Morgunblaðið - 04.01.1998, Síða 4
aiŒAJHxu;
4 SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998
VIKAN 28/12-3/1.
► UM 20 manns slösuðust
um áramótin vegna gallaðra
kínverskra handblysa. Raki
komst í gám með biysunum
er þau voru á leið til lands-
ins og er það talin hugsan-
leg orsök þess að þau
sprungu í höndum fólks.
►ÞRIR Íslendingar, þeir
Ólafur Örn Haraldsson,
Haraldur Örn Ólafsson og
Ingþór Bjarnason, komust á
Suðurpólinn á nýárskvöid
eftir 1.086 kílómetra göngu.
►SEX hásetum á Helga-
felli, dönsku leiguskipi Sam-
skipa, var sagt upp störfum
þjá danska fyrirtækinu
vegna þess að þeir neituðu
að vinna um jólin. Samskip
bjóða fjórum mannanna
nýtt starf.
►MARKÚS Örn Antonsson
var skipaður útvarpsstjóri
Ríkisútvarpsins. Hann hef-
ur gegnt starfinu áður, en
var um skeið borgarstjóri f
Reykjavík áður en hann
sneri aftur til RÚV sem
framkvæmdastjóri h(jóð-
varps.
►EKKI er vitnað í giidandi
iög á nýrri prentun fimm
þúsund króna seðla, sem
sett var í umferð nýlega.
Lögfræðingar te(ja þó að
um löglegan gjaldmiðil sé
að ræða.
►FLESTIR iaunataxtar
hækkuðu um 4% um ára-
mótin og um leið lækkaði
tekjuskattshlutfallið um
1,9%. Hins vegar lækkaði
persónuafsláttur og há-
tekjuskatturinn svokallaði
hækkaði, en tekjuviðmiðun
hans var færð ofar.
Einkavæðing
símans boðuð
PÓSTI og síma hf. var skipt upp um
áramótin og urðu þá til fyrirtækin
Landssími Islands og íslandspóstur.
Halldór Blöndal samgönguráðherra
segir knýjandi að losað verði um 100%
eignarhald ríkisins á Landssímanum,
en eignaraðild þurfí að verða dreifð og
íslendingar að eiga meirihluta í féiag-
inu.
Eldur í benzínbland-
aðri steinolíu
VIÐ rannsókn kom í ljós að steinolía
í tanki Olíufélagsins hf. á Vopnafirði
hefur blandazt benzíni og fyrir vikið
orðið mun eldfimari. Tveir eldsvoðar
urðu á bænum Böðvarsdal í Vopnafírði
með skömmu millibili er eldur blossaði
upp í steinolíu. í síðari brunanum hlaut
bóndinn í Böðvarsdal brunasár, sem
drógu hann til dauða en í þeim fyrri
hafði íbúðarhús hans brunnið. Lögregla
fer með áframhaldandi rannsókn máls-
ins.
Grunur um sýndar-
viðskipti
VERÐBRÉFAÞING hefur tekið til at-
hugunar viðskipti með bréf í nokkrum
fyrirtækjum síðustu daga gamla árs-
ins. Rannsóknin beinist einkum að því
hvort ætlunin hafi verið að hafa áhrif
á lokaverð ársins. Slíkt kann að varða
við lög.
Erfitt á sjúkrahúsum
ERFITT ástand var á sjúkrahúsum um
hátíðamar vegna uppsagna unglækna.
Sjúklingar, sem áttu að fara í aðgerð,
geta til dæmis búizt við að komast
ekki undir hnífínn. Unglæknar telja
ekki útilokað að lausn á deilunni geti
verið í sjónmáli.
