Morgunblaðið - 04.07.1998, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 04.07.1998, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ JRttgtiiifrlafrtfr STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. TUNGAN I HEIMI TÖLVUNNAR ÞAÐ FÓR PÁ aldrei svo að Bill Gates, einn ríkasti maður heims, hefði ekki eitthvað um örlög íslenskrar tungu að segja, okkar dýrasta fjársjóðs. Gates er raunar ekki aðeins einn ríkasti maður heims heldur líka einn sá valdamesti þar eð hann á og stjórnar mesta tölvurisa heims, Microsoft, fyrir- tæki sem segja má að móti að nokkru leyti heimsmynd og hugsun stórs hluta mannkyns með hugbúnaði sínum. Óg þeg- ar þessi risi hefur lagst ofan á íslenska tungu af öllum sínum þunga og hefur ekki látið haggast fyrr en nú hefur vissulega verið ástæða til að óttast um örlög hennar, því ef íslenska er ekki gjaldgengt mál í risalandi verður væntanlega ekki langt að bíða þess að það verði undir hér í puttalandi. Allt þar til í gær benti fátt til þess, að Microsoft legði út í kostnað við að þýða Windows 98 á íslensku, eins og greint hefur verið frá í fréttum hér í Morgunblaðinu undanfarna daga. Ástæðurnar hafa einkum verið tvær: íslenski markað- urinn er lítill og að auki kaupa íslendingar hlutfallslega miklu minna af löglegum hugbúnaði en aðrir Norðurlandabú- ar. Við getum lítið gert við því þótt við séum lítil en það er hins vegar óafsakanleg nesjamennska og skammsýni að halda að við komumst upp með að stela dýrmætum hugbún- aði hvað eftir annað, sennilega hafa menn talið að þetta væri hægt að gera í skjóli smæðar okkar en því er þveröfugt farið, eins og nú hefur komið á daginn. Islendingar verða að snúa vörn í sókn í þessu máli með öll- um tiltækum rökum. Það verður að gera tölvurisanum grein fyrir því að hér gæti verið um framtíð íslenskrar tungu að tefla, tungu sem geymir meðal annars einar merkustu mið- aldabókmenntir Evrópu. I samtali við Morgunblaðið í gær sagði Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, að upplýsingar hefðu borist um að afstaða umboðsaðila Microsoft á Norður- löndum hefði mildast til íslenskuþýðingarinnar. Hann benti ennfremur á að umfjöllun í Los Ángeles Times og í heims- þjónustu breska ríkissjónvarpsins BBC gæfi til kynna að er- lendir fjölmiðlar hefðu áttað sig á því að kröfur okkar væru sanngjarnar. Og í gærkvöldi skýrði menntamálaráðherra frá því að nýjustu fréttir bentu til þess, að Microsoft hefði nú meiri áhuga en áður á þessu máli, sem skiptir okkur miklu. Væntanlega verður það til þess að þetta mál fái farsælan endi. ÓLYMPÍULEIKAR í EÐLISFRÆÐI LYMPÍULEIKARNIR í eðlisfræði, hinir 29. í röðinni, voru settir í Reykjavík í gær. Þeir eru árleg keppni framhaldsskólanemenda í kennilegri og verklegri eðlisfræði. Upphaflega voru leikarnir einungis keppni fimm Austur-Evr- ópuþjóða, en nú taka þátt keppnislið frá 56 löndum. Þátttak- endur, það er keppnislið ásamt fylgdarliði, telja um 500 manns, enda eru þetta fjölmennustu leikarnir til þessa. íslendingar hafa tekið þátt í Ólympíuleikunum frá árinu 1984 og eru nú í fyrsta skipti gestgjafar þessara miklu leika. Aðdragandinn að því að menn halda leikana hérlendis er langur. Hann má rekja allt til ársins 1990, þegar þáverandi menntamálaráðherra, Svavar Gestsson, tók ákvörðun um að ísland yrði gestgjafi í ár. Menntamálaráðuneytið er opinber gestgjafi leikanna og því kom það í hlut Björns Bjarnasonar að setja þá í gær. I umboði ráðuneytisins starfar síðan fram- kvæmdanefnd undir forystu Þorsteins I. Sigfússonar prófess- ors, en auk þess sitja í nefndinni fulltrúar frá Háskóla Is- lands, Reykjavíkurborg, Eðlisfræðifélagi íslands og Félagi eðlisfræðikennara. Ennfremur hafa fjölmargir aðilar, bæði fyrirtæki og stofnanir, komið að undirbúningi