Morgunblaðið - 05.11.1997, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
BYGGÐAMÁL í FINNLANDI
í áætlunum Evrópusambandsins
séu ákveðin markmið og menn viti
hvaða fjármagn þeir hafi. Hins
vegar sé því ekki að leyna að ESB
hafí með þessu í raun veruleg áhrif
á stefnuna í Finnlandi. Ekestam
telur það einnig kost að heima-
menn þurfi að útvega mótframlög.
Það krefjist samvinnu fyrirtækja,
ýmissa ráðuneyti og fulltrúa hérað-
anna.
Gallinn á ESB-áætlunum er hins
vegar sá hvað kerfið er flókið og
gríðarleg skriffinnska sem þeim
fylgir. Eins er það neikvætt, að
minnsta kosti frá sjónarhóli Evr-
ópusambandsins, að viðtakandi
peninganna sér ekki hvaðan þeir
koma. Eins og lengi hefur þekkst
í Finnlandi á fyrirtæki eða einstakl-
ingur sem fullnægir settum skil-
yrðum rétt á styrk til stofnunar
fyrirtækis eða nýrra verkefna, en
þar sem blandað er saman ríkis-
styrk og styrk frá ESB kemur hlut-
ur Evrópusambandsins ekki sér-
staklega fram.
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyt-
ið hefur skipt landinu upp í svo-
kölluð þróunarsvæði og er þar
miðað við framleiðslu á íbúa, at-
vinnuleysi, búferlaflutninga, at-
vinnulíf og þéttleika byggðar.
Samanlagður ríkisstyrkur má vera
að hámarki 35% á þeim svæðum
sem teljast til þriðja stuðnings-
svæðis, 27% á öðru svæði og 20%
á því þriðja. Heimilt er að styrkja
lítil og meðalstór fyrirtæki heldur
meira. Við bætast svæði sem njóta
tímabundið styrkja af sérstökum
ástæðum. Tæplega 42% þjóðar-
innar býr á stuðningssvæðunum
en þau ná yfir meginhluta lands-
ins, aðeins syðstu héruðin og ein-
staka lítil svæði úti um landið eru
þar utan við. Svæðin sem ekki
njóta stuðnings eru eðli sínu sam-
kvæmt yfirleitt þéttbýlustu héruð
landsins. Hámarksstyrkur var
heldur meiri fyrir daga Evrópska
efnahagssvæðisins en Finnar hafa
orðið að draga úr honum. Þá hef-
ur framlag Finna til byggðastefnu
almennt minnkað vegna fjárlaga-
halla og niðurskurðar á útgjöldum
ríkisins.
Miklir styrkir
frá ESB
Evrópusambandið hefur eigin
flokkunarreglur og stuðningskort
þess er grófara en finnska kortið.
Norður- og austurhluti landsins
fellur undir Markmið ESB nr. 6
sem ætlað er að þróa mjög stijál-
býl svæði, Markmið 5b eiga að
stuðla að aðlögum landbúnaðar og
ná yfir héruð í mið- og vesturhluta
landsins og Markmið 2 ná til ein-
staka svæða sem orðið hafa sér-
staklega fyrir barðinu á samdrætti
í atvinnulífinu. Á þessum svæðum
búa tæplega 54% þjóðarinnar, tals-
vert fleiri en á svæðum sem Finnar
sjálfir hafa flokkað sem þróunar-
svæði. Á ESB-kortinu er þá eftir
smá skák út frá höfuðborginni og
þrjú lítil svæði til viðbótar. Fyrir-
tæki í Helsinki og nágrenni geta
eins og önnur notið stuðnings sam-
kvæmt Markmiðum ESB nr. 3, 4
og 5a, ef þar er að finna þau vanda-
mál sem styrkjum er ætlað að
vinna gegn.
