Morgunblaðið - 05.11.1997, Blaðsíða 48
48
■i—
MIÐVIKUDAGUR 5. NOVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRETTUM
ÞETTA voru mjög góðir tón-
leikar, en ein klukkustund
er of stuttur tími með Björk,
sögðu aðdáendur hennar í Hall
Schaerbeek í Brussel á sunnudags-
kvöld. Þá hóf Björk ásamt fríðu
föruneyti næm tveggja mánaða
tónleikaferð um Evrópu og Banda-
ríkin til að kynna geislaplötuna
Homogenic sem út kom í haust.
Tónleikagestir sem blaðamaður
talaði við sögðu tónlist Bjarkar
hafa breyst mikið með nýju plöt-
unni þótt hún sjálf héldi sérkenn-
um sínum og raddbeitingu.
„Tónlistin er alvarlegri," sagði
ungur Belgi sem kvaðst fylgjast
grannt með því sem Björk gerir,
„og á vissan hátt ópersónulegi'i eða
kaldari." Um þetta greinir fólk á,
sumir tónlistargagnrýnendur
sögðu um Homogenic að þetta
væri hlýjasta plata Bjarkar. Kona
sem virtist vera jafnaldra söngkon-
unnar, um þrítugt eins og margir á
tónleikunum, sagðist hafa hugsað,
þetta er rauð tónhst eða rauðgul,
þegar hún heyrði plötuna. „Þess
vegna varð ég ánægð og ekki hissa
að sjá þessa liti í sviðsmyndinni,
sérstaklega í upphafi,“ sagði hún.
Sviðsmyndin eða ljósin minntu í
byrjun á innviði líkama og síðan
var kastljósum ýmist beint fram í
salinn eða ljós notuð á sviðinu til
að kalla fram áhrif á sjó, geimi eða
því sem tengist framtíð og kannski
vísindum. 2.000 manna salur
Schaerbeek í samnefndu hvei'fi í
Brussel var þéttskipaður milli átta
og níu á sunnudagskvöld og laust
eftir klukkan níu komu stengja-
leikarar og svo Björk inn á nær
myrkvað svið. Ljósmyndari sem
Morgunblaðið fékk á tónleikana
var vonsvikinn yfir því að hafa
ekki séð Björk almennilega meðan
hann mátti mynda, hún var hálffal-
in vegna lýsingarínnar, en tón-
leikagestir voru greinilega hrifnir
áf útkomunni. Björk flutti vitan-
lega lög af Homogenic og eldri lög
sem flestir ef ekki allir í salnum
þekktu.
Rafmagnaður kraftur
og klassískir strengir
Björk hreyfði sig talsvert á
sviðinu, söng ekki bara til
þeirra sem voru þar beint
fyiár framan, og þau hlaup og
kraftur í hreyfingunum mynduðu
ákveðna mótsögn við tónlistina. I
henni er vissulega kraftur en mörg
-ríögin frekar hæg, með magnaðri
undiröldu úr rafmagnsbúri Mark
Bell. Á fyrstu tónleikum ferðarinn-
ar stendur Richard Brown á svið-
inu fyrir hann, hógvær náungi sem
heilsaði uppá blaðamann eftir tón-
leikana í Brussel meðan rætt var
við fiðlu- og sellófólk.
Þegar Björk þakkaði fyrir sig
eftir lögin brostu margir í salnum,
sennilega af því að með einu orði
náði hún til þeirra sem stelpan
Björk. „Þegar hún söng var hún
hins vegar tónlistarkona sem náð
hefur miklum þroska og svo er hún
stjama, sem maður fellur í hálf-
gerðan trans við hlusta á,“ sagði
•iiíranskur tónleikagestur í Bjarkar-
bol. Hann var í fylgd með yngri
manni í bol með Sykurmolamynd
yfir skyrtunni og sá var, eins og
fleiri, með lítinn kíkí til að missa
ekki af neinu.
Með Björk ferðast átta manna
sveit ungra strengjaleikara, ís-
lenski strengjaoktettinn, og svo
raftónlistarmaðurinn, ýmsir tækni-
menn, raddþjálfari og líkamsrækt-
arþjálfarinn Magni Erlendsson,
sem sér um að teygt sé úr baki og
slakað á vöðvum. Hann sagði það
.^alveg nauðsynlegt fyrir manneskju
mndir svo miklu álagi, ekki dygði
að allt færi í hnút. Eflaust skila
teygjumar sér því þótt Björk hafi
verið hálflasin dagana fyrir tón-
leikana gat fólk í salnum ekki bet-
ur séð en hún væri í íinu formi.
Fleira aðstoðarfólk er í ferðinni
og alls er þetta um 25 manna hóp-
BJÖRK Guðmundsdóttir
Strengir og
rafmagn í rútu
og á hótelum
Tónleikaferð Bjarkar ásamt átta manna
íslenskri strengjasveit hófst í Brussel á
sunnudaginn. Þórunn Þórsdóttir fór þang-
---------------y---------------
að og segir hér frá. I kvöld verður Björk
í Frankfurt og kemur fram við afhendingu
MTV-tónlistarverðlaunanna á morgun.
Leiðin liggur svo víða um Evrópu og
Ameríku fram í miðjan desember.
ur, stundum fjölmennari. Hönnuð-
urinn Daniel Adric var til dæmis
baksviðs eftir tónleikana í Belgíu,
að brjóta heilann um búning
Bjarkar í MTV-þætti annað kvöld.