leikanna. Morgunblaðinu hefur verið það mikil ánægja þau ár, sem ís- lenzkir framhaldsskólanemar hafa tekið þátt í þessum Ólympíuleikum, að hafa verið styrktaraðili íslenzku þátttak- endanna. Þátttakendurnir í Ólympíuleikunum hafa verið valdir til keppninnar vegna afburða frammistöðu í keppni í eðlisfræði í heimalöndum sínum. Keppendur eru allir yngri en tuttugu ára og fararstjórar keppenda eru virtir eðlisfræðingar og meðal forystumanna á sviði eðlisfræðikennslu. Það að Ölymp- íuleikarnir eru haldnir á Islandi er áreiðanlega mikil lyfti- stöng fyrir eðlisfræðiiðkun hérlendis og hvetur ungt fólk til lærdóms í raungreinum. Þá hljóta leikarnir einnig að verða raungreinakennslu á Islandi mikil lyftistöng. Því ber að fagna. HARVARD UNIA JOHN F. OOL OF TANSU Ciller, fyrrura forsætisráðherra Tyrklands, og Benazir Bhutto, fyrru! ast með kossi að loknum fyrsta fundi Ráðs kvenleiðtoga við Harvard-háskóla i bogadóttir, fyrrverandi forseti íslands, og Hannah Suchocka, fyrrum forsæ Konur leiðtogas Konur er gegnt hafa leiðtogaembættum mynduðu fyrir skömmu með sér samtök, Ráð kvenleiðtoga, er héldu fyrsta ársfund sinn fyrr á þessu ári. Er markmið ráðsins að efla hlut kvenna í æðstu embættum og styðja við bak ungra kvenna er hyggja á leiðtogastörf. Steingrímur Sigurgeirsson ræddi við Vigdísi Finnbogadóttur, forseta ráðsins, og Lauru Liswood, framkvæmda- stjóra þess. GRUNNURINN að stofnun ráðsins var lagður á kvennaþingi er haldið var í Stokkhólmi í maí 1996 og bar yfirskriftina „Leiðtogastörf ‘ (Leadership). Þingið var skipulagt af bandarískum aðilum og var Laura Liswood í forystuhópi þeirra. I hópi þeirra er boðið var til þingsins voru allar þær konur er höfðu gegnt emb- ætti forsætisráðhera eða forseta. Einnig var boðið til þingsins fjöl- mörgum konum úr atvinnulífínu og víðar til að fá nasasjón af því hvernig það væri að gegna leiðtogaembætti. Vigdís Finnbogadóttir segir að hún og Mary Robinson írlandsforseti, er báðar voru þá brátt að fara að láta af embætti, hefðu ræðst við fyrir þingið og ákveðið að taka þátt í umræðum þar. „Þarna komu menn úr æðstu stöð- um til að ræða við konur en það var aldrei talað beint um kvenréttindi. Mergurinn málsins var að sýna og sanna fyrir konum að þær geti verið leiðtogar og leiðbeina í þeim málum,“ segir Vigdís. „Við, sem höfðum gegnt störfum af þessu tagi, höfðum með okkur sérfundi, er voru mjög skemmtilegir og þar var rætt um ástand heimsins." Á þessum fundum vaknaði sú hug- mynd að konur er gegnt höfðu leið- togaembætti mynduðu með sér sam- tök en karlar er gegnt hafa leiðtoga- embætti hafa um árabO átt með sér slík samtök og nefnast þau Inter- Action. Var ákveðið að hin nýju sam- tök hlytu nafnið Ráð kvenleiðtoga eða Council of Women World Leaders. Laura Liswood, framkvæmda- stjóri stefnunnar í Stokkhólmi, starf- aði áfram að framgangi mála. Hún hafði tengsl við Harvard Business School og varð úr að stjórnmála- fræðideild skólans, John F. Kennedy School of Govemment, bauðst til að taka samtökin að sér og veita þeim aðstöðu. Vigdís segir það hafa verið gríðar- lega mikilvægt að fá Harvard-há- skóla í lið með samtökunum. „Við höfðum reyndar fyrst hugsað okkur að hafa aðsetur í Stokkhólmi en Stokkhólmur hefur ákveðna lýðræð- isímynd í huga fólks. Samtök sem þessi verða að vera sýnOeg og Stokk- hólmur hefði verið kjörinn vettvang- ur. Borgin treysti sér hins vegar ekki til að taka þetta að sér þar sem það er kostnaðarsamt að hýsa starfsemi af þessu tagi. Hins vegar buðu Hollendingar okkur að koma og hafa aðsetur í Hollandi. Er hér var komið sögu segir Vig- dís að Harvard-háskóli hafi haft fregnir af því að samtökin væru að leita að aðstöðu en um svipað leyti hafði Vigdísi verið boðið að vera með tímasetu í JFK School of Govern- ment og halda fyrirlestra um leið- togamál fyrir konur. Fyrir tilstiOi Liswood hafi náðst samkomulag við Harvard og skólinn breitt út fangið og tekið ráðið í sína arma. Vigdís segir að það hafi ekki síst verið í ljósi þess að Harvard-háskóli ætli sér að vera leiðandi háskóli í framtíðinni á þessu sviði og stefni að því að konur geti numið hjá þeim leiðtogastörf og hvernig eigi að vinna þau. „Þeir vilja skapa sér þá ímynd að þeir séu skólinn sem konur eigi að leita til þegar þær vilja nema þau fræði sem gagnast þeim til leiðtoga- starfa.