Morgunblaðið - 05.11.1997, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
252. TBL. 85. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Irakar framlengja
frest eftirlitsmanna
Baghdad. Reuters.
ÍRASKA stjórnin framlengdi í gærkvöldi frest sem hún hafði gefið
bandarískum eftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna (SP) til þess að yf-
irgefa landið. Var það gert í framhaldi af sérstakri ósk Kofi Annans,
framkvæmdastjóra SÞ, að sögn írösku fréttastofunnar INA. Ekkert
varð úr hótun Iraka um að skjóta á bandarískar eftirlitsflugvélar.
Prestur tengdur mafíu
LÖGREGLAN á Sikiley kvaðst í
gær hafa handtekið sjö menn, sem
grunaðir eru um tengsl við maf-
íuna, og þeirra á meðal er kaþólsk-
ur prestur, Mario Frittita, sem er
sakaður um að hafa haldið messur
fyrir mafíuforingjann Pietro Agl-
ieri þegar hann var á flótta undan
lögreglunni. Aglieri var handtek-
inn í júní og ákærður fyrir morð á
ítölskum dómara á Sikiley árið
1992.
Presturinn, sem tilheyrir Karm-
elítareglunni, hefur viðurkennt að
hafa veitt Aglieri andlegan stuðn-
ing en segist hafa reynt að fá hann
til að láta af syndsamlegu líferni
sínu. „Hann hjálpaði Aglieri þegar
hann var á flótta með því að segja
okkur að hann vissi ekki hvar
Aglieri væri,“ sagði hins vegar
rannsóknardómarinn Alfonso Sa-
bella. „Hann átti samskipti við
Aglieri í að minnsta kosti hálft ár.“
Presturinn er einnig sakaður
um Ieynilega hjónavígslu fyrir
annan mafíuforingja, Giovanni
Garafolo, sem var einnig á flótta.
Að sögn INA verður fresturinn,
sem átti að renna út klukkan 10 í
kvöld að íslenskum tíma, framlengd-
ur fram í næstu viku eða þar til ör-
yggisráð SÞ hefur lokið umræðu um
og metið árangur af fór þriggja
manna sendisveitar sem von var á til
Iraks í dag.
Sendinefndin mun færa írösku
stjórninni sérstök skilaboð öryggis-
ráðsins vegna deilunnar um eftirlits-
sveitir, sem fylgst hafa með uppræt-
ingu íraskra gjöreyðingarvopna.
Mun nefndin útskýra afstöðu SÞ til
deilunnar en ekki freista neinna
samninga við stjórnvöld í Baghdad.
„Ég er bjartsýnn á að stjórnin skilji
erindið og taki tillit til þess,“ sagði
Jan Eliasson, formaður sendinefnd-
arinnar. Gert er ráð fyrir að hún snúi
til New York um helgina og gefi ör-
yggisráðinu skýrslu nk. mánudag.
Aziz útskýrir afstöðu íraka
Þá var frá því skýrt í gær að Tareq
Aziz, aðstoðarforsætisráðherra
Iraks, myndi halda til New York á
eftir sendinefnd SÞ og útskýra af-
stöðu og kröfur íraka í málinu.
Bill Clinton Bandankjaforseti var-
aði Saddam Hussein Iraksforseta við
í gær og sagði að það yrðu „dýrkeypt
mistök" ef írakar freistuðu þess að
skjóta niður bandarískar njósna-
flugavélar yfir Irak. Vél af því tagi
flaug yfir landið í gær án þess að
verða fyrir áreitni.
Full samstaða er með ríkjunum
fimm sem eiga fastafulltrúa í örygg-
isráðinu um að írakar falli frá til-
raunum til að útiloka bandaríska
þegna frá þátttöku í eftirlitssveitum
SÞ í írak.
Rembrandt
yfir rúminu
Amsterdam. Reuters.
SJÁLFSMYND eftir hollenska mál-
arann Rembrandt van Itijn, sem
metin er á milljónir dala, hékk ár-
um saman á vegg í svefnherbergi
listaverkasala í París, sem hafði
ekki hugmynd um hvaða dýrgripur
var þar á ferð. Þetta kemur fram í
nýrri bók um Rembrandt eftir sagn-
fræðinginn Ernst van de Wetering.
Listaverkasalinn franski keypti
verkið árið 1970 og gaf konu sinni.
Fyrir rúmu ári keypti hollenskur
listaverkasafnari myndina og var
þá kannað hvort hún væri eftír
Rembrandt en grunur van de Wet-
erings hafði vaknað um það.
Nú hefur fengist staðfest að
verkið sé að öllum líkindum eftir
meistarann en mikill fjöldi verka
hefur verið eignaður honum og
það hefur reynst þrautin þyngri að
greina á milli verka Rembrandts og
lærisveina hans.
Talið er að Rembrandt hafi mál-
að myndina árið 1632 er hann var
26 ára og sýnir hún hann í skart-
klæðum samkvæmt nýjustu tísku
þess tíma.
