Morgunblaðið - 04.01.1998, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1997 23
_______LISTIR____
Leiðarvísir að
heilbrigðu lífi
BÆKUR
II c i 1 s u b 5 k
HOLLRÁÐ OG
HEILSUBÓT
Öðlist betri heilsu á 8 vikum eftir
Andrew VVeil í þýðingu Arngríms
Thorlacius, Björns Jónssonar og
Órnólfs Thorlacius. Setberg 1997.
ANDREW Weil er mörgum ís-
lendingum að góðu kunnur, því að
í fyrra var gefin út eftir hann bók-
in um Lækningamátt líkamans,
sem mun hafa selzt bærilega. Alla-
vega hefur útgáfufyrirtækið Set-
berg ákveðið að kynna fleiri bækur
Weils. Hann er bandarískur lækn-
ir, fæddur í Fíladelfíu árið 1942
(með grátt og hvítt alskegg á
mynd á baksíðu, - ég hélt hann
hlyti að vera miklu eldri), útskrif-
aður frá Harvard 1968 og hefur
komið víða við. Hann hefur mikinn
áhuga á því að fá fólk til að nýta
það sem hann kallar lækningamátt
líkamans, og hefur rannsakað og
kynnt almenningi mismunandi
lækningaaðferðir, hollt mataræði,
lækningajurtir og mikilvægi heil-
brigðs lífernis, eins og segir innan
á bókarkápu. Hollráð og heilsubót
heitir á frummálinu „Eight Weeks
to Optimum Health“ og finnst mér
undirtitill á íslenzku prýðilega
þýddur: Öðlist betri heilsu á átta
vikum. Samt er eins og þýðendur
hafi ekki viljað leggja eins mikla
áherzlu á tímaþáttinn og Weil.
Hann byggði reyndar fyrri bók sína
einnig á átta vikna árangri.
Allt í lagi, segir þú þá, lesandi
góður, er þarna enn einn leiðar-
vísirinn að heilbrigðu lífi og betri
lífsstíl? Já, en hér kemur bók sem
er skemmtilegri aflestrar en marg-
ar hinna. Höfundur er hispurslaus
og hefur hressandi framkomu við
lesanda sinn og kryddar textann
með uppskriftum að andlegu og
líkamlegu fæði og frásögnum af
bata nafngreindra sjúklinga þótt
víða hljóti nöfnum þó að vera
breytt til að trúnaðar sé gætt.
Hann er eins og í fyrri bók sinni
allharðorður í garð kollega sinna,
annarra lækna, og hefðbundnar
aðferðir þeirra og hlýtur sú spurn-
ing að vakna hvort það hafí ekki
kallað á viðbrögð bandarísku
læknasamtakanna? Ekki segir
neitt um það í bókinni.
Færu allir slitgigtarsjúklingar
hér á landi að ráðum Weils, eins
og fimmtuga konan sem sagt er
frá á bls. 40, gætum við íslending-
ar sparað mikið í heilbrigðisþjón-
ustunni. Weil kom henni af gigtar-
lyfjum og matartegundum sem
hann fullyrðir að geti magnað
bólgu, þar á meðal bólgu í liðum.
Þess í stað skyldi hún neyta ólífuol-
íu og nokkurra fisktegunda (sem
innihalda omega-3 fítusýrur),
krydda með engifer og túrmerik
og neyta vorrósarolíu, andoxandi
vítamína og steinefna. Á tæpum 2
mánuðum losnaði konan við lyfin.
Án efa skaðar það fólk ekki að
endurskoða mataræði sitt. Geti það
dregið úr þörf á lyfjatöku er ekki
nema gott eitt um það að segja.
Hafa þarf þó hugfast að fullyrðing
sem þessi er ekki nægilega rök-
studd og er ekki byggð á vísinda-
legum grunni. Hvað sem því líður
er Weil þess viss að hafa megi
mikil áhrif á heilsu sína með lífs-
stílnum og sjálfsagt að taka undir
það. Mataræðið skal fyrst og
fremst vera ferskt grænmeti,
ávextir, baunir, heilkorn og fískur
og með þvú sem ferskust ólífuolía,
hvítlaukur og laukur, snefílefni og
vítamín. Auk þess sem grænt ljós
er gefið á hið daglega rauðvínsglas
eins nú er siður. Til viðbótar er
síðan íjallað um hreyfingu og ýmis
verkefni fyrir sál og líkama. Eitt
af verkefnunum er fréttafasta (þá
skal hlífa sér við því að fylgjast
með fréttum í fjölmiðlum um hríð),
annað öndunaræfíngar og þannig
mætti lengi telja. Allt getur þetta
hjálpað hijáðum streittum íslend-
ingum.
Katrín Fjeldsted
VILTU BREYTfl TIL ? VILTU BRE
s
YTA TIL ? VILTU BREYTfl TIL ?
I
ftk
TOUIII-OG
5
vt
u.
ac
u.
Sk
I
öt
HÝ"
Tölvu- og kerfisfræðinámið er tveggja ára nám.
Kennt er tvö kvöld í viku frá kl. 18:00-21:30
og laugardaga frá kl. 8:30-12:00.
Námið er að fullu lánshæft.
VI
æ
s
■n
-4
c=
•sa
Stöðumat —
w
u.
S
««
rr Forrilun
1
Kerfisfræði
Uinsjón og rekstor lölvuneta
u Vefsíðustjórnun
n
r
Lokaverkel'ni
L_|
Nýsköpun
i
tölvuiðnaði
Lokaverkefni
- Lokaverkefni
90
•n
M
X
g
L_| I nk;i
Lokavcrkefni
RAFIÐNAÐARSKOLINN
Skeifan 11 b - Sími 568 5010
c iii viAiua nniA i iii viAiua nniA l 111 vuiaa nniA c 111 viAiaa nniA
FYRST KEM ÉG
GUNNAR BERNHARD EHF.
VATNAGARÐAR24
SÍMI: 520 1100
SVO BÍLLINN MINN
FYRIR ÞA
SEM VILJA
NÁ LENGRA
Verð frá
2.1 9 0.00 0,
(0
HONDA