í riti Jan Mönnesland, Regional
Policy in the Nordic Countries,
kemur fram að ríkisstuðningur við
byggðaþróun í Finnlandi nam lið-
lega þúsund milljónum fínnskra
marka á síðasta ári, sem svarar
til tæpra 15 milljarða íslenskra
króna, en er áætlaður 865 milljón-
ir í ár, eða 3 milljörðum kr. minni.
Áætlað er að Evrópusambandið
leggi til sinna áætlana í Finnlandi
á árunum 1995 til 1999 hátt í 1,7
milljarða ECU, eða nálægt 136
milljörðum ísl. króna. Þar af ganga
68 milljarðar til byggðaþróunar-
verkefna samkvæmt Markmiðum
2, 5b og 6. í heild veija finnska
ríkið og Evrópusambandið því ná-
lægt 30 milljörðum íslenskra króna
til atvinnuþróunar á landsbyggð-
inni á hveiju ári. Þetta eru háar
fjárhæðir. Til samanburðar má
geta þess að í riti Mönnesland
kemur fram að beinir ríkisstyrkir
til byggðastefnu á íslandi námu
um 130 milljónum kr. á síðasta
ári og verða um 110 milljónir í ár.
Samanburðurinn er íslendingum
óhagstæður, hvernig svo sem á
tölumar er litið. Ef byggðastyrk-
irnir eru reiknaðir á hvern íbúa
þessara tveggja landa sést að í
Finnlandi er varið tólf sinnum
hærri fjárhæð til þessa málefnis
en hér á landi. Norðmenn og Svíar
virðast ekki vera eins stórtækir,
en þeir veita þó margfalt meira fé
til byggðaþróunar en íslendingar.
Mesti vandinn
á Islandi
Nú er auðvitað ekki hægt að
setja samasemmerki milli ríkis-
styrkja til byggðastefnu og árang-
urs og í raun afar erfitt að meta
árangur byggðastefnu, sérstak-
lega milli landa þar sem aðstæður
eru ólíkar. Ef litið er á staðreyndir
um þróun mála í Finnlandi vekur
athygli hvað fólksflutningar eru
litlir frá landsbyggðinni þrátt fyrir
mikið atvinnuleysi. Hér á íslandi
er mikill fólksflótti frá landsbyggð-
inni þó ekki sé þar almennt at-
vinnuleysi. Hins vegar er afar lítið
um störf fyrir langskólagengið
fólk.
Vandinn var mikill í Finnlandi
fram yfir 1970 en síðan hefur tek-
ist að koma þróuninni í eðlilegra
horf. Enn eru þó vandamál í norð-
ur- og sérstaklega austurhéruðum
landsins en þar hafa jafnframt
opnast tækifæri til framfara. Að-
ildin að Evrópusambandinu tryggir
héruðunum fjármagn til að vinna
að ýmsum verkefnum og sumir
ganga svo langt að segja að aðild-
in að Evrópusambandinu hafí
tryggt framtíð atvinnuþróunar á
landsbyggðinni. Viðmælendur í
Finnlandi segja erfitt að meta þátt
byggðastefnunnar og annarra
þátta. Hins vegar megi spyija hvað
hefði gerst ef byggðastefnu hefði
ekki verið fylgt.
Mörg hættumerki má sjá á ís-
landi í þessu efni. Hér er eins og
límið sé að losna úr byggðinni. I
riti umræddri skýrslu NOGRAN
má sjá að landsbyggðin á íslandi
hefur á árunum 1990-1995 tapað
árlega tvöfalt fleira fólki hlutfalls-
lega en það svæði í Finnlandi sem
misst hefur langflesta íbúana.
Umrætt hérað, Kainuu, er það
svæði í Skandinavíu sem verst
hefur farið út úr umróti síðustu
ára. Það tapaði 5,5 prómill íbúanna
að meðaltali á hverju ári en af
landsbyggðinni á Islandi flutti
ll,3%o íbúanna á hveiju ári þetta
tiltekna tímabil. Lappland tapar
aðeins fjórðungi þess fólks sem
landsbyggðin á íslandi missir og
Norður-Noregur, svo annað dæmi
sé tekið, missir aðeins l-2%o íbú-
anna. Til samanburðar má einnig
geta þess að Finnmörk tapaði ll%o
íbúanna á hveiju ári 1980-89 en
aðeins 2,l%o 1990-95.
