Morgunblaðið - 04.07.1998, Page 52
52 LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
OLIVIA Newton-John var óþekkjanleg í skvísufötunum og
samstarfsmenn hennar blístruðu á eftir henni án þess að
þekkja hana.
Fann aðal-
leikkonuna
í matarboði
Arið 1974 fór maður að nafni Allan Carr
að sjá söngleikinn „Grease“ á Broadway.
Sýningin heillaði hann svo mikið að tveim-
ur árum seinna keypti hann kvikmynda-
réttinn að leikritinu. Rakel Þorbergsdótt-
ir talaði við framleiðanda og handritshöf-
und hinnar geysivinsælu kvikmyndar.
- HVER er munurmn á kvikmynd-
inni ogleikritinu?
„Kvikmyndin er nokkurs konar
draumsýn um menntaskólaárin á
mjög dæmigerða ameríska vísu.
Þrátt fyrir það naut hún gífurlegra
vinsælda um allan heim enda er
Ridell High menntaskólinn sem við
hefðum öll viljað vera í. í leikritinu
voru bara „grease“-töffarar en við
fluttum myndina út í úthverfi og
gerðum krakkahópinn fjölbreyttari.
Auk þess bættum við lögum og atrið-
um inn í myndina sem ekki voru í
leikritinu.“
-Af hverju var ákveðið að gefa
myndina út aftur?
„Astæðan fyrir því að myndin var
endurútgeíln er sú að eftirspumin í
kvikmyndahúsum hefur haldist í
tuttugu ár. Endurútgáfan er með
nýjum litum auk þess sem við bætt-
um hljóðið því hljómgæði hafa aukist
gífurlega síðustu tvo áratugi. Bættur
hljómburður skiptir ótrúlega miklu
máli og á forsýningu endurútgáfunn-
ar dansaði fólk í bíóhúsinu. Eigin-
kona Arnolds Schwarzeneggers
reyndi til dæmis ítrekað að fá hann
út á gólfið.“
- Af hverju ætti fólk að fara aftur
á „Grease“ núna?
„Myndin er að sjálfsögðu sú sama
en hún hefur aldrei litið jafnvel út
eða hljómað jafnvel og núna.“
- Var langur aðdragandi að nýju
útgáfunni?
„Ég fór að vinna að henni fyrir
einu og hálfu ári en miðaði við að
hún kæmi út á tuttugu ára afmæli
sínu. Fyrir utan Star Wars myndirn-
ar hafa endurútgáfur af kvikmynd-
um ekki gengið vel. Það þurfti því
aðeins að sannfæra mig um ágæti
þess að gefa „Grease" aftur út.“
Nýja útgáfan hefur hins vegar geng-
ið mjög vel og hefur þénað um 50
milljónir dollara á heimsvísu sem er
frábært.“
-Hvernig gekk að fínna leikar-
ana?
„Ég vildi John Travolta strax í
upphafi. Hann hafði leikið lítið hlut-
verk í uppfærslunni á Broadway og
það var draumur hans að leika
Danny Zuko. Travolta var lítt þekkt-
ur því það var ekki búið að frumsýna
„Saturday Night Fever“ þegar hann
var ráðinn. Það var því ljóst að fyrst
aðalkarlleikarinn væri óþekktur
þyrftum við einhverja fræga konu á
móti honum. Hún þurfti að vera fal-
leg, geta sungið og dansað og verið
hvort tveggja saklaus og eggjandi í
senn. Þá stúlku var mjög erfitt að
finna og eftir langa og mikla leit fór
ég í matarboð tU vinafólks míns. Þar
var ung áströlsk söngkona sem var
heillandi, hlý, skemmtileg og full af
fjöri, Olivia Newton-John. Undir lok
kvöldsins bauð ég ég henni aðalhlut-
verkið í „Grease“ en hún var í vafa
og bað um að fá prufutöku. Ég sagði
að venjulega væru það kvikmynda-
verin sem færu fram á prufutökur en
ekki leikararnir. Hún var ákveðin og
sagðist ekki taka hlutverkið að sér
nema eftir prufutöku því hún hefði
áður leikið í kvikmynd og var
óánægð með þá útkomu.
Þetta er sennilega í eina skiptið í
kvikmyndasögunni sem leikkona fer
fram á prufutöku. Þetta er algjört
einsdæmi. Hún fékk prufutökuna og
við sögðum John frá því að hún væri
taugaóstyrk og í vafa hvort hún gæti
þetta. Hann lagði sig allan fram um
að gera þetta sem auðveldast fyrir
hana, var léttur og hress og fékk
hana til að slaka á. Þau tóku atriðið í
bílabíóinu þar sem hún skellir bíl-
hurðinni og rýkur í burtu og það var
fullkomið. Við hefðum getað notað
tökuna í myndinni því hún tókst svo
vel. Það var því engin spurning um
að Olivia hentaði fullkomlega í hlut-
verk Sandyar.
Olivia og John smella frábærlega
saman á hvíta tjaldinu og á milli
þeirra eru þessir réttu straumar sem
gera þau sérstök og heillandi sam-
an.“
- Við hvað starfaðir þú áður en
„Grease" varð til?
„Ég var umboðsmaður fólks í
skemmtanaiðnaðinum áður en ég
gerði „Grease“ og hef gert tvær
myndir síðan. Sú fyrri var „The
First Time“ með Jaqueline Bisset en
hin var „C.C. & Company" með Ann-
Margret."
- Hversu miklu fær framleiðandi
að ráða við gerð kvikmyndar?
„Samband leikstjóra og framleið-
anda er mjög misjafnt eftir myndum
en í þessu tilfelli voru völdin að
mestu hjá mér. Ég keypti sjálfur
réttinn að kvikmyndinni og lagði
fram eigið fé. Ég skrifaði líka hand-
ritið upp úr leikritinu og því er mín
sýn á heildarhugmyndina ráðandi.
Ég réð leikstjórann og dansstjórn-
andann og við mynduðum gott
teymi.
- Myndin er því eins og tvítugt af-
kvæmi þitt?
„Já, það má eiginlega segja það.
Ég bjóst aldrei við því að tveimur
áratugum síðar yrði tU nýr áhorf-
endahópur og ný kynslóð aðdáenda
„Grease."
- Heldur þú að gerð verði söngva-
mynd sem slái„Grease“ út ívinsæld-
um?
„Það er mjög erfitt að finna sögu
sem myndi ganga jafnvel og þessi en
ég hef leitað lengi. Ég vona svo
sannarlega að hún fínnist einhvern
daginn og ég myndi gjarnan vilja
gera þá mynd. Söngleikir eru mjög
dýrir í framkvæmd og það hefur líka
áhrif.“
-Ertu að vinna að kvikmynd í
augnablikinu?
„Já, ég er að fara að gera róman-
tíska gamanmynd fyrir Paramount
kvikmyndaverið sem heitir „Per-
sonal Shopper". Við erum að klára
handritið og erum með nokkrar
stjörnur í sigtinu."
HIN saklausa Sandy með „Bleiku dömunum" í náttfatapartýi.
ALLAN Carr með þeim Oliviu Newton-John og John Travolta við tök-
ur á „Grease“.
u ^ndalKleiser,
ráöia^ —