Morgunblaðið - 11.10.1997, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1997 E 43
Á að endast
eins og sviss
nesku úrin
Morgunblaðið/Sigurður Fannar
BENEDIKT Guðmundsson, sonur Guðmundar Tyrfingssonar, við Bucher-Duro. Benedikt er bílasmiður eins
og bróðir hans Tyrfingur. Þeir snn'ðuðu yfir bflinn ásamt Guðmundi Laufdal yfirbflasmið fyrirtækisins.
GUÐMUNDUR Tyrfingsson ehf. á
Selfossi hefur fengið nýjan 12
manna bfl til hálendisferða í flotann.
Bíllinn er af gerðinni Bucher-Duro
framleiddur í Sviss með drifi á öll-
um hjólum. Fyrirtækið flutti bflinn
inn frá Sviss án yfirbyggingar og
hús var smíðað á hann hjá Guð-
mundi síðastliðinn vetur. Bíllinn er
árgerð 1996. Bucher-Duro framleið-
ir m.a. bfla til hernaðarnota.
Bucher hefur framleitt bfla í
Sviss frá 1980. „Þetta er eini bíllinn
á landinu og við vildum fá að prófa
hann áður en við færum að guma af
honum. Eg er viss um að þetta væri
afar hentugur bíil fyrir björgunar-
sveitirnar," sagði Guðmundur. Bíll-
inn er reyndur framleiddur til slíkra
nota og einnig sem sérútbúinn
slökkvibíll í heimalandinu, sjúkra-
bfll og húsbflar til ferðalaga.
Á gormum og sjólfskiptur
Guðmundur sagði að aldrei áður
hefði bíll verið framleiddur með
slíkum jafnvægisstöngum og þessi
bfll. Gormafjöðrun er á öllum hjól-
um og gasdemparar. Sama átak er
alltaf á öllum hjólum. Lyftist annað
afturhjólið til dæmis upp á stein
þrýstist mótsvarandi hjól niður. 36
sm eru undir lægsta punkt á bfln-
um.
Hægt er að fá hann í ýmsum út-
færslum, t.d. með sex öxlum og drifi
á þeim öllum, búnaði til að hleypa
lofti úr og í hjólbarða og margt ann-
að. Bfll Guðmundar er hins vegar á
tveimur öxlum með aldrifi og án
loftbúnaðarins en sjálfskiptur.
„Bróðir minn býr í Sviss og þetta
var sýningarbfll hjá Bucher, það var
búið að aka honum 400 km. Hann
náði honum verulega niður í verði.
Án yfirbyggingarinnar kostar bfll-
inn um sex milljónir króna.“
Bíll Guðmundar Tyrfingssonar er
18 farþega og var notaður til há-
lendisferða allt síðastliðið sumar.
„Ég fæ ekkei-t að keyra lengur
sjálfur. Frú Sigríður hefur bannað
mér það. Sjálfur ók ég í áraraðir og
átti Dodge Weapon í 13 ár. En ef ég
hleyp í burtu núna, eins og konan
segir, skil ég hana eftir með vanda-
málin svo hún neitar því að ég fari
nokkurt. Ég læt því aðra um akst-
urinn,“ segir Guðmundur.
Guðmundur segir að bfllinn hafi
reynst ákaflega vel í hálendisferð-
unum og nú vanti bara annan bfl.
„Litlir bílar í fjallaferðum - þar ligg-
ur vaxtarbroddurinn og menn geta
gleymt stórum bflum yfir sumarið.
Sérleyfishafarnir sjá um akstur á
útlendingum á stóru bflunum."
Kerra er jafnan notuð með
Bucher-Duro þar sem vistirnar eru
geymdar enda má bíllinn draga sex
tonn.
Pústkerfi úr ryðfriu stúli
Vélin er sex strokka, 3,8 lítra
dísil, með afgasforþjöppu, millikæli
og rafstýrðri innspýtingu. Hún skil-
ar 150 hestöflum við 4.000 snúninga
og togið er 320 Nm við 2.100 snún-
inga. 90% driflæsingar eru á öllum
hjólum og afturdrif, miliikassi og
sjálfskiptingin er aftan í bílnum.