Nýrra kosninga
krafist í Kenýa
STJÓRNARANDSTAÐAN í Kenýa
krafðist þess á föstudag að efnt yrði
til nýrra forsetakosninga í landinu
eftir að ljóst var að
Daniel arap Moi var
endurkjörinn forseti
í kosningunum á
mánudag og þriðju-
dag. Forsetinn
þurfti að fá 25%
atkvæða í að
minnsta kosti fimm
héruðum til að ná
kjöri og náði þvi
marki, samkvæmt
nýjustu tölum í gær.
Kosningarnar einkenndust af mikilli
ringulreið og ásökunum um kosn-
ingasvik en flokkur Moi, KANU,
hvatti stjómarandstöðuna til að virða
úrslit kosninganna. Stjómin hótaði
hörðum aðgerðum ef til óeirða kæmi
í kjölfar kosninganna.
Daniel
arap Moi
Morð á
N-írlandi
EINN maður beið bana og fimm
særðust þegar liðsmenn herskárrar
hreyfingar norður-írskra sambandss-
sinna, UVF, réðust á krá í hverfi
kaþólikka í Belfast á nýársdag.
UVF sagðist hafa gert árásina til
að hefna dráps á leiðtoga hreyfingar-
innar, Billy Wright, í Maze-fangels-
inu á laugardag. Áður hafði hreyfíng-
in hefnt morðsins með því að skjóta
fyrrverandi liðsmann írska lýðveldis-
hersins (IRA) til bana. Óttast var að
tilræðin græfu undan vopnahlésyfir-
lýsingum helstu hreyfinga mótmæl-
enda og kaþólikka á Norður-írlandi
og stefndu friðarviðræðunum í Belf-
ast í hættu.
► YFIRVÖLD í Hong
Kong hafa látíð drepa
rúma milljón kjúklinga og
aiifugla til að reyna að
útrýma veirunni, sem veld-
ur fuglaflensunni svoköll-
uðu. Fjórir menn hafa dáið
af völdum sjúkdómsins og
heilbrigðisyfirvöld í Hong
Kong hafa hafið rannsókn-
ir á hundum og köttum til
ganga úr skugga um hvort
þeir hafi smitast.
► UNGjapönskkonabeið
bana og 83 slösuðust þegar
jumbóþota flugfélagsins
United Airlines lenti í
ókyrrð í lofti á sunnudags-
kvöld og tók skyndilega
300 m dýfu. Vélin var á
leið frá Tókýó til Honolulu
og farþegar, flugfreyjur
og matarbakkavagnar
þeyttust upp í loft þegar
vélin tók dýfuna.
► KENNETH Kaunda,
fyrrverandi forseti Zamb-
íu og leiðtogi UNIP, helsta
stjórnarandstöðuflokks
landsins, var látinn laus
úr fangelsi á nýársdag og
úrskurðaður í stofufang-
elsi. Kaunda, sem er 73
ára, var handtekinn á jóla-
dag og sakaður um aðild
að uppreisnartilraun
nokkurra liðsforingja fyr-
ir tveimur mánuðum.
► SUÐUR-Afríka og Kína
tóku upp stjórnmálasam-
band á nýársdag og stjórn-
völd í Afríkuríkinu lýsti
því yfir að þau viður-
kenndu afstöðu kínversku
stjórnarinnar til Tævans,
sem hún lítur á sem upp-
reisnarhérað í Kína.
► Michael Kennedy, sonur
Roberts Kennedys, lést af
völdum meiðsla sem hann
varð fyrir á höfði og hálsi
í skíðaslysi í Colorado á
nýársdag.
________________________MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
V efsíður um ástvini
ÍSLENSKUR kerfis- og við-
skiptafræðingur búsettur í Sví-
þjóð hefur komið upp heimasíðu
á alnetinu þar sem hægt verður
að koma fyrir myndum, minnn-
ingargreinum og öðru efni um
látið fólk.
Björn Halldórsson starfar fyr-
ir sænska símafyrirtækið Erics-
son en hefur nú stofnað sérstakt
fyrirtæki um gerð minningar-
síðnanna.
