Morgunblaðið - 05.11.1997, Blaðsíða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Djúpsteikt hjörtu
og karamellu-
búðingnr
Ef við djúpsteikjum hjörtu, segir
Kristin Gestsdóttir, verða þau meyr
eins og fínustu lundir.
DJÚPSTEIKING er kjörin aðferð
við að matreiða hjörtu og þau
soga enga feiti í sig. Ótrúlegt
er hversu meyr þau verða. Óll
þekkjum við sennilega að hjörtu
meyrna seint við suðu. Leggja
má hjörtun í kryddlög áður en
þau eru steikt sem er raunar
óþarfi þar sem hjörtu eru bragð-
mikil og ljúffeng og þurfa ekki
annað en salt og pipar. Stein-
selja hentar vel með hjörtum og
hana má djúpsteikja í feitinni
þegar búið er að steikja hjörtun.
Ég á ekki djúpsteikingarpott en
djúpsteikti hjörtun í litlum potti
með u.þ.b. ’A lítra af matarolíu.
Um daginn bauð ég gestum í
djúpsteikt hjörtu með steinselju
og ljúffengan karamellubúðing á
eftir en hann er búinn til úr ný-
mjólk og eggjum og er léttur í
maga þó sætur sé.
Hreinsun á hjörtum
Skolið hjörtun undir köldu renn-
andi vatni, þerrið síðan með eld-
húspappír. Örþunn himna umlyk-
ur hjörtun og í henni sitja mör-
kleprar. Reynið að fjarlægja þessa
himnu og þá fylgir mörinn með.
Klippið síðan himnur og æðar úr.
jjppskriftin að djúpsteiktu
hjörtunum og steinseljunni hér á
eftir er úr bók minn 220 ljúffeng-
ir lambakjötsréttir sem kom út
árið 1984. Ég breyti þó uppskrift-
inni örlítið með því að sleppa
salsaprontasósunni og setja app-
elsínusafa í staðinn.
Djúpsteikt hjörtu og
steinselja
handa 5
____________5-6 hjörtu__________
_______1 dl matarolía í löginn__
_________4 msk sítrónusafí______
__________1 'A tsk fint salt____
____________'A tsk pipar________
__________1 msk. soyasósa_______
_________Va dl appelsínusafi____
_______10 dropar tabaskósósa
nokkrar greinar fersk steinselja
1. Skerið hjörtun í rif.
2. Blandið saman matarolíu, sítr-
ónusfa, salti, pipar, soyasósu, app-
elsínusafa og tabaskósósu. Leggið
hjartaræmurnar í löginn, látið þekja
þær alveg og látið standa á eldhús-
borðinu í 2 klst.
3. Hitið olíuna, þerrið hjartarifín
með eldhúspappír og steikið í feit-
inni í 4-5 mínútur á hvorri hlið.
Takið einn bita upp úr feitinni og
skerið í tvennt til að athuga hvort
þetta sé gegnsteikt, en ekki má
blæða úr.
4. Steikið steinseljugreinamar
örstutt í feitinni í lokin.
Meðlæti: Soðnar kartöflur, gul-
rætur, strengjabaunir og krydd-
smjör.
Athugið: Hjörtun og steinseljuna
þarf að borða alveg strax.
Karamellubúðingur
handa 5
Notið eldfasta frekar víða skál.
Karamellan:
2 dl sykur
1 dl vatn
1. Hitið frekar stóra pönnu, stráið
sykrinun jafnt yfir og látið bráðna
og taka lit, en gætið þess að þetta
brenni ekki.
2. Hellið vatninu varlega út í og
sjóðið þar til karamellan er samfelld
og hefur þykknað örlítið.
3. Hellið inn í skálina og haliið
henni og snúið þannig að karamell-
an fari upp eftir börmunum.
Búðing-urinn:
____________1 lítri mjólk________
1 tsk vanilludropar
______________5 egg______________
___________2 eggjarauður_________
_____________1 dl sykur__________
_____________1 dl ijómi__________
1. Hitið bakaraofn í 200°C, blást-
ursofn í 180°C.
2. Þeytið egg, eggjarauður og
vanilludropa.
3. Hitið mjólkina að suðu, hellið
saman við eggjahræruna og þeytið
saman. Hellið síðan í skálina með
karamellunni.
4. Setjið skálina ofan í aðra eld-
fasta skál með heitu vatni eða notið
steikingarpottinn. Látið vatnið ná
vel upp fyrir miðja skálina. Bakið í
50 60 mínútur.