Guðmundur segir að hann þyngist
ekkert í stýri í snúningum þrátt fyr-
ir driflæsingarnar. Bfllinn hefur
verið reyndur við alls kyns aðstæð-
ur, m.a. í lausum sandi, og þrátt fyr-
ir ítrekaðar tilraunir tókst ekki að
spóla einu einasta hjóli.
Hemlakerfinu svipar dálítið til
þess sem er í Hummer bflunum.
Bremsudiskamir eru staðsettir við
drifið en ekki úti við hjólin. Pústkerf-
ið er úr ryðfríu stáli og Guðmundur
kveðst sannfærður um að Bucher-
Duro ætlist til að þessir bflar endist í
áraraðir eins og svissnesku úrin.
Bfllinn eigi að vera viðhaldsfrír og
óhemju vel sé gengið frá öllu.
RADIOPHONE frá Blaupunkt, sími og útvarp í einu tæki.
S E G U L
KJARNA
BORVÉLAR
- fyrir járn
SKEIFUNNI 3E-F ■ SlMI 581 2333 • FAX 568 0215
•gull
BLAUPUNKT hefur sett á
markað fyrsta bíltækið með
innbyggðum gsm-síma.
RadioPhone kallast tækið og
hefur lengi verið beðið eftir
slíkri lausn á markaðnum.
Margir eru þeirrar skoðunar að
notkun gsm-síma í bflum komi
niður á örygginu í umferðinni.
Með nýja bfltækinu þarf ekki að
taka hendur af stýri þegar
síminn er notaður. Tækið
sjálft kostar 84.900 krónur án
ísetningar. Fjarstýring á
stýrið og handtæki er aukabún-
aður.
RadioPhone er á stærð við
venjulegt bfltæki og er lítill
hljóðnemi tengdur við tækið. í
tækinu er þjófavörn. Svoköll-
uðu KeyCard eða stóru gsm
símakorti er rennt inn í þar til
gerða rauf á tækinu og virkar
bfltækið þá einnig sem gsm-
sími. Tækið virkar hvorki sem
útvarp né sími nema kortinu sé
stungið inn í raufina.
Frá og með 1. júlí 1998 verð-
Bílsími Og
útvarp í
einu tæki
FJARSTÝRINGIN er
fest á stýrið.
ur bannað að nota hefðbundna
gsm-síma í bflum og þar ætti
þetta tæki að koma að góðum
notum. Mikil umræða er hvar-
vetna í Evrópu um notkun gsm-
síma í bflum og vafalaust ekki
langt að bíða þess að samskon-
ar lög verði sett í öðrum
Evrópuríkjum.
Fjurstýring ú stýrinu
Gsm-síminn í bfltækinu býð-
ur upp á alla þá tæknimögu-
leika sem fullkomnustu gsm-
símar almennt hafa og útvarp-
ið er einnig af bestu gerð. Ekki
þarf að skipta um loftnet í bfln-
um hafí gsm-sími verið í hon-
um.
I tækinu er einnig segul-
bandstæki og hægt er að tengja
10 diska geislaspilara við tækið.
Fjarstýring fyrir tækið er fest á
stýri bifreiðarinnar. Fjarstýr-
ingin er aukahlutur Einnig er
fáanlegt handtæki sem auðvelt
er að setja í bflinn og hentar vel
þegar einkasamræður í síma
fara fram í bflnum.
varahlutir fyrir allar
sjálfskiptingar
NP VARAHLUTIR hf
Smiðjuvegi 24C • Kópavogi •
sfmi 587 0240 • fax 587 0250
VÍS býður þér lán til bilakaupa, til að þú getir
notið staðgreiðsluverðs. Þannig færðu
hagstæðustu kjör sem boðin eru við kaupin.