Morgunblaðið - 04.01.1998, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Skref í átt
að lýðræði
) BAKSVIÐ
Um 850 milljónir kjósenda ganga að kjör-
borði í Kína á næstu vikum til að greiða
atkvæði í sveitarstjórnarkosningum.
Niels Peter Arskog, fréttaritari Morgun-
blaðsins, fylgdist með kosningum á
nokkrum stöðum.
Reuters.
IBUAR í bænum Beixing í Hebei-héraði fylla út kjörseðla.
KÍNVERJAR streyma nú og á næstu
vikum á kjörstað, víðs vegar um hið
víðfeðma ríki til að kjósa sveitar-
stjórnarmenn. Ekki er löng hefð fyrir
frjálsum kosningum í kommúnistaríkinu
Kína, það var ekki fyrr en á níunda ára-
tugnum sem yfírvöld leyfðu almenningi að
taka þátt í beinum kosningum. í fyrstu
fengu kjósendur á landsbyggðinni að kjósa
fulltrúa í sveitarstjórnir, svo í stærri bæj-
um og borgum. Almenningur getur hins
vegar ekki kosið fulltrúa á þing, hvorki
héraðs- eða þjóðþingið. Hins vegar er svo
mikil ánægja meðal almennings með sveit-
arstjórnarkjörið að æ fleiri hafa lýst áhuga
á því að sömu reglur gildi um þingkosning-
ar.
Frambjóðendum í kosningum er ekki
skylt að vera í Kommúnistaflokknum, vilji
þeir bjóða sig fram, þeim nægir að leggja
fram stuðningsyfirlýsingu tíu manna. Að
þessu sinni er yfir helmingur frambjóðanda
óháður og það, og um 98% kosningaþátt-
taka, segir allt sem segja þarf um áhuga
kjósenda á kosningunum sem gera þeim
kleift að hafa bein áhrif.
Gengið er til sveitarstjómarkosninga
þriðja hvert ár og er þetta í fjórða sinn sem
kosningar eru haldnar. Kosið verður í um
einni milljón þorpa og bæja. Þá munu íbúar
stærri bæja og borga velja fulltrúa á alþýðu-
þing borga og héraða en þær kosningar fara
fram á fimm ára fresti. Alls ganga um 860
milljónir kjósenda að kjörborðinu.
Dreifðar kosningar
Ekki' er hægt að kjósa í öllum kjördæm-
um á sama tíma í svo stóru landi og því ræð-
ur kjörstjóm á hverjum stað hvenær skuli
kosið en það verður að gerast fyrir 1. febrú-
ar nk. Þá eiga alþýðuþingin ennfremur að
hafa lokið kosningu héraðsstjórna og full-
trúa á héraðsþing og þjóðþing. í mars verð-
ur níunda þjóðþing alþýðulýðveldisins sett
en um 3.000 fulltrúar eiga sæti á því og
munu þeir velja forseta og stjórn til næstu
fimm ára.
Það sama á við alþýðuþingin í héröðunum
og sveitarstjórnimar, aÚir 18 ára og eldri
hafa kosningarétt og geta boðið sig fram,
hafi þeir til þess stuðning 10 manna. Dæmi
um þetta er borgin Nanjing, þar sem búa
um 5,2 milljónir manna. Um 3,9 milljónir
em á kjörskrá og velja á milli um 2.900
frambjóðenda til svæðis- og amtsþinga. Er
borginni skipt upp í tíu svæði og fimm ömt,
sem skiptast í 1.739 kjördeildir. Hver kjör-
deild hefur einn til þrjá fulltrúa, eftir stærð,
og hvert amt hefur að lágmarki 120 fulltrúa.
Frambjóðendum fækkað
Kínverska þjóðskráin er afar gloppótt og
því lætur fólk skrá sig á kjörskrá fyrir
hverjar kosningar. Menn geta skráð sig á
fæðingarstað, þar sem menn vinna eða þar
sem menn búa og verða listarnir að liggja
fyrir tuttugu dögum fyrir kosningar. Fram-
boðslista verður að leggja fram tíu dögum
fynr kosningar.
í Nanjing buðu 30.403 manns sig fram,
tíu sinnum fleiri en fulltrúar borgarinnar.
Lög kveða á um að frambjóðendur megi að-
eins vera þriðjungi fleiri en fulltrúar og því
fækkaði kjörstjóm frambjóðendum. Dæmi
um það er í Xuan Wu-kjördeildinni í Nanj-
ing þar sem um 9.000 kjósendur eiga að
velja tvo fulltrúa. Frambjóðendur voru hins
vegar 295. Eftir viðræður kjörnefndar, íbúa-
nefnda og frambjóðenda, var þeim fækkað í
65. Enn var fundað og þrír frambjóðendur
valdir. Þeir voru svo kynntir í blöðum og
sjónvarpi fyrir kosningarnar.
