Morgunblaðið - 04.01.1998, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 04.01.1998, Qupperneq 28
28 SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 29 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR NN EITT frækilegt afrek bættist í íslenska afreka- skrá að kvöldi nýársdags, þegar Suðurskautsfararnir Ingþór Bjarnason, Ólafur Örn Haraldsson og Haraldur Örn Ólafsson náðu takmarki sínu, Suðurpólnum. Þessi árangur þremenninganna er glæsileg- ur og fullyrða má að þeir hafa unnið mikið þrekvirki. Fyrstur á Suðurpólinn var Norðmaðurinn Amundsen, ásamt samferðamönnum sín- um og hundum fyrir 86 árum. Edmund Hillary fór landleið- ina á Suðurpólinn árið 1957, en hann og félagar hans not- uðust við dráttarvélar og vist- um var varpað niður til þeirra úr flugvélum. Það eru ekki nema um fimm ár síðan fyrsti leiðangurinn á Suðurpólinn var farinn með þeim hætti, sem þremenningarnir gerðu nú, þ.e.a.s. án þess að njóta utanaðkomandi aðstoðar, svo sem frá flugvélum og dráttar- vélum. Þetta er líklega tíundi leiðangurinn sem nær loka- takmarkinu - að standa á Suðurpólnum - á þessum fimm árum. Vitaskuld höfðu aðrir farið á Suðurpólinn áður. Engum blöðum er um það að fletta, að þessi 1.200 kíló- Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. metra skíðaganga þeirra fé- laganna við misjafnlega erfið- ar aðstæður og oft í fimbul- kulda, hefur reynt mikið á þá jafnt líkamlega sem andlega. Gangan varði í 51 dag, frostið hefur farið niður í 30 gráður, mótvindur verið um og yfir sex vindstig og skafrenningur eða bylur með litlum hléum. Að teknu tilliti til vindkæling- ar jafngildir þetta um 47 gráða frosti. Við þessar að- stæður hafa félagarnir dregið á eftir sér 100 kílóa sleða sína, yfir misgreiðfæran snjó og ís. Undirbúningur fyrir þessa miklu för hefur staðið lengi og verið margþættur. í þeim efnum skiptir ekki minnstu máli að þeir hafa notið stuðn- ings og tiltrúar fjölskyldna sinna, sem kom glöggt fram hér í blaðinu á aðfangadag. Morgunblaðið óskar göngu- görpunum til hamingju með þennan glæsilega árangur. AUKIÐ AÐ- HALD Á VERÐ- BRÉFAÞINGI IMorgunblaðinu í gær var frá því skýrt, að Verð- bréfaþing hefði tekið til at- hugunar viðskipti með hluta- bréf í nokkrum fyrirtækjum síðustu daga liðins árs. Bein- ist athugun Verðbréfaþings að því að kanna, hvort þessum viðskiptum hafi verið ætlað að hafa áhrif á lokaverð árs- ins. Jafnframt kom fram, að Verðbréfaþing hefði þegar ákveðið að vísa nokkrum þess- ara mála til bankaeftirlits til frekari meðferðar. Þetta aukna aðhald Verð- bréfaþings er afar mikilvægt og líklegt til þess að stuðla að heilbrigðum viðskiptahátt- um með hlutabréf. Menn hafa haft vissar áhyggjur af því, að með ýmsum hætti væri reynt að hafa áhrif á verð hluta- bréfa, m.a. með viðskiptum, sem í raun væru sýndarvið- skipti. Aukinn agi á markaðn- um m.a. með aðgerðum af því tagi, sem Verðbréfaþing hefur nú gripið til, er því af hinu góða. Hið sama má segja um nýjar reglur Verðbréfaþings um upp- lýsingaskyldu fyrirtækja, sem skráð eru á þinginu. Þar er bæði um að ræða strangari ákvæði varðandi hina reglu- legu upplýsingagjöf, svo sem varðandi birtingu ársreikn- inga og milliuppgjöra en jafn- framt er nú ætlast