar en fyllri
upplýsingar fá bíleigendur með
því að kynna sér tryggingaskil-
tnálana. Vátryggingafélögin
bjóða upp á svipaða skilmála í
ökutækjatryggingum en það
borgar sig að kanna iðgjöldin því
samfara aukinni samkeppni er
boðið upp á margbreytileg verð.
Lögboðnar tryggingar
Skyldutryggingar allra bif-
reiðaeigenda eru tvær, ábyrgðar-
trygging og slysatrygging öku-
ntanns og eiganda (SOE).
Ábyrgðartrygging bætir lík-
ams- og munaljón sem vátrygg-
ingataki ber ábyrgð á, það er
bætir það tjón setn bíll í órétti
veldur öðrum. Ábyrgðartrygg-
ingin bætir ekki skaða á öku-
tnanni eða eiganda sem farþega
né þann skaða sem verður á öku-
tæki tjónvalds. Iðgjöld ábyrgðar-
tryggingarinnar ráðast af aldri,
reynslu og ferli tryggingartaka.
Þannig greiða yngstu ökumenn-
irnir í flestum tilvikum hærra
grunniðgjald en þeir sem komnir
eru yfir 25 ára aldur og þeir sem
eru 30 ára og eldri njóta hag-
stæðustu iðgjaldanna.
Stöðug
þróuní
búnuði fyrir
verkstæðin
HÁTT í 300 bílaverkstæði eru
starfandi í landinu og jafnvel tals-
vert fleiri ef einyrkjar eru taldir
með sem vinna kannski við annað
meðfram. Verkstæði og smiðjur
sem þjóna bílum þurfa á marg-
háttuðum tækjabúnaði að halda og
einn þeirra aðila sem útvegað get-
ur slík tæki er Olíufélagið. Jón
Guðmar Hauksson sölufulltrúi á
markaðssviði sér um þennan þátt í
starfi Olíufélagsins.
„Olíufélagið hefur mikið til ver-
ið allsráðandi í sölu á bílalyftum
síðustu 15 árin,“ segir Jón Guð-
mar. „Við bjóðum mikið úrval, allt
frá tveggja pósta fólksbílalyftum
uppí stórar 38 tonna trukkalyftur
og flest þar á milli. Þá höfum við
selt mikið af verkstæðistölvum en
þeim má skipta niður í tölvur til
vélastillinga og bilanagreininga
annars vegar og hins vegar til
hjólastillinga. Með því að sam-
hæfa gömlu tækin við öflugar PC
tölvur hefur hugbúnaður sem með
Bónus fer hæst i 75%
Okumenn sem ekki valda tjóni
ávinna sér árlega afslátt - bónus -
af iðgjöldum ábyrgðartrygging-
arinnar. Bónusinn hækkar yfir-
leitt um 5-10% á ári (mismunandi
eftir tryggingafélögum) og fer
hæst hér á landi í 75%. Vátrygg-
ingartaki heldur áunnum bónus
svo lengi sem hann veldur ekki
tjóni en við hvert tjón sem trygg-
ingartaki ber ábyrgð á lækkar
bónusafslátturinn. Þeir sem
valda mörgum umferðaóhöppum
geta þurft að greiða álag (nei-
kvæður bónus) á grunniðgjaldið.
Algengt er að ungir ökumenn
sem eru að tryggja sinn fyrsta bíl
byiji með 10% bónus og vinna sig
svo smám saman upp (eða niður).
Slysatrygging ökumanns og
þessu fylgir þróast hratt og upp-
færslur með nýjungum eru fáan-
legar reglulega."
Jón Guðmar segir að viðskipta-
vinir séu verkstæði af öllum stærð-
um en dýrari tækin fara einkum
eiganda greiðir bætur fyrir lík-
amstjón vegna umferðarslyss,
sem ökumaður eða eigandi sem
farþegi í eigin ökutæki verða
fyrir ef aðrar vátryggingar
bæta það ekki. Um bótaákvörð-
un fer eftir ákvæðum skaðabóta-
laga og hámarksbætur eru
ákvarðaðar af dómsmálaráð-
herra í samræmi við heimild í
umferðarlögutn.
Frjólsor
tryggingar
Framrúðutrygging og Húf-
trygging (Kaskótrygging) eru
frjálsar markaðstryggingar og
bfleigendum er í sjálfsvald sett
hvort þeir kaupa þessar trygg-
ingar eða ekki.
Framrúðutrygging bætir tjón
inn á stærri verkstæði og verk-
stæði bílaumboðanna. Þá býður 01-
íufélagið mikið úrval tækja, svo
sem færanlegan rennibekk fyrir
bremsudiska, afsogsrúllur fytir út-
blástur, margs konar tjakka og
á framrúðu hinnar tryggðu bif-
reiðar t.d. ef bfllinn lendir í
steinkasti og auga eða sprunga
myndast í rúðunni. Verð á fram-
rúðutryggingu getur farið eftir
tegund bflsins og hvort sérútbún-
aður er í rúðunni. (loftnet, hiti
o.sv.frv.) Ekki er um bónusflokka
að ræða í framrúðutryggingum.
