Morgunblaðið - 11.10.1997, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 E 15
MAZDA hefur fraraleitt fjöluotabíl f nokkur ár sem kallaður er ein-
faldlega MPV. Einn eða tveir slfkir eru til hérlendis.
Bón fyrir menn
á hraðferi
Sístækk-
andi hlut-
deild f jöl-
nota bíla
FJÖLNOTA bílar, 6-9 manna bflar
með eindrifi eða aldrifi sem nota
má sem venjulegan fjölskyldubfl
og til fjölbreyttra ferðalaga, hafa
rutt sér nokkuð til rúms á síðari
árum. Fer markaðshlutdeild
þeirra sífellt vaxandi, var 0,3% í
Evrópu árið 1988 en þeim er spáð
nærri 4% markaðshlutdeild á
næsta ári.
Markaðsfræðingar segja að
ástæða fyrir aukinni sölu fjölnota
bfla sé sú að kaupendur vilji „sér-
hannaða" bíla ef svo má segja, bfla
sem henta sérstaklega kröfum
þeirra enda eru fjölnota bflar iðu-
lega boðnir í fjölbreyttum gerðum.
Menn séu líka að fá leið á hinum
hefðbundna fjölskyldubíl og kjósi
því þennan sérstaka flokk.
Árið 1988 seldust um 45 þúsund
fjölnota bflar í Evrópu, árið 1994
nam salan 163 þúsund bílum sem
er um 1,4% og á næsta ári er búist
við að um hálf milljón slíkra bfla
seljist í Evrópu. í Bandaríkjunum
er hlutfallið mun hærra. Árið 1988
var það 6,4% eða um 730 þúsund
bílar, og hafði salan náð 1.100 þús-
und bílum árið 1994 sem er yfir
10% hlutdeild. Margir bílafram-
leiðendur horfa því æ meira til
þessa kaupendahóps sem fer sífellt
stækkandi.
SMURSTOÐIN Klöpp hefur selt
Dura Lube vörur í rúmt ár, þar á
meðal Dura Shine bflabónið og
Dura Wash bflaþvottasápuna.
Óhætt er að fullyrða að þetta bón
sparar tíma þeirra sem eru í tíma-
þröng því bónið má bera á blautan
bflinn og ekki þarf að nudda það á
flötinn. Að þessu leyti er hér um
nýjung að ræða á bónmarkaðnum.
Ekki er hér þó lagt mat á gæði
þessa bóns.
Umboðsaðili Dura Lube efn-
anna, Smurstöðin Klöpp, segir að
nokkuð hafi borið á gagnrýni á
Dura Shine bflabónið. Heyrst hafi
að það sé ekki gott bón og valdi
frekar skaða en hitt. Umboðsaðil-
inn segir að enginn fótur sé fyrir
þessu.
Þeir sem hafi notað þessi efni
séu flestir mjög ánægðir með
þau. Hins vegar beri að hafa
nokkur atriði í huga þegar þau
eru notuð.
Notkunnrleiðbeiningar
Notandi efnanna þarf að fylgja
leiðbeiningum til þess að bónið
gefi rétta áferð. Dura Shine inni-
heldur hvorki vax né silikon. Áður
en það er notað á bflinn verður að
þrífa hann mjög vel með silikon-
lausri bflasápu. Síðan verður að
skola bflinn vel til að losna við allt
silikon og vax. Óhætt er að bera
Dura Shine bónið á blautan jafnt
sem þuiTan flöt. Einnig er óhætt
að bera bónið á vínyl, króm og
rúður. Þegar búið er að bera Dura
Shine bónið á með jöfnum, fostum
hringstrokum er það látið standa í
10-15 mínútur.
Ekki á að nudda bónið eins og
venjulegt bílabón heldur er það
skolað af með léttum úða af vatni
og síðan látið þorna. Ekki þarf að
þurrka vatnið af bflnum. Ef rákir
myndast vegna of mikils bóns má
strjúka yfir með rökum klút og
síðan þurrum.
Alvöru ieppi á verði jepplings
IVITARA 1998
SUZUKI
Suzuki Vitara er ekta jeppi.
Hann er með háu og lágu
drifi, sterkbyggður á grind,
upphækkanlegur, með feiki-
lega stöðuga fjöðrun
og
• VERÐ: JLX 3-D. 1.675.000 KR., JLX 5-D. 1.940.000 KR.,
DIESEL 5-D 2.180.000 KR.; V6 2.390.000 KR.
• Snar í viðbragði, hljóðlátur, lipur í akstri
- og ekki bensínhákur.
• Gott pláss - mikill staðalbúnaður.
Komdu og sestu inn!
Sjádu plássid og alúdina vid smáatriði.
Vitara er vinsælasti jeppinn á Islandi.
Og skyldi engan undra.
SUZUKI
AFL OG
ÖRYGGI
SUZUKI BILAR HF
SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf., Miðási 19, simi 471 20 11. Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrísmýri 5, slmi 482 37 00. Sími 568 51 00.