til að fyrir- tæki geri aðvart um það, ef búizt er við að afkoma þeirra verði verulega frábrugðin því, sem áður hafði verið áætlað. Loks er ekki sízt mikils um vert, að nákvæmari reglur eru settar um svonefnd innherja- viðskipti. Hlutabréfamarkaðurinn hefur smátt og smátt þróazt í rétta átt og er mikill munur á þeim viðhorfum, sem nú ríkja, og þeim, sem uppi voru í byijun þessa áratugar, þegar ábendingum um breytt og bætt vinnubrögð var tekið af- ar illa af þeim, sem hlut áttu að máli. FRÆKNIR GÖNGU- GARPAR GRÍMUR THOMSEN segir ennfremur í grein sinni um fom- konur: „Með hliðsjón af afstöðu karls til konu á ýmsum tímum og meðal ýmissa þjóða væri auðvelt að skipa niður og ákvarða tíma- skeið heimssögu og þjóðfélagsþró- unar; og hversu vel væri það ekki við hæfi að gera samband þessara tveggja erfðaþátta, þessara tveggja aflvaka kynslóðanna að skipulags- grundvelli sjálfrar mannkynssög- unnar. Hér skal minnt á það eitt, hversu Austurlandakonan var ger- samlega ofurseld harðstjórn karl- mannsins; ekki var nóg með að hún yrði að bera byrði harðstjórnar og ruddaskapar, heldur í tilbót þá nið- urlægingu að bera hana í félagi við keppinaut, ekki einn, heldur marga, því að í þessu tilviki gerir það byrð- ina margfalt þyngri, að hún er bor- in af mörgum; þar var og er fjöl- kvænið löglegt. í Grikklandi gætti svipaðrar óvirðingar á konunni. Innilegt og fagurt ástarsamband er undantekning og kemur helzt fram sem andlegt samband elsk- hugans við fylgikonuna. Synir eru varla fullvaxta fyrr en þeir beita mæður sínar svipuðu valdi og feð- urnir beittu sjálfa þá. Telemachos hótar móður sinni að senda hana burt frá íþöku til föðurhúsa henn- ar, svo að biðlamir geti þar barizt um hana. Hann skipar henni að ganga upp til þjónustumeyja sinna o.s.frv. Að vísu er ekki beint hægt að jafna stöðu konunnar í hinum gríska heimi við fjölkvæni, en laus- legt er sambandið milli karls og konu. í Trójustríðinu sjáum vér enn ambáttaraðstöðuna, og á sjálfu blómaskeiði Aþenu í stjómmálum og Iistum er frillulífið mest. Enda þótt Diotima sé and- rík, samsvarar slíkur lifnaður engan veginn virðuleika hjóna- bandsins, og þeim mun síður sem elsk- hugi Diotimu fremur hróplegt ranglæti gagnvart löglegri eiginkonu sinni. Einnig í Rómaveldi er konan bæði keypt og seld; upp- eldi hennar er vanrækt og siðleg staða hennar lítilsháttar. Karlmað- urinn getur afneitað henni að vild og tekið sér aðra í staðinn. Hann elskar aðrar konur, hún aðra menn. Munurinn er sá einn, að hann gerir þetta án þess að dyljast, hún í leynd- um. Hjónaband Rómverja er ósið- legt og falskt og saurlifnaður dag- legt brauð. þannig er hjúskap hátt- að alls staðar í heiðindómi - nema á Norðurlöndum. Karlmaður á Norðurlöndum til forna sýnir kon- unni virðingu. Hann er hreinlífur og siðvandur; þess vegna eignast hann, eins og Tacitus segir um Germani, heilbrigða, sterka, hug- djarfa og frjálsa syni, ógnvalda Rómveija og annarra sællífra Suð- urlandsbúa. Þess vegna á hin nor- ræna kona einnig sína föstu og öruggu stöðu í samfélaginu. Hún elur upp börnin, sýslar með hús sitt, stendur við hlið manns síns með ráðum og uppörvun, græðir sár hermannsins, styrkir heimkom- inn garp með miði og gleðskap og býr