Flokksskírteini ekki skilyrði
Átta kjörstaðir eru innan hvers kjör-
svæðis og einn þeiri'a er Panda-verksmiðj-
an, þar sem 878 kjósendur eru á kjörskrá.
Þeir geta valið á milli þriggja samstarfs-
manna sinna. Xu Ping er 44 ára, varafor-
maður starfsmannafélagsins á staðnum og
átti sæti á síðasta þingi. Annar fráfarandi
fulltrúi svæðisins á þinginu hlaut ekki náð
fyrir augum kjömefndar og því sækjast
verkfræðingurinn Bai Jian Chuan og
verkakonan Ma Bin, sem er félagi í komm-
únistaflokknum, eftir sæti hans. Bai er ekki
flokksbundinn en telur það ekki á nokkurn
hátt draga úr möguleikum sínum á því að
ná kjöri. Segir kjósendur meta frambjóð-
endur eftir því hvort þeim sé treystandi,
ekki eftir flokkslínum.
Kjörið fer fram í hátíðasal verksmiðjunn-
ar þar sem fundir, kvikmyndasýningar og
leiksýnigar em haldnar. Starfsmenn koma
saman í salnum þar sem formaður kjör-
stjómar gerir grein fyrir starfi stjórnarinn-
ar, hvernig frambjóðendur hafi verið valdir
og fyrir kjörreglum. Kjósendur geta átt sér
einn eða jafnvel tvo umboðsmenn, sem geta
kosið í þeirra stað.
Þjóðsöngurinn er leikinn, kjörkassar inn-
siglaðir og gengið er til kosninga, sem taka
tuttugu mínútur. Kjósendur mega í mesta
lagi krossa við tvö nöfn á kjörseðlinum,
bæta við nöfnum í stað þess að krossa við,
eða skila auðu. Til að ná kjöri verða menn að
fá yfir helming greiddra atkvæða.
Talning fer fram á staðnum en úrslit em
ekki kunngjörð fyrr en talin hafa verið at-
kvæði á hinum sjö kjörstöðum svæðisins,
svo og upp úr þeim kjörkössum sem farið er
um með heim til aldraðra og sjúkra.
Verkfræðingurinn Bai reyndist sigurveg-
ari kosninganna, hlaut alls 5.958 atkvæði,
Xu Ping var endurkjörin með 5.077 atkvæð-
um en Ma Bin náði ekki kjöri.
Kjósendur í hátíðarskapi
Bærinn Zhang er í útjaðri Nanjing og
nær ein kjördeild yfir hann, annan bæ og
þrjár verksmiðjur. Kjósendur em 3.213 og
kjörstaðimir fjórtán. í fyrstu vora fram-
bjóðendumir sextán en þeim var fljótlega
fækkað niður í fjóra. Zhang Wwn Cai er 51
árs, aðstoðarbæjarstjóri og félagi í komm-
únistaflokknum, Zhen Yang Bao, 47 ára
deildarstjóri á landbúnaðarskrifstofu amts-
ins sækist eftir endurkjöri og er ekki flokks-
maður, hinn 36 ára gamli landbúnaðar-
verkamaður Nie Chang Yin er heldur ekki í
kommúnistaflokknum og sömu sögu er að
segja um Dai Yu Mei, 34 ára formann
kvennasamtaka bæjarins.
Af 203 kjósendum í bænum mættu 200 á
kjörstað og kjörið fór fram á svipaðan hátt
og í Panda-verksmiðjunni. Kjósendur era í
hátíðarskapi, sumir hafa tekið sér frí úr
vinnu til að komast á kjörstað, og þeir fagna
réttindum sem Vesturlandabúar telja sjálf-
sögð, svo sem að kosning sé leynileg. Menn
era enn minnugir reynslunnar úr menning-
arbyltingunni þegar það gat komið þeim í
koll að hafa látið fögur orð falla um stjórn-
málamenn sem síðar féllu í ónáð og því hafa
fæstir kjósenda orð á því hverjum þeir
fylgja að málum.
Formaður kjörstjórnarinnar í Zhun, Sun
Ting Zhao, segir kjósendur meta mest
leynilegu kosningamar, svo og að ekki þurfi
nema tíu manns að baki frambjóðanda.