Rán upp-
lýst á
slysadeild
London. The Daily Telegraph.
BRESKUR læknir, sem varð
fyrir árás ræningja, kærði árás-
armanninn fimm mánuðum síðar
þegar hann bar kennsl á hann á
slysadeild sjúkrahúss í Cardiff,
að því er fram kom í réttarhöld-
um yfir manninum.
Læknirinn hringdi í lögregl-
una eftir að hlúð hafði verið að
afbrotamanninum, sem særðist í
götuslagsmálum. Sakamaðurinn
var dæmdur í sex ára fangelsi
fyrir árásina og átta önnur lög-
brot, meðal annars þjófnað,
skemmdarverk og ölvunarakst-
ur. Hann hafði ráðist að læknin-
um með hnífi á skemmtistað og
rænt andvirði 1.000 króna.
Farbann á
forsetann?
Mexíkó. Reuters.
PÓLITÍSKIR andstæðingar Ern-
estos Zedillos Mexíkóforseta í neðri
deild þingsins hóta að koma í veg
fyrir utanferðir hans.
Forsetinn þarf þingheimild til ut-
anferða en hingað til hefur sam-
þykki af því tagi þótt formsatriði.
En vegna deilna við stjórnarflokk
forsetans (PRI) um fjárlög og póli-
tískar umbætur ákváðu fulltrúar
meirihlutans í neðri þingdeildinni
að beita þessu valdi og fresta at-
kvæðagreiðslu um ráðgerðar utan-
ferðir Zedillo á næstu vikum. Gæti
það þýtt að hann yrði að hætta við
ferð til Venezúela á föstudag, til
Washington í næstu viku og Kanada
eftir tvær vikur.
Deiluaðilar
heQa samn-
ingaviðræður
París. Reuters.
JEAN-Claude Gayssot, sam-
gönguráðherra Frakklands, til-
kynnti í gærkvöldi að allir aðilar
vöruflutningadeilunnar myndu
setjast að samningaborði í dag og
jók það bjartsýni á að lausn væri í
augsýn. Stærstu samtök vinnuveit-
enda í vöruflutningum (UFT), sem
gengu út af samningafundi á föstu-
dag, ákváðu í gær að mæta aftur
til þeirra í dag.
Talið er að það hafi átt sinn þátt
í að reka aðila aftur að samninga-
borði að Lionel Jospin forsætis-
ráðherra hét því í gær að næðist
samkomulag um vinnutíma og
starfsskilyrði við aðeins hluta
vörubifreiðastjóra myndi ríkis-
stjórnin sjá til þess að það næði til
allra vörubílstjóra.
Jospin hefur sett það á oddinn
að koma viðræðum deiluaðila af
stað en verkfall vörubílstjóra er
fyrsta alvarlega vinnudeilan sem
stjórn hans glímir við frá því hún
komst til valda í júní.
Umsátur um olíustöðvar og
vegatálmar hafa sett allt á annan
endann um land allt. Starfsemi
iðnfyrirtækja er tekin að lamast,
almenningur hefur hamstrað bens-
ín og erlendir vörubflstjórar, sem
fara verða um Frakkland, hafa
lokast inni á þjóðvegum landsins.
Saka vinnuveitendur um
hefndaraðgerðir
Leiðtogar þeirra 350.000 vöru-
bílstjóra sem eru í verkfalli saka
UFT um tilraunir til að láta deil-
una dragast á langinn. Sé það
hefndaraðgerð þeirra vegna
áfoi'ma stjórnar Jospins um að
stytta vinnuvikuna í 35 stundir, en
Reuters
RAMMGERÐUR vegatálmi vörubílstjóra við bæinn Roncq lokar þjóðvegi A22 milli Lille og Ghent.
franskir vinnuveitendur eru því
mjög andvígir.
Stjórnvöld margra Evrópusam-
bandsrikja (ESB) hafa mótmælt
lokun frönsku þjóðveganna harð-
lega við frönsk yfirvöld og krafist
þess að vegirnir verði opnaðir fyrir
vöruflutninga. Framkvæmda-
stjórn ESB viðraði í gær þann
möguleika að draga franska ríkið
fyrir rétt tryggðu frönsk yfirvöld
ekki frjálst flæði vöru og fólks um
landið.
■ Verkfallið veldur/21
Mál bresku barnfóstrunnar
Niðurstaða á vefsíðu
Cambridge. Reuters.
BÚIST er við því að dómari í máli
á hendur bresku barnfóstrunni
Louise Woodward noti alnetið
(Internet) til þess að birta úrskurð
sinn vegna kröfu verjenda um að
málið verði ómerkt.
Heimildir í réttinum sögðu í gær
að allt eins gæti farið svo að Hiller
B. Zobel dómari tæki afstöðu til til-
mæla verjenda Woodward í dag,
miðvikudag. Þeir fóru þess á ieit
við hann í gær að hann ómerkti
sakfellingu hennar eða stytti lífs-
tíðar fangelsisdóm yfir henni.
■ Dómuri/2