honum endurnærandi hvíld í hreinni hjónasæng. Hugrekki henn- ar og snilli er hið sama og karl- mannsins, og oft á norrænn maður að þakka konu sinni björgun og sigur. (Sem dæmi má nefna Gísla sögu Súrssonar, Njáls sögu, Grettis sögu o.s.frv., Hákon jarl). Á Norð- urlöndum verður hver, sem konu girnist, að biðja foreldrana um hönd hennar með lögmætum hætti, og ef henni fellur ekki framkoma eigin- manns síns eða er að öðru leyti óánægð, þá snýr hún aftur í föður- garð og getur síðan gifzt öðrum, sem henni fellur betur í geð. (Sjá Laxdælu og marga fleiri staði). Vegna þessa eru í norrænum heið- indómi svo fjölmörg dæmi um guð- móð konunnar og göfugar dáðir, og þess vegna finnst þar í fari henn- ar hrífandi tryggð, stöðuglyndi og kvenleg andans hreysti, sem er hlið- stæð staðfestu karlmannsins, fræknleika hans og rósömu sjálfs- trausti". Við höfum jafnvel fengið • siðferði hefndarinnar frá grikkjum, það sjáum við í Hómer, og kannski er ættfærsla okkar einn- ig þaðan komin þegar betur er að gáð. Platón gat a.m.k. rakið móður- ætt sína til sjávarguðsins Pósei- dons. Ættfærsla íslendinga sagna er einnig einatt með því marki brennd. Helzt hefðu þeir viljað vera komnir ef guðum. Bæði hellenar og rómveijar •fluttu út „hugmyndafræði ríkisstofnunar“, svoað ekki sé nú talað um gyðinga, og oftar en ekki er þessum „útflutningi“ pakkað inní táknmál, eða symbólisma, í bók- legri geymd. Allt á þetta eftir að opinberast enn betur og gera ís- lenzk miðaldafræði að spennandi og verðugu viðfangsefni, auk bók- menntanna. Það verður viðbót við fornritin og hún mun síður en svo rýra gildi þeirra. Þessi fræði munu stuðla að því að íslenzk menning verður það sem hún á skilið; mið- þyngdarstaður alþjóðlegra við- fangsefna. Lykill að áður lokuðum heimi einsog Einar Pálsson hefur komizt að orði! M. HELGI spjall REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 3. janúar Það SEGIR tölu verða sögu um þau um- skipti, sem orðið hafa i efnahagsmálum þjóðar- innar og afkomu ríkis- sjóðs á nokkrum árum, að nú liggur ríkisstjórn- in undir gagnrýni frá atvinnulífinu vegna þess, að afgangur af ríkissjóði sé ekki nægilega mikill og niður- greiðsla skulda ekki nægilega hröð. Það hefðu þótt nokkur tíðindi í upphafi þessa áratugar, þegar stjórnvöld áttu við að stríða tuga milljarða halla á ríkissjóði og lánsfjárþörf ríkisins var svo mikil, að hún ein út af fyrir sig hélt uppi vaxtastiginu með þeim afleiðingum, sem það hafði fyr- ir atvinnufyrirtæki og heimili. Þessar athugasemdir atvinnulífsins komu skýrt framy' Morgunblaðinu um ára- mót í greinum Ólafs B. Ólafssonar, for- manns Vinnuveitendasambands íslands og Kolbeins Kristinssonar, formanns Verzlun- arráðs íslands. Þannig sagði Ólafur B. Ólafsson m.a.: „Frá nóvember í fyrra til jafnlengdar í ár hefur atvinnuleysi minnk- að úr 4% af mannafla í 3%. Þetta er gríðar- leg breyting og er þess ekki að vænta að þetta hlutfall geti lækkað svo nokkru nemi. Þetta er enn ein vísbending um að hagkerf- ið sé við þenslumörk, þar sem veruleg hætta sé á miklu launaskriði, öðrum kostn- aðarhækkunum og verðbólgu. Hagvöxtur er við efri mörk og launahækkanir hafa sannanlega verið meiri en nokkurs staðar eru taldar samrýmanlegar