Til að koma fyrir efni á síðun-
um þarf að senda nafn, heimilis-
fang, lykilorð og þær myndir sem
óskað er að birtist til fyrirtækis
Björns, www.minning.com, í
Lundi í Svíþjóð, eða til umboðs-
manns hans á íslandi. Um tveim-
ur vikum síðar kemur svar og
þá verður hægt að stofna síðuna
og byija að slá inn texta, til
dæmis gamlar minningargreinar
eða nýtt efni. Fyrirtæidð getur
einnig séð um þessa vinnu fyrir
þá sem ekki hafa alnetsaðgang.
Textanum sem sendur er inn
er hægt að breyta siðar og bæta
við nýjum að vild. Einnig er
hægt að búa til tengingar yfir á
minningarsíður um ættingja eða
vini hins látna. Hægt er að leita
að ákveðnu nafni, fæðingar- eða
dánardegi, mánuði eða ári á síð-
unum.
Skráning ókeypis
fyrstu tvo mánuðina
Að sögn Björns verður skrán-
ing lykilorðs ókeypis fyrstu tvo
mánuðina en mun eftir það kosta
5.000 krónur. Þá er innifalin
skönnun á allt að tiu myndum.
„Mín hugsun er sú að þetta verði
á netinu um ókomna framtíð,
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
BJÖRN Halldórsson ásamt syni sínum, Birni Robin,
fyrir framan tölvuna.
helst meðan netið er til. Þetta
verður heimild íslenska fólksins,
þar sem saga einstaklinga verður
varðveitt í texta og mynd.“
Björn stefnir að því að mark-
aðssefja síðurnar víðar en á ís-
landi. „Ég ætla að láta þýða síð-
una í vor og svo ætla ég að koma
henni á markað í Bandaríkjunum
og öðrum enskumælandi löndum.
Ég er þegar búinn að láta skrá
netfangið meporium.com í þess-
um tilgangi. Áhuginn á þessum
efnum er sennilega ekki jafnmik-
ill þar og hér en markaðurinn
er það stór að það er vel reyn-
andi að koma þessu á framfæri
þar.“ Björn segist ekki vita til
þess að svipaðar vefsíður séu til
annars staðar. „Að vísu sá ég
fyrir jól umfjöllun um útfarar-
stofu í Kanada sem bauð upp á
að sendur væri minningartexti
til þeirra ásamt dánarvottorði og
þeir myndu búa til einhvers kon-
ar síðu. En síðan mín er mun
sveigjanlegri og býður upp á
meiri möguleika, sérstaklega
varðandi það að þróa og breyta
siðunni." I tengslum við minning-
arsíðuna er einnig þjónusta sem
Björn kallar miðlun. Þar geta
þeir sem misst hafa ástvini kom-
ist í samband við aðra í sömu
stöðu og einnig er hægt að senda
inn reynslusögur af slíkum missi.
Slóð minningarsíðnanna er
http://www.minning.com.
Lítið um fýl í Mýrdal
Ekki vitað hvað
veldur fýliausum
hömrum
KRISTINN Haukur Skarphéðins-
son fuglafræðingur hjá Náttúru-
fræðistofnun segir algengt að fýlar
setjist í hamra þegar milt er veður.
Hann kveðst ekki hafa skýringu á
því að lítið hefur sést til fýls í
hömrum í Mýrdal undanfarið, eins
og skýrt var frá í Morgunblaðinu í
gær.
Kristinn Haukur kveðst vantrú-
aður á að ætisskortur sé ástæðan
fyrir þessu því fýlar sæki fæðu um
langan veg en hamrarnir séu aðal-
lega heimsóttir sem varpstöðvar.
