Morgunblaðið - 05.11.1997, Page 8

Morgunblaðið - 05.11.1997, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Póstur og sími: Davíð tók \ taumana Halldór Blöndal samgönguráö herra fór á fiind Davlös Oddssonar forsætisráöherra t Ráöherrabú- staönmn 1 gærmorgun. Skilaboöin aö loknum fiindi voru á þá leiö að Halidór var sendur heim til aö vinna betur helmadæmin sin. GRENJAÐU bara, ómyndin þín. Þú veist að „svona gera menn ekki“. Blað allra landsmanna! - kjarm malsms! Efling rannsóknartengds framhaldsnáms Leitað til fyrir- tækja og stofnana með námsstyrki Stjóm Rannsókna- námssjóðs og Rann- sóknarráð íslands gerðu tilraun á þessu ári með að leita samstarfs um styrki sem auglýstir voru nýlega. Með þessu fram- taki var verið að stuðla að aukinni samvinnu í rann- sóknum og þróun milli fýr- irtækja, stofnana og há- skóla. Anna Soffía Hauksdóttir er formaður stjómar Rann- sóknanámssjóðs. Hún segir að Rannsóknanámssjóður hafi verið stofnaður með 8 milljón króna framlagi sem hækkað var í 25 milljónir á fjárlögum árið 1994. „Með stofnun sjóðsins var vísindaleg framhalds- menntun á háskólastigi efld, fyrst með styrkjum til meist- aranáms við háskólann en nýlega með útvíkkun sem nær til meist- ara- og doktorsnáms við hérlenda háskóla og erlenda. - Hefur verið mikið sótt um styrki? „Það hefur verið gríðarleg eft- irspurn og við teljum ríka ástæðu til að efla sjóðinn. Þessi styrkir eru tvímælalaust góð fjárfesting og mikil og góð rannsóknavinna fæst unnin á hagkvæman hátt. Frá upphafi hefur fjórum sinnum verið úthlutað úr honum, alls 107 milljónum króna.“ Anna Soffía segir að síðast þegar styrkir voru veittir hafi 44 af um 70 umsóknum komið sterk- lega til greina. „Því miður höfðum við einungis fjármagn til að veita 20 umsækjendum styrki." - Hversvegna var ákveðið að leita til fyrirtækja og stofnana eftir stuðningi? „Ástæðurnar eru nokkrar. í fyrsta lagi þá hafa fyrirtæki og stofnanir í þónokkrum mæli styrkt nemendur. Kosturinn við að gera þetta í gegnum sjóðinn er að þá fara styrkveitingar í ákveðinn farveg og auglýst verð- ur eftir styrkþegum sem keppa síðan um styrki á jafnréttis- grunni. Annar kostur við þetta fyrirkomulag er að sjóðurinn set- ur strangar gæðakröfur og gerir miklar kröfur til bæði nemanda, leiðbeinanda og verkefnis. Við teljum því að þetta fyrirkomulag sé fyrirtækjum og stofnunum í hag því verkefnin hafa allar for- sendur til að ganga vel.“ Anna Soffía segir að tengsl háskóla við atvinnulíf séu mikil- væg. „Með þessu móti fá fyrir- tæki inn til sín nemendur sem eru að vinna að mikil- vægum verkefnum fyr- ir viðkomandi fyrirtæki eða stofnun. - Hvernig hafa við- brögð fyrirtækja og stofnana verið? „Eftir að hafa núna unnið í nokkra mánuði að kynningu þess- ara nýju svokallaðra FS styrkja hafa tólf fýrirtæki og stofnanir ákveðið að taka þátt í þessu með okkur. Fleiri eru í farvatninu.“ - Hvernig er fyrirkomulagi styrkjanna háttað? „Rannsóknanámsjóður og Rannsóknaráð íslands, ásamt viðkomandi fyrirtækjum og stofnunum auglýstu þessa styrki til umsóknar sameiginlega. Um- sóknir fara síðan í strangt mat þegar þær berast og að því loknu verður mælt með veitingu styrks eða höfnun.“ Anna Soffía Hauksdóttir ► Anna Soffía Hauksdóttir fæddist 7. júní árið 1958. Hún lauk rafmangsverkfræðiprófi frá Háskóla Islands árið 1981 og meistara- og doktorsprófi í stýritækni árið 1983 og árið 1987 frá Ohio State University. Hún tók til starfa þjá Kerfis- verkfræðistofu Verkfræði- stofnunar Háskólans að loknu námi. Anna Soffía varð pró- fessor við rafmagnsverkfræði- skor verkfræðideildar árið 1988 og hefur jafnframt verið forstöðumaður Kerfisverk- fræðistofu frá árinu 1992. Eiginmaður Önnu Soffíu er Þorgeir Óskarsson sjúkraþjálf- ari og eiga þau tvö börn. Ráðstöfun- arfé sjóðsins næstum tvö- faldast Anna Soffía segir að þegar búið sé að mæla með umsóknum sé veiting styrks háð endanlegu samþykki fyrirtækis eða viðkom- andi stofnunar. Ef að veitingu styrks verður greiða fyrirtæki eða stofnanir til rannsóknar- námssjóðs sem greiðir síðan styrkhafa. - Hversu háar fjárhæðir er um að ræða til hvers og eins? „Hver styrkur er Ein til tvær milljónir á ári en inni í þeirri fjár- hæð er gert ráð fyrir fram- færslu, leiðbeingakostnaði, kostnaði vegna námskeiða og rekstrarkostn aði. “ - Nú eru þetta flest styrkveit- ingar á sviði raungreina og verk- fræði. Hvað með styrkveitingar á sviði félagsvísinda og hugvís- inda? „Við höfum mikinn áhuga á að leita til fyrirtækja og stofnana á sviði heilbrigðisvísinda, hug- og félagsvísinda. Við munum halda áfram að vinna að því og höfum fengið Rann- sóknaþjónustu Há- _________ skólans í lið með okk- ur. “ - Hversu háar fjárhæðir söfn- uðust hjá fyrirtækjum og stofn- unum að þessu sinni? „Ef allir styrkir ganga út erum við að tala um fjárhæðir á bilinu 15-20 milljónir. Það þýðir í raun að við erum næstum að tvöfalda ráðstöfunarfé sjóðsins ef vel tekst til. Ef hægt væri síðan að auka grunnfjárveitingu til Rann- sóknanámssjóðs þannig að unnt væri að veita til dæmis 50% mótframlag á móti fyrirtækjum og stofnunum fengjum við áreið- anlega mjög marga í lið með okkur. Þannig myndi ráðstöfun- arfé sjóðsins aukast verulega."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.