stöðugu verð- lagi. Við slíkar aðstæður reynir mjög á stjórn- málamenn. Þeirra hlutverk er, að sporna gegn útgjaldaaukningu til að veija þjóðfé- lagið gegn verðbólguhættu. Ríkisvaldið verður að beita áhrifum sínum til að hamla gegn þenslu og fylgikvillum hennar. Eðli- leg viðbrögð væru að draga verulega sam- an seglin í útgjöldum ríkis og sveitarfé- laga, greiða niður skuldir og gefa atvinnu- lífinu tækifæri til að dafna án hættu á ofþenslu og verðbólgu. Það voru því sár vonbrigði, að Alþingi skyldi með af- greiðslu ijárlaga ákveða stóraukin útgjöld hins opinbera og jöfnuði væri náð milli tekna og gjalda með sölu eigna. Ríkissjóð- ur eykur því á þensluna en vinnur ekki gegn henni, það eru áhrifin af því að eyða meiru en aflað er. Það er þó sannanlega bæði mikilvægt og lofsvert, að ríkisstjórnin hefur einsett sér að selja ríkisfyrirtæki og þá einkum banka á næsta ári. En tekjurnar á ekki að nota til að auka rekstrargjöldin heldur til að grynnka á skuldum. Þannig minnka vaxtagjöld ríkissjóðs og þjóðhagslegur sparnaður ætti að geta vaxið. Raunar er fátt mikilvægara við núverandi aðstæður í efnahagslífinu en að efla sparnað og sparnaðarhneigð." Kolbeinn Kristinsson, formaður Verzl- unarráðsins tekur mjög í sama streng í yfirlitsgrein sinni hér í blaðinu um ára- mót. Hann sagði m.a.: „Á fyrri hluta árs- ins voru gerðir kjarasamningar, sem fólu í sér meiri kostnaðarhækkanir fyrir at- vinnulífið en það getur með góðu móti borið, meiri hækkanir en vænta má í sam- keppnislöndum okkar. Samhliða þessu hef- ur hinu opinbera ekki tekizt að hagræða nægjanlega og halli ríkissjóðs hverfur vegna aukinna tekna en ekki vegna þess að dregið hafi verið úr útgjöldum. Þetta hefur leitt til aukinnar spennu í hagkerf- inu, sem hætt er við að komi fram í meiri verðbólgu og jafnvel hækkun vaxta. Ástæða er til að óttast að nýgerðir kjara- samningar, lítið kostnaðaraðhald hjá hinu opinbera og skilningsskortur stjórnvalda á nauðsyn breyttra leikreglna í atvinnulífinu geti leitt til lakari afkomu fyrirtækjanna, minni fjárfestingar og verra efnahags- ástands, þegar frá líður. í þessum efnum snýr það fyrst og fremst að hinu opin- bera, bæði ríki og sveitarfélögum, að sýna aðhald í fjármálum sínum. Fyrirtækin í landinu hafa á undanförnum árum tekið vel til í sínum rekstri og halda áfram að auka framleiðni sína. Kominn er tími til að hið sama gerist hjá opinberum aðilum.“ Eins og sjá má er það býsna hörð gagn- rýni, sem fram kemur hjá tveimur helztu forystumönnum atvinnulífsins um þessar mundir á fjármálastjórn ríkisins. Ekki er ólíklegt, að hún endurspegli að einhverju leyti áhyggjur forrráðamanna fyrirtækja af því, að kjarasamningar síðasta árs hafi leitt til svo mikilla kostnaðarhækkana í rekstri fyrirtækja, að þau sjái annað hvort fram á umtalsvert minni hagnað eða að þau verði að gera nýjar ráðstafanir til að hagræða í rekstri sínum. Markaðurinn er harður húsbóndi og ekki sízt þau fyrir- tæki, sem skráð eru á Verðbréfaþingi, standa frammi fyrir ágengum kröfum um betri afkomu og aukinn arð, ella falla hlutabréf þeirra í verði. Veruleg verðlækkun á hlutabréfum er hins vegar talinn áfellisdómur yfir stjórn- endum fyrirtækjanna og þess vegna ganga þeir hart