Morgunblaðið - 04.01.1998, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.01.1998, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR Phil Jackson, þjálfari meistaraliðs Chicago Bulls Hefur þróad stílsemfálið ná að stöðva á þessum málum og fólk heldur að allir séu á leiðinni eitthvert annað á hveiju sumri. Ég held að það hafi alltaf verið vilji hjá öllum hér að koma til baka og sú varð á endanum raunin. - Hvað gerir þú til að eiga við Dennis Rodman? Það er ekki auðvelt að þjálfa Dennis, en ef honum eru gefin PHIL Jackson, þjálfari Chicago Bulls, var nýlega íviðtali hjá ESPN íþróttasjónvarpsstöðinni. Bulls-liðið hefur unnið fimm meistaratitla undir stjórn hans og halda margir körfuknattleiks sérf ræðingar að fáir einstaklingar hefðu getað náð eins miklu út úr liðinu og hann hefur gert. Ekki þarf að líta lengra en til Dennis Rodman og Scottie Pippen sem dæmi um einstaklinga sem eru sérsinnaðir, Gunnar °S til þess hring- Valgeirsson leikahúss sem f skrifar frá kringum Michael Bandaríkjunum jordan er hvert sem hann fer. Jackson hefur náð að halda þessum einstaklingum við efnið og náð að þróa leikstfl sem fá lið hafa náð að stöðva. Jackson er óhræddur við að fara ótroðnar slóðir í að eiga við leikmenn. Hann er vel menntaður í trúarbrögðum Austurlanda og heimspeki sem hann notar hvem dag við allt það umstang sem í kringum liðið er. Fyrir undanfarin keppnistímabil hefur gengið erfíðlega hjá forráða- mönnum liðsins að ná samningum við leikmenn og ná Iiðinu saman fyrir keppnistímabilið. Þrátt fyrir þessa erfíðleika hefur liðið á endan- um staðið uppi sem meistari og halda margir því fram að Jackson sé lykillinn að velgengni liðsins (að vísu hjálpar til að hafa Jordan!). Jakcson, sem gerði eins árs samn- ing við Bulls í sumar, talaði við David Aldridge, fréttamann ESPN, nýlega. - Af hvetju er alltaf svona erfitt að koma mannskapnum saman? Af hverju getur þetta ekki verið vinnu- staður þar sem fólk kemur ánægt tii vinnu? Það er ekki það að allir njóti sín ekki þegar keppnistímabilið er haf- ið. Érfiðleikarnir hafa verið að koma öllum saman. Ég held að Chicago-búar hafi gaman af pólitík og öllu því sem henni fylgir. Það sama á við um allskonar viðskipti hér í borginni, en á endanum ganga hlutimir upp hér í borginni. - Jerry Reinsdorf [eigandi Bulls] hefur verið gagnrýndur fyrir að viija láta alla vita að hann sé við stjóm- völinn, þegar vitað er að á endanum ræður hann hvaða ákvarðanir séu teknar. Er þetta rétt mynd af hon- um? Ég held að þar sem mikið er í húfí sé alltaf spurning um hvort hundurinn dingli rófunni eða öfugt. Ég held að Jerry sé góður í að skil- greina stöður innan félagsins og hann leyfir fólki að gera það sem það gerir best. Hann lætur fram- kvæmdastjórann um að gera sitt, markaðsstjórann um sitt og mig um mitt verkefni. Ég held að hann sé góður í verkefnastjórnun. - Nú gengu ýmsar sögvr um hvað fór á milli ykkar Reinsdorf í sumar. Ýmis nöfn voru nefnd um þjálfara sem sagðir væru á leiðinni að taka við af þér. Finnst þér óþægi- legt að viðskipti ykkar skuli vera svopa mikið í sviðsljósinu? Ég skil það og finnst það í lagi. Hver sá sem tekur við af mér mun eflaust vera góður þjálfari. Ég hef verið hér langan tíma og það hefur verið góð reynsla. Fáir þjálfarar eru eins lengi hjá liðum sínum í dag og ég hef verið hér. Ég mun þess vegna ekki fara frá Chicago með neinni eftirsjá þegar þar að kemur. - Hefur verið erfitt fyrir þig að semja um laun þegar leikmenn eru á sama tfma með sínar kröfur? Eins og þú veist eru samningavið- ræður um laun í þessum bransa list- grein út af fyrir sig. Það er orðinn sér Ieikur og það er alltaf barátta um hver fær hvað. Önnur lið geta haldið miklu af þessum barningi inn- anhúss, en það er erfiðara hjá okkur vegna þess hve mikla athygli fjölm- iðlar vekja á þessum málum. Það er skiljanlegt vegna þess árangurs sem við höfum náð, en því miður einbeita margir íþróttafréttamenn sér of mikið að neikvæðu hliðunum PHIL Jackson - brosandl með styttuna sem hann fékk fyrlr að vera útnefndur þjðlfarl árslns í NBA-delldinni 1996. PHIL Jackson, þjólfarl Chicago Bulls, og Mlchael Jordan. ákveðin fyrirmæli um hvað hann á að gera, til dæmis einbeita sér að fráköstum og leika ákveðið hlutverk í sókninni, þá tekur hann svoleiðis leiðsögn vel. Ég held að eftir að hann er nú búinn að leika um 150 leiki fyrir okkur sé ekki erfitt fyrir hann að vita til hvers sé ætlast af honum. Ég held að það muni taka hann um tvær vikur að komast í gott leikform og þá mun hann hjálpa okkur mikið. - Þú hefur sagt að það sé enginn möguleiki á að liðið muni vinnajafn- marga leiki í deildarkeppninni og undanfarin tvö ár, en að það geti samt unnið meistaratitilinn. Af hverju heldur þú að svo sé? Scottie Pippen mun missa af fyrstu þijátíu leikjum okkar og vinna um sjötíu leiki án hans verður geysilega erfitt. Pippen er mjög mikilvægur fyrir liðið og ég held að við verðum bara að reyna að standa saman þar til hann kemur til baka. Ég held að þetta muni allt ganga upp hjá okkur. - Nú þekkir þú vel sögu deildar- innar. Hvaða sess mun þetta lið skipa þegar upp verður staðið? Þegar Boston var að vinna alla sína titla voru aðeins átta lið í deild- inni og þegar liðið hafði unnið sum lið sex til átta sinnum í tíu leikjum hafði það ákveðna sálfræðilega yfir- burði jifir þessi lið þegar í úrslita- keppnina var komið. Þetta var ann- ar tími og í dag eru hlutirnir allt öðruvísi. Núna eru 29 lið og við mætum sumum liðum tvisvar til fjórum sinnum á keppnistímabilinu áður en við sjáum þau í úrslita- keppninni. Við lentum á móti liðum sem höfðu unnið marga leiki í lok deildarkeppninnar í síðustu úrslita- keppninni og við urðum að slá þau út. Að vísu kemur á móti að liðin hafa ekki eins mikla breidd og áður. - Lítur þú til þess dags þegar þú, Pippen og Jordan farið allir hver í sína áttina? Sá dagur á eftir að koma og ég veit af því, en ég lít ekki núna til þess dags. Ég einbeiti mér núna að byijuninni á keppnistímabilinu og eftir það tek ég þetta eina til tvær vikur í einu það sem eftir er af keppnistímabilinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.