5. Stingið hnífi ofan í miðjuna til
að aðgæta hvort alit er hlaupið sam-
an. Kælið.
6. Þeytið ijóma og berið með.
IDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Slæmt að vera
hundur á
Islandi í dag
FYRIR nokkrum vikum
birtist í Séð og heyrt viðtal
við ung hjón á uppleið en
ekki vildu allir vera sáttir
við orðalag í umræddri
grein og það var brugðið
á það ráð að tala við blaða-
manninn sem sagðist hafa
látið þau lesa textann yfir
og hefðu þau viljað hafa
hann eins og hann var.
Vildi blaðamaðurinn tala
við þá konu sem hafði veg
og vanda af umræddu at-
riði en þar sem hún var
ekki athyglissjúk vildi hún
ekki sinna því. Og stóð nú
stál í stál. Svo skotið var
á fundi og sá seki fundinn.
Reyndist hann vera heimil-
ishundurinn.
230626-4059.
Bragð valdhafa
ÞAÐ er með ólíkindum
hvað allir falla fyrir hinu
margnotaða bragði núver-
andi valdhafa að hækka
gjöld upphaflega mikið
meir en raunveruleg ætlun
var, t.d. með hækkun nú-
verandi símagjalda og
þykjast svo vera að láta
undan þrýstingi og draga
hluta hækkunarinnar til
baka. Og allir trúa að tek-
ist hafi að knýja fram
nokkra lækkun.
Eiríkur
Athyglisverður
umræðufundur
SÍÐAST liðinn sunnudag
var mjög svo athyglisverð-
ur umræðufundur í Loft-
salnum í Hafnarfirði. Þar
sátu fyrir svörum guð-
fræðingarnir Björgvin
Snorrason og Steinþór
Þórðarson. Umræðuefnið
var Spíritisminn og kirkj-
an. Ræddu þeir um spá-
dóma Biblíunnar og hvern-
ig þeir passa inn í mann-
kynssöguna og var síðar
fjallað um sálina, hvort
hún væri ódauðleg og
hvort spíritisminn sam-
ræmdist kenningum kirkj-
unnar og kom þar margt
athyglisvert í ljós. Guð-
fræðingarnir sátu fyrir
svörum og voru svör
þeirra greinargóð og skýr
og var fróðleikur þeirra
um þessi mál afar mikill.
Næstkomandi tvo sunnu-
daga verður framhald á
þessu og verður þá meðal
annars rætt hvar dánir séu
í dag og hvað þeir aðhaf-
ist.
Við viljum hvetja fleiri
til að mæta í Loftsalinn,
Hólshrauni 3, Hafnarfirði
(húsi Skútunnar) nk.
sunnudag kl. 14.
Steinunn Theodórsdóttir,
Sandra Mar Huldudóttir.
Auglýsing
frá Smash
ÞEGAR við vorum að skoða
nýja tölublað Undirtóna
komum við auga á auglýs-
ingu tískuvöruverslunar-
innar Smash aftast í blað-
inu. Þar voru þau að aug-
lýsa svonefnd hip-hop (víð)
föt, sem þeir áttu von á í
nýrri búð sinni í Borgar-
kringlunni. Einhverra hluta
vegna var mynd af hverri
einustu fyrirsætu í auglýs-
ingunni af hörundsdökkum
manneskjum. Hvemig í
ósköpunum koma þeldökk
skólabörn í skólastofu hip-
hop klæðnaði við? Og Mike
Tyson, aldrei sé ég hann
klæðast hip-hop fötum.
Einnig Ray Charles, tónlist-
armaðurinn víðfrægi, ætli
hann gangi í hip-hop
klæðnaði? Við bara spyij-
um. Þar sem Smash kallar
sig tískuvöruverslun, er
hún þar með að koma því
á framfæri að þeldökkt fólk
sé í tísku?
Bara svona að pæla í
þessu.
Ungir menn.
Tapað/fundid
Gleraugu í óskilum
GLERAUGU fundust í
Ásgarði í sl. viku. Uppl. í
síma 553-3596.
COSPER HÖGNIHREKKVÍSI
Yíkverji skrifar...
AÐ er alltaf hvimleitt þegar
fjölmiðlar éta upp fréttir úr
öðrum fjölmiðlum og fara með eins
og þeirra eigin fréttir væru. Vík-
veiji hlustar undantekningalítið á
morgunfréttir Ríkisútvarpsins kl.