fram í að mæta kröfum markað- arins. Er eftirminnilegt í þessu sambandi að Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs hf., gagnrýndi hlutabréfamarkaðinn harð- lega fyrir nokkrum vikum vegna þess, að sársaukafullar aðgerðir til sparnaðar í rekstri fyrirtækisins leiddu til lækkunar á verði hlutabréfa í stað þess að hann taldi augljóst, að þær hefðu átt að leiða til hækkunar. Sanngjörn gagnrýni? SPYRJA MÁ HINS vegar hversu sann- gjörn gagnrýni for- ystumanna at- vinnulífsins er. í samtali, sem Morgunblaðið átti við Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra, skömmu fyrir jól kom fram, að hefðu sparnaðarað- gerðir ríkisstjórnarinnar á undanfömum árum ekki komið til sögunnar hefðu út- gjöld ríkisins verið 17 milljörðum króna hærri um þessar mundir en raun hefur orðið á. Og allir þeir sem fylgzt hafa með þjóðmálaumræðum á þessum áratug vita, hvers konar átök hafa staðið yfir ár frá ári til þess að draga úr útgjöldum hins opinbera. Davíð Oddsson, forsætisráðherra, lýsti fjárhagsstöðu og fjármálastjórn hins opin- bera með allt öðrum hætti í áramótagrein sinni hér í Morgunblaðinu en þeir Ólafur B. Ólafsson og Kolbeinn Kristinsson gera. Forsætisráðherra sagði m.a.: „Halli ríkis- sjóðs hafði orðið minni árið 1996 en menn höfðu spáð. Árið 1997 var afgangurinn á ríkissjóði meiri en nokkur hafði gert ráð fyrir. Skuldir jukust minna en menn höfðu óttazt 1996. Arið 1997 greiddum við skuld- ir ríkissjóðs niður hraðar en nokkur hafði þorað að vona.“ Og síðar í áramótagrein sinni sagði Davíð Oddsson: „Undirstöður gjaldmiðils okkar virðast vera traustar. Vaxandi neyzla og ófullnægjandi sparnaður lands- manna eru þó áhyggjuefni. Það hjálpar á hinn bóginn, að ríkissjóður er þannig rek- inn, að verulegir ijármunir verða afgangs á árinu, sem líður í dag og á hinu næsta og verða þeir notaðir til að greiða niður skuldir ríkissjóðs. Vaxtagreiðslur ríkisins munu því fara jafnt og þétt lækkandi og jafnframt nýtur íslenzka ríkið þess álits í efnahagsmálum að vextir af erlendum lán- um þess fara lækkandi. Minnkandi láns- fjárþörf ríkissjóðs og stofnana hans leiðir svo til lækkandi vaxta innanlands. Með varfærinni fjármálastjórn hefur einnig tek- izt að tryggja að forsendur þeirra skatta- lækkana, sem urðu í vor verða í fyrramál- ið og enn að ári liðnu.“ Hér er óneitanlega um mjög ólík við- horf að ræða. Það er auðvitað engin spurn- ing, að þær tvær ríkisstjórnir, sem setið hafa að völdum á þessum áratug hafa náð miklum árangri í að draga úr útgjöldum ríkisins og styrkja og efla fjármálastjórn hins opinbera. Með meiri rökum má halda því fram, að sveitarfélögin hafi ekki staðið sig sem skyldi. Hins vegar er ljóst, að þessi mikli árang- ur hefur aukið kröfur á hendur stjómvöld- um um enn betri árangur. Og kannski VIÐ SELTJARNARNES Morgunblaðið/Valdimar Sverrisson. hafa þau átt nokkurn þátt í að byggja upp væntingar um mun betri afkomu ríkissjóðs á hinu nýja ári en fjárlög gera ráð fyrir. Það er hins vegar áreiðanlega rétt, sem Davíð Oddsson segir í áramótagrein sinni hér í blaðinu á gamlársdag: „Líklegt er að í einkafyrirtækjum muni bera á hinu sama og hjá hinu opinbera, að úr aðhaldi dragi innan þeirra, þegar losnar um í efnahags- málum. Það