Húftrygging (kaskótrygging)
bætir eignatjón sem verður fyrir
slysni á ökutæki þess sem er vá-
tryggður vegna áreksturs, áakst-
urs, óveðurs (vindhraði yfir 11
vindstig) ofl. Einnig vegna bruna
eða skemmda af hálfu þriðja að-
ila og þjófnaðar. Húftryggingin
bætir ekki tjón vegna aksturs ut-
an vega eða tjón sem rekja má til
ásetnings eða stórkostlegs gá-
leysis vátryggðs eða ökumanns.
Á markaðnum bjóðast nokkrir
valkostir varðandi vátryggingar-
vernd og iðgjöld sem bfleigend-
um er ráðlagt að kynna sér vel
áður en húftrygging er tekin. Af
hverju tjóni getur vátryggður
borið eigin áhættu, greiðir hluta
af tjóninu sjálfur, sem hefur
áhrif á iðgjaldakostnaðinn. Bón-
usflokkar í húftryggingu eru frá
0-50% og hækka og lækka á
sama hátt og ábyrgðartrygging-
verkfæri, hreinsiefni frá Teroson
og fleirum og fylliefni og fleira.
Meðal þeirra sem keypt hafa
búnað hjá Olíufélaginu er Borgar-
holtsskóli þar sem fram fer kennsla
í bíiiðnum við hinar bestu aðstæður.
Varahlutir
keyptir
ÞAÐ er að ýmsu að gæta þegar
varahlutir í bílinn eru keyptir.
Varahlutir eru misjafnlega dýrir
eftir verslunum og þvi er gott að
gera verðsamanburð í síma áður en
hlutirnir eru keyptir. Eins ættu
menn að huga að því að stundum
getur verið hagkvæmara að láta
verkstæðið, ef viðgerð á bílnum fer
fram þar, kaupa varahlutina því
verkstæðin fá þá oft með afslætti
vegna mikilla viðskipta. Annars er
gott að hafa eftirfarandi í huga
þegar varahlutir eru keyptir:
►Vertu vel undirbúinn með upp-
lýsingar um ökutækið, s.s. árgerð,
vélarstærð og annan sérbúnað (for-
þjappa, sjálfskipting, stuttur, lang-
ur, skutbíll o.þ.h.).
► Hafðu í huga að einn bilaður
varahlutur getur valdið bilun á öðr-
um hlutum í bílnum.
►Reyndu að útiloka endurtekn-
ingu á viðgerð með því að láta laga
alla bilunina, ekki bara hluta.
(Þvinguð hemladæla slítur upp
hemlaklossa.)
►Þegar viðgerð er unnin þarf að
hafa alla hluti sem tilheyra verk-
inu.
►Nota verður viðeigandi verkfæri.
►Aldrei má þvinga, siá eða bora í
nýja varahluti.
►Þegar um rafmagnsbilun er að
ræða er áríðandi að leita til viður-
kennds fagmanns. Rafmagnsbilun
getur verið flókin og kostnaðar-
söm.
►Geymið upplýsingar um hvaða
hlutir voru notaðir við breytingar
ef gera á við breyttan bfl.
►Vekið athygli á því ef bíllinn er
upphækkaður. I þeim tilvikum er
oft þörf á lengri dempurum.
► Notið alltaf viðurkennda vara-
hluti.
►Forðast skal notaða hluti þegar
gert er við stýrisgang, hemlakerfi
og annan öryggisbúnað.
►Viðgerð unnin af vanþekkingu
getur verið dýrkeypt.
m.
» "’tf
Morgunblaðið/Ásdís
FLEST tæki er tengjast bflaviðgerðum eru notuð við kennsluna hjá Borgarholtsskóla, m.a. þessi stillitölva
frá Bear sem Olíufélagið flytur inn. Á myndinni eru Jón Guðmar Hauksson frá Olíufélaginu (t.h.) og Ás-
geir Þorsteinsson frá Fræðslumiðstöð bflgreina.
varahlutir fyrir allar
sjálfskiptingar
HP VARAHLVTIR hf
Smiðjuvegi 24C • Kópavogi •
sími 587 0240 • fax 587 0250
ALLGON
BODIN
BERAST
NESRADI0
Síöumúla 3-5 Sími 5811118
Blöndum alla bílaliti
Setjum lakk á úðabrúsa
Öll undirefni og fylgivörur
CBNCEPT
bón og bílahreinsivörur
- mikið úrval
ÞJÓNUSTA -
FAGMENNSKA
DELTRON
Smiðjuvegi 11e,
sími: 564 3477