Reyndar hafí verið sögusagnir um
að lítið hafi verið um síli í Vík síðast-
liðið sumar. Kristinn Haukur segir
það óvenjulegt að fýlar sjáist ekki
í Mýrdal um þetta leyti. Staðreynd-
in sé hins vegar sú að minni fólks
á svona lagað sé mjög skammætt
og erfítt sé að kveða fast að orði
meðan rannsóknir liggja ekki að
baki. 28. desember síðastliðinn
framkvæmdi Náttúrufræðistofnun
jólatalningu á fýl en niðurstöðumar
eru ekki komnar. Þumalfíngurs-
reglan er sú að ef kalt er í veðri
setjist fýlar ekki upp í hamrana en
í mildu veðri geri þeir það.
Tillaga um
grjótnám
samþykkt
TILLAGA um deiliskipulag í Geld-
inganesi, sem er forsenda gijótnáms
á staðnum, var iögð fram af R-listan-
um 18. desember sl. Pétur Jónsson,
borgarfulltrúi R-listans, sat hjá við
atkvæðagreiðslu og þar með féll til-
lagan á jöfnu.
Pétur bað þá um frestun en borg-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins mót-
mæltu slíkri afgreiðslu þar sem búið
væri að afgreiða málið og fella það
í borgarstjóm. í lok fundar óskaði
forseti borgarstjómar eftir því að
málið yrði tekið upp að nýju og þurfti
þar með að leita svokallaðra afbrigða
og til að teljist samþykkt þarf 2/3
atkvæða. Aðeins R-listinn samþykkti
að málið yrði tekið fyrir að nýju, og
því náðist ekki tilskilinn 2/3 meiri-
hluti atkvæða. Lýsti forseti borgar-
stjórnar því þá yfír að málið væri
fellt.
í fyrradag var engu að síður boð-
að til aukafundar í borgarstjóm og
málið tekið fyrir að nýju. Þá mætti
Pétur Jónsson ekki en fyrir hann var
Gunnar Gissurarson. Tillaga R-list-
ans um deiliskipulag í Geldinganesi
var tekin fyrir á ný og var þá sam-
þykkt með átta atkvæðum gegn sjö.
♦ ♦ ♦
Verkfallsboð-
un samþykkt
á ísafirði
SJ ÓMANNAFÉLAG ísfírðinga
samþykkti í atkvæðagreiðslu boðun
verkfalls 2. febrúar með miklum
meirihluta greiddra atkvæða. At-
kvæði voru talin sl. föstudag. 122
félagsmenn vom á kjörskrá. 57
greiddu atkvæði eða 46,7%. Já
sögðu 49 eða 86% en 8 sögðu nei
eða 14,04%.
David Steel lávarður
í boði Halldórs
DAVID Steel lávarður,
fyrrverandi formaður
Fijálslynda flokksins í
Bretlandi, kemur hing-
að til lands á þriðjudag
í boði Halldórs Ás-
grímssonar utanríkis-
ráðherra.
Steel hefur látið ut-
anríkis- og þróunarmál
mjög til sín taka og
heldur tvö erindi um
þau efni hér á landi.
Fyrra erindið, um tak-
mörk Evrópusamrun-
ans, flytur hann á há-
degisverðarfundi Sam-
bands ungra framsóknarmanna á
Hótel Borg á þriðjudag. Það síðara
flallar um þróunarmál og verður
haldið í Odda, húsi fé-
lagsvísindadeildar Há-
skóla íslands, kl. 17
sama dag.
Á þriðjudagsmorgun
mun Steel eiga fund
með Halldóri Asgríms-
syni um þróunarmál.
Steel er kunnur í Bret-
landi fyrir baráttu sína
fyrir málstað þróunar-
ríkjanna.
Hann var formaður
samtaka gegn Apart-
heid-stefnunni í Suður-
Afríku og hefur mikil
sambönd i ríkjum suð-
urhluta Afríku, en þar hefur ísland
einkum haslað sér völl í þróunars-
amvinnu.
David Steel
(
í
f
í
I
(
(
i
(
I
I
(
i
I
f
(
I
f
(
I
fl
(
I
(
(
I
i
c
I