er því nauðsynlegt fyrir for- ráðamenn fyrirtækja og starfsmenn þeirra að halda vöku sinni, vilji þeir tryggja þann árangur, sem þessir aðilar em að ná sam- eiginlega." „Stóra ágreinings- málið“ SVÖR HALLDÓRS Ásgrímssonar, for- manns Framsókn- arflokksins, við áramótaspurning- um Morgunblaðs- ins, sem birtust hér í blaðinu á gamlárs- dag, staðfesta þau breyttu viðhorf, sem augljóslega eru að verða innan Framsókn- arflokksins til kvótakerfísins og fiskveiði- stjórnunar. í svari formanns Framsóknarflokksins segir m.a.: „Stóra ágreiningsmálið hvað fiskveiðistjórnunina varðar, er hvort inn- heimta eigi almennt veiðileyfagjald í sjáv- arútveginum. Þeir sem fara fremstir með þær kröfur eru almennt þeir sömu, sem hafa barizt gegn kvótakerfínu á undan- förnum áratug. Ef grundvöllur verður til að innheimta almennt veiðileyfagjald í framtíðinni er það vegna þess, að kvóta- kerfinu var komið á . . . Vegna þeirrar miklu hagræðingar, sem orðið hefur í sjáv- arútveginum hefur reynzt mögulegt, að atvinnugreinin taki mun meiri þátt í sam- eiginlegum kostnaði en áður var. Launa- tengd gjöld hafa verið hækkuð til samræm- is við aðrar atvinnugreinar. Útgerðin greiðir kostnað vegna veiðieftirlits og veru- legt fjármagn rennur í Þróunarsjóð sjávar- útvegsins . . . Það hefur verið skoðun okkar Framsóknarmanna, að þá miklu hagræðingu, sem átt hefur sér stað í sjáv- arútveginum beri að nýta til að bæta kjör fólksins i landinu, byggja upp fískistofna og standa fyrir sókn hans á alþjóðavett- vangi . . . Með vaxandi fiskistofnum og sterkari stöðu sjávarútvegsins er alveg Ijóst, að greinin getur um lengri framtíð tekið meiri þátt í sameiginlegum kostnaði þjóðarinnar. Það á alls ekki að útiloka um alla framtíð en það verður að gerast af einhveiju raunsæi . . . Ég tel því, að kvótakerfið muni standa og eftir því, sem sjávarútvegurinn verði öflugri geti hann tekið meiri þátt í sameiginlegum kostnaði þjóðarinnar. Hann greiðir nú þegar mun meira en áður var gert og hlutdeild hans á eftir að vaxa nokkuð í þeim efnum, þeg- ar fram líða stundir. Áfram verður haldið á þeirri braut að sníða agnúa af kerfinu og næsta breyting, sem gera verður, mun líklega ganga í þá átt að takmarka fram- sal aflaheimilda meira en nú er gert, jafn- vel þótt það geti dregið úr möguleikum á hagræðingu í einstaka tilfellum.“ Þessi ummæli Halldórs Ásgrímssonar eru afar athyglisverð. Þau sýna í fyrsta lagi, að hann telur brýna nauðsyn bera til að útgerðin greiði meira í sameiginlegan sjóð, að hún hafi efni á því og að bolmagn hennar til þess muni aukast á næstu árum. í öðru lagi vill hann bersýnilega mæta þeirri gífurlegu gagnrýni, sem er meðal al- mennings á óbreytt kvótakerfi með því að takmarka framsal aflaheimilda meira en nú er gert. Þar með er komin upp afar áhugaverð spuming, sem getur leitt kvótaumræðumar í alveg nýjan farveg og hún er þessi: Tals- menn útgerðarinnar hafa jafnan haldið því fram, að fijálst framsal aflaheimilda væri lykillinn að því að ná aukinni hagræðingu í sjávarútvegi. Vel má vera, að þeir hafí rétt fyrir sér í þeim efnum. Nú horfast þeir í augu við þá staðreynd, að Framsóknar- flokkurinn vill mæta gagmýni á mestu eignatilfærslu, sem orðið hefur í ellefu