“ Að sögn Liswood hentar þetta samtökunum jafnframt mjög vel, þar sem þarna gefist kjörið tækifæri til að ná til kvenna er hyggi á leiðtogastörf í framtíð- inni. Hún tekur jafnframt fram að það hafi verið gert að skilyrði af hálfu Vigdísar að karlar myndu einnig tengjast þessu starfi, það yrði ekki bundið við konur einvörðungu. Var því stofnaður ráðgjafahópur í tengslum við ráðið og leitað til fjöl- margra karla í leiðtogastörfum í því sambandi. Vigdís segir ástæðuna íyrir þessu skilyrði hafa verið að konur hefðu rætt mikið og lengi innbyrðis um sín mál. Nú væri kominn tími til að kon- ur og karlar töluðu saman. „Það kom líka á daginn að þegar við fórum að leita til þekktra karla í heiminum urðu þeir fjarska glaðir, fannst þetta vera gullhamrar og voru mjög reiðu- búnir að vera með. Þarna eru komnir margir mektarmenn sem við erum í góðu sambandi við.“ í apríllok var síðan haldinn fyrsti leiðtogafundurinn á vegum ráðsins við Harvard-háskóla í Boston, þar sem kom saman hópur kvenna er gegnt hafði leiðtogastörfum. Meðal þeirra kvenna sem sátu fundinn má nefna Felicity Gordon, forsætisráð- herra Bermúda, Kim Campbell, fyiT- um forsætisráðherra Kanada, Eu- geniu Charles, fyi’rum forsætisráð- herra Dóminíska lýðveldisins, Vi- oletu B. ChamoiTO, fyrrum forseta Nicaragua, Tansu Ciller, fyrrum forsætisráðherra Tyrklands, Kazimieru Prunskiene, fyrrum for- sætisráðherra Litháen, Hönnu Suchocka, fyn-um forsætisráðherra Póllands, og Ben- azir Bhutto, fyrrum forsætisráð- herra Pakistan. Fundurinn stóð í tvo daga og segir Liswood að þar hafi verið samþykkt- ar sjö leiðir til að ná fram markmið- um samtakanna. Nefndi hún sem dæmi að haldinn yrði árlegur leið- togafundur; ráðið myndi miðla af reynslu sinni til kvenna er næðu kjöri í leiðtogastörf; ráðið myndi gera allt sem í valdi þess stæði til að aðstoða og hvetja ungar konur til að sækjast eftir æðstu embættum ríkis- stjórna og tekin yrði saman reynsla þeirra kvenna er þegar hefðu gegnt slíkum embættum. Liswood segir að einhver mesta hvatning sem konur geti fengið sé að sjá dæmi þess að konur hafi og geti gegnt slíkum störfum. Nefnir hún sem dæmi að reynsla Vigdísar hafi þegar orðið mörgum ungum konum mikil hvatning. Hún segir mjög athyglisvert fyrir sig sem Bandaríkjamann að fylgjast með starfi kvenna á Norðurlöndum en líklega sé hlutfall kvenna í stjórn- sýslu hvergi meira og margt megi læra af krafti og öryggi norrænna kvenna. í Bandaiíkjunum hafi vissu- lega miðað mikið áfram en enn sé hlutfall kvenna í opinberum leiðtoga- embættum ekki hátt þótt það hafi aukist. Hún segir aðspurð að alls ekki sé lengur óhugsandi að kona muni gegna forsetaembætti. Hins vegar hafi flestir forsetar Bandaríkj- anna komið úr röðum ríkisstjóra, öldungardeildarþingmanna eða úr liernum. I þeim stofnunum sé hlut- fall kvenna í æðstu stöðum hins veg- ar því miður ekki hátt. I framhaldi af fundi ráðsins í Boston var Vigdísi boðið að koma á fund hjá Inter-Action-samtökunum í Ríó de Janeiro og fór hún þangað ásamt Lauru Liswood. Á Ríó-fundin- um lét Helmut Schmidt, íyrrum kanslari Þýskalands af forsetaemb- Þátttaka Harvard mikilvæg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.