7.00 sem oftar en ekki eru byggðar
á helstu fréttum Morgunblaðsins
þann sama dag. Víkverji hefur í
gegnum árin orðið þess áskynja,
að það er algjörlega undir því kom-
ið, hvaða fréttamaður er með morg-
unvaktina hveiju sinni, hvort heim-
ilda að fréttum Ríkisútvarpsins er
getið. Ákveðnir fréttamenn hafa
það greinilega sem starfsreglu, að
vitna ekki í fréttir annarra fjöl-
miðla, án þess að geta heimildarinn-
ar og er það sjálfsögð vinnuregla,
sem ætti að gilda um alla, en ekki
bara ákveðna fréttamenn. Aðrir
fréttamenn lesa beinlínis orðrétt
upp úr Morgunblaðinu, taka
kannski fyrstu tvær þijár máls-
greinarnar orðréttar upp og fara
með eins og þarna hafí frétt verið
unnin af fréttastofu RÚV.
xxx
FYRIR réttri viku var fyrsta inn-
lenda fréttin í fréttatíma Rík-
isútvarpsins kl. 7.00 að morgni um
samninga sem tókust kvöldinu áður
í Ósló um heildarveiði úr norsk-
íslenska síldarstofninum á næsta
ári. Fréttamaðurinn las blygðunar-
laust upp svo til alla baksíðufrétt
Morgunblaðsins þennan dag, án
þess nokkru sinni að geta þess,
hvar hún hefði leitað fanga. Eru
þetta boðleg .vinnubrögð?! í átta-
fréttunum, klukkustund síðar, hafði
fréttamönnum tekist að koma sín-
um fingraförum á fréttina, með því
að ná símasambandi við Jóhann
Siguijónsson sendiherra á hóteli í
Ósló. Hann gaf fréttamanni RÚV
sömu upplýsingar, svefndrukkinni
röddu og hann hafði veitt Morgun-
blaðinu kvöldinu áður og ekkert
umfram það. Því miður eru svona
vinnubrögð einstakra fréttamanna
allt of algeng, en Víkveija er kunn-
ugt um að þau eru brot á þeim
starfsreglum sem fréttastofan setur
fréttamönnum sínum.
xxx
MARGIR hafa beinlínis ánægju
af því að skammast út í Póst
og síma, sem hefur enn eina ferðina
orðið deginum ljósara undanfarna
daga, í háværum mótmælum vegna
nýrrar gjaldskrár Pósts og síma.
Það þurfti íhlutun Davíðs Oddsson-
ar forsætisráðherra sl. föstudag til
þess að fá gjaldskránni breytt. Vík-
veiji hallast að því að þjóðin sé
orðin svo langþreytt á einokun þess-
arar stofnunar að nýrri samkeppni
á þessu sviði verði tekið opnum
örmum af landsmönnum.
xxx
ENN eitt dæmið um óhóflega
verðlagningu Pósts og síma,
er gjaldskráin sem fyrirtækið setur
upp fyrir svokallaðar hringilínur.
Víkveiji minnist þess að í Dagsljósi
í síðustu viku hafí áhorfendum stað-
ið til boða að lýsa skoðun sinni á
því hvort nýir kjarasamningar kenn-
ara myndu leiða til betra skólastarfs
eða ekki og voru af því tilefni gefin
tvö símanúmer á skjánum, annað
fyrir já og hitt fyrir nei, jafnframt
því sem upplýst var að símtalið kost-
aði 26 krónur. Á föstudaginn bauð
svo fréttastofa bresku sjónvarps-
stöðvarinnar Sky upp á sams konar
innhringingar áhorfenda, þar sem
áhorfendur áttu að lýsa skoðun sinni
á því hvort breska bamapían sem
hafði verið fundin sek um bams-
morð í Boston, hefði hlotið sann-
gjarnt réttarhald eða ekki. Slík
hringing inn til sjónvarpsstöðvarinn-
ar átti að kosta 10 pence, eða 11
krónur og 80 aura. Hvemig í ósköp-
unum stendur á því að þjónusta sem
þessi kostar næstum 2,5 falda upp-
hæð á við það sem gerist í Bret-
landi? Það skyldi þó aldrei vera að
muninn mætti skýra með einokun á
íslandi, en samkeppni í Bretlandi!