hundmð ára sögu íslenzku þjóðarinnar með því að takmarka frelsið til framsals. Hvort telja þeir betri kost að fallast á það eða samþykkja þau sjónarmið, sem Morgunblað- ið hefíir barizt fyrir, að þeir greiði veiðileyfa- gjald en framsalið verði frjálst? Og önnur áhugaverð spurning er þessi: Ef tekið er mið af grundvallarsjónarmiðum Sjálfstæðisflokksins í málefnum atvinnu- lífsins almennt má ætla, að stæði Sjálf- stæðisflokkurinn frammi fyrir þessari spurningu, mundi flokkurinn telja betri kost að atvinnugreinin borgaði fyrir að- gang að fiskimiðunum en hefði fullt frelsi til þess að stunda viðskipti með þær afla- heimildir þegar slíkt gjald hefði verið greitt. Er hér hugsanlega að koma upp hefðbundinn ágreiningur á milli Sjálfstæð- isflokks og Framsóknarflokks, þar sem hinn síðarnefndi kýs frekar þá leið sem dregur úr frelsi en eykur höft en hinn fyrrnefndi hljóti að velja leið fijálsræðis í viðskipta- og atvinnulífi? STEFNA ALÞÝÐU bandalagsins í fisk- veiðistjórnunar- málum er að verða mjög afdráttarlaus eins og hún er túlk- uð af formanni flokksins, Margréti Frímannsdóttur, í svörum hennar við ára- mótaspumingum Morgunblaðsins. For- maður Alþýðubandalagsins sagði m.a. í Morgunblaðinu á gamlársdag: „Það er óumflýjanlegt að breytingar verði á kvótakerfinu. Almenningi er mis- boðið af því kerfí, sem nú er í gildi og leitt hefur af sér eina mestu eignatilfærslu sem átt hefur sér stað í sögu þjóðarinn- ar . . . Það er alveg ljóst, að við getum aldrei sætt okkur við, að arðurinn af sam- eiginlegri auðlind okkar safnist á fárra manna hendur . . . Tilrauninni með kvótakerfíð, sem hófst fyrir tæpum fjórtán árum verður að fara að ljúka. Gallar þess eru það miklir að endurskoða verður stjórn- kerfí fiskveiða frá grunni í stað þess að reyna áfram að staga í stærstu götin. Það er fullkomlega eðlilegt, að þeir sem nýta þessa verðmætu auðlind þjóðarinnar greiði fyrir það sanngjarnt gjald og sama er að segja um þá, sem nýta aðrar auðlindir, sem eru^ í sameign þjóðarinnar." Á vegum Álþýðubandalagsins er nú unnið að endurskoðun á stefnu flokksins í sjávarútvegsmálum og er búizt við, að niðurstaða liggi fyrir á miðju þessu ári. Afstaða Margrétar Frímannsdóttur er mik- ilvæg og sú stefnubreyting, sem augljós- lega er í aðsigi hjá Alþýðubandalaginu, alveg eins og hjá Framsóknarflokknum, er lykilþáttur í þróun kvótaumræðnanna. Afdráttar- laus afstaða Alþýðu- bandalags „Þar með er komin upp afar áhugaverð spurning, sem get- ur leitt kvótaum- ræðurnar í alveg nýjan farveg og hún er þessi: Tals- menn útgerðarinn- ar hafa jafnan hald- ið því fram, að frjálst framsal afla- heimilda væri lyk- illinn að því að ná aukinni hagræð- ingu í sjávarútvegi. Vel má vera, að þeir hafi rétt fyrir sér í þeim efnum. Nú horfast þeir í augu við þá stað- reynd, að Fram- sóknarflokkurinn vill mæta gagnrýni á mestu eignatil- færslu, sem orðið hefur í ellefu hundruð ára sögu íslenzku þjóðarinn- ar, með því að tak- marka frelsið til framsals. Hvort telja þeir betri kost að fallast á það eða samþykkja þau sjónarmið, sem Morgunblaðið hef- ur barizt fyrir, að þeir greiði veiði- leyfagjald en fram- salið verði frjálst?“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.