Morgunblaðið - 05.11.1997, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 05.11.1997, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1997 ERLENT MORGUNB LAÐIÐ Norðmenn óttast afleið- ingar kvótaskerðingar Ósl<í. Morgunblaðið. NIÐURSKURÐUR á þorskkvóta í Barentshafí, sem ákveðinn var á fundi ráðgjafanefndar Alþjóðahaf- rannsóknarráðsins um síðustu helgi, kann að minnka tekjur norsks og rússnesks sjávarútvegs um allt að 33 milljarða ísl. kr., að því er fullyrt er í Dagens Nær- ingsliv. Gert hafði verið ráð fyrir um 890.000 tonna þorskkvóta en nú mæla fískifræðingar ekki með að veiðin fari yfír 540.000 tonn árið 1998. Norskir fiskifræðingar hafa reynt að afsaka þennan mikla nið- urskurð en ýmsir talsmenn í norsk- um sjávarútvegi hafa brugðist illa við honum. Aðeins er um tillögu ráðgjafa- nefndarinnar að ræða, endanleg ákvörðun um kvótann verður tekin í lok mánaðarins á fundi norsk- rússnesku fiskveiðinefndarinnar í Petrozavodsk í Karelíuhéraði í Rússlandi í lok þessa mánaðar. Yfirleitt hefur verið farið að tillög- um ráðgjafanefndarinnar. „Það er algerlega óviðunandi að sjávarútvegurinn verði fyrir millj- arðatapi vegna ófullnægjandi rann- sóknaraðferða," sagði Audun Marák, formaður Samtaka smá- Fæðing í háloftunum PÓLSK kona ól í gær stúlkubarn um borð í farþegaþotu ítalska flugfélagsins Alitalia á leið frá Bombay til Rómar, með milli- lendingu í Kúveit. Konan var komin átta mánuði á leið og fæð- ingarhríðirnar hófust skömmu eftir flugtak. Itölsk ljósmóðir var um borð og tók á móti baminu með aðstoð áhafnarinnar. Farþegarnir fögnuðu ákaft þegar þeir heyrðu barnið gráta og flugstjórinn, sem heldur hér á barninu, opnaði kampavínsflösku til að allir um borð gætu skálað fyrir fæðingunni. bátaeigenda, í samtali við Aften- posten. Marák óttast að margir togarar verði nú bundnir við bryggju hálft árið vegna niður- skurðarins og segir marga útgerð- armenn og eigendur smábáta óánægða og jafnvel örvæntingar- fulla vegna tillagna ráðgjafanefnd- arinnar. Oddmund Bye, formaður Norges Fiskarlag, samtaka hagsmunaaðila í norskum sjávarútvegi, varar hins vegar við of hörðum viðbrögðum. Segir Bye að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem sjávarútvegurinn lendi í öldudal, og að hann muni án efa komast upp úr honum sem fyrr. Þá efast Bye um að fullyrðingamar í Dagens NæringsUv um 33 millj- arða tap eigi við rök að styðjast. Rússar gera fiskifræðingum erfitt fyrir Fiskifræðingar sem rætt hefur verið við í Noregi, viðurkenna að þeir hafi komið sér í afar óþægi- lega aðstöðu en segjast hafa reynt að vara við niðurskurðinum á síð- asta ári. Þá hafa þeir bent á að erfitt sé að meta fiskstofnana í Barentshafi út frá þeim gögnum sem þeir hafi í höndum. Rússar hafi neitað norskum fiskifræðingum að gera athuganir á yfirráðasvæðum sínum í Barents- hafi og það hafi gert Norðmönnum erfitt fjóár þar sem þeir hafi orðið að byggja tillögur sínar á líkönum sem gerð hafa verið um veiðar í Norðursjó, að sögn Roald Waage, forstjóra Hafrannsóknarstofnunar- innar norsku. Nyrup Rasmussen Dagsetning atkvæða- greiðslu Kaupmannahöfn. Reuters. POUL Nyrup Rasmussen, forsæt- isráðherra Danmerkur, sagði í gær að þjóðaratkvæðagreiðsla um Am- sterdam-samninginn, nýjan stofnsáttmála Evrópusambandsins, yrði haldin 28. maí næstkomandi. Rasmussen sagði að úrskurður Hæstaréttar frá því á mánudag breytti engu um þetta, en rétturinn heimilaði að ESB-andstæðingar, sem vilja að ESB-aðild Danmerkur verði dæmd i andstöðu við stjórnar- skrána, fengju aðgang að trúnaðar- skjölum ríkisins, sem nýtzt geta obreytt sem sönnunargögn í málinu. „Hæstiréttur býst sjálfur ekki við seinkun [á dómsmálinu] þótt andstæðingarnir fái aðgang að nokkrum skjölum. Ég hef engin áform um að breyta dagsetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og lít ekki svo á að ákvörðun réttarins gefi tilefni til slíks,“ sagði Nyrup á blaðamannafundi. Hæstiréttur hefur gert ráð fyrir að geta kveðið upp dóm í máli ESB- andstæðinganna gegn ríkisstjórn- inni í marz eða apríl næstkomandi. Seðlabankastjóri ESB Frakkar vilja Trichet Boiin. Reutcrs. FRANSKA ríkisstjórnin hefur til- nefnt Jean-Claude Trichet í emb- ætti aðalbankastjóra Seðlabanka Evrópu, sem settur verður á stofn í ársbyrjun 1999 er Efnahags- og myntbandalag