Til þess að finna einhverjar
tölur í líkingu við það sem hér
sést á þessum áratug verður að
fara til Grænlands og Færeyja.
Þar er hins vegar ekki sama viðn-
ámið í borgunum og höfuðborgar-
svæðið virðist vera hér, og liggur
þungur straumur því frá Færeyj-
um og Grænlandi á umræddum
árum.
Ástandið á Islandi er að versna,
eins og komið hefur fram í fréttum
að undanförnu. Ef svipuð þróun
verður út árið og sást fyrstu níu
mánuði ársins stefnir í að 2000
manns flytji frá landsbyggðinni til
höfuðborgarsvæðisins umfram þá
sem flytja út á land.
Hér á landi hefur lengi verið
neikvæð umræða um atvinnuþróun
á landsbyggðinni. Mikið hefur til
dæmis verið talað um sóun al-
mannafjár við framkvæmd
byggðastefnu. Það bendir til að
eitthvað hafi farið úrskeiðis við
stefnumörkun eða framkvæmd. í
Finnlandi og raunar Svíþjóð og
Noregi, en í öllum þessum löndum
eru byggðastyrkir mun meiri en á
íslandi, virðist byggðastefnan ekki
vera eins umdeild þó oft sé nei-
kvæður tónn í skrifum höfuðborg-
arblaðanna um málefnið.
TRÉSLEGGJUR og viðarkubbar eru notaðir í vinsælli íþrótt í Ilomantsi, borg í austasta sveitarfélagi
Finnlands. Leikurinn gengur út á að kasta kylfunni og reyna að fella viðarkubba andstæðingsins og
koma þeim út úr afmörkuðu svæði. Liðin kasta til skiptis og þeir vinna sem fyrstir hreinsa svæðið.
Þegar blaðamaður var á ferðinni voru margir leikir í gangi og allur íþróttavöllurinn í Ilomantsi undir.
MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997 19
Heildarióga (grunnnámskeið)
Námskeið fyrir þá sem vilja kynnast jóga.
Kenndar verða hatha-jógastöður, öndun,
slökun og hugleiðsla.
Einnig er fjallað um jógaheimspeki, mataræði
o.fl. mán. og mið. kl. 20.00. Hefst 12. nóv.
Leiðbeinandi: Daníel Bergmann.
Búðín okkar — útsala
Rýmum fyrir nýjum bókum og geisladiskum og bjóðum
30% afslátt af flestum titlum. Allar aðrar vörur á 10% afsiætti.
Y06A#
STUDIO
Hátúni 6a
Sími 511 3100
I
SjS'
DUGMIKIL
FJÖLSKYLDA,
TÆKNILEGA SINNUÐ
Minolta fjölskyldan er stór fjölskylda
og annólaðir dugnaðarforkar
SÍÐUMÚL112 108 REYKJAVÍK SÍMI 510 5500 FAX 510 5509
MINOLTA FAXTÆKI
3 tegundir faxtækja,
öll tölvutengjanleg.
Allt í senn; prentari, skanni, fax
og Ijósritunarvél.
MINOLTA LASERPRENTARAR
4 tegundir laserprentara, bæði fyrir
svart/hvítt og lit.
Verð frá kr. 29.925.-
Stgr. verð
MINOLTA LJÓSRITUNARVÉLAR.
Hraði frá 15 upp í 80 eintök pr. mín.
Bæði fyrir svart/hvítt og lit.
Líttu við í nýrri verslun
am NAilrMMii unn n mnrt■viam
MINOLTA
SKÝR MYND-SKÝR HUGSUN
___KJARAN__
TÆKWIBÚNAÐUR