Hann segir fyrirkomulag kosninganna hafa
verið ákveðið til að kjósendur hefðu yfirsýn
yfir frambjóðendur og málefni. Hann telur
kosningarnar til marks um að Kínverjar feti
sig í átt að lýðræði en að menningarleg og
efnahagsleg staða landsins komi enn í veg
fyrir að gengið verði til beinna kosninga til
æðstu embætta. „Enn era margir sem
þekkja ekki kosningareglumar og við verð-
um því að halda námskeið og fyrirlestra
nokkra síðustu mánuðina fyrir kosningar til
að upplýsa kjósendur, segir Sun.
Ekki sæst við
Bandaríkin
Teheran. Reuters.
Námsmenn neita
að hitta Nyrup
Þórshöfn. Morgunblaðið.
ALI Khamenei, erkiklerkur og
valdamesti maður í Iran, neitaði
því á föstudag, að íransstjórn
vildi ná sáttum við stjómvöld í
Bandarikjunum. Kemur þessi yf-
irlýsing aðeins nokkmm dögum
áður en bandaríska sjónvarps-
stöðin CNN sendir út viðtal við
Mohammad Khatami, forseta
Irans, en hann kvaðst fyrir
skömmu vilja viðræður við
Bandaríkjamenn.
„Vestrænir fjölmiðlar segja, að
ýmis öfl í þessu landi og jafnvel
ríkisstjórain vilji sættast við
Vesturlönd og Bandaríkin,"
sagði Khamenei í ræðu, sem út-
varpað var um íran, „en það
stangast á við raunveruleikann
og er alrangt.
Khatami forseti, sem er tiltölu-
lega hófsamur maður, talaði í
síðasta mánuði með virðingu um
Bandaríkjamenn og kvaðst vilja
viðræður við þá og búist hefur
verið við, að hann muni ítreka
það í viðtalinu við CNN um miðja
næstu viku.
Vaxandi átök hafa verið á bak
við tjöldin f Iran milli harðlfnu-
manna og hófsamra og virðast
þeir fyrrnefndu hafa undirtökin
enn sem komið er. Þeir setja það
sem skilyrði fyrir bættum sam-
skiptum við Bandaríkjastjórn að
hún hætti að fjandskapast út f ír-
an og afhendi milljarða dollara,
sem frystir hafa verið í banda-
rfskum bönkum eftir fslömsku
byltinguna 1979.
Jarð-
skjálfti í
Noregi
Ósló. Morgunblaðið.
JARÐSKJÁLFTI, sem líklega var
á bilinu 2,5 til 3 á Riehters-kvarða,
skók Vestfold í Noregi á nýárs-
dagskvöld. Hafa skjálftar verið
nokkuð tíðir þar síðasta áratuginn.
Skjálftinn reið yfir klukkan 22.00
og var einna öflugastur í bæjunum
Sandefjord og Larvik. Stóð hann í
einar fimm eða sex sekúndur og
urðu margir mjög skelkaðir.
Talið er, að upptökin hafi verið í
Óslóarfirði en á þessum slóðum
hafa orðið nokkrir jarðskjálftar sl.
tíu ár.
Sá mesti, sem vitað er um, varð
hins vegar 1904 en hann var 5,5 á
Richter.
FÆREYSKIR námsmenn hafa
eins og margir ráðamenn á eyj-
unum neitað að hitta Poul Nyr-
up Rasmussen, forsætisráðherra
Danmerkur, að máli þegar hann
kemur til Færeyja í vikunni. Þá
verður haldinn ríkjafundur Dan-
merkur, Grænlands og Færeyja
í Þórshöfn en Færeyingar em
afar reiðir vegna óstaðfestra
fullyrðinga um að Nymp
Rasmussen hafi haft vitneskju
um bága stöðu Faroyja-bankans,
sem færeyska stjórnin tók við af
Den Danske bank, en yfírtakan
kostaði Færeyinga milljarða
króna.
Niðurstaða rannsóknar á mál-
inu liggur ekki fyrir fyrr en eft-
ir Færeyjaför forsætisráðherr-
ans og hefur það vakið mikla
reiði að hann skuli koma til eyj-
anna svo skömmu áður en
skýrslan verður birt. Hafa
margir stjórnmálamenn í
Færeyjum neitað að hitta Nymp
Rasmussen, og nú hafa náms-
menn bæst í hópinn.
Forsætisráðherrann hafði
óskað eftir því að eiga fund með
unga fólkinu en talsmenn þess
segjast ekki vilja taka þátt f til-
raun Nymps Rasmussens til að
ávinna sér hylli Færeyinga. Ed-
mund Joensen, lögmaður
Færeyinga, hefur hins vegar
lýst því yfír að hann telji við-
brögð stjórnmálamanna og
námsmanna bera vott um van-
þroska.