Evrópu (EMU) tek- ur gildi. Tilnefningin kemur nokkuð á óvart, þar sem gengið hefur verið út frá því að núverandi yfirmaður Peningamálastofnunar Evrópu, Hollendingurinn Wim Duisenberg, verði fyrsti seðlabankastjóri Evr- ópusambandsins. Þýzk stjórnvöld neituðu í gær að tjá sig um tilnefningu Trichets. Þjóðverjar hafa lýst yfir stuðningi við Duisenberg. Santer hugreystir Letta og Litháa Vilnius, Riga. Reuters. JACQUES Sant- er, forseti fram- kvæmdastj órnar Evrópusam- bandsins, hefur reynt að stappa stálinu í stjórn- völd í Lettlandi og Litháen á ferð sinni um Eystra- saltsríkin undanfarna daga og út- skýra fyrir þeim að þótt ESB hefji ekki aðildarviðræður við þessi ríki á næsta ári hafi engum dyrum ver- ið lokað. Undirbúningur gerir sama gagn og viðræður Santer kom til Vilnius, höfuð- borgar Litháens, á mánudag og ræddi við Algirdas Brazauskas forseta. Brazauskas sagði eftir fund þeirra að hann hefði reynt að sannfæra Santer um að enginn munur væri að ráði á Lettlandi og Litháen annars vegar og Eistlandi hins vegar, en framkvæmdastjórn- in vill bjóða Eistlandi til aðildar- viðræðna strax á næsta ári. Flest- um ber líka saman um að Eistland hafi ráðizt í langróttækustu mark- aðsumbæturnar og sé þar af leið- andi mun betur undir aðild að ESB búið en ná- grannaríkin í suðri. „Ferlið inni- heldur og mun áfram innihalda alla umsækjend- uma tíu frá Austur- og Mið-Evrópu,“ sagði Santer á blaðamannafundi í Viln- ius. „Við útilokum engan og stund- um er gott að rifja upp að undir- búningur getur gert sama gagn og viðræður." Santer heimsótti Riga í Lett- landi í gær og tók þar fram að ríkin fimm, sem ESB hefur lýst yfir að fái aðild að ESB í framtíðinni en vill ekki hefja aðildarviðræður við strax, muni áfram eiga aðild að stækkunarferli sambandsins. ESB myndi viðhalda tvíhliða samskipt- um við hvert og eitt ríki og gefa ár- lega út skýrslu um það hvernig undirbúningur ríkjanna fyrir ESB- aðild gengi. „Þetta er ekki lengur spurning um hvort stækkun eigi sér stað, heldur hvernig og hvenær," sagði Santer. „Við sjáum að Lettland hefur hafið virkan und- irbúning til þess að geta gengið í Evrópusambandið.“ EVRÓPA^ Fundi Balkan- ríkja lokið LEIÐTOGAR ríkjanna á Balkanskaga kváðust í gær vona að hin blóðuga fortíð svæðisins væri að baki og að nú tæki við tímabil friðar og hagsældar. Svo sagði í loka- ályktun tveggja daga fundar leiðtoganna á Krít. Þar áttu forsætisráðherrar Grikklands og Tyrklands ennfremur einkafund, sem skilaði ekki árangri. Kváðust ráðherramir engu að síður myndu vinna að því að draga úr spennu á milli ríkjanna. Ekki áhyggj- ur af Jeltsín SKURÐLÆKNIRINN, sem skar Borís Jeltsín Rússlands- forseta upp við hjartasjúkdómi fyrir réttu ári, kvaðst í gær „engar áhyggjur" hafa af heilsufari forsetans. Jeltsín hefði endurheimt vinnuþrek sitt, það eina sem hann yrði að gæta að, væri mataræðið. Mótmæli í Helsinki FINNSKIR umhverfísvemd- arsinnar hófu í gær sólar- hringsmótmæli fyrir utan bandaríska sendiráðið í Helsinki. Sakar fólkið banda- ríkjastjóm um að láta hjá líða að draga úr útblæstri svokall- aðra „gróðurhúsalofttegunda". Gyðingaskrá í Svíþjóð EIN AF þeim skrám sem nas- istar í Svíþjóð gerðu yfir gyð- inga þar í landi, fannst í húsi sem heyrði undir húsavernd- unarlög. Sagt var frá skránni í sænskum fjölmiðlum í vikunni en sænskir nasistar tóku skrárnar saman til að afhenda þýskum stjórnvöldum, yrði Svíþjóð hemumin. Fiat-eigendur yfirheyrðir FRANSKA lögi-eglan hóf í gær leit að bfl sem kunni að hafa lent í árekstri við bíl Díönu prinsessu í París í ágúst sl. Verða eigendur um 40.000 hvítra Fiat Uno-bfla, fram- leiddum á árunum 1983-1986 kallaðir til yfirheyrslu. í síðustu viku hófst nám- skeið við Berlínarháskóla um Díönu, aðeins tveimur mánuð- um eftir andlát hennar. Nefn- ist námskeiðið: „Goðsagnir og stjórnmál: Frá prinsessunni af Wales til hjartadrottningar- innar“. Glasabörnum fjölgar hratt FÆÐINGUM í kjölfar glasa- frjóvgunar hefur fjölgað um 25% í Bretlandi á einu ári. Segja heilbrigðisyfii-völd þetta til marks um að glasafrjóvgan- ir heppnist oftar en áður og að fleiri reyni þessa leið til að eignast börn. Alls hafa um 20.000 glasabörn fæðst í Bret- landi frá 1978, er fyrsta glasa- barnið kom í heiminn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.