Hann teiknaði á tímabili fót með
Jean-Paul Gaultier, en er nú á eig-
in vegum og hefur nokkrum sinn-
um unnið með Björk. „Það er mjög
spennandi og „spontant" eða unnið
hratt af fyngrum fram,“ sagði
hann. „Eg útbý allt sjálfur, föt og
fylgihluti, hvort sem það er risa-
stór bangsi eins og einu sinni eða
tennur eða . . . þú verður að
horfa á verðlaunaafhendinguna í
sjónvarpinu á fimmtudaginn."
Tónlistarkona
Björk og stengjasveitin koma
fram í útsendingu MTV og
þar verða líka eins ólíkar
hljómsveitir og UA og Spice Girls.
Björk er tilnefnd til verðlaunanna
Besta tónlistarkona ársins, en hún
hlaut þau fyrir tveimur árum.
I gærkvöldi voru tónleikar í Am-
sterdam, vel heppnaðir að sögn
leiðangursmanna, sem héldu næst-
um strax af stað í tveggja hæða
rútu hópsins, nþttina eftir tónleik-
ana í Brussel. Áður gafst tími til að
tala við nokkra hljóðfæraleikara í
strengjasveitinni; Jón Ragnar
Ornólfsson, sem fer fyrir henni, Sif
Tulinius, Sigurbjörn Bernharðsson
og Imu Þöll Jónsdóttir. Þau sögðu
svosem ekki nýtt að nota „klass-
íska strengi" í nýrri tónlist, Zappa
og McCartney hefðu gert það en
kannski ekki svona mikið á tónleik-
um.
„Við spilum alveg eins og þetta
sé sígild tónlist," sagði Jón, „mað-
ur beitir sér eins og í hverju öðru
verki,“ bætti Sigurbjörn við,
„en hljóðheimur-
er auðvitað allt annar.“ Sif sagðist
þekkja svolítið svona stífar tón-
leikaferðir, þessi væri rétt að
byrja, en yrði örugglega mjög
skemmtileg. „Maður þarf að passa
að jafna orkuna yfir tímabilið, það
er stress en líka mikil útrás að
spila svona oft og víða fyrir fjöl-
menni.“ Sigurbjöm sagði.slík tæki-
færi afar sjaldgæf í sígildri tónlist
og þetta væri frábær tilbreyting
frá tónlistarnáminu.
Strengjaoktettinn lék 6 lög inn á
Homogenic í mars, en platan var
hljóðrituð nærri Marbella syðst á
Spáni. Þangað fór Björk til að
komast frá Bretlandi og íslandi,
áhrifum og verkefnum sem trufl-
uðu. En samt er Homogenic afar
islensk plata, hefur Björk sagt
sjálf og sumir erlendir gagn-
rýnendur. Kannski vegna þess að
landið er svo sterkt í Björk, „ekki
hægt að taka það úr henni,“ sagði
tónlistargagm-ýnandi Times, og
kannski líka vegna samvinnu við
íslenska tónlistarfólkið.
Sigrún Eðvaldsdóttir var í
stengjasveitinni við upptökurnar
en Ima Þöll kemur í hennar stað á
tónleikunun. Nema í Bretlandi, þar
sem Sigrún spilar. Auk þeirra sem
þegar era nefnd skipa sveitina þau
Guðrún Hrand Harðardóttir, Mó-
eiður Anna Sigurðardóttir, Una
Sveinbjarnardóttir og Sigurður
Bjarki Gunnarsson.
Evrópa, Bandaríkin,
íslensk jól og plata
Þriðju tónleikar ferðarinnar
verða í Frankfurt í kvöld,
svo fer hópurinn til Rotter-
dam að spila í sjónvarpsþættinum
annað kvöld og síðan verða tón-
leikar í Flórens á föstudaginn.
Næst kemur Lusanne þann 9. og
París þann 10. Þá London 12. og
13. nóvember, Edinborg þann 15.
og Dublin þann 17. Björk verður í
Kaupmannahöfn 20. nóvember og
Stokkhólmi 22. Svo verður gert
tveggja vikna hlé en haldið til
Bandaríkjanna 6. desember. Þar
verður á tíu dögum farið til
Boston, New York, San Francisco,
Los Angeles, Seattle og Chicago.
Að svo búnu er tími fyrir laufa-
brauð og smákökur, en eftir jólafrí
mun Björk hyggja á upptökur
nýrrar plötu. Það verður þá vænt-
anlega 16. plata hennar, ef taldar
eru plötur með Sykurmolunum,
Kuklinu og Tappa tíkarrassi.
Björk hefur sungið eða spilað á
fleiri plötum og endurunnið lög
fyrir aðra tónlistarmenn, nokkuð
sem hún segist vilja gera meira af
í framtíðinni. Hún vilji ekki endi-
lega vera bara söngkona, heldur
tónlistarmaður. Gagnrýnendur
Homogenic segja margir ótrú-
legt að hægt sé að gera betur
en á Homogenic, en þeir þurfa
kannski að éta það oní sig.
Björk hefur sagt Debut og
Post eins konar fortíðarplöt-
ur, þar sem unnið var úr upp-
söfnuðum hugmyndum, en
Homogenic sé í núinu eða
næstum því. Textarnir era
greinilega uppgjör ástar-
sambands, margir þeh’ra
að minnsta kosti, og þótt
þeir hafi harðan brodd er
mikil bjartsýni í þeim og
hvatning til annarra. Um
það til dæmis að treysta
því að þeir verði elskað-
ir, það sé öraggt, þeir
horfi kannski í rangar
áttir og taki ekki við.
Þessi skilaboð hafa
borist meira en milljón
manns sem keypt hef-
ur Homogenic nú
þegar og 1.500 til
3.000 áheyrendur fá
að heyra þetta á
hverjum tónleikum.
Þar er heildar-
myndin framtíðar-
leg og ef til vill að
því leyti forsmekk-
ur að næstu plötu,
nýrri Björk.