Morgunblaðið - 11.10.1997, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR12. OKTÓBER 1997 E 41
Morgunblaðið/Ásdís
UTVARP, seg'ulband og geislaspilari eru grunnbúnaður í þessum
akandi hljómtækjasal.
EKKI færri en þrenn hátalarsett eru í bílnum og margs konar
fylgibúnaður.
Þvegið á
fjórum mín-
útum fyrir
170 krónur
VERIÐ er að undirbúa uppsetningu
á nýrri þvottaaðstöðu fyrir stóra
sem smáa bfla á bensfnstöð Skelj-
ungs við Dalveg í Kópavogi. Sveinn
Magnússon hefur fengið leyfi til að
selja þar niður þvottatæki þar sem
hægt verður að þvo bflana úr ýms-
um efnum með há- og lágþrýsti-
tæki.
Tækið er keypt frá bandarfska
framleiðandanum Jim Colemen í
Texas og segist Sveinn Magnússon
lengi hafa gengið með þá hugmynd
að bjóða upp á einfalda og ódýra
þvottaaðstöðu sem gæti ekki síst
hentað bfleigendum að vetrarlagi
og fyrir nokkru hafi hann rekist á
þetta tæki þegar hann var að „ferð-
ast“ á netinu.
Þvottastöðin er eins konar kassi
úr ryðfríu stáli og tengd við hann
er annars vegar slanga með margs
konar hreinsiefnum sem velja má
um og úða yfir bflinn með háþrýsti-
eða Iágþrýstisprautu og hins vegar
vatnsslanga með kústi úr svínshár-
um. Þegar hefja skal þvott velja
menn hvaða aðferð eða hreinsiefni
nota skal og setja 170 kr. í
myntraufina. Fæst þá fjögurra mín-
útna skammtur af þvi þvottakerfi
sem valið er og þurfi menn á lengri
tfma að halda þarf ekki annað að
gera en bæta við og fyrir hverjar
40 krónur fæst ein mfnúta í viðbót.
Fá má bæði kalt og volgt vatn
gegnum tækið og segir Sveinn
þetta sérlega hentugt í frosti.
Á fleiri bensinstöðvum
ef vel gengur
Sveinn Magnússon segir að Skelj-
ungur hafi tekið vel í hugmyndina
að leyfa uppsetningu þvottatækis-
ins á einni bensfnstöðva sinna,
þeirri við Dalveg í Kópavogi. Leið-
beiningar verða á kassanum en
eiimig geta menn leitað til starfs-
manna á bensfnstöðinni eftir aðstoð
en að öðru leyti er um algjöra
sjálfsafgreiðslu að ræða. Verði
reynslan af tækinu góð segir
Sveinn hugsanlegt að fleiri verði
sett upp á öðrum bensínstöðvum
Skeljungs.
Tæki sem þetta hentar einnig
Betri hljóm-
ur en í
hljóðveri?
VILJI menn hlusta á góða tónlist
við góð skilyrði er ekki galið að út-
búa bílinn með hljómflutningstækj-
um. Þetta er til dæmis tilvalið í
ferðabílnum, þegar menn sitja lengi
og það gerði eigandi Ford
Econoline bílsins sem hér er sýnd-
ur.,
I bílnum eru útvarp, segulband
og geislaspilari sem mata má með
10 diskum í senn. Síðan eru tvö pör
af hátalarasettum frá Kenwood,
tveir aðrir frá Pinoeer og margs
konar fylgibúnaður sem m.a. hefur
þann tilgang að ná saman hinum
ýmsu tíðnisviðum sem tónlistin not-
ar en með því verður hljómurinn-
betri. í þessari Econonline gerð eru
sex kafteinsstólar og hefur hvert
sæti eigið sett af hátölurum þannig
að það er sama hvar í bflnum setið
er, hljómurinn er alls staðar jafn
góður. Þetta fæst hins vegar ekki
fyrirhafnarlaust og verða menn að
taka góðan tíma til að stilla tækin
saman til að ná sem bestum hljómi.
Þegar velja skal hljómtæki í bíla -
vilji menn eitthvað meh’a en „venju-
leg“ tæki til að hlusta á fréttir - er
rétt að líta í hljómtækjaverslanir og
spyrja sölumenn álits. Leita verður
til fleiri en eins til að fá sem flestar
hugmyndir og síðan reyna að velja
það sem hugurinn girnist og pyngj-
an leyfir. Ef vandað er til verka eins
og í tilvikinu sem hér er greint frá
má búast við að fjárfestingin sé á
bilinu 300 til 500 þúsund krónur fyr-
ir tækin komin í bflinn.
ÞVOTTATÆKIÐ er í raun ein-
falt og fyrirferðalítið. Hægt er
að velja um margar þvottaað-
ferðir sem hver um sig býður
uppá sérstakt efni.
þeim sem t.d. reka sjálfir bflaflota,
svo sem bflaleigur og rútubfla og
vilja koma sér upp einfaldri þvotta-
aðstöðu.
varahLutir fyrir
japanska bíla
• Tímareimar
• Bremsuklossar
• Bremsuborðar
• Vatnsdælur
• Vatnslásar
• Kúplingar
• Öxulhosur
• Öxulliðir
• o.fl.
NP VARAHLUTIR hf
Smiðjuvegi 24C • Kópavogi •
simi 587 0240 • fax 587 0250
TILBOÐ OSKAST
í Ford Explorer Sport 4x4 árgerð '96
(ekinn 14 þúsund mílur),
Ford Econoline E-250 XLT 4x4 með díeselvél
árgerð '90 (hækkaður)
og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að
Grensásvegi 9, þriðjudaginn 14. október kl.12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA
SALA VARNARLIÐSEIGNA
ÍTKV(
Vátryggt af IBEX MOTOR POLICIES at LLOYD'S
l/ Ódýrari bílatryggingar
Tryggvagötu 8 • 101 Reykjavík • sími 511 6000
1
r\
HUODKUTAR
PUSTKERFI
Eigum hljóðkúta og pústkerfi í flestar gerðir bifreiða.
Tveggja ára ábyrgð á heilum kerfum. ísetning á staðnum.
Nánari upplýsingar fást hjá sölumönnum okkar
í síma 588 2550
BílavörubúÖin
FJÖÐRIN
I fararbroddi
SKEIFUNNI2,108 REYKJAVÍK SIMI 588 2550
FICMENNSKl
í FYÍliiRÚ I
BÍLGREINA
SAMBANDiÐ
Er þjónustuaðili þinn
Bíiiðnaféiagið \ Bílgreinasambandinu?
$SUZUKI
■©•
OPEL
snna
BÍLARÉTTINGAR & SPRflUTUN SÆVARS
Skeifunni 17 • Sími: 568 9620 • 568 